Morgunblaðið - 24.08.1983, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1983
Opið
tennismót
ANNAÐ opna SLAZENGER-
tennismótið og jafnframt
annað opna tennismót
sumarsins mun fara fram
dagana 1. til 4. september
næstkomandi. Mótiö er
haldið á vegum Þrekmið-
stöðvarinnar í Hafnarfiröi og
John Nolans, en hann mun
jafnframt gefa öll verölaun í
mótinu.
Keppt verður á tveimur
nýjum tennisvöllum, sem
Þrekmiöstööin í Hafnarfirði
hefur veriö aö koma upp I
sumar. Aðstæður hjá Þrek-
miðstöðinni til slíks móts-
halds eru í alla staöi mjög
góðar.
Leikin veröur útsláttar-
keppni (best af þremur sett-
um, þ.e. keppandi þarf aö
vinna tvö sett til aö vinna
hvern leik), notað veröur „tie-
break“ 7 af 12 (wimbledon) í
öllum leikjum þar sem staöan
er jöfn, 6—6 í setti.
Tímatafla fyrir alla leiki
mótsins i fyrstu umferö verö-
ur hengd upp í Þrekmiöstöö-
inni, Dalshrauni 4, Hafnarfiröi,
klukkan 19.00 miövikudaginn
31. ágúst, en þá geta kepp-
endur athugað hvenær þeir
eiga aö keppa, annaöhvort
meö því aö mæta á staöinn,
eöa hringja í síma 54845 eöa
53644.
Keppendur skulu skrá sig í
síöasta lagi fyrir klukkan
16.00 miövikudaginn 31. ág-
úst. Skráningin fer fram hjá
Þrekmiöstööinni í símum
54845 eöa 53644 og hjá
Kristjáni Baldvinssyni í síma
53191. Keppnisgjald er kr.
250,-
• íslandsmeistarinn, Gylfi
Kristinsson, skoöar hin
glæsilegu verölaun sem
verslunin Hagkaup gefur til
keppninnar.
Golfmót
hjá GS
OPIO golfmót verður haldiö
hjá Golfklúbbi Suðurnesja á
Hólmsvelli í Leiru dagana
27.—28. ágúst. Spilaðar
verða 36 holur meö og án
forgjafar og hefst mótiö kl. 8
á laugardagsmorgun.
Verðlaun verða hin glæsi-
legustu sem sést hafa í lang-
an tíma en verslunin Hag-
kaup gefur þau til keppninn-
ar. Auk þess er fjöldi auka-
vinninga. Verðmæti vinninga
er um níutíu þúsund krónur.
Æfingadagar fyrir mótið eru
fimmtudagur og föstudagur
og skráning er þegar hafin í
síma 92-2908 og í Golfskálan-
um í Leiru.
Hverju spá þeir?
EINU jafnasta íslandsmóti ( 1.
deild í knattspyrnu fer nú senn að
Ijúka. í kvöld fara fram fjórir leikir
í deildinni og eftir þá ættu línurn-
ar jafnvel að skýrast, en svo gæti
líka farið að staöan yröi enn jafn-
ari en áður.
Þaö sem gerir knattspyrnuna
svo skemmtilega sem raun ber
vitni, eru þau óvæntu úrslit sem
svo oft geta átt sér staö. Skyldi
svo fara aö óvænt úrslit yröu í is-
landsmótinu í ár? Flestir hallast aö
• Jónas Traustason
• „Skagamenn vinna þetta alveg
örugglega og ég er helst á því að
þeir vinni bikarkeppnina líka,
þannig aö þaö verður tvöfalt hjá
þeim í ár. Þeir eru einfaldlega
með langbesta liöið og eiga það
skilið aö vinna þetta. Breiöablik
verður í öðru sæti og KR-ingar í
þriðja, en Valsmenn og ísfirð-
ingar falla að öllum líkíndum, en
annars verður röðin svona: 1. ÍA,
2. UBK, 3. KR, 4. Þór, 5. Víkingur,
6. ÍBK, 7. ÍBV, 8. Þróttur, 9. ÍBÍ, 10.
