Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 93 AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MANUDEGI a, . TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . . Fólk gái að sér þegar það kaup- ir jólastjörnu Hilmar Magnússon, Ekru, Biskupstungum, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Svoleiðis er að ég er með framleiðslu á Jólastjörnum" og sel í verslanir í Reykjavík. Flokka ég plönturnar í þrjá flokka eftir gæðum og er heildsöluverðið hjá mér 130 krónur fyrir fyrsta flokk, 110 krónur fyrir annan flokk og 90 krónur fyrir þriðja flokk. Þeg- ar ég var staddur í Reykjavík í gær (fimmtud. 17. nóv.) leit ég inn í sex blómaverslanir og var heldur óhress með að sjá, að flokkunum hafði verið blandað saman og kostuðu þriðja flokks plöntur upp í 260 krónur. Af þessari ástæðu hvet ég fólk til að gá vel að sér, þegar það kaupir jóla- stjörnu fyrir hátíðirnar. Skermurinn til mikilla lýta Pétur Sveinsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég hringi út af skerminum sem Rússarnir voru að setja upp á húsið hjá sér í Túngöt- unni. Nú leyfi ég mér að hvetja nefnd þá, er hefur af- skipti af útliti húsa í borginni, t.d. þegar fólk ætlar að breyta hjá sér, að láta nú duglega í sér heyra. Ég vona satt að segja, að hún skipi Rússunum að taka þetta apparat niður, því að það er forljótt. Húsið er í fallegu umhverfi, auk þess sem húsið sjálft er snoturt, og að mínu mati fer það ekkert á milli mála, að skermurinn er til mikilla lýta þarna. Rjúpnaskytta frá Akureyri komstf hann krappan: Skreið í skurði af ótía viö gamla konu með riffil HJ( l'M'Kini fré tion nffli vír alt h.nn. hnm f»n* «>r»|»K.-*ll u* •ll-i-l»*n lif. .tuhk hun hv.llr*. . n*>l* rrynntai 'ihir .1 *«kl lil -k.ir.l \ ur é.iur -ih»n <*r<. Kennsla á villigötum: Hvenær á að snúa undanhaldi í sókn? Háskólakennari og faðir skrifar: „Minnkandi námskröfur Við, sem nú erum að nálgast miðjan aldur, minnumst þess sum, hve skyldunámið í bernsku okkar var auðvelt og gerði litlar kröfur til okkar. Duglegir krakkar, sem höfðu verið í góðri tímakennslu 2 klukkustundir á dag, kunnu oft jafn mikið og 9 ára og við höfðum lært 12 ára. Jafnvel hið ógnarlega landspróf hafði misst svo brodd sinn á 10 árum tilveru sinnar, að metárgangar innrituðust ár hvert í menntaskóla og taka varð upp nýja mannskæða prófsíu í 3. bekk. En þótt mikill tími hafi farið til spillis í skyldunámi fyrir 30 árum og litlar kröfur gerðar til nem- enda, getur engum dulist, að mjög er undanhaldið hraðara á síðustu árum og lætur nærri að kalla megi flótta. Einstaklings- bundin kennsla? Margir grunnskólar láta það í veðri vaka, að takmark þeirra sé einstaklingsbundin kennsla. Sann- leikurinn er oft hið gagnstæða. Duglegum nemendum er mark- visst haldið niðri. Minntu börnun- um er bannað að læra meira en ákveðinn stafafjölda á ári. Amast er við því, að börnum sé kennt að lesa á heimilum sínum og engin verðug verkefni boðin nemendum, sem hafa næmi og dugnað. Mengjadellan olli því, að margt ungt fólk hefur ekki frumstæða reikningstækni á valdi sínu, en nýjungar af því tagi eru oft innleiddar án nægjanlegra undir- búningsrannsókna, stundum eftir að upphafsþjóð nýjunganna er að gefast upp á þeim (sbr. mengja- kerfið). Vitað er, að frábærir hæfileikanemendur hneigjast oft til mótþróa og jafnvel afbrota, ef þeir fá ekki verkefni við sitt hæfi. Hvergi er niðurlægingin meiri en í húmanískum fræðum. Engum, sem átt hefur barn í skóla undan- farna einn til tvo áratugi getur blandast hugur um það, að þekk- ingu ungmenna á umhverfi, sögu og menningu íslands og annarra landa hefur stórhrakað. Þeir, sem láta í ljós undrun við nemendur, að þeir kunni ekki skil á Snorra, Reykholti, Shakespeare eða Strat- ford, fá kannski að svari fyrirlest- ur um helstu borgir og lifnaðar- hætti í Tansaníu. Ef til vill fór eitt námsár í vinnubók um Austur- Afríku, virðingarvert verkefni, en varla brýnt samfara fullkomnu