Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Gettv fjölskyldan RAUNIR HINNA RÍKU eftir Russel Miller Jean Paul Getty I byggði í kyrrþey upp heilt olíu- heimsveldi. Nafn hans teng- ist stálhörðu kaupsýsluviti og óhemju auöævum. Son- arsonur hans, Jean Paul Getty III, komst fyrst í frétt- irnar 1973, þegar mann- ræningjar skáru annað eyr- að af honum suður á Ítalíu til þess að knýja afa þessa (þá) 16 ára unglings til þess að greiöa lausnargjaldiö þegar í stað. Suma dagana tekst honum að grilla aðeins í útlínur hlutanna umhverfís og óljóst sér hann bjarma dauflega fyrir litum í gegnum rökkurslæðurnar, sem hylja blind augu hans. Hann gerir örvæntingarfullar tilraunir til að tala og stundum tekst honum jafnvel að mynda orð og orð, sem eru næstum því skiljanleg. Það var alveg nýlega, að hann gat orðið aftur farið að staulast örlítið um með aðstoð tveggja hjúkrunarkvenna, þótt lamaðir útlimir hans séu algjörlega samanherptir og honum til næsta lítils gagns. Samt sem áður hefur hann náð mun meiri framför- um en nokkur hefði getað látíð sér til hugar koma, og enda þótt hann eigi aldrei eftir að verða alveg heill heil.su aftur, þá eru þó góðar horfur á því, að Jean Paul Getty III verði einn góðan veðurdag fær um að ganga um aftur á hækjum; og ef til vill á hann meira að segja eftir að fá örlitla sjón aftur. f þessu sambandi er það vissu- lega mikil hjálp fyrir hann, hve ungur hann er að árum: Hann er 26 ára gamall, en frá því að hann fékk slag fyrir tveimur árum, hef- ur hann búið á heimili móður sinnar í stóru einbýlishúsi, sem stendur í undurfögru umhverfi í Brentwood, einni af útborgum Los Angeles. Sex daga vikunnar stunda sjúkraþjálfarar Paul, og hann er allt upp í tólf tíma á dag í þjálfun hjá þeim. Allan sólarhringinn er hjúkrunarkona á næsta leiti til taks, þegar þarf að mata hann, þvo og klæða. Tvisvar á dag er hann borinn út í upphitaða sund- laugina við húsið, þar sem hann er látinn gera ýmsar æfingar í þjálf- unarskyni, en þær eiga smátt og smátt að veita lífi í máttvana lík- ama hans og fá lamaða útlimina til að hreyfast á ný. Nærgætni hans nánustu Yngri bróðir hans, Mark, 22 ára, heimsækir hann um nærri því hverja einustu helgi, situr klukku- stundum saman við hlið hans og reynir að koma honum til að hlæja, les upphátt fyrir hann eða aðstoðar hann við að æfa arm- beygjur. Aileen systir hans, tutt- ugu og þriggja ára gömul, hringir I hann, þegar hún getur ekki kom- ið því við að fara frá kjólabúðinni sinni í Santa Barbara til þess að heimsækja hann. Hin tvítuga Ari- adne, sem stundar háskólanám við Bennington College í Vermont, dvelur heima í Brentwood í öllum fríunum sínum, til þess að geta verið hjá bróður sínum. Enda þótt Paul hafi þegar verið skilinn við hina þýzku eiginkonu sína, Martine Zacher, þegar hann fékk slagið, heldur hún samt enn þann dag í dag tryggð við hann og heimsækir hann eins oft og hún hefur efni á að ferðast hina löngu leið frá San Francisco, þar sem hún vinnur hluta úr degi við af- greiðslustörf í bókabúð. En það er þó móðir Pauls, Gail Harris Getty, sem mest allra legg- ur sig fram við að hjálpa honum og telja kjark í hapn. Og ef hann svo sjálfur reynir við og við að velta fyrir sér hlutunum svolítið nánar, þá gætir hann þess að láta helzt engan verða varan við það. En það gæti víst heldur enginn láð honum, þótt hann kæmist að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa lit- ið yfir farinn veg á stuttri ævi, að það hafi verið honum bölvun að hafa fæðzt með ættarnafnið Getty. Þegar Jean Paul Getty var að heimsækja vini sína í kommúnu einni í Los Angeles hinn 5. apríl 1981 og sofnaði á sófa við það tækifæri, þá veitti enginn því hina minnstu athygli. Það var alls ekk- ert óvenjulegt við það, að Paul væri hálfslappur af áfengis- eða eiturlyfjaneyzlu eða þá af hvoru- tveggja. Allir, sem eitthvað þekktu til hans, vissu ofur vel, að hann var vanur að drekka rúm- lega einn lítra af viskíi á degi hverjum. Tveimur klukkustundum síðar reyndi svo hin ítalska vin- kona hans, Emmanuella Stuzzhi, að vekja hann, en Paul sýndi engin minnstu viðbrögð. „Hann er ekki sofandi," sagði þá einhver við- staddra, „hann liggur í dái.“ Sjúkrabíll var fenginn til að aka hinum meðvitundarlausa á sjúkrahús, og nokkrum klukku-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.