Morgunblaðið - 24.08.1983, Síða 37

Morgunblaðið - 24.08.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983 37 Minning: Erich Hiibner verkstjóri Fæddur 8. nóvember 1925. Dáinn 13. ágúst 1983. í dag er borinn til hinztu hvíld- ar Erich Hiibner, verkstjóri, náinn samstarfsmaður minn í umsýslu- deild Islenzka álfélagsins hf. í Straumsvík, og góður vinur. Það var á laugardagskvöldi, að mágur Erichs, Þórður Finn- björnsson, flugstjóri, hringdi í mig. Rödd hans var það þung, að ég fann strax á mér að eitthvað alvarlegt væri í aðsigi. Hann sagð- ist hafa slæmar fréttir að færa. Ég spurði, hvort það væri í sam- bandi við Erich. Svo væri, svaraði hann, Erich hafði dáið um daginn í Newcastle. Ég varð agndofa, svo þungt var höggið. Einu sinni enn hafði dauðinn bankað að dyrum okkar, í þetta skipti afar nærri mér. Þá rann upp fyrir mér kvæði eftir Ludwig Uhland, þýzkt skáld, sem sungið var talsvert mikið úti á stríðsárunum við jarðarfarir fallinna hermanna: „Ich halt’ einen Kameraden, Einen bessern findst du nit. Die Trommel schlug zu Streite; Er ging an meiner Seite, In gleichem Schritt und Tritt." Við Erich störfuðum saman í tæp 15 ár, „in gleichem Schritt und Tritt", vorum samherjar í beztu meiningu orðsins, enda af sömu kynslóð, með sama hugarfar og sama bakgrunn, en hann ís- lenzkur í móðurætt, ég þýzkur. „Eine Kugel kam geflogen; Gilt’s mir oder gilt es Dir? Ihn hat es weggerissen; Er lag zu meinen Fiissen, Als wár’s ein Stuck von mir.“ Þannig varð mér innanbrjósts, „als wár’s ein Stuck von mir“. Það var þó ekki byssukúla eins og í ofangreindu kvæði, sem batt enda á líf Erichs, heldur varð hann bráðkvaddur, er hann var rétt að hefja sumarfrí. Miðvikudaginn 10. ágúst fórum við Tómas og Þórhildur inn í Sundahöfn til að fylgjast með ms. Eddu og til að kveðja Erich og Halldóru, konu hans. Við fundum þau í biðröðinni, á nýlökkuðum bíl, tilbúin til brottfarar. Erich var hress og kátur eins og oftast nær. Engin merki sáust á honum, sem gátu bent til ógæfu. Við spjölluðum saman smástund, um vinnu og annað, og kvöddumst í vinsemd og vissu um að hittast bráðum aftur. Svo varð þó ekki. Frá því að ég frétti um andlát Erichs, hef ég forðast eftir megni að hugsa til þess, hvernig Hall- dóru leið þennan laugardag, en fann til mikillar samúðar. Það var mér þó huggun að vita, að Tryggvi, yngri sonur þeirra, var hjá henni úti í Englandi. Erich var aðeins 57 ára gamall þegar hann dó. Eftir öllum lög- málum líkindareiknings átti hann langt eftir. Hann var kátur, hress, laus við þunglyndi, hugurinn full- ur af framtíðaráætlunum, og hann átti mörg áhugamál. Allt benti til þess að hann ætti mörg ár eftir. Erich fæddist 8. nóvember 1925 í Elberfeid í Þýzkalandi. Faðir hans, síðar hóteleigandi, var Þjóð- verji, en móðir hans íslenzk. Erich gekk í barnaskóla í Reykjavík 1931—1935, en 1935 fluttist hann aftur til Þýzkalands og gekk þar í barna- og gagnfræðaskóla í Iser- lohn, þar sem faðir hans eignaðist hótel og veitingahús. Árin 1940—1943 var Erich í iðnskóla og útskrifaðist sem matreiðslumað- ur. Eftir því sem ég bezt veit, stundaði Erich lítið matreiðslu um ævina, nema í frístundum sínum, en þar kom í ljós að hann var meistari í sínu fagi, algjör lista- maður. Einu