þekkingarleysi um eigin heima- haga. Greinileg afturför er einnig sýnileg í tungumálakennslu, ein- kum í íslensku. Rétt er þó að taka fram, að á ýmsum sviðum raunvís- inda hafa orðið umtalsverðar framfarir. Kennslubækur á fram- haldsskólastigi eru betri og aðgengilegri en áður og námskröf- ur lítið minni. Jón Arason tekinn af Kveikja þessa greinarkorns er viðtal við námsstjóra í samfélags- fræði (Morgunblaðið 13. nóvember 1983) meðal annars um væntan- lega nýskipun í sögukennslu í grunnskólum landsins. Ekki skal efast um það, að kona þessi sé vel menntuð í sínum samfélagsfræð- um og velviljuð í starfi. Rétt er þó að vara við boðskap hennar. Ætl- un námsstjórans er að einskorða námsefni í íslandssögu við tíma- bilin 870 til 930, 1700 til 1720 og 1840 til 1880 eða samtals um 120 ár. Með þessu móti eru þeir end- anlega útlægir úr íslenskum grunnskólum, Snorri Sturluson, Jón Arason, Guðbrandur Þor- láksson og Hallgrímur Pétursson, svo að nokkrir séu nefndir. Verk þeirra, þjóðfélag þeirra tíma og stjórnmálaviðburðir koma íslend- ingum framtíðar ekki við. Þennan sigur á fortíðinni á að vinna undir gunnfána „samfélagsfræði", loð- innar fræðigreinar í leit að hlut- verki. Ný námsskrá í „samfélagsfræð- um“ mun tæpast ein sér ganga að þjóðarvitund fslendinga dauðri. En foreldrar þessa lands hljóta að spyrja: Hvenær á að snúa undan- haldi í sókn? Hvenær fá nemendur verkefni, sem reyna sæmilega á námshæfni þeirra og skilning? Við erum ekki ein í heiminum. Á öllum öldum höfum við orðið að leggja hart að okkur i baráttu við umheiminn til að tryggja efnalega afkomu og frelsi þjóðarinnar. Þeirri baráttu munum við tapa, ef ungmenni landsins fá ekki kjarnmikið og markvisst vega- nesti í skólum landsins." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Veðrið er að slota. Rétt væri: Veðrinu er að slota. GA V/öGA g 1iLVt9AU Læknastofa Hef opnaö stofu í Læknastööinni, Álfheimum 74, símatími: miövikudaga kl. 13.00—13.30, sími 86338. Fridrik Páll Jónsson, háls-, nef- og eyrnalæknir. SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS: sölugengi miiai vii 4,5% vexti umfram veritr. pr. 100 kr. 1. FLOKKUR 2. FLOKKUR Útg. Sölugengi pr. 100 kr. 4,5%vextirgildatil Sölugengi pr. 100 kr. 4,5% vextirgildati! 1970 1971 14.390 15.09.1985 16.373 02.05.84 1972 13.167 25.01.1986 10.786 15.09 1986 1973 8.265 15.09.1987 7.963 25.01.1988 1974 5.230 15.09.1988 - - 1975 3.863 10.01 1984 2.871 25.01.1984 1976 2.617 10.03.1984 2.168 25.01.1984 1977 1.899 25.03.1984 1.603 10.09.1984 1978 1 288 25.03.1984 1.024 10.09.1984 1979 879 25.02.1984 664 15.09.1984 1980 585 15.04.1985 453 25.10.1985 1981 389 25.01.1986 290 15.10.1986 1982 270 01.03.1985 201 01.10.1985 1983 156 01.03.1986 ~ VEÐSKULDABRÉF VERÐTRYGGÐ ÓVERÐTRYGGÐ Með 2 qjalddöqum á ári Með 1 qialddaqa á ári Láns- Avöxtun Söluqen 3! Söluqem 3' tlmi Sölu- umfram 18% 20% 18% 20% ár: gengi Vextir verðtr. ársvextir ársvextir HLV" ársvextir ársvextir HLV" 1 95,18 2 9 77 78 91 83 84 86 2 92,18 2 9 67 68 85 73 75 79 3 90,15 21/2 9 58 60 79 64 66 72 4 87,68 21/2 9 51 53 73 57 59 66 5 85,36 3 9 45 47 68 51 53 61 6 82,73 3 91/4 7 80,60 3 91/4 Athugið að sölugengi veðskuldabréfa er háð 8 77,72 3 91/2 gjalddögum þeirra og er sérstaklega reiknað út 9 75,80 3 91/2 fyrir hvert bréf sem tekið er í umboðssölu. 10 72,44 3 10 1) Hæstu leyfilegu vextir. Kaupþing hf. reiknar gengi verðbréfa daglega SALA Á SPARISKÍRTEINUM RÍKISSJÓÐS 19832. FLOKKI STENDUR YFIR, - EININGAR: 500 kr., 1000 kr„ 5000 kr„ lOOOOkr. - ÁVÖXTUN UMFRAM VERÐTRYGGINGU: 4,16% - LÁNSTÍMI: 17 ár - INNLEYSANLEG í SEÐLABANKA: 15. nóvember 1986 2 innlausnardagar á ári KAUPÞING HR Husi Verzlunarinnar, 3. hæð simi 86988 s.86988 Vfsa vikunnar Miklir á velli og vilja hark í veiðistellingunum, en þurfa að fella fót og kjark fvrir kellingunum. Hákur. +-.h,,k, fÉ6 MINNTI HHNR PRÐ PE6HR ÞÚ \ ^TRKKST ONÍ ■'VxSLORÞRÖNR. y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.