Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
27
r treyst vin-
ppinautanna
„Það er gömul saga og ný, að eng-
inn á allra fylgi. Við höfum keppt
þrír að útnefningu til formanns
Sjálfstæðisflokksins. Úrslitin liggja
fyrir, glögg og ótvíræð. Ég óska
Þorsteini Pálssyni til hamingju af
alhug og öllu hjarta. Ég sagði í gær,
að landsfundarfulltrúar hlytu að
fara af þessum fundi sem ein og
órofa heild. Til að undirstrika það
enn frekar hef ég ákveðið að bjóða
mig ekki fram til varaformanns. Ég
hvet ykkur til þess að kjósa Friðrik
Sophusson.
Ég hef rætt við marga, sem sækja
landsfund Sjálfstæðisflokksins í
fyrsta sinn. Ollum finnst sérstak-
lega mikið um hversu mikill kraftur
býr í flokknum. Látum þennan kraft
ganga út í þjóðfélagið. Við skulum
öll leggja á það áherslu að efla
flokkinn. Göngum fram í einni
breiðri og órofa fylkingu."
Friðrik 915 atkvæði.
Að loknum ávörpum þeirra Þor-
steins, Friðriks og Birgis ísleifs, var
1002, sem greidd voru. Sigrún Þor-
steinsdóttir hlaut 26 atkvæði, Davíð
Oddson 25, Birgir ísleifur Gunn-
arsson 11 og aðrir 5 atkvæði. Auðir
atkvæðaseðlar voru 16 og 4 ógildir.
„Stuðningur ykkar mun
verða mér styrkur“
Eftir árnaðaróskir fundarstjóra
tók Friðrik til máls. Þakkaði hann
góð orð í sinn garð og þakkaði
landsfundarfulltrúum fyrir þann
afgerandi stuðning, sem honum var
sýndur í varaformannskjörinu.
Jafnframt þakkaði hann Birgi ís-
leifi fyrir drengskap hans og stuðn-
ingsyfirlýsingu og sagði síðan:
„Stuðningur ykkar mun verða mér
styrkur."
Friðrik sagði ennfremur, að það
yrði verkefni þeirra Þorsteins að
treysta tengslin við hinn almenna
flokksmann í Sjálfstæðisflokknum
og styrkja heildina í Sjálfstæðis-
flokknum. „Sjálfstæðisflokkurinn
stendur á tímamótum. Ég heiti á
ykkur öll, að þið sjáið til þess að ný
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisdokksins og Friðrik Sophusson, varaformaður takast í hendur á landsfundi í
fyrradag er kjöri hins síðarnefnda til varaformanns hafði verið lýst Ljósm. ÓI.K.M.
Þorsteinn Pálsson og eiginkona hans, Ingibjörg Rafnar að loknu formannskjöri
á landsfundi. Ljósm. ÓI.K.M.
am í
gengið til kosninga um varafor-
mann Sjálfstæðisflokksins. Þar sem
Birgir ísleifur ákvað að bjóða sig
ekki fram höfðu aðeins tveir til-
kynnt framboð til varaformanns,
Friðrik Sophusson og Sigrún Þor-
steinsdóttir frá Vestmannaeyjum.
Á meðan gengið var til kosninga
fundaði þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins á efri hæð hússins.
Friðrik Sophusson var kjörinn
varaformaður flokksins með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða.
Hann hlaut 915 atkvæði af þeim
einni
og glæsileg sigurganga Sjálfstæðis-
flokksins hefjist þegar við göngum
héðan af fundinum."
Fimm þingmenn kjörnir
í miðstjórn
Þorsteinn Pálsson flutti Friðrik
því næst árnaðaróskir sínar í stuttri
tölu og þakkaði fundinum fyrir
kjörið. Sagðist hann ekki bara vona,
hann vissi að góð samvinna yrði á
milli þeirra í þágu Sjálfstæðis-
flokksins.
Er Þorsteinn sté úr pontu til-
kynnti fundarstjóri, að þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins hefði einróma
kjörið eftirtalda fimm þingmenn í
miðstjórn flokksins: Albert Guð-
mundsson, Matthías Bjarnason,
Matthías Á. Mathiesen, Pétur Sig-
urðsson og Salóme Þorkelsdóttur.
Gengu landsfundarfulltrúar síðan
til atkvæðagreiðslu um 11 menn í
miðstjórn.
Fráfarandi formanni þakkað
Að loknu kjöri miðstjórnar sté
Albert Guðmundsson í ræðustól og
hvatti landsfundarfulltrúa til þess
að styrkja með fjárframlagi bygg-
ingu Valhallar, en nú er unnið að
frágangi hússins. óskaði hann
formanni og varaformanni til ham-
ingju með kjörið og sagði að það
ríkti einhugur á fundinum. Sagði
hann að mestu skipti hvernig fólkið
að baki formanns og varaformanns
ynni.
