Morgunblaðið - 20.11.1983, Qupperneq 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
L—
Pottarím
Umsjón: SIGRUN
DAVÍÐSDÓTTIR
f hlýja veðrinu undanfarna
daga hafa líklega allar jólahugs-
anir verið víðs fjarri, enda fátt
sem minnir á þau. Þeir sem vilja
gera sem minnst úr jólastandinu
finnst víst fáránlegt að hugsa
um þau nú, enn er meira en
mánuður þangað til. Jóladellu-
fólki finnst hins vegar, að ekki
sé ráð nema í tíma sé tekið. Ef
þið ætlið ykkur að hafa eitthvað
við fyrir jólin, hvers vegna ekki
að byrja í tæka tíð. Nema nátt-
úrulega að það að vera á sfðustu
stundu sé ómissandi þáttur jóla-
undirbúnings ...
Flestir baka eitthvað til jól-
anna, og þá gjarnan ýmiss konar
kryddkökur, oft með sírópi eða
hunangi í. Slikar kökur geymast
býsna vel, svo það er tilvalið að
baka þær með góðum fyrirvara.
Auk þess getur vel verið til álita,
hvort ekki sé skemmtilegt að
færa jólastemmninguna svolítið
yfir á desembermánuðinn, að-
ventuna. Margir hafa tekið upp
þann sið að hafa aðventukransa,
sem sannarlega minna á jólin.
Það á því vel við að bjóða upp á
nokkrr smákökur stöku sinnum í
desember, með viðeigandi kerta-
ljósum. Slík hátíðlegheit eiga
ekki síst vel við þar sem krakkar
eru, til að draga úr ógnarlegum
jólaspenningi og gefa þeim svo-
litla jólatilfinningu, sem ekki
tengist bara pökkum og gjöfum.
Þessi tími er oft inniverutími ef
ekki er mikill snjór og indælt að
gefa honum jólasvip. Það er ein-
mitt á þennan hátt, sem aðvent-
an er gjarnan haldin hátíðleg á
Norðurlöndum og í Þýzkalandi.
Heitir drykkir eru vel þegnir á
þessum árstíma. Heitt te, lagað
úr venjulegu te ásamt nokkrum
negulnöglum og kardimommum
er ljúffengur og hressandi
drykkur, kryddið gefur honum
jólailm og -bragð. Það þarf svo
sem engar kökur með, aðeins
rúsínur eða aðra þurrkaða
ávexti og svo möndlur, líkt og er
borið fram með jólaglögg. Annar
heitur drykkur er mjólkurkaffi,
búið til úr heitri mjólk og duft-
kaffi, ásamt púðursykri eftir
smekk, eða með því að hella
saman í bolla sterku kaffi og
sjóðandi mjólk. Hver og einn
fær sér svo púðursykur eftir
smekk. Einnig hér á kryddið vel
við.
Gott brauð, sætlegt og krydd-
að, hefur á sér jólablæ. Slíkt
brauð er hægt að baka í rausn-
arlegum skömmtum og eiga í
frysti og grípa til eftir þörfum.
Það er engin tilviljun að aust-
urlenzkt krydd eins og negul-
naglar, kanell og pipar skuli
tengjast jólunum og reyndar
stórhátíðum yfirleitt. Sama er
með þurrkaða ávexti, hnetur og
möndlur. Hér áður fyrr meðan
kryddið var sjaldséð og dýrt og
GENERAL ELECTRIC
þurrkaðir ávextir tilheyrðu vetr-
arforðanum var eðlilegt að þetta
tvennt setti svip sinn á þessa
vetrar- og ljóshátíð. En það var
ekki aðeins mannfólkið sem var
á höttunum eftir góðgæti, held-
ur einnig alls kyns furðuverur
eins og jólasveinarnir okkar. Þó
þeir troði nú upp glaðir og elsku-
legir, voru þeir hálf skelfilegir
fyrir margt löngu og sátu um að
hrella fólk. Sögur af þeim voru
notaðar til að siða krakka með,
hyskið var enda synir Grýlu og
Leppalúða. Það þykir vfst ekki
góð uppeldisaðferð nú og allur
kraftur farinn úr jólasveinun-
um. Þeir hafa mjög fengið
svipmót sitt af evrópska jóla-
sveininum honum sankti Kláusi.
