Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 30
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983 Minning: Arni Jónasson húsasmíðameistari Fæddur 9. október 1897 Dáinn 30. október 1983 Að kvöldi 30. september andað- ist í Borgarspítalanum Árni Jón- asson húsasmíðameistari. Hann fæddist 9. október 1897 að Galtarhöfða í Norðurárdal, Mýra- sýslu, og hafði hann því rétt fyllt 86. aldursárið er hann lést. For- eldrar hans voru hjónin Jónas Jónasson járnsmiður og bóndi og Ingibjörg Loftsdóttir, sem lengst af bjuggu á Litla-Skarði í Staf- holtstungum. x Árni sleit barnsskóm sínum við ýmis störf í heimabyggð sinni sem þá var siður og var einn átta systkina, sem nú eru öll látin. Á æskuárum hans fóru í hönd miklir umbrotatímar í íslenzku þjóðlífi. Bæir og byggðarlög voru í örum vexti og bylgja aukinnar tækni og afkasta var að skella á í allri verkmenningu þjóðarinnar. Ungir eldhugar eygðu nú nýja og betri tíma og öld verkaskiptingar og sérhæfingar gekk í garð. Völ- undarsmíð gömlu timburhúsanna, sem enn í dag eru talin merkur þáttur í húsagerðarlist okkar, heillaði Árna mjög. Árið 1922 fluttist hann til Reykjavíkur til að læra húsasmíðar og stundaði hann þá iðn æ síðan. Með nýjum tímum færðist öll verkalýðs- og stjórnmálabarátta i aukana, enda ekki allir ásáttir um skiptingu þjóðarkökunnar þá fremur en nú. Árni tók virkan þátt í stefnumótun verkalýðsfélaganna og bar alltaf hag hins vinnandi manns mjög fyrir brjósti. Hann var alltaf staðfastur í stuðningi sínum við jafnaðar- og bræðra- lagshugmyndir þessara og seinni tíma jafnt á erlendum sem inn- lendum vettvangi. Árni var félagslyndur maður og undi sér vel í góðra vina hópi. Hann var hófsmaður og gekk jafn- an hægt um gleðinnar dyr. Hann hafði gaman af hljómlist og söng og iðkaði hvortveggja, einkum á yngrí árum. Hafði hann unun af að leika á orgelið sitt að vinnudegi loknum. Annað áhugamál Árna var ferðalög um ættjörðina. Fór- um við jafnan í nokkur ferðalög saman ár hvert, einkum á sumrin. Lék hann þá á als oddi og hafði frá mörgu að segja. Árni var öðru fremur raunsæis- maður og leitaði skilnings og skilgreiningar á fyrirbærum mannlífsins. Hann var því lítt til viðræðu um eilífðarmálin. Hann leit á einstaklinginn sem hlekk i langri keðju framþróunar, þar sem ein kynslóðin tekur við af annarri og hverjum ber að gera skyldu sína. Árni var ekki maður veraldar- prjáls og sýndarmennsku. Hann kom ætíð til dyranna eins og hann var klæddur. Auk vinnu sinnar og þjóðmálaáhuga áttu heimili hans og fjölskylda hug hans allan. Árið 1930 kvæntist hann Þorbjörgu Agnarsdóttur, mikilli mannkosta- konu. Hjónaband þeirra var einkar farsælt og þau samtaka í að búa dætrum sínum, Hólmfríði og Ingibjörgu, sem bezt heimili. Barnabörnum sínum voru þau stoð og stytta og samstaða þeirra •jnaust kf Síðumúla 7-9, simi 82722. Bllanaust h.f. hefur nú á boóstólum hljóðkúta, púströr og festingar I flestar gerðir blla. Stuðla- berg h.f., framleiða nlðsterk pústkerfi og hljóð- kúta sem standast fyllilega samkeppni við sams konar framleiðslu erlendra fyrirtækja. Þessa Isl- ensku gæðaframleiðslu erum við stoltir af að bjóða viðskiptavinum vorum jafnhliða vörum frá | hinum þekktu fyrirtækjum BOSAL, Belglu o- THRUSH, Canada. Heildsala, smásala. HUÖÐKÚTAR PUSTKERFI • • 7 O ö'F ~ V § BOTERO MtMf ■ *.-,,Ar,KunsT,^.N,fn wov.fncrr.