Morgunblaðið - 20.11.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
75
fylgja hagnýtum sjónarmiðum við
nýtingu geimsins, kann samt að
spretta betri skilningur og meiri
yfirsýn yfir það, að hvaða marki
Bandaríkjamenn ættu helzt að
keppa í geimnum, einmitt af þeim
grundvallarbreytingum, sem núna
eru fyrirhugaðar á starfsemi
Geimferðastofnunarinnar. Við
getum núna greint enn stórkost-
legri markmið, af því að við höfum
tæknikunnáttuna á okkar valdi,
sem að miklu leyti er að þakka
þeim árangri, sem náðist með
Apollo-eldflauginni á sjöunda ára-
tugnum og þeirri fullkomnun, sem
varð í þróun geimskutlunnar á
áttunda áratugnum.
Fyrir tveimur árum snéri ráð-
gjafi Reagans forseta á sviði vís-
inda, George A. Keyworth II, aft-
ur til Washington og lét þá falla
mjög neikvæð orð um hugmyndir
manna hjá Geimferðastofnuninni
varðandi fyrirhuguð stórvirki úti í
geimnum. En ráðgjafinn hefur nú
skipt um skoðun. Keyworth hefur
komizt á þá skoðun, að það sé tími
til kominn að taka aftur upp
djarfari tilraunastarfsemi í
geimáætlunum og „vekja nýjar
sýnir meðal bandarískra geimvís-
indamanna". Nokkrir af þeim
þáttum, sem hann hefur í huga, að
Bandaríkjamenn ættu að eiga
frumkvæðið að, eru €11 dæmis
frekari fullkomnun á sérstökum
geimferjum, sem hafi um margt
svipaða eiginleika og geimskutlan
og geti flogið út frá geimstöðinni,
en Keyworth álítur, að geimstöðin
eigi með tíð og tíma eftir að verða
eins konar ferða- og flutninga-
miðstöð. Þá skal getið þeirrar
hugmyndar að stofna nýlendur á
tunglinu og eins hafa menn uppi
áætlanir um að senda geimfará
frá væntanlegri geimstöð út til
Mars.
Þessi' orð hljóma einna líkast og
endurómur frá þeim dýrðlegu dög-
um, sem menn upplifðu á fyrstu
starfsárum Geimferðastofnunar-
innar af aldarfjórðungs ferli
hennar. Hitt er svo undir hælinn
lagt, hvort sá andi bjartsýni og
djörfungar, sem almennt var ríkj-
andi þegar tilraunirnar með
Apollo-eldflaugarnar stóðu sem
hæst, verði að fullu endurvakinn.
NASA hefur ekki lengur til að
bera þá pólitísku lykilstöðu, sem
hún hafði í þá daga, og bandaríska
þjóðin er um þessar mundir tæp-
lega þannig stemmd, að hún
myndi taka nokkur þau tiltæki,
sem bæru keim af óhófi og bruðli
á tæknisviðinu, með þögn og stak-
asta jafnaðargeði. En þeirri stað-
reynd verður ekki haggað, að
Bandaríkjamenn eru núna orðnir
geimfarendur — og sú far-
mennska okkar er rétt nýlega haf-
in.
Barðaströnd:
Slátrun að
hefjast í
refabúinu
Innrf-Múla. Bnrúnströnd, 11. núvember.
SLÁTRUN er lokið hjá Kaupfélagi
Vestur-Barðstrendinga. SlátraA var um
7.000 fjár og 160 nautgripum. Dilkar
reyndust mjög vel. Heimtur á fé eru
ekki góAar ennþá.
Hákon Bjarnason í Haga, sem rek-
ur refabú, er að byrja slátrun og
býst hann við að slátra 370 yrðling-
Skelvinnslan hjá Flóka hf. gengur
sæmilega. Á saumastofunni er unnið
og verkefni næg framundan.
Af framantöldu má sjá að hér
hafa allir nóg að gera.
Messingskilti
á útihurðina
Jólagjöfin í ár er gullfallegt áletrað messingskilti
á útihurðina. Komið og sjáið úrvalið.
Skiltið sf.
Útsölustaðir: VERSLUNIN BRYNJA, Laugavegi 29,
HÚSIÐ byggingavöruverslun, Skeifunni 4.
Læknahúsið
Síöumúla 29, sími: 85788
skurðstofur — læknastofur — rannsóknastofur
Höfum opnað lækningastofur okkar í „Lækna-
húsinu“, Síðumúla 29, Reykjavík. Viðtalsbeiðnir í
síma 85788 á milli kl. 13 og 18 daglega.
Egill A. Jacobsen
Guðmundur Bjarnason
Guöm. V. Einarsson
Haildór Jóhannsson
Hannes Finnbogason
Ingvar E. Kjartansson
Jón Sigurösson
Matthías Kjeld
Páll Gíslason
Sighvatur Snœbjörnss.
Sigurjón Sigurösson
Valdemar Hansen:
Þórarinn Ólafsson
Sérgr.: Skurölækningar og
þvagfæraskurölækningar
Sérgr.: Skurðlækningar ocj
barnaskurðlækningar
Sérgr.: Þvagfæra-
skurðlækningar
Sérgr.: Skurðlækningar og
æðaskurðlækningar
Sérgr.: Skurölækningar
Sérgr.: Skurðlækningar og
æðaskurölækningar
Sérgr.: Svæfingar og deyfingar
Sérgr.: Meinefnafræði
Sérgr.: Skurðlækningar
Sérgr.: Svæfingar og deyfingar
Sérgr.: Bæklunarlækningar
Sérgr.: Svæfingar og deyfingar
Sérgr.: Svæfingar og deyfingar
ISLENSKAR VÖRUR
A ERLENDAN AIARKAÐ
(slensk þjóð byggir lífsviðurværi sitt
á útflutningi. Ekki aðeins á afla
fiskiskipanna, heldur einnig á
útflutningi annars konar afla -
afrakstri verkmenningar alls
þjóðfélagsins - allt frá heimaprjón-
uðum lopapeysum til háþróaðs
stóriðjuvarnings.
Við hjá Eimskip vitum að ekkert svið
íslensks atvinnulífs er óháð
útflutningi. ( áratugi höfum við lagt
okkur fram við að þjóna atvinnuveg-
unum sem best, með því að fylgjast
náið með framförum og tileinka
okkur jákvæðar nýjungar í
flutningum.
Nú flytur Eimskip íslenskan afla um
allan heim - niðursuðuvörur til
Sovétríkjanna, freðfisk til Bandaríkj-
anna, lopavörur til Evrópuhafna,
skreið til Nígeríu, stóriðjuafurðir til
Bretlands - og svona mætti lengi
telja. Sérþekking og reynsla
Eimskips í flutningum nýtist öllum
greinum íslensks atvinnulífs.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sírni 27100
SJ.Þ.