Morgunblaðið - 08.11.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
13
Islenska gamanmyndin
sem allitiala um
Gagnrýnendur
segja:
„Það var mikið hlegið og
áberandi í hléinu hversu
fólki var skemmt og hafði
um margt að skrafa og
flissa yfir. Það voru greini-
lega margir sem könnuð-
ust við sig í þeim heimi,
sem myndin lýsir og þar er
líka helsti styrkur hennar.
Sagan öll og sögusviðið er
eins rammíslenskt og orð-
ið getur.“
H.S. Þjóðviljanum
„Það sem einkum tekst
vel upp við gerð myndar-
innar er notkun leikstjór-
ans á heimamönnum eða
eyjaskeggjum, en þetta lið
allt leikur sjálft sig og fer
það vel úr hendi.“
FRI Tímanum.
„En það eru aðalleikar-
arnir, þeir Eggert Þor-
leifsson og Karl Ágúst
Úlfsson, sem bera hita og
þunga myndarinnar. Og
þessir ungu leikarar kom-
ast frá hlutverkum sínum
með glans. Það er aldrei
dauðan punkt að finna í
leik þeirra og grínsenurnar
virðast þeim eðlilegar og
eru lausar við allan remb-
ing.“
H.K. Dbl./ Vísir
AÐAlHUJTVf.RK
SlJiiooRcil 1
HANDRIT OC STJÓRN
■%#1 1
r'RAMŒIDANOI
Copyrigrt @ 1983 Nytt W s.t.
40.000
„Hljóðið í þessari mynd er
betra en oft áður í íslensk-
um myndurn."
H.S. Þjóöviljanum.
„ ... það er hljóðupptöku
og hljóðsetningu sem er
virkilega ábótavant og
verður til þess að draga
myndina niður.“
H.K. Dbl./ Vísi.
„Nýtt líf er mjög hugguleg
mynd á allan hátt og tekst
vel til í hlutverki sínu sem
er að kitla hláturtaugar
landans, hreint bráðfyndin
mynd ..."
FRI Tímanum.
„Og ævintýri þeirra félaga
verða æði mörg og
skemmtileg og á vegi
þeirra verða margar per-
sónur, sem flestar koma
manni kunnuglega fyrir
sjónir úr íslensku þjóðlífi.
Þaö er þannig aö alltaf
nóg er að gerast og eng-
um ætti að leiðast; til þess
gefst enginn tími, fram-
vinda myndarinnar er
bæði hröð og markviss.“
H.S. Þjóðviljanum.
„Nýtt líf getur á engan hátt
talist tímamótaverk í ís-
lenskri kvikmyndagerð.“
G.A. Helgarpóstinum.
„Ég held bara að ég hafi
ekki skemmt mér eins
innilega á íslenskri kvik-
mynd fyrr.“
Ó.M.J. Morgunblaðinu.
Þeim fjörutíu þúsund áhorfendum sem þegar hafa séö myndina, þökkum viö innilega fyrir frábærar
undirtektir. Nýtt líf er nú um þaö bil hálfnaö á hringferö sinni um landiö og skýst staö úr staö milli
lægöardraga. Sýningum í Nýja bíói í Reykjavík fer nú aö fækka svo aö viö viljum hvetja alla, sem hafa
áhuga á aö kynna sér nýjustu handtökin viö fiskverkun og fiskveiöar til aö hraöa sér í Nýja bíó, áöur en
sýningum veröur hætt og síöasti þorskurinn hverfur úr sjónum. Líf og fjör! Vanir menn!
Bestu kveójur, Nýtt líf sf.