Morgunblaðið - 24.08.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
27
Afarkostir íþrótta-
hreyfingarinnar
eftir Halldór Sigurðsson
Það er að bera í bakkafullan
lækinn að skrifa frekar um samn-
inga íþróttahreyfingarinnar við
einstök atvinnufyritæki.
Það er skiljanlegt að fjárvana
íþróttahreyfingin reynir á allan
hátt að verða sér úti um rekstrar-
fé eða komast í aðstöðu sem gerir
íslensku íþróttafólki kleift að
stunda íþrótt sína hér heima og að
heiman án þess að félagslífið snú-
ist mestmegnis um peningaað-
drætti, en ekki um íþróttina
sjálfa. Sem betur fer hefur að
undanförnu vaknað skilningur hjá
ýmsum stöndugum og velmetnum
fyrirtækjum að hlaupa undir
bagga með íþróttafólki, væntan-
lega eftir beiðnum frá einstökum
einingum innan ÍSf.
En það er leitt til þess að vita að
sjálf yfirstjórn allra íþróttamála á
íslandi, þ.e. að íþróttasamband Is-
lands, láti glepja sig til undir-
skriftar samnings við Flugleiðir
hf., sem er svo skilyrtur að hann
bannar öllu íslensku íþróttafólki
að ferðast til útlanda öðruvísi en
með flugvélum Flugleiða, jafnvel
þó vitanlega séu til staðar ódýrari
kostir á almennum markaði en
þeir sem tilgreindir eru í samningi
ISÍ og Flugleiða hf.
Samningurinn sem birtur er í
heild sinni í Mbl. 19. ágúst sl. segir
í upphafi orðrétt:
Flugferðir íþróttafólks á vegum
ÍSÍ, sersambanda ÍSÍ, héraðssam-
banda ÍSl og einstakra íþróttafé-
laga innan ÍSÍ fari fram með flug-
vélum Flugleiða frá og til ís-
lands..
Tilv. lokið.
Við hjá Arnarflugi gerum ráð
fyrir að knattspyrnulandsliðið á
leið til Hollands hafi verið að
þóknast þessu ákvæði þegar þeir
tóku það ráð að fljúga um London
fyrir hærra fargjald en býðst á
almennum markaði í beinu flugi
til Amsterdam eða Dusseldorf,
þar sem flestir af hinum íslensku
landsliðsmönnum sem starfa er-
lendis dvelja.
Fjórða grein samningsins um
hótel er einnig athyglisverð. Þar
stendur:
ISl mun beita áhrifum sinum til
að innlent og erlent íþróttafólk,
sem þarf á gistingu að halda í
Reykjavík muni að öðru jöfnu
gista á Hótel Esju og Hótel Loft-
leiðum...
Tilv. lokið.
Hvað segja aðrir hótelrekendur
við þessu?
Er ekki með samningum sem
þessum farið að höggva nærri 4.
kafla laga nr. 56/ 1978 um sam-
keppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti, en 4. kafli laganna
fjallar um markaðsráðandi fyrir-
tæki.
Að lokum segir í samningi
íþróttasambands Islands og
Flugleiða hf:
Ef í ljós kemur að ákvæðum
hans (samningsins) er ekki fylgt,
geta báðir aðilar rift honum fyrir-
varalaust í heild og Flugleiðir hf.
gagnvart einstökum aðilum innan
Málverkasýningu framlengt
MÁLVERKASÝNINGU Ólafar E.
Kristjánsdóttur Wheeler í Nýja
Galleríinu að Laugavegi 12 hefur
nú verið framlengt vegna mikillar
aðsóknar. Átti sýningunni að Ijúka
síðastliðinn sunnudag en lýkur
þess í stað á morgun, fimmtudag.
kl. 23.00, en einnig les Ólöf upp úr
bók sinni „Óperan Loretta" á
fimmtudagskvöld. Síðustu sýn-
ingardagana, í dag og á morgun, er
aðgangur ókeypis, en sýningin er
opin frá kl. 14.00—22.00.