sinni sem oftar var okkur konu minni boðið heim til hans, ásamt fieiri gestum. Á boðstólum voru ýmsir kjötréttir, allir í sérflokki, en það sem setti kórónuna á allt saman var smjör- ið, skreytt sem rósir, með stöngl- um, blöðum og blómum og sett í vasa. Enginn gestanna þorði að eyðileggja þetta listaverk, þar til Erich tók hnífinn og stakk ofan í það og skammtaði smjörið. Oft hef ég hugsað til þessa dags, hvað langur tími hefur farið í það að gleðja augu gestanna á þennan hátt. Dagsverk? Ég veit það ekki. Slíkt mælist ekki í tíma eða tíma- kaupi. Þetta dæmi lýsir lundarfari Erichs betur en margar upptaln- ingar. Að gleðja og verða ein- hverjum til góðs var aðalsmerki hans. Það kom ÍSAL og gestum þess margoft til góða. Gestir fyrir- tækisins hafa og sýnt í orðum, gjöfum og mörgum viðurkenning- um þakklæti sitt. í nóvember 1943 að námi loknu var Erich orðinn 18 ára gamall og kvaddur í herinn. Lítið veit ég um herþjónustu hans og framgang hans á því sviði. Hann var í Frakklandi, lenti í bardaga við landamæri Hollands og Þýzka- lands þegar Montgomery mar- skálkur gerði lokasóknina á Þýzkaland, sem endaði með hruni þriðja ríkisins. Erich særðist í átökunum og lenti í höndum Breta og var fluttur til Englands. Þar var hann í stríðsfangelsi til 1947, þar til móðurættingjar hans að- stoðuðu hann við að komast til ís- lands það ár. Hér var Erich bú- settur til dauðadags. 1947—1948 vann Erich skrif- stofustörf hjá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson hf., 1948—1952 var hann verzlunarstjóri í mat- vörubúð Böðvars Sveinbjörnsson- ar hf. á ísafirði, 1952—1960 var hann sölumaður hjá Ölgerðinni og frá 1960—1967 hjá Baader-þjón- ustunni í Reykjavík. Þann 16. maí 1968 hóf Erich störf hjá íslenzka álfélaginu hf. í Straumsvík, fyrst í stað sem umsjónarmaður þriggja svefnskála, sem voru fullsetnir erlendum starfsmönnum verk- taka, er sáu um fyrsta byggingar- áfanga álversins árin 1967—1969. Ég þekkti Erich lauslega fyrir þann tíma, en 1968 hófst samstarf okkar sem varði til dauðadags. Strax frá upphafi komu í ljós ýms- ir góðir hæfileikar hans. Hann talaði þrjú tungumál reiprennandi Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. og gat bjargað sér á frönsku. En það sem gerði hann svo einstakan var hugarfar hans. Hann vildi gera gagn og það gerði hann svo sannarlega, lagði sig fram langt umfram 40 tíma vinnuskyldu, oft á tíðum. Það var stefna okkar í umsýsludeild að veita þjónustu, sem okkur var falin umsjón með, með bros á vör, og var Erich þar í fremstu línu, hvort sem um vinnu eða annað var að ræða. Þegar menn vantaði til að skreyta salinn fyrir jólatrésskemmtun var Erich tilvalinn forystumaður. Hann hafði það í sér að géta breytt hversdagsumhverfi i jólastofu með skærum, álpappír og hug- myndaflugi. Hundruð barna okkar hafa fengið vitneskju um það. Þegar samstarfsmenn þurftu að halda fermingarveizlu heima hjá sér, var oft kallað á Erich. Ég hef heyrt það frá ýmsum starfs- mönnum, að skreytingar og matur sem Erich sá um, hafi verið frá- bær. Þannig var hugarfar hans, kunnátta og lagni, sem gerði hann svo sérstakan. Þegar fyrsta byggingaráfanga í Straumsvík lauk og umsvif í svefnskálunum þar minnkuðu, var honum falin