Valur.“
því aö lið ÍA vinni tvöfalt í ár, bæöi
íslandsmeistaratitilinn og bikarinn.
En vel er hugsanlegt aö önnur lið
setji strik í reikninginn.
Hvaö um þaö, viö fengum
nokkra valinkunna áhugamenn um
knattspyrnu til aö spá um úrslitin i
mótinu í ár. Allt eru þetta lands-
þekktir menn, sem fylgst hafa
mjög grannt meö knattspyrnu hór
á landi um margra ára skeiö. Þeir
taka nú viö og hafa eftirfarandi aö
segja.
— ÞR
• Magnús V. Pétursson
• „Skagamenn vinna þetta tvö-
falt í sumar, þó svo að það gæti
oröið erfitt í bikarkeppninni. Þeir
eiga það fyllilega skiliö, þeir eru
með besta liöiö og þeir hafa gam-
an af því að leika fótbolta og það
er meira en hægt er að segja um
mörg líðin. Mér finnst þeir hafa
verið með besta liöið í gegnum
árin. Það er dálítiö erfitt aö spá
um fallið, það geta öll liðin fjögur
enn fallið, en ég vil engu spá um
þaö hverjir falla.“
• Ríkharður Jónsson
• „Þaö kemur ekkert annaö til
greina en að Skagamenn vinni
þetta tvöfalt í ár, en þaö er þá (
fyrsta skiptiö sem það tekst hjá
okkur. Þeir eru meö langjafnast
lið, en við megum ekki gleyma
því, að Vestmanneyingar gætu
komið á óvart og sigraö ( bikar-
leiknum. Þeir hafa dottið á góöa
leiki og ef þeir gera þaö á sunnu-
daginn þá getur allt gerst. Taflan
í deildinni verður trúlega svo til
óbreytt, nema hvað Víkingur hef-
ur veriö aö ná sér upp og gæti
farið hærra. Geta Þórs og getu-
leysi Vals hefur komið mér mest
á óvart.“
• Magnús Sigurjónsson
• Albert Guómundsson
• „Ég tel aö Skagamenn veröi ía-
landsmeistarar, en helst vildi ég
snúa töflunni viö þannig að
Valsmenn yrðu efstir. ÍA má þó
ekki vera í neðsta sætinu, því
þeir eru með besta liðið hér á
landi í ár. Ég gæti þó trúað að ÍBV
sigri í bikarnum, þó svo Skaginn
sé með besta liðiö, því ég veit
þaö af eigin reynslu að þaö er
erfitt fyrir betri liðin að leika viö
lakari liö í bikarkeppni. Vest-
manneyingar eru harðir ( bikar-
leikjum og ég trúi því aö hiö ólík-
lega eigi eftir að gerast."
• Karvel Pálmason
ÍBV til Laugarvatns
KNATTSPYRNULIO Vestmannaeyja, sem mun keppa til úrslita í bikar-
keppni KSÍ næstkomandi sunnudag, hafa nú ákveðið að fara upp aö
Laugarvatni á laugardaginn til að æfa þar og undirbúa sig sem best
fyrir úrslitaleikinn en þeir eru ekki nógu ánægöir með árangur sinn í
útileikjum, því þeir hafa ekki unniö einn einasta leik í 1. deildarkeppn-
inni á útivelli í sumar. Eini leikurinn sem þeir hafa unnið í er leikur
þeirra við Þrótt í bikarkeppninni og er ætlunin hjá þeim með þessari
ferð að Laugarvatni aö vinna bug á þessum leiöa vana.
— SUS
• „Ég veit ekki hvaö ég á að
segja, en þó held ég að Skaga-
mennirnir vinni bæöi íslands- og
bikarkeppnina og það er alveg
hlutlaust mat hjá mér, þegar ég
segi það. Mér finnst þeir vera
með besta liöið og því held ég að
þeir vinni tvöfalt. Um botninn vil
ég sem minnst segja, þvi mínir
menn eru þar og ég er ekkert
hrifinn af því að þurfa aö spá
þeim falli og ætla því að setja þá
í þriðja neðsta sætiö. Röðin verð-
ur þessi: 1. ÍA, 2. KR, 3. Víkingur,
4. Þór, 5. UBK, 6. ÍBV, 7. Þróttur, 8.
