Morgunblaðið - 20.11.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
63
Böm og starfsfólk leikskóians Undralands í Hvera-
gerði. Ragnheiður H. Jónsdóttir og Ómar Færseth af-
henda forstöðukonu skólans, Ernu Valdimarsdóttur,
merkin.
Þátttakendur í reiðhjólaralli JC í Hveragerði.
Hveragerði:
Gáfu börnunum endurskinsmerki
llveragerdi.
KLÚBBURINN Junior Chamber, Hveragerði, hefur nú starfað í tæp tíu ár og
hafa þeir félagar í mörgu sýnt byggðarlaginu sóma og velvilja. Fyrir skömmu
færðu forsvarsmenn klúbbsins börnum og starfsfólki leikskólans Undra-
lands endurskinsmerki að gjöf og er ætlunin að gefa einnig nemendum
grunnskólans og öldruðum borgurum slík merki. Þessi endurskinsmerki lét
JC íslands gera í tilefni samnorræna umferðaröryggisársins. Gjöfina afhentu
þau Kagnheiður Hrefna Jónsdóttir og Ómar Færseth, en þau eiga sæti í
byggðarmálanefnd klúbbsins. Erna Valdimarsdóttir, fóstra og forstöðukona
leikskólans, tók við gjöfinni og fa
barnanna og samstarfsfólksins.
Fréttaritari Mbl. hitti að máli
þau Ragnheiði og ómar og spurði
þau um starf klúbbsins. Þau kváðu
að fyrst bæri að nefna borgara-
fund, sem haldinn var í apríl sl.
þar sem fjallað var um umferð-
armál. Þá var rætt um lyfjanotk-
un við akstur, umferð aldraðra og
umferð á vélknúnum ökutækjum.
Frummælendur voru Jón Guð-
mundsson, yfirlögregluþjónn á
Selfossi, Stefán Magnússon, kenn-
ari og umferðarkennari, og Tryggi
Jakobsson frá Samvinnutrygging-
um, sem stóðu ásamt JC að fund-
ii þeim innilegar þakkir fyrir
inum auk klúbbanna Öruggur
akstur. Fundarmönnum var boðið
til kaffidrykkju.
í maí sl. gengust JC-samtökin
fyrir reiðhjólaralli fyrir börn og
voru þátttakendur um 50 börn.
Hjóluðu þau hring um þorpið í
fylgd með lögreglu. Síðan reyndu
þau sig við sjö þrautir á hjólum á
íþróttavellinum og gefin voru stig
fyrir hverja þraut. Öll börnin
fengu viðurkenningarskjöl. Að
lokum var haldin ísveisla, sem
gerði mikla lukku.
Klúbburinn annast jólatréssölu
fyrir jólin, en félagarnir keyra þau
heim á dráttarvél, klæddir jóla-
sveinabúningi og gefa börnunum
epli í leiðinni.
Þá gangast JC fyrir jólatrés-
samkomu þar sem allir eru vel-
komnir. Um áramótin lýsa þau
upp Hamarinn með logandi blys-
um (en Hamarinn er klettabelti
sem gengur niður frá Hellisheiði
og myndar nokkurs konar skjól-
vegg ofan við vestustu byggðina í
þorpinu).
Fyrir nokkrum árum gaf klúbb-
urinn vegvísi, sem stendur við að-
alinnkeyrsluna í bæinn.
Ýmsar hugmyndir eru á döfinni
sem of snemmt er að ræða, en þó
má segja að haldin verður mynd-
arleg afmælishátíð á 10 ára af-
mælinu í vetur, sögðu þau Ragn-
heiður og ómar að lokum.
Félagar í klúbbnum eru 32 að
tölu, bæði menn og konur. Forseti
er Ingibergur Sigurjónsson.
Fréttaritari.
Hillur, hengistólar,
teborð og barir. Sófa-
sett, lítil borð og inn-
skotsborð. Erum
einnig með rókókó-
sófasett og borðstofu-
sett, sófaborð og
staka stóla.
Úrval af málverkum
og gjafavörum.
Verslunin REYR Laugavegi27,
sími 19380.
HáGKNJP AUGLfólR
MANUDAGA 9 - 19
ÞRIÐJUDAGA 9 - 19
MIÐVIKUDAGA 9 - 19
FIMMTUDAGA 9 - 20
FÖSTUDAGA 9 - 21
LAUGARDAGA 9 - 16
17 A n XT A TT7> Skeifunni 15
IXAVJliAUr Reykjavík