Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
25
HSV hefur ekki tapað heima í tvö og hálft ár:
Enn efst eftir
jafntefli gegn Köln
— „íslendingaliðin“ burstuðu bæði sína leiki
FORTUNA OUsseldorf er komið i annað sætið í þýsku Bundesligunni í
knattspyrnu eftir 5:0 sigur á Kickers Offenbach á Rheinstadion í DUss-
eldorf. Atli Eðvaldsson lék ekki með Fortuna um helgina þar sem hann
er meiddur og Pétur Ormslev lék heldur ekki með liðinu. Stuttgart
gerði enn betur — sigraöi 1. FC NUrnberg 7:0, og skoraöi Ásgeir
Sigurvinsson eitt mark í leiknum; sjötta mark Stuttgart. Hamburger er
enn í efsta sætinu eftir aö hafa gert jafntefli við Köln é heimavelli.
Hamburger lék án fimm fasta-
manna, þeirra á meöal varnar-
mannanna snjöllu Michael Shröder
og Holger Hieronymus. Tveir
áhugamenn léku meö Hamburger
— og þrír áhugamenn sátu á
bekknum hjá meisturunum. Þaö er
athyglisvert aö Hamburger hefur
ekki tapað deildarleik á heimavelli
sínum Volkspark Stadion síöan í
maí áriö 1981, eöa í tvö og hálft ár.
Frábær árangur hjá liðinu.
Pierre Littbarski skoraði bæöi
mörk Kölnarliösins en annar
áhugamaöurinn og Felix Magath
gerðu mörk HSV. Magath jafnaöi
2:2 á 83. mín. meö fallegu skoti af
20 m færi. Toni Schumacher var
illa á veröi og átti ekki möguleika á
aö verja skotiö.
Eftir slakan fyrri hálfleik fór liö
Stuttgart heldur betur í gang i
þeim seinni gegn 1. FC Núrnberg.
Þá opnuöust flóögáttirnar og
leikmenn Stuttgart skoruöu sjö
sinnum. Karl Allgöwer skoraöi tvö
þau fyrstu á 46. og 47. mín. og
síöan skoruöu varnarmaöurinn
Gunther Schaefer á 50. mín., Walt-
er Kelsch úr víti á 66., Ásgeir Sig-
urvinsson á 73. og Thomas Kempe
á 75. mín. Karl Allgöwer skoraöi
svo sitt þriöja mark í leiknum á 87.
mín. — en þess má geta aö hann
var útnefndur maöur leiksins.
j Dússeldorf var aldrei spurning
hvort liðiö færi meö sigur af hólmi
— aöeins hversu stór sigur For-
tuna yröi. Staöan var 3:0 í hálfleik.
Manfred Bockenfeld skoraöi á 7.
• Felix Magaht, fyrirliöi Ham-
borg SV, jafnaði leikinn gegn
Köln með marki af löngu færi.
Árangur Hamborg é heimavelli er
einstakur.
mín. og Rúdiger Wenzel bætti ööru
viö á 16. mín. Gerd Zewe geröi
þriöja markið úr viti á 43. mín. og
Ralf Dusend og Rudi Bommer
skoruðu svo í síöari hálfleik. Yfir-
buröir Fortuna voru geysilega
miklir og heföi liðiö hæglega átt aö
geta skoraö þrjú til fjögur mörk til
viöbótar. Liöiö er nú í ööru sæti,
eins og áöur sagði, og þykir leika
mjög skemmtilega knattspyrnu.
Hraöinn er haföur í fyrirrúmi, og
áhersla lögö á sóknina. Þaö ber
árangur í leikjunum, og einnig í því
tilliti aö áhorfendur eru nú farnir að
streyma á völlinn þegar Fortuna
leikur. Á laugardag voru áhorfend-
ur 20.000, sem þykir gott þegar
svo slakt liö kemur í heimsókn.
Kaiserslautern tapaði í fyrsta
skipti á heimavelli sínum á keppn-
istímabilinu er Borussia Mönch-
engladbach sótti liðiö heim. Frank
Mill (71. mín.jog Lothar Matthaeus
(81. mín.) skoruöu fyrir Gladbach.