Valur, 9. ÍBK, 10. ÍBÍ.“
• „Það er engin spurning í mín-
um huga. Skagamenn sigra tvö-
falt í ár. Þeir eru með jafnt og gott
lið, þannig að þeir veröa bæði ís-
lands- og bikarmeistarar. Ég
vona bara aö ísfirðingar haldist í
deildinni því mér finnst þeir eiga
það skiliö. Um fallið vil ég lítið
segja, en ef fram heldur sem
horfir, þá bendir allt til þess að
Valsmenn veröi neöstir, en þaö
verður að segjast eins og er, að
þeir eru þrautseigir, þanníg aö
ekkert er öruggt."
Sigtryggur Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals:
Óneitanlega hagkvæmara
að leika a eigin leikvelli
- Tekjumissir borgarinnar hverfandi, segir Jón Magnússon
„ÞAÐ á að vera stolt hvers félags
að leika leiki sína á eigin velli. Því
höfum við lagt mikið á okkur til
þess að svo gæti orðið. Þar er
fjárhagsútkoma ekki aöalatriöiö.
Við teljum þaö þó óneitanlega
hagkvæmara aö leika á eigin velli
og þurfa ekki aö borga 17% af
aögangseyrinum í vallargjald, en
það gengur alls ekki án mikillar
sjálfboðavinnu,“ sagöi Sigtryggur
Jónsson, formaöur knattspyrnu-
deildar Vals, ( samtali við Morg-
unblaöiö.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um lék Valur slnn fyrsta lelk í fyrstu
deild á heimavelli sínum viö Hlíöar-
enda um síöustu helgi. Varö Valur
þannig fyrst Reykjavíkurfélaga til
aö leika i fyrstu deild á eigin velli.
Af hverjum leik Reykjavíkurliöanna
fara 6% aögangseyris til ÍBR og
17% í vallarleigu, só leikiö á leik-
völlum borgarinnar. Sigurgeir
sagöi ennfremur, aö nú sæi borgin
um aö koma vellinum í leikhæft
ástand og fyrir þaö þyrfti aö
greiöa. Þaö væri ekki fyllilega Ijóst
hvernig dæmiö kæmi út, þar sem
ekki heföi borizt reikningur fyrir þá
þjónustu. Sagöi hann borgina
veita þessa þjónustu án greiöslu
fyrir yngri flokkana og sér væri
kunnugt um aö annarrar deildar
félagiö Fylkir þyrfti ekki aö greiöa
fyrir þessa þjónustu.
Þá sagöi Sigtryggur, aö ákveöiö
heföi veriö aö leika á Hlíöarenda
gegn Þór frá Akureyri en óljóst
væri hvort svo yröi einnig meö
hina tvo heimaleiki liösins, sem eft-
ir eru. Væru þeir á móti Vest-
mannaeyjum og Víkingi og heföi
Valur fengiö aöalleikvanginn i
Laugardal undir þá leiki. Gæti þaö
farið eftir veöri hvar leikirnir yröu
spilaöir. í því tíöarfari, sem veriö
heföi í sumar væri vart forsvaran-
legt annaö en aö bjóöa áhorfend-
um upp á yfirbyggöa stúku.
Jón Magnússon, starfsmaður
íþróttavalla borgarinnar, sagöi í
samtali viö Morgunblaðið, að hann
teldi tekjumissi borgarinnar hverf-
andi þrátt fyrir aö Valur heföi tekiö
upp á því aö leika á eigin velli.
Aösókn aö leikjum heföi fariö mjög
minnkandi í sumar þannig aö hlut-
ur borgarinnar af innkomnum aö-
gangseyri hefði oft á tíöum ekki
hrokkiö til fyrir kostnaði. Sama
undirbúningsvinna væri fyrir alla
leiki sama hve margir kæmu til aö
horfa á þá og svipuð vinna meöan
á þeim stæöi og viö hreinsun á
eftir. Aösókn aö leikjum í Reykja-
vík fyrri hluta sumarsins hefur ver-
ið um 45% minni en í fyrra.