Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.11.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983 47 Opið frá kl. 12—18, laugardaga frá kl. 10—16, og föstudaga i frá kl. 12—19. S NOATUN S KAFFETERÍA Á STAÐNUM Versliö ódýrt Háskólatónleikar í Norræna húsinu TÓNLEIKANEFND Háskólans gengst fyrir hádegistónleikum í Norræna húsinu á miðvikudögum kl. 12.30 og eru fyrirhugaðir sex tónleikar á haustmisseri og átta á vormisseri. Meðal efnis á skrá tónleika- nefndarinnar á haustmisseri er leikur kvartetts fyrir horn og strengi, einleikur á gítar, samleik- Vestmannaeyjar: ur klarinetts og píanós, og fagotts og píanós. Síðastir eru jazztónleik- ar Guðmundar Ingólfssonar og Reynis Sigurðssonar. A fyrstu tónleikunum sem verða á morgun flytja þeir sr. Gunnar Björnsson og Halldór Haraldsson píanóleikari svítu fyrir einleiks- selló (nr. 2 í d-moll) eftir Johann Sebastian Bach og sónötu fyrir pí- anó og selló (op. 102 nr. 2 í D-dúr) eftir Ludwig van Beethoven. Kolmunni og sfld uppistaða í októberafla Vestmannaeyjum, 7. nóvember. SÍLD OG kolmunni var uppistaðan í afla þeim, sem hér barst á land í síðasta mánuði, og tryggði jafna og góða atvinnu á þeim árstíma sem oftast áður hefur verið fremur dauf- ur tími í atvinnulífi bæjarins. Nú eru komin hér á land rösk- lega 3.500 tonn af síld, og tæplega 6.000 tonn af kolmunna. í dag var búið að salta í 12.000 tunnur af síld, 6.100 tunnur hjá Vinnslustöð- inni, 2.900 tunnur hjá SES og 3.000 tunnur hjá ísfélaginu. Þá hefur töluvert magn verið fryst, og til dæmis hefur Fiskiðjan ein- göngu unnið síld í frystingu. Hér hefur allt snúist í kringum síldina síðustu vikurnar, en afla- brögð annars verið sáratreg, sem þó ekki er óvanalegt á þessum árstíma. Afli bátanna í október var aðeins 512 tonn, í 203 löndun- um, sem er töluvert lakara en í sama mánuði í fyrra. Aftur á móti hafa togarar landað 335 tonnum meiri afla í október en sama mán- uð í fyrra, en fjölgað hefur um einn togara á árinu. Afli lagður á land í október nam alls 7.537 tonn- um, og er þá heildaraflinn frá ára- mótum orðinn rösklega 55 þúsund tonn. _ hkj „Elskendur“ Álfreðs Flóka Plattinn er unninn úr v-þýsku Keiser-postulíni og er aðeins gefinn út í 250 eintökum. Myndin á plattan- um heitir „Elskendur". Platti, sem ber nafnið „Elskend- ur“ hefur verið gefinn út í 250 ein- tökum. Plattinn er teiknaður af Alfreð Flóka, myndlistarmanni og er hann unninn úr vestur-þýsku Keiser-postulíni. Plattinn er hugs- aður til að hengja upp á vegg, en einnig er hægt að nota hann sem disk. Piattinn verður ekki fáanleg- ur i verslunum. „Ekki trufla mig Guð“ — yfirskrift æsku- lýöshátfðar í Bústaðakirkju Æskulýðshátíð sem ber yfirskrift- ina „Ekki trufla mig Guð“ verður haldin í Bústaðakirkju að kvöldi fimmtudagsins 10. nóvember. Þar verður á dagskrá: Leikræn tjáning, kórsöngur, uppákomur, hugleiðing um yfirskrift hátíðar- innar og fleira. Þá mun hljómsveit leika undir söng og á eftir verður boðið upp á veitingar í safnaðar- heimilinu. Æskulýðsfélag Bústaðakirkju og kór Bústaðakirkju standa að hátíðinni og hefst hún klukkan 20.30. Háskóli íslands: Hátíðarsam- koma á fæðingar- degi Lúthers Stórútsalan Markaðshúsinu Sigtúni 3, 2. hæð ajftsr Mjög þekkt fyrirtæki eru nú með við opnum s.s.: HÁSKÓLI fslands gengst fyrir há- tíðarsamkomu fimmtudaginn 10. nóvember næstkomandi í tilefni þess að 500 ár eru liðin frá fæðingu Marteins Lúthers. Dr. Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytur hátíðarræðu og Jón Stef- ánsson stjórnar söng. Samkoman er haldin í hátíðar- sal skólans og hefst hún kl. 17.15. KARNABÆR BELGJAGERÐIN (Vinnuföt) SPORTVAL (Sportfatnaöur) BIKARINN (Sportfatnaöur) HENSON (íþróttafatnaöur) ÚTILÍF (Sportfatnaður) ÆSA (Skartgripir) ASSA (Tískuföt, barnaföt) S.K. (Sængurfatnaður) LIBRA (Fatnaöur) GALLERÍ LÆKJARTORG (Hljómplötur) RAFTAK (Rafmagnsvörur) LAUtHiNN (i-atn. a alla fjolskylduna) TINDASTÓLL (S.H. gluggatjaldaefni) G.M. PRJÓNAGARN PRJÓNASTOFAN KATLA (ísl. prjónapeysur) K. HELGASON (Sælgæti) M. BERGMANN (Sængurfatnaöur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.