verkstjórn yfir hlið- vörzlu og ræstingavinnu um allt svæðið, og síðar bættist við verk- stjórn þvottahúss, sem sá um þvott og viðgerð á öllum vinnuföt- um starfsmanna. Þvottahúsi þessu var breytt í efnaiaug fyrir nokkrum árum. Til þess að læra á efnalaugavélar sótti Erich viku námskeið í Þýzkalandi. Ekki var honum nóg að hreinsa fötin, held- ur bætti hann við tækjabúnaði til að draga úr eldfimi bómullarefnis- ins. Efnalaug ÍSAL hefur gengið dag eftir dag, og þrátt fyrir vél- arbilanir og hátíðisdaga hefur aldrei þurft að seinka afgreiðslu um hálfan dag. Það var hugarfari hans og framtaksvilja að þakka. Það er öllum ljóst, að skarð Erichs í fyrirtækinu verður erfitt að fylla. Þann 12. september 1953 gekk Erich í hjónaband og kvæntist Halldóru Finnbjörnsdóttur. Ég hef komið mörg hundruð sinnum í heimsókn til þeirra, stundum á heimleið úr vinnu, til að heilsa upp á Dóru og spjaila um blóma- rækt eða daginn og veginn. Maður finnur oft í loftinu, hvort ham- ingja ríkir í húsinu eða ekki. Heimili þeirra við Vallargerði 33 í Kópavogi var hús hamingjunnar, það lá í loftinu. Blíða og friður ríkti þar, og gestrisni í sérflokki. Ég get ekki lýst með orðum þakk- læti mínu fyrir alla þá vinsemd sem mér hefur verið sýnd þar alla tíð. Þau hjónin áttu barnaláni að fagna. Gunnar er elztur barna þeirra. Hann er símvirki, kvæntur og búsettur á Hellu. Herdís, dóttir þeirra, tók frægt stúdentspróf fyrir nokkrum árum. Hún hlaut mörg bókaverðlaun þá fyrir af- reksframmistöðu í námi, sem sagt var frá í blöðum. Herdís er gift og búsett á ísafirði. Yngsta barn þeirra er Tryggvi, fæddur 1957. Hann var ytra með foreidrum sín- um þegar Erich andaðist. Tryggvi er enn í námi, stundar nám í tónmenntakennaradeild og gítar- leik í tónlistarskóla í Reykjavík. Samkvæmt frásögn sonar míns, sem þekkir til í poppheiminum, er Tryggvi talinn einn sá bezti á þessari braut, en í skólanum lærir hann sígilda tónlist. Börnin hafa væntanlega fengið í arf frá föður sínum listræna tilhneigingu og hæfileika. Herdís hefur málað ýmsar myndir, eins og Erich sjálf- ur, sem hanga á veggjum í Vallar- gerði 33 og víðar. Starfsmenn íslenzka álfélagsins kveðja í dag með hryggð og sökn- uði frábæran samstarfsmann og góðan dreng, og votta Halldóru Finnbjörnsdóttur, Gunnari, Her- dísi, Tryggva, svo og barnabörnum Erichs, sem misst hafa afa sinn, sína dýpstu samúð. Hans Jetzek Aðeins örfá orð frá okkur, skemmtikröftum um borð í ms. Eddu dagana 10.—17. ágúst sl. Við þökkum Erich Húbner frá- bæra viðkynningu og bráð- skemmtilegar stundir um borð. Eftirlifandi eiginkonu, börnum og barnabörnum biðjum við Guðs blessunar um ókomin ár. Fyrir hönd hópsins, Bergþóra og Þorvaldur. HJÁ OKKUR NÁ GÆEXN í GEGN niii w» NJARÐVIK Símí 92-1601 PósthólfU Söluumboð í Reykjavik IÐNVERK H.F. Nóatúni 17, sími 25930 og 25945 LOZARON þéttilistinn Nýr kröftugur þéttilisti, sem lækkar hitunarkostnaö hússins. Aukþesser auövelt aö taka listann úr viö málningu eða fúavörn. Þessi nýjung auðveldar mjög allt viöhald. Hart plast M Mjúkt plast r r ' ..Islandsmótiö l.deild.Islandsmótið l.deild.Islandsmótið l.deild... Keflavíkurvöllur miðvíkudagínn 24. ágúst kl. 18:30 KEFIAVÍK- ÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.