Morgunblaðið - 08.11.1983, Page 33
Það er erfitt að trúa og sætta
sig við það að amma sé farin frá
okkur. En við getum hugsað um
allar stundirnar sem við áttum
saman, og með því að hugsa um
það hjálpar það manni að komast
yfir mikinn söknuð. Og hún mun
ávallt vera í huga okkar og hjá
okkur.
Það væri aldrei hægt að þakka
allt sem hún gerði fyrir mína fjöl-
skyldu. Því alltaf var hún reiðubú-
in að gera allt sem hún gat gert
fyrir mann og miklu meira til.
Ávallt var hún hress og ung í
anda, þrátt fyrir öll sín veikindi,
oft var amma mikið veik en vildi
samt gera það sem hún var vön að
gera og stóð ávallt upp úr veikind-
um sínum.
En svo fékk hún að fara sína
síðustu ferð eins og hún sjálf vildi.
Það var alltaf gaman að koma til
ömmu á Grettisgötu, og þegar við
fórum síðast á Grettisgötuna, var
sonur okkar fljótur að kyssa
ömmu og hlaupa að bíladósinni,
sem var alltaf á sínum stað eins og
allt hennar dót. Það var ekki spil-
að þá eins og svo oft, fátt þótti
henni skemmtilegra en að spila,
eins og okkur.
Það er svo margt hægt að segja
og margs að minnast en samt svo
erfitt að skrifa, en ég veit að það
myndi hún skilja.
Ég er fegin því að við vorum
svona miklar vinkonur eins og við
vorum, höfðum alltaf símasam-
band og töluðumst tvisvar við í
síma hennar síðasta dag og sonur
okkar talaði líka við ömmu.
Við ætluðum að hittast eftir
klukkan fimm. Það var ákveðið
hálftíma áður en hún kvaddi
þennan heim. En amma kom ekki
til okkar. Hún varð að fara þessa
ferð, en hún verður alltaf hjá
okkur.
Ég votta börnum hennar,
stjúpbörnum og fjölskyldum
þeirra og öðrum ástvinum mína
dýpstu samúð. En við eigum öll
svo góðs að minnast um góða konu
sem víða skilur eftir sig stórt
skarð.
Guð veri með ömmu minni.
Olga og fjölskylda.
Aðalfundur Hjartaverndar:
Skorað á stjórn-
völd að stuðla
að hjartaskurð-
lækningum hér
á landi
Á AÐALFUNDI Hjartaverndar sem
haldinn var þann 27. október sl. voru
samþykktar eftirfarandi ályktanir:
Aðalfundur Hjartaverndar,
landssamtaka hjarta- og æðavernd-
arfélaga skorar á stjórnvöld að
vinda að því bráðan bug að búa
Landspítalann þeirri aðstöðu, tækj-
um og starfsfólki að unnt sé að taka
upp hjartaskurðlækningar hér á
landi.
Þá heitir aðalfundurinn á félaga
hjarta- og æðaverndarsamtakanna
og allan almenning i landinu að
bregðast vel við og leggja lið þeirri
fjársöfnun sem fram fer um þessar
mundir til kaupa á tækjum fyrir
Landspítalann sem flýti fyrir rann-
sóknum á hjartasjúklingum, stytti
biðtíma þeirra og bæti möguleika á
hj artaaðgerðum.
(Úr rrétUlilkrnniBgD.)
.Ayglýsinga-
síminn er 2 24 80
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
37
Góður hlutur gerir
tilveruna
skemmtilegri
Höfðabakka 9,
Reykjavík. S. 85411
Otrúlefft
en satt
Mikið úrval
af
leðursófasettum
Verð frá kr.:
59.750
KM-húsgögn,
Langholtsvegi 111,
símar 37010 — 37144.
B
Rekum SMIDSHOGGID á byggingu
sjúkrastöðvar SÁÁ