STAÐAN
STADAN í Bundasligunni oftir leiki
helgarinnar:
Hamburger SV 13 8 3 2 26:16 19
DUsseldorf 13 7 3 3 33:18 17
VFB Stuttgart 13 6 5 2 26:13 17
Gladbach 13 7 3 3 28:16 17
Bayern 13 7 3 3 26:14 17
Bremen 13 6 4 3 20:13 16
FC Köln 13 6 2 5 28:19 14
Leverkusen 13 5 4 4 22:18 14
Uerdingen 13 6 2 5 27:26 14
Bielefeld 13 5 3 5 17:19 13
VFL Bochum 13 5 2 6 25:29 12
Mannheim 13 4 4 5 18:23 12
Braunschweig 13 5 0 8 22:28 10
Kaiserslautern 13 3 3 7 25:31 9
Dortmund 13 3 3 7 17:31 9
Offenbach 13 4 1 8 18:37 9
NUrnberg 13 4 0 9 19:31 8
Frankfurt 13 1 5 7 17:32 7
• Littbarski skoraði bæði mörkin fyrir FC Kðln er liðið garði jafntefli
við HSV.
• Ásgeir, Benthaus þjélfari Stuttgart og Niedermayor. Stuttgart
hefur gengið vel og er í efstu sætunum.
Ásgeir skoraði
„Nú tókst okkur loks aö nýta
marktækifærin sem við fengum
í leiknum. Og í síöari hélfleikn-
um gekk allt vel upp hjé okkur
og við skoruðum sjö mörk. I
fyrri hálfleik fór víti forgörðum
hjá okkur og nokkur færi. Leik-
urinn hefði alveg eins getaö
endað tíu núll eins og sjö núll,“
sagði Ásgeir Sigurvinsson en
Stuttgart sigraði sjö núll um
helgina og lék vel.
„Ég náöi aö skora fimmta
markiö í leiknum og er þaö fyrsta
mark mitt á keppnistímabilinu.
Liöið er nú á góöri leiö og ég hef
trú á því aö viö getum sigrað í
næsta leik þó að hann sé á úti-
velli. Ef viö sigrum i næstu þrem
leikjum eigum viö góöa mögu-
leika á aö vera í fyrsta sæti þegar
jólafríiö hefst hér," sagöi Ásgeir,
sem fékk góöa dóma fyrir leik
sinn. __ pr.
Atli var ekki med, er enn slæmur í ökkla:
„Leikurinn hefði eins
getað endað átta núll“
— ÉG SPILAÐI ekki meö þar
sem ég er enn ekki oröinn góður
í ökklanum. Meiöslin voru verri
en ég étti von á og sennilega verö
ég í meöferö alla þessa viku. En
ég verð aö né leiknum é föstu-
dagskvöldiö sem er é móti Werd-
er Bremen é útivelli. Það er ekki
skemmtilegt aö sitja á bekknum
þegar svona vel gengur, sagöi
Atli Eðvaldsson.
— Dússeldorf-liöiö haföi al-
gjöra yfirburöi gegn Kickers-
• Atli er meiddur.
Offenbach og leikurinn heföi allt
eins getaö endaö 8—0 eins og
5—0. Þaö er stórkostlegt aö liö
okkar skuli nú vera í ööru sæti í
deildinni. Vonandi veröur áfram-
hald á þessari velgengni okkar. En
veöur eru fljót aö skipast í lofti í
knattspyrnunni og þaö gæti allt
eins fariö svo aö viö hröpuöum
neðar á stigatöflunni. Þetta er allt
svo óútreiknanlegt í knattspyrn-
unni. Þaö er frekar taugatrekkj-
andi aö vera svona ofarlega. Viö
erum farnir aö gera okkur vonir
um aö smámöguleiki sé á að ná
Evrópusæti. Þaö yröi góöur árang-
ur út af fyrir sig.
Þaö er mikil stemmning komin í
kringum liðiö og áhorfendum fjölg-
ar mjög á leikjum. Viö fengum til
dæmis 20 þúsund áhorfendur á
leikinn á laugardaginn einu af
neösta liöi deildarinnar. Þaö er
mjög gott, sagöi Atli.
— ÞR
Úrslit leikja í V-Þýskalandi
Úrslit leikja í V-Þýskalandi um helgina uröu þessi: Hálf-
leikstölur í sviga.
Fortuna Dusseldorf — Kickers Offenbach 5—0(2—0)
Bor. Munchengladbach — FC Kaiserslautern 2—0(0—0)
Bayer Leverkusen — Eintracht Braunschweig 3—0(2—0)
Eintracht Frankfurt — VS Bayern Múnchen 0—0
Armenia Bielefeld — Werder Bremen 2—0(1—0)
Hamburg SV — FC Köln 2—2(1—1)
VFB Stuttgart — 1. FC NUrnberg 7—0(0—0)