Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983 3 „Útboð ríkisspítalanna meingallað“ Okkur ætlað að eiga sjálfir 15-20 tonn af líni Sólveig Leifsdóttir varð önnur — í klippingu og blæstri á Norðurlandakeppninni SÓLVEIG Leifsdóttir, hárgreiðslu- nieistari í Reykjavík, varð í öðru sæti í klippingu og blæstri í Norður- landakcppninni í hárgreiðslu og hár- skurði, sem fór fram í Kaupmanna- höfn um helgina. Sólveig varð mjög sigursæl í ís- landskeppninni, sem haldin var i Reykjavík sl. vor, en tíu efstu keppendurnir úr þeirri keppni, bæði hárgreiðslufólk og hársker- ar, tóku þátt í keppninni í Dan- mörku. Hvert Norðurlandanna á rétt á að senda fimm keppendur úr hvorri grein til keppninnar. Norðmenn urðu sigurvegarar í báðum flokkum um helgina. Fönn óskar eftir nýjum viðræðum á grundvelli nýrra upplýsinga „ÚTBOÐ Ríkisspítalanna var meingallað. Það var svo illa hannað og í því voru margir lausir endar, sem breyttu myndinni verulega," sagði Guðmundur Arason, forstjóri Þvottahússins Fannar, í samtali við blaðamann Mbl. um útboð á þvotti fyrir sjúkrahúsin. Hann hefur nú óskað eftir viðræðum við stjórnar- nefnd Ríkisspítalanna vegna breyttra forsenda fyrir tilboði hans í þvottinn. „f útboðinu er byggt á því, að tilboðsaðila er ætlað að eiga allt lín, sem sjúkrahúsin nota. Það eru um 800 tonn á ársgrundvelli. Vikunotkun sjúkrahúsanna er 15—20 tonn, svo þetta gæti verið kostnaður upp á 15—20 milljónir," sagði Guðmundur. „Sjúkrahúsin eiga í dag allt sitt lín, eins og eðli- legt verður að teljast. Tilboðsgjöf- Dalvík: Versta vetrarveður ríkjandi Dalvík, 7. nóvember. Á DALVÍK ríkir nú hið versta vetr- arveður. Allar götur í bænum eru ill- eða jafnvel ófærar flestum bílura. Miklir skaflar hafa myndast og mið- að við árstíma eru snjóalög í meira lagi. Veðurfar í október og það sem af er nóvember hefur verið með ein- dæmum óstillt. Heita má að snjóað hafl meira og minna í hverri viku og hefur því varla hafst undan að ryðja snjó af götum bæjarins og er kostn- aður sökum þessa orðinn langt um- fram áætiun. Þó er bót í máli að þessu veðri fylgja ekki miklar frosthörkur og er hitastig flesta daga í kringum frostmark. Gæftaleysi hjá rækjubátum hefur verið mikið sökum veðráttu en héðan sækja þrír bátar á rækjumið við Kolbeinsey. Telja sjómenn að vafalaust myndi aflast ef veður stillti um tíma. Á laugardagskvöld kom togar- inn Björgúlfur úr söluferð frá Bretlandi, seldi hann um 100 tonn og varð meðalverð milli 28 og 29 krónur fyrir hvert kg. Togararnir Dagbjört og Baldur eru nú í sölu- ferð en Björgvin er á veiðum. — Fréttaritarar. um var ekki boðið upp á að kaupa eða leigja neitt af því. Ætlunin var, að samningurinn yrði til fimm ára, sem Ríkisspítalarnir gætu rift með sex mánaða fyrir- vara á fyrsta ári. Það þýðir að við gætum setið uppi með 15—20 tonn af líni eftir eitt ár og auðvitað er engin leið að losna við svo mikið magn.“ Guðmundur sagði að fleiri gall- ar hefðu verið á útboðinu. „Þeir gátu í samanburði sínum um fimm atriði, sem ekki voru reikn- uð til fjár. Nú hefur Hagvangur látið reikna þetta út og þá kemur í ljós, að okkar tilboð er talsvert lægra en kostnaður þvottahúss Ríkisspítalanna er i dag. Á grundvelli þess hef ég nú óskað eftir viðræðum við stjórnarnefnd- ina,“ sagði Guðmundur Arason. Morgunblaðið/Friðþjófur. Hvað er húsið að gera á götunni? Hvað er húsið að gera á götunni? — Það var mikið tilstand í Þingholtunum í fyrri viku þegar flutningabflar fluttu gamalt hús á grunn á gatnamótum Bjargarstígs og Bergstaðastrætis. Allt gekk vel fyrir sig og húsið sómir ser vel á nýja grunninum. Í KANARÍSÓL MCD ARNARTLUOI GISriMGIN GERR GÆITJMIJMNN Þú vaknar að morgni og eftir hressandi steypibað og morgunverð skellirðu þér út í sólina á sundlaugarbarminum. Færð þér svalandi sundsprett annað slagið og undir hádegið tekurðu léttan tennisleik með ferðafélögunum. Eftir Ijúffengan hádegisverð á sundlaugarbarnum hallarðu sólstólnum þínum aftur og lætur þér líða vel í sólskininu. Seinnipartinn röltirðu svo kannski í verslunarmiðstöðina, eða ferð hring á golfvellinum, eða kíkir í spennandi bók og slakar á fyrir stórsteikina á veitingastaðnum. Og eftir kvöldverðinn . . . í fjörið á næturklúbbnum, eða rólegheit heima í glæsilegri íbúðinni. . . Þetta er engin draumsýn. Svona gengur lífið fyrir sig á Barbacan Sol, gististaðnum einstaká sem Arnarflug býður farþegum sínum. Þar er allt á einum stað, - nýjar og fallegar íbúðir eða smáhýsi, tvær frábærar sundlaugar með öllu, golf- og tennisvellir, verslunarmiðstöð, veitinga- staðir, barir, spilasalir og fleira - allt er fyrsta flokks. Stórkostlegur gististaður sem íslenskir Kanaríeyjafarar hafa lengi óskað sér, en fá nú fyrst að njóta. íslenskur fararstjóri. í góðum sólarferðum gerir gistingin gæfumuninn. Viðburðarík Amsterdamdvöl í kaupbæti. VERD rRÁ KR.22.686 (miðað við 4 í 3 herb. íbúð). Brottför: Alla þriðjudaga. 10, 17 og 24 daga ferðir. Innifalið: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á lúxushótelinu Pulitzer í Amsterdam og íbúðagisting á Kanaríeyjum ásamt íslenskri fararstjórn. Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs eða ferðaskrifstofanria og fáið litmyndabækling með ítarlegum upplýsingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.