Sigurður óskarsson, formaður
verkalýðsráðs Sj álfstæðisflokksins,
Geir Haarde, formaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna, Halldóra
Rafnar, formaður Landssambands
Sjálfstæðiskvenna og Sigurður
Hannesson, formaður kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra fluttu ný-
kjörnum formanni og varaformanni
árnaðaróskir og þökkuðu fráfarandi
formanni, Geir Hallgrímssyni,
utanríkisráðherra, fórnfúst starf í
þágu flokksins og létu þá ósk í ljósi
að Sjálfstæðisflokkurinn fengi
áfram að njóta starfskrafta hans í
framtíðinni.
Enginn beðið ósigur
nema andstæðingarnir
Geir Hallgrímsson tók næstur til
máls. Færði hann formanni og
varaformanni heillaóskir og sagði
síðan: „Við væntum þess að þeim
auðnist að færa flokknum stóra
sigra. Það er ánægjulegt að formað-
urinn var kosinn í heiðarlegri og
drengilegri keppni framúrskarandi
ágætismanna." Sagðist Geir taka
undir orð nafna síns Geirs Haarde
fyrr á fundinum, þess efnis að eng-
inn hefði beðið ósigur í þessu for-
mannskjöri, nema andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins. „Andstæð-
ingar okkar gerðu sér vonir um að
keppnin yrði til sundrungar, en svo
vel hefur verið staðið að kjörinu af
hálfu þeirra sem í því hafa staðið,
að kosningin hefur orðið flokknum
til eflingar. Slíkt er ekki hugsanlegt
í neinum öðrum flokki en Sjálfstæð-
isflokknum".
Að gera drauminn um hreinan
meirihluta að veruleika
Sagði Geir að margir hefðu haft
orð á því við sig að annað andrúms-
loft ríkti á þessum landsfundi en
þeim síðasta, en það væri ekki nema
að hluta til rétt. Sagði hann að þótt
menn kynni að greina á í Sjálfstæð-
isflokknum, þá væri samt sú undir-
alda sem tengdi Sjálfstæðismenn
saman, svo sterk að henni yrði ekki
hrundið og bæri hún þá til sigurs.
Sagði hann andstæðinga flokksins
ekki skilja þann kynngikraft sem í
flokknum byggi, sem væri sá eigin-
leiki að geta haldið saman, en verið
samt einstaklingshyggjumenn.
Sagði hann Sjálfstæðismenn geta
látið hið smærra víkja fyrir hinu
stærra, hugsjónir Sjálfstæðisstefn-
unnar væru sjálfstæði landsins og
frelsi einstaklingsins. Sagði hann
nú vera tímamót, nú bæri að sækja
fram og gera drauminn um hreinan
meirihluta Sjálfstæðisflokksins að
veruleika.
Fagnar nýjum andlitum
en saknar annarra
Geir sagði að á þessari stundu
væri margt að þakka. Þakkaði hann
samstarfsmönnum í fráfarandi
miðstjórn, framkvæmdastjórum
flokksins, Ingu Jónu Þórðardóttur
og Kjartani Gunnarssyni og lands-
fundarfulltrúm. Sagði hann for-
vitnilegt á hverjum landsfundi að
virða fyrir sér landsfundarfulltrúa
úr formannssæti. Þaðan sæi maður
ný andlit og fagnaði þeim, en sakn-
aði annara. Það væri hins vegar
ávallt mættur ákveðinn kjarni á
hvern landsfund, sem tryggði það að
fortíð og framtíð tengdust og byggði
upp sterkasta stjórnmálaafl þjóðar-
innar. Sagði hann að það væri
ánægjulegt að hafa unnið með svo
mörgu góðu fólki. Þakkaði hann góð
orð í sinn garð um það að hann
hefði uppfyllt þær skyldur, er hann
hefði axlað með því að taka að sér
formannsembætti í Sjálfstæðis-
flokknum og sagði að kona sín, Erna
Finnsdóttir, hefði veitt sér ómetan-
lega aðstoð í því efni. Að lokum
sagði Geir Hallgrímsson: „Við skul-
um strengja þess heit að vinna hug-
sjónum okkar þess fylgis með þjóð-
inni að við megum sjá þær rætast".
Risu landsfundarfulltrúar úr sæt-
um og klöppuðu.
Þorsteinn Pálsson þakkaðai hlý
orð í sinn garð og flutti Geir Hall-
grímssyni og konu hans árnaðar-
óskir. Að því loknu sleit hann lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins.
— SSv./HJ
fa íylkingu
* úrslit í formannskjöri lágu fyrir