Morgunblaðið - 08.11.1983, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1983
39
Minning:
Kjartan Hjaltested
fv. afgreiðslustjóri
Kæddur 17. október 1902
Dáinn 29. október 1983
Laugardaginn 29. október sl.
andaðist Kjartan Hjaltested
fyrrv. afgreiðslustjóri, 81 árs að
aldri. Síðustu mánuði hafði hann
legið á sjúkrabeði.
Þegar við minnumst þessa góð-
vinar og nána samstarfsmanns
um langt árabil, vakna margar
ljúfar endurminningar frá ys og
þys starfsins og frá samveru-
stundum utan viniiustaðar. Og
ekki sist minnumst við hans vegna
þess sérstæða persónuleika sem
hann var.
Kjartan var alla tíð útivistar-
maður af lífi og sál. Fór hann með
félögum sínum margar ferðir um
fjöll og firnindi og var þá oft lögð
löng leið að baki. Hann var skíða-
maður góður, en iðkaði alhliða
íþróttir, meðal annars badminton
og atti kappi við færa kappa í
þeirri íþróttagrein, oft við góðan
orðstír. En ekki iðkaði hann
íþróttirnar afrekanna vegna held-
ur til þess að njóta yndis og lífs-
nautnar sem heilbrigð sál í
hraustum líkama veitir.
Kjartan var einn af félögum
„Litla skíðafélagsins" sem þekkt
var á árum áður fyrir miklar
skíðaferðir, einkum um páska, um
jökla og hálendi. Sagði Kjartan
margar sögur frá slíkum ferðum,
sem skemmtilegt er að minnast.
Var honum einkar lagið að draga
hið broslega fram í dagsljósið og
krydda frásagnir sínar með hár-
fínni fyndni.
Kjartan var ritari Skíðafélags
Reykjavíkur um langt árabil.
Vann hann að eflingu skíðaíþrótt-
arinnar ásamt öðrum forvígis-
mönnum og stóð við hlið hinna
þekktu eldhuga L.H. Muller og
Kristjáns Ó. Skagfjörð, sem báðir
voru merkisberar skiðaíþróttar-
innar og brautryðjendur i að
kynna töfra óbyggðanna og
opnuðu augu manna fyrir því hve
tign og fegurð vetrarins er mikil.
Og síðast en ekki síst minnumst
við starfsdags Kjartans hjá Eim-
skip. Hann gerðist ungur að aldri
starfsmaður í skrifstofu Eim-
skipafélagsins og átti að baki
háifrar aldar starfsferil og fimm
árum betur, er hann lét af starfi
sakir aldurs. Á þessum 55 árum
skilaði hann verki sem var i senn
mikið og gott, og mótaðist alla tíð
af hollustu við Eimskipafélagið.
Árvekni hans var einstök og
vinnustundir aldrei taldar. Átta
stunda vinnudagur, hvað var nú
það? Og hollusta Kjartans snéri
einnig að viðskiptavinum félags-
ins. Sýndi hann þeim ávallt ein-
lægan vilja til að leysa hvern þann
vanda sem hann gat greitt úr.
Þess vegna átti hann óskorað
traust þeirra ekki síður en félgsins
og samverkamanna.
Við kveðjum Kjartan að leiðar-
lokum með þakklæti fyrir sam-
verustundirnar. Við biðjum hon-
um blessunar á þeirri ferð sem
hann nú hefur lagt upp f. Til þeirr-
ar ferðar teljum við að hann sé vel
búinn og hafi gott veganesti.
Við sendum eiginkonu hans,
Vilborgu Jónsdóttur og öðrum að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Starfsfélagar Eimskip
Minning:
Sigrún Erlingsdóttir
— Lindarbrekku
Mig langar til þess að minnast
nöfnu minnar og vinkonu, Sigrún-
ar Erlingsdóttur, með nokkrum
orðum.