-j 11 /om rjeo Botero, Morning After 95x68 GLÆSILEGT ÚRVAL MYNDA TILVALDAR TÆKIFÆRISGJAFIR VERÐ FRÁ 139.00 MYNDIN Dalshrauni 13 S. 54171 Alfreö Sturlu- son - Minning Fæddur 23. nóvember 1912 Dáinn 30. október 1983 Það er alltaf mikill harmur, þegar menn falla skyndilega frá. Dauðinn gerir sjaldnast boð á undan sér og þótt menn hafi átt við veikindi að stríða, er maður ekki viðbúinn dauðanum, svo fljótt sem hann ber að, og heldur í vonina um að maðurinn fái að lifa lengur. Svo var það með Alfreð Sturlu- son, sem lést sunnudaginn 30. okt. Hann hafði alla tíð verið hraustur maður, varla orðið misdægurt fyrr en nú í byrjun júlí, að hann fór að finna fyrir hjartasjúkdómi þeim, er varð honum að bana. Alfreð fæddist 23. nóvember 1912 á Búastöðum í Vestmanna- eyjum. Foreldrar hans voru Fríð- ur Lárusdóttir og Sturla Indriða- son. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum í Vestmannaeyjum til 16 ára aldurs, ásamt þremur systkin- um sínum. Lára var elst, en hún er látin fyrir mörgum árum, en hin eru Indíana og Pétur, sem er vél- stjóri að mennt. Alfreð, eða Alli eins og hann var jafnan kallaður, lærði málaraiðn hjá Jóni Björnssyni málara- meistara þegar hann var 16 ára gamall. Þann 7. febrúar 1942 kvæntist Alfreð eftirlifandi konu sinni, Steinunni Jónsdóttur, og eignuðust þau tvær dætur, Guð- rúnu og Fríði, en hún lést aðeins 31 árs gömul þann 1. maí 1974. Barnabörnin eru hins vegar fjög- ur. Þau eru Alfreð Sturla, Stein- unn og Soffía, sem eru börn Guð- rúnar og Böðvars Böðvarssonar, og Haraldur, sem er sonur Fríðar og eftirlifandi manns hennar, Sæmundar. Fyrstu 8 hjúskaparár sín bjuggu þau Steinunn og Alfreð í Vestmannaeyjum, en fluttust það- an til Reykjavíkur. Heimili þeirra hér í Reykjavík hefur lengst af verið í hjarta borgarinnar, því þau áttu heima á Laugavegi 20 í 16 ár og síðan á Laugavegi 22 i 11 ár. Þaðan fluttust þau á Leifsgötu 6, en keyptu svo íbúð að Hverfisgötu 99 fyrir 4 árum. Alfreð var dagfarsprúður mað- ur og vildi öllum vel. Hann unni heimili sínu framar öllu öðru og sérstaklega var hann barngóður. Hann elskaði dætur sínar og barnabörnin og hreinlega lifði fyrir þau frá því að þau fæddust. Hann var einstaklega skapgóð- ur og alveg sérstakt prúðmenni. Aðaláhugamál Alfreðs var skíða- íþróttin. Hann iðkaði skíðaíþrótt- ina hvenær sem færi gafst. Fór á skíði næstum um hverja helgi og alltaf um páska, þangað til fyrir örfáum árum. Hann byggði skíða- skála ásamt félögum sínum uppi í Tindfjöllum, en þeir félagarnir voru 10 saman. Annað áhugamál höfðaði einnig mikið til Alfreðs, Aðalfundur bandalags íslenskra listamann: Skorað á menntamálaráðherra aö leggja fram frumvarp um kvikmyndastofnun íslands AÐALFUNDUR Bandalags islen.skra listamanna var haldinn 15. okt. sl. f Norræna húsinu. Þorkell Sigurbjörnsson var endurkjörinn forseti Bandalagsins. Aðrir í stjórn Bandalagsins eru Þorgerður Ingólfsdóttir varafor- maður, Hrafn Gunnlaugsson ritari, Gestur Þorgrímsson gjaldkeri, en meðstjórnendur eru Birgir Sig- urðsson, Jes Einar Þorsteinsson, Viðar Eggertsson og Örn Guð- mundsson. Á fundinum var skorað á menntamálaráðherra að leggja þegar í stað fram frumvarp um kvikmyndastofnun íslands, sem liggur fyrir í ráðuneytinu. Þá var stjórn Bandalagsins falið að vinna að sameiginlegum aðgerð- um listamanna vegna niðurskurðar á fjárveitingu til lista- og menning- armála, og að vinna að lausn á líf- eyrissjóðsmálum listamanna. Á fundinum var m.a. gerð grein fyrir félagaskrá Bandalagsins sem kom út á árinu, en í félagaskránni er að finna lög allra listamannafé- iaganna, auk laga Bandalagsins sjálfs. f framhaldi aðalfundarins var haldin ráðstefna undir yfirskrift- inni Fjölmiðlar og listir. Forseti Bandalagsins, Þorkell Sigurbjörns- son, stjórnaði ráðstefnunni en frummælendur voru frá flestum fé- lögum listamanna. Erindi frummælenda verða fjöl- rituð og dreift til fjölmiðla. Úr fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.