Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983
19
AP/Símamynd.
Jólaglaðningur
Engan skal undra þótt Joe Youngman sé ánægður á
svip nú þegar svo skammt er til jóla, því hann fékk í
gær afhenta dágóða ávísun frá Littlewoods-getrauna-
fyrirtækinu fyrir góðan árangur í fótboltagetraunum.
Það var hnátan huggulega, sem situr í fangi hans, sem
afhenti ávísunina, sem er að upphæð 312.420 sterl-
ingspund, sem er á þrettándu milljón króna. Fyrir þá
sem áhuga hafa heitir stúlkan Alison MacLeod og er
fyrirsæta.
Hald lagt
á tæknibún-
að sem fara
átti til
Moskvu
Denver, 21. desember. AP.
TOLLVERÐIR birtust óvænt
í fyrirtækjum í Colorado og
Vestur-Þýzkalandi og fram-
kvæmdu þar leit með þeim
árangri að tveir menn voru
handteknir og hald lagt á
„krítískan“ tæknibúnað sem
seldur hafði verið á ólögleg-
an hátt til Sovétríkjanna.
Meðal tæknibúnaðarins, sem
hald var lagt á í húsakynnum
fyrirtækisins International
Consulting Group í Englewood í
Colorado voru tæki til að nema
og mæla kjarnasprengingar og
til að æta tölvuflögur.
Jafnframt var hald lagt á ýms-
an tæknibúnað í Bonn, sem fyrir-
tækið bandaríska hafði sent
áleiðis til Sovétríkjanna.
Að sögn embættismanna hafa
Sovétmenn um árabil reynt
árangurslaust að komast yfir
fullkominn bandarískan
skjálftamæli sem getur numið
sprengingar við kjarnorkutil-
raunir. Verðmæti hans er 114
þúsund dollarar.
Mennirnir tveir sem teknir
voru fastir í Colorado eiga yfir
höfði sér allt að tveggja ára
fangelsi verði þeir sekir fundnir
um tilraun til að selja Rússum
hinn háþróaða búnað.
Hvít matar- og kaffistell úr þunnu, níðsterku postulíni í
hæsta gæöaflokki
Einföld, formfögur hönnun
Sænskt listahandbragö eins og þaö gerist best
Þolir þvott í vél, springur
ekki né kvarnast
Hagstætt verö
Póstsendum
Bankastræti 10 —Sími 13122
S*E1
o o
Vorum að taka upp enska
herrafrakka úr kasmírull
Verð aðeins kr. 4.500.-
Laugalnk.