Morgunblaðið - 20.11.1983, Side 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
Þjóðbúninganefnd fær
drjúga peningagjöf
SIGRÍÐUR Thorlacius hef-
ur gefiö Samstarfsnefnd um
gerð íslenskra þjóðbúninga
100 þús. kr. í sjóð. Þessa
upphæð afhenti stjórn
Kvenfélagasambands ís-
lands þessum fyrrverandi
formanni sínum til frjálsrar
ráðstöfunar á sjötugsaf-
mæli Sigríðar 13. nóvember
sl. Hefur Sigríður Thorlaci-
us verið fulltrúi Kvenfélag-
asambandsins í þjóðbún-
inganefndinni frá upphafi,
og afhenti hún stjórninni
upphæðina án annarra
kvaða en að fénu verði var-
ið til framgangs verkefnum
nefndarinnar, hvort heldur
hún telur hagkvæmast að
nota það til starfrækslu
Leiðbeiningastöðvar um
gerð þjóðbúninga eða ann-
arra nauðsynlegra útgjalda.
Sigríður sagði, að það
gleddi sig mjög að geta lagt
þetta fé til, því það háði
Samstarfsnefnd um gerð ís-
lenskra þjóðbúninga mjög að
hún hefur nær ekkert fé til
umráða. Fékk í upphafi fyrir
10 árum styrk úr Þjóðhátíð-
arsjóði og síðan hafa velunn-
arar hlaupið undir bagga
öðru hverju, en engir styrkir
veittir af opinberu fé. Hefur
Fríður Guðmundsdóttir ver-
ið ráðunautur um þjóðbún-
inga fyrir nefndina, en mjög
mikil þörf er á því og hefur
hún aðstöðu hjá Heimilisiðn-
aðarfélaginu á Laufásvegi 2.
Fjölritaðar leiðbeiningar
liggja frammi hjá íslenskum
heimilisiðnaði í Hafnar-
stræti, í Gullkistunni og í
Þjóðminjasafninu. Mikil þörf
er á slíkri starfsemi, því
bæði þurfa einstaklingar að-
stoð um gerð búninga, svo og
opinberir aðilar, því ósjaldan
þarf að kynna íslenska þjóð-
búninginn af ýmsu tilefni
erlendis.
Sigríður Thorlacius afhedir Samstarfsnefnd um gerð ísl. þjóðbúninga
peningagjöf. Á myndinni er Fríður Ólafsdóttir ráðunautur nefndarinnar,
Dóra Jónsdóttir frá Þjóðdansafélaginu, Elsa E. Guðjónsson frá Þjóð-
minjasafni, Sigríður Halldórsdóttir frá Heimilisiðnaðarfélagi íslands og
Sigríður Thorlacius fulltrúi Kvenfélagasambandsins í stjórninni.
Sparneytni í fyrirrúmi
í tengslum viö sparakstur Vikunnar og DV á hringveginum í sumar fylgdi Suzuki
Fox jeppi keppendum eftir sem eftirlitsbíll. Fylgst var meö eyöslu bílsins og
reyndist hún vera 7,9 I. pr. 100 km aö meöaltali.
Þessa tölu staðfestir dómari keppninnar, Siguröur Tómasson, starfsmaður
orkusparnaðarnefndar.
Suzuki Fox er sterkbyggður og lipur japanskur jeppi, sem
hentar sérstaklega vel fyrir íslenzkar aðstæður.
Byggöur á sjálfstæöri grind.
Eyðsla 8—10 I. pr. 100 km.
Hjólbarðar 195x15 — Sportfelgur.
Hæö undir lægsta punkt 23 cm.
Stórar hleðsludyr að aftan.
Aftursæti sem hægt er aö velta fram.
4ra strokka vél 45 hestöfl.
Hátt og lágt drif.
Beygjuradius 4,9 m.
Þyngd 855 kg.
Rúmgott farþegarými meö sætum
fyrir 4.
.272.000
(gengi 15/11 ’83)
SÖLUUMBOD:
Akranes:
Borgarnes:
isafjörður:
Sauðárkrókur:
Akureyri:
Húsavík:
Reyðarfjörður:
Egilsstaðir:
Höfn í Hornafiröi:
Selfoss:
Hafnarfjörður:
Ólafur G. Ólafsson, Suöurgötu 62, sími 93-2000
Bílasala Vesturlands, sími 93-7577
Bílaverkstæði isafjarðar. simi 94-3837
Bílaverkstæði Kaupf. Skagfiröinga, simi 95-5200
Bílasalan hf„ Strandgötu 53, simi 96-21666
Bílaverkstæöi Jóns Þorgrímssonar, sími 96-41515
Bílaverkstæöiö Lykill, simi 97-4199
Véltækni hf„ Lyngási 6—8, sími 97-1455
Ragnar Imsland, Miötúni 7, simi 97-8249
Árni Sigursteinsson, Austurvegi 29, simi 99-1332
Bílav. Guövaröar Eliass., Drangahraun 2, simi 91-52310
ALLT í STÍL
Vönduö íslensk húsgögn í barnaherbergið
Sýnum einnig hornsófa — hillusamstæöur — leö-
ursófasett — furusófasett — eldhúsborö og stóla.
Handunnar íslenskar
jólaskreytingar ný-
komnar í miklu úrvali.
Sjón er sögu ríkari.
Góöir greiösluskilmálar — Frí heimsending á
Reykjavíkursvæöinu.
Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfiröi. S.: 54343.