Ég kynntist Sigrúnu fyrst per-
sónulega fyrir rúmum þremur ár-
um, eða sumarið 1980, er hún
þurfti að leita sér lækninga til
Reykjavíkur. Eftir það lágu leiðir
hennar mjög oft í höfuðstaðinn,
sömu erinda og fyrr. Með okkur
nöfnunum tókst þá góð vinátta,
sem engan skugga bar á.
Sigrún var hæglát í allri fram-
komu, hlýr og einlægur persónu-
leiki, sem gott var að umgangast.
Aldrei heyrði ég hana kvarta yfir
veikindum sínum, hún var jákvæð
og reyndi að líta á björtu hliðarn-
ar á öllum málum.
Þrátt fyrir veikindi sín ferðaðist
hún tvívegis til útlanda á þessu
tímabiii með eiginmanni sínum,
Gunnari Guðmundssyni, hrepp-
stjóra, mági sínum og svilkonu.
Veitti það henni mikla tilbreyt-
ingu og ánægju.
Sigrún hafði yndi af handa-
vinnu og vann marga fallega hluti,
gaf hún mér prjónaða dúke og
fleira eftir sig, sem mér finnst af-
ar vænt um.
Einnig langar mig að þakka
fyrir Rúnar, son minn, en hann
dvaldi í tvö sumur, þá 14 og 15 ára,
í Lindarbrekku þar sem hann
mætti skilningi og velvild allra á
heimilinu. Minnist hann oft á veru
sína þar með gleði, sérstaklega þó
hvað hann fékk mikið og gott að
borða hjá Sigrúnu.
í ágúst 1982 heimsóttum við
hjónin þau Sigrúnu og Gunnar,
ásamt syni okkar, Einari. Þar var
tekið á móti okkur með rausn og
myndarskap og ekkert til sparað
að gera dvöl okkar sem ánægju-
legasta, enda verður ferð þessi og
dvölin í Lindarbrekku okkur
ógleymanleg.
Að lokum votta ég og fjölskylda
mín Gunnari, börnum, tengda-
börnum, barnabörnum, móður
hennar, systkinum, öðrum ætt-
ingjum og vinum okkar innileg-
ustu samúð.
Við kveðjum Sigrúnu með þökk
og virðingu, þess fullviss að sjá
hana aftur á öðru tilverustigi.
Sigrún Einarsdóttir
t
BJARNI JÓNSSON,
beykir,
veröur jarösunginn frá nýju Fossvogskapellunni miövikudaginn 9.
nóvember kl. 13.30.
Vandamenn.
t
Útför ástkærs eiglnmanns mins, fööur okkar og sonar,
DAVÍOS QUDMUNDAR BJARNASONAR,
framkvæmdaatjóra,
Eínaraneai 20, Raykjavik,
fer fram frá Dómkirkjunnl í Reykjavík miövikudaginn 9. nóvember
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu mlnn-
ast hins látna er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd vandamanna,
Tama V. Bjarnaaon,
Súsanna Davíösdóttir,
Sigríóur Davíðadóttir,
Kristin Daviösdóttir,
Bjarni Davfðsson,
Kristfn Brynhildur Davíösdóttir.
t
Útför
PÉTURS WILLIAM JACK,
Lágholti 2,
Stykkishólmi,
sem fórst meö Haferni SH 122 fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 10. nóvember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag islands.
Elin Guðmundsdóttír,
Iris Blómlaug Jack,
Fjóla Burkney Jack,
Hrafnhildur Día Jack,
Róbert Jack, Guömunda Vigdís Siguröardóttir
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir öllum þeim sem vottuöu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför,
LEIFS GRÍMSSONAR,
Álfheimum 13.
Hartha Grímsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jaröarför
ARNDÍSAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Litlu-Gröf,
Borgarhreppi.
Börn, tengdasonur, barnabörn og barnabarnabörn.