Sankti Kláus eða heilagur Nik-
öldum eins og annars staðar, þó
hann hafi ekki skilið nafnið sitt
eftir hér eins og víða. Nöfnin Ní-
els og Nils, Nigels, dregin af
Nikulás, og svo allar útgáfur
Nikulásar-nafnsins eru víða
mjög vinsæl nöfn, einnig styttra
formið, t.d. Klaus. Og þó dönsku
búálfarnir, sem gera mönnum
glettur á jólum, séu ótengdir
heilögum Nikulási, rétt eins og
jólasveinarnir okkar, þá hefur
þeim verið gefið þetta algenga
nafn, Niels eða Nis, nissar sem
er komið af dýrlingsnafninu. En
nóg um jólasveinafræði ...
Þá eru það matarmálin. Á
pottarímsborðum í dag er síld,
sem er ómissandi á vetrar- eða
jólaborðið, ekki satt ...
Eitt og annað jólalegt
ulás af Myra í Litlu-Asíu og síð-
ar í Bár á Ítalíu var einn allra
vinsælasti dýrlingur kristinna
manna fyrr á öldum, ekki sízt í
Austurkirkjunni. Hver dýrling-
ur átti sér sinn dag, sem haldið
var upp á, dýrlingnum til heið-
urs og mönnum til velfarnaðar.
Nikulásardagurinn er 6. desem-
ber, svo það er ekki furða þó
hann hafi smám saman tengzt
jólunum. Hann var einkum dýrl-
ingur stúdenta og sæfarenda og
margar sögur eru til um hvernig
hann bjargaði nauðstöddum úr
sjávarháska. Hann var svo vin-
sæll að samkvæmt rússneskri
þjóðsögu, þá fylltust nokkrir
samdýrlingar hans á himnum
ókristilegri öfund í hans garð og
sáu ofsjónum yfir dýrðlegum há-
tíðahöldum á jörðu niðri á degi
hans. Heilagur Jóhannes af
Cassian safnaði kjarki og gekk á
fund Guðs, fyrir hönd hinna
óánægðu, til að kvarta yfir þessu
misrétti. Guð kallaði heilagan
Nikulás fyrir sig, en hann fannst
hvergi. Tveir englar voru sendir
til jarðar að leita hans og komu
með hann á Guðs fund. Nikulás
birtist þá með hálfdrukknaðan
mann í örmum sér. Guð spurði
Nikulás um ferðir hans. Hann
sagðist hafa verið að bjarga
skipbrotsmönnum úr sjávar-
háska. Guð sneri sér þá að for-
sprakka kvörtunarliðsins og
spurði: „Hvað hefur þú gert þér
til ágætis, svo fólk hylli þig með
gjöfum og heiðri þig? Ég mæli
svo um að þinn dagur verði 29.
febrúar, svo þér verið aðeins
haldin hátíð fjórða hvert ár í
refsingarskyni fyrir ósvífnina."
Nikulás var vinsæll hér á mið-
Sfld glerskurð-
armannsins
Af einhverjum ástæðum þá
hefur þessi stétt iðnaðarmanna
fengið þessa ljómandi síld kall-
aða eftir sér. Kannski var síld
algengt iðnaðarmannanesti.
Þetta er saltsíld, lögð í kryddað-
an edikslög. Það er hægt að fara
frjálslega með kryddið, eftir eig-
in smekk og eftir því hvað er til.
Síldin er góð eftir 4—5 daga
og geymist í kæliskáp í allt að 2
vikur, eftir að hún er orðin góð.
Síldin er ljómandi góð með rúg-
brauði eða seyddu brauði, einnig
með soðnum kartöflum, eða epl-
um og sýrðum rjóma. Rótarsell-
erí, epli og sýrður rjómi, þ.e. sal-
at úr þessu þrennu, er lostæti
með síldinni. Notið gjarnan
súrmjólk ásamt sýrða rjómanum
á þetta salat, þannig verður sós-
an mýkri. Og þegar aðeins fáir
bitar eru eftir af síld, þá er til-
valið að setja þá í svona salat og
þar hafið þið þá Ijúffengt síldar-
salat.
Grænmeti er látið liggja með
síldinni. Það gefur gott bragð og
tekur sig vel út. Hér er notaður
rauðlaukur, en venjulegur lauk-
ur, eða blaðlaukur, kemur einnig
vel til greina. Edikið á að vera
5—7% að styrkleika. Auk þess
að nota borðedik, fer einnig vel á
að nota hvítvínsedik, en það er
mun dýrara.