ÍSÍ...
Fróðlegt væri að vita hvort
margumrætt nbrot“ Frjálsíþrótta-
sambandsins hafi orðið til samn-
ingsslita milli ÍSl og Flugleiða.
Halldór Sigurðsson er markaðs- og
sölustjóri Arnarflugs hf.
Fokker-flugvél Flugleiða í fyrsta skipti á flugvellinum við Stykkishólm í gær.
Ljósm.: Árni Helnason.
Fokker-vél til
Stykkishólms
Stykkishólmi.
I GÆR lenti á flugvellinum í Stykk-
ishólmi Fokker Friendship-vél frá
Flugleiðum og Twin Otter-vél frá
Flugfélagi Norðurlands. Er þetta í
.fyrsta skipti sem svo stór vél sem
Fokker-vélin lendir á Stykkishólms-
flugvelli og var margt um manninn
að taka á móti, enda stórviðburður í
lífi Hólmara. Tilefni flugs þessa er
ráðstefna hóps erlendra ritstjóra á
vegum International Press Institute
hér á landi. Flugleiðir hafa tekið að
sér að sjá um framkvæmd ráðstefn-
unnar og í því felst m.a. þessi skoð-
unarferð um Snæfellsnes. Hópurinn
telur um 70 manns, og þessvegna
farið á svo stórri vél. FÍugu 50 með
Fokker-vélinni og 20 með Twin
Otter-vélinni. Biðu vélarnar fyrir
vestan meðan á skoðunarferð hóps-
ins stóð. Fyrirhugað hafði verið að
gefa heimamönnum kost á útsýnis-
flugi en af því varð ekki vegna veð-
urs.
Söngnámskeið
hjá Guðrúnu
A. Símonar
GUÐRÚN Á. Símonar, óperu-
söngkona, mun á næstunni halda
námskeið fyrir söngfólk og mun
hún kenna söng og raddþjálfun.
Guðrún Á. Símonar hefur haldið
slík námskeið um árabil og hafa
margir leikmenn sem lærðir notið
tilsagnar hennar.
Úrslit í Reykjavíkurmóti barnanna
Á REYKJAVÍKURMÓTI barnanna var keppt í tveim flokkum í
10 keppnisgreinum. Úrslit urðu þessi:
Snú-Snú
Yngri: Hildur Einarsdóttir
Eldri: Brynja Hauksdóttir
Sipp
Yngri: Jóhanna B. Ingadóttir
Eldri: Anna Hermannsdóttir
Hitta bolta í mark
Yngri: Frans Gunnarsson
Eldri: Viðar Ragnarsson
Reiðhjólakvartmíla
Yngri: Steingrímur Bjarnason
Eldri: Breki Karlsson
Kassabílarall
Yngri: Guðraundur Sigfússon
Kári Þór Guðjónsson
Eldri: Birgir Árnason
Árni Már
Skalla bolta á milli
Yngri: Geir S. Jónsson
Darri Johanssen
Eldri: Styrmir Bragason
Rúnar Sævarsson
Halda bolta á lofti
Yngri: Ingi Tandry
Eldri: Hafliði Lárusson
100 m hlaup
Yngri: Kristín Ólafsdóttir
Eldri: Eiður Eysteinsson
Labba á grindverki
Yngri: Erna Magnúsdóttir
Eldri: Birna Einarsdóttir
Húlla
Yngri: Ellen Mörk
Eldri: Katrín Ingvadóttir
Steinunn H. Blöndal
Kajaksróðrarkeppni
10 ára: Sturla Ómarsson
11 ára: Mitchelle Jónsdóttir
12 ára: Bjarni Þór Þormóðss.
IGNIS
ódýr og vönduð heimilistæki
ARMÚLA8 S-19294