Islensk menningarvika í Berlín
íslonskir menningardagar verða
haldnir í Akademi die Kunste, í
Vestur-Berlín í nóvember, og fara
síðan víðar um Þýskaland. Á
dagskrá menningardagana eru
meðal annars tvennir tónleikar þar
sem sungin verða Ijóð og flutt ís-
lcnsk kammertónlist. Bókmennta-
kvöld þar sem fluttir verða prósar
og Ijóð eftir íslensk skáld, eldri og
yngri. Þá verða sýndar íslenskar
kvikmyndir, fluttir fyrirlestrar og í
anddyri Akademíunnar verður
Ijósmyndasýning. íslensk Grafík-
sýning verður svo opnuð á öðrum
stað í borginni.
Frumkvæði að þessum menn-
ingardögum áttu bræðurnir
Stefán og Wolfgang Edelstein,
hafa þeir annast heildarskipu-
lagningu en auk þeirra hefur
áhugamannahópur ýmissa lista-
manna starfað að undirbúningi.
Á blaðamannafundi sem undir-
búningshópurinn efndi til fyrir
skömmu sagði Stefán m.a.: „Sú
hugmynd sem Wolfgang bróðir
minn, sem búsettur er í Vestur-
Berlín, fékk fyrir tveim árum,
hefur vaxið í meðförum og orðið
að veruleika með hjálp ótal að-
ila. Það kom fljótt í ljós við at-
hugun að áhugi og vilji var til að
styðja og styrkja þessa hugmynd
í Þýskalandi og svo reyndist
einnig vera hérlendis er við leit-
uðum til opinberra aðila. Og
fjöldi einstaklinga hefur lagt
hönd á plóginn. Menningardag-
arnir verða opnaðir formlega
þann 25. nóvember af forseta fs-
lands, Vigdísi Finnbogadóttur
sem tók að sér að okkar beiðni að
verða verndari þeirra. Fyrsta
desember mun svo sama dagskrá
hefjast i Bonn, og í Hamborg
verður hluti af dagskránni
endurtekinn."
Á menningardögunum verður
sem fyrr segir bókmenntakynn-
ing, er hún í höndum Sigurðar A.
Magnússonar og Jóns Laxdal
leikara sem mun lesa nýjar þýð-
ingar sem hann hefur gert á ís-
lenskum verkum. Að ljósmynda-
sýningunni standa þeir Guð-
mundur Ingólfsson og Sigurgeir
Sigurjónsson, alls verða mynd-
irnar 70 og svna land og þjóð.
Kvikmyndir Agústs Guðmunds-
sonar, „Útlaginn" og „Land og
Synir" verða sýndar, og auk þess
Eldeyjan eftir Ernst Kettler,
Ásgeir Long og Pál Steingríms-
son. Njáll Sigurðsson mun halda
fyrirlestur um íslenska alþýðu-
tónlist. Og tónlistarmenn sem
fram koma í dagskránni eru
Manuela Wiesler, Einar Jóhann-
esson, Þorkell Sigurbjörnsson og
ólöf Kolbrún Harðardótt.ir. Á
grafíksýningunni verða 60 verk
eftir sjö listamenn, Björgu
Þorsteinsdóttur, Eddu Jónsdótt-
ur, Jón Reykdal, Valgerði
Bergsdóttur, Ragnheiði Jóns-
dóttur og Þórð Hall.
Prentaður verður 30 síðna
bæklingur, með ýtarlegum upp-
lýsingum annarsvegar um lista-
fólkið og hinsvegar um stöðu og
þróun ýmissa listgreina á ís-
landi.
Lokað
í dag miövikudaginn 9. nóvember vegna útfarar
DAVIDS BJARNASONAR, framkvæmdastjóra. Plastlökkun sf., Eyjaslóö 9.
Lokað
vegna jarðarfarar e.h. þriöjudaginn 8. nóvember.
Pólaris hf.,
Austurstræti 8.
Kveðjukaffi-
Htýleg salarkynni fyrir erfisdrykkju
og ættarmót.
Upplýsingar og pantanir í síma 11633.
LKvoóiwd
Caté fíoaanborg.