5 saltsíldar
2 stórir laukar, gjarnan rauð-
laukar
3 góðar gulrætur.
1. Fyrst um síldarverkun. Veljið
ykkur feita og fallega síld. Fyrst
er hún útvötnuð, þ.e. látin liggja
í vatni, gjarnan þunnu tevatni, í
um sólarhring. Þetta er gert til
að mesta sterkjan úr pæklinum
renni úr.
Þá er að flaka (nema þið látið
fisksalann gera það og útvatnið
svo flökin): Smyrjið hendur ykk-
ar salatolíu, já hafið þær löðr-
andi svo saltið úr síldinni erti
ykkur ekki. Það er erfitt að þrífa
borð og bretti sem síld kemst I
snertingu við, því lyktin er ærið
sterk. Leggið því vænt lag af
dagblöðum á borðið eða vefjið
þeim um brettið og setjið svo
plast yfir, gjarnan 2—3 plast-
poka. Það er einfalt að stinga
brettum, vöfðum dagblöðum, inn
í 2—3 plastpoka.
Það er best að vera við vask.
Hafið tvöfaldan, opinn plast-
poka í vaskinum undir slógið úr
fiskinum. Og svo bala eða væna
skál undir tilbúnu flökin. Nú er
hægt að hefjast handa.
Það vill svo vel til að beinin
eru ekki föst í síldinni. Þið ristið
kviðinn, strjúkið slógið innan úr,
ristið bakið meðfram hryggnum
að utan og strjúkið fiskinn af
beinunum. Já, það er bezt að
nota puttana við þetta, hnífinn
aðeins til að opna fiskinn. Það er
líka auðvelt að roðfletta flökin.
Þegar allar síldarnar eru flak-
aðar, þá skolið þær vel og setjið
í bleyti í kalt vatn, helzt dauft
tevatn, ef þið hafið ekki útvatn-
að síldina áður. Látið liggja í
1—2 sólarhringa. Eftir þann
tíma er síldin skorin í bita og
lögð í edikskryddlög. Hafið bit-
ana fremur litla, þannig verður
síldin drýgri. Glerkrukkur eru
hentugar fyrir síld, t.d. niður-
suðukrukkur. Geymið síldina
alltaf f kæli, nema rétt þegar þið
berið hana fram.
2. Sjóðið saman eftirfarandi
kryddlög:
3 dl edik, hæfilega sterkt.
2 dl vatn.
100 gr sykur.
4 lárviðarlauf.
1 msk grófsteytt piparkorn,
gjarnan hvít, svört og græn.
1 tsk allrahandakorn.
1 tsk negulnaglar.
Raðið síldarbitum og niður-
skornu grænmetinu í krukku,
hellið kældum leginum yfir og
látið standa í kæli í um 5 daga,
eða þar til ykkur finnst síldin
hafa dregið löginn nægilega í
sig. Hafið ekki of mikla síld í
hverju íláti, þá verður of lítill
lögur og síldin getur ekki
dregið nægilega mikið I
sig af honum.
, fefti III
B #' iifBiÉtfn | \.
/ „ --------------------
FRA USA
Uppþvottavélar:
Klæddar og þéttar að innan með
„PERMA TUE efni sem: Hljóðeinangrar -
Ryðgar ekki - Brotnar ekki - Tærist ekki
Er eins og nýtt eftir 10 ára notkun
Sérstök stilling fyrir potta - Sér$takt þurrkunarkerfi -
Sorpkvörn fyrir minniháttar matarleifar - Til í 4 litum
GOÐIR GREIÐSLUSKILMALAR
RAFTÆKJADEILD
HEKLAHF
LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 - 21240
Þvottavélar:
□ Mikið þvottamagn, allt að 8.5 kg.
□ Sparnaðarkarfa, fyrir allan handþvott
□ Tekur inn heitt og kalt vatn, orkusparnaður
□ Fljótvirk, hámarks þvottatími 35 min.
□ Topphlaðin, þvotturinn settur í að ofan
PurrKarar:
Mikið taumagn, allt að 7 kg af þurru taui
I Fljótvirkur, Purrkunartími u.þ.b. 30 - 40 mínútur
Þrjár hitastillingar