Morgunblaðið - 08.02.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984
13
„Fimm síðustu ár
glötuð í uppbygg-
ingu stóriðjunnar“
— segir Birgir ísl. Gunnarsson
FIMM síðustu ár eru íslendingum
glötuð í uppbyggingu stóriðju hér á
landi, að mati Birgis fsl. Gunnarsson-
ar, formanns stóriðjunefndar. „Ef
unnið hefði verið af krafti að því að ná
samstarfi við erlenda aðila við upp-
byggingu stóriðnaðar, stæðum við
miklu betur að vígi í þeirri efnahags-
l*gð, sem nú gengur yfir,“ sagði Birg-
ir.
I viðtölum, sem stóriðjunefnd átti
við fulltrúa kanadíska álfyrirtækis-
ins Alcan nýlega kom fram, að
fyrirtækið hefur ákveðið allar ný-
framkvæmdir fram til ársins 1990
og ekki yrði bætt við nýjum verk-
efnum fram til þess tíma. Sömu
sögu væri að segja af öðrum fyrir-
tækjum og sum þeirra væru komin
með verkefni á áætlanir allt fram til
ársins 2000. Birgir sagði að tíma-
takmörk verkefna væri fjarlægari
eftir því sem verksmiðjurnar væru
stærri, undirbúningur álvers væri
t.d. mun tímafrekari en kísilmálm-
verksmiðju, því þar væri um mikiu
stærri einingar að ræða.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur skorar
á Alþingi og ríkisstjórn:
Stórlækka þarf
orkuverð heimila
Hafnarfjörður;
Leikskólinn Smáralundur.
Ljósm. Mbl./KÖE.
Leikskól-
inn Smára-
lundur tek-
inn í notkun
Smáralundur nefnist
leikskóli sem opnaður var í
Hafnarfirði þann 3. febrú-
ar sl. Leikskólinn, sem
rúmar 84 börn, tekur við
hlutverki leikskólans Kató,
sem um áraraðir hefur ver-
ið starfræktur í Hafnar-
firði.
Bragi Benediktsson, félags-
málastjóri í Hafnarfirði, sagð-
ist, í ræðu sinni við opnunina,
vænta þess að leikskólinn
mætti verða ungum bæjar-
búum til gagns og gleði um
ókomin ár. Erla Gestsdóttir
fóstra veitir hinum nýja
leikskóla forstöðu, en auk
hennar starfa fjórar konur við
Smáralund.
Bolungarvík, 3. febrúar.
Á FUNDI bæjarstjórnar Bolungar-
víkur 3. febrúar sl. var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða:
„Bæjarstjórn Bolungarvíkur
vekur athygli á þeirri alvarlegu
staðreynd, að ailt að helmingur al-
mennra launatekna láglaunafólks
fer nú til greiðslu mánaðariegra
orkureikninga. Skorar bæjar-
stjórn á ríkisstjórn og Alþingi, að
grípa nú þegar tii aðgerða, er miða
að þvi að stórlækka orkukostnað
heimila, m.a. með því að fella
niður söluskatt á raforku til
heimilisnota, orkukostnaður verði
frádráttarbær frá skatti, veitt
verði aukin lán á hagstæðum kjör-
um til orkusparandi aðgerða og
endurskoðuð verði skattlagning
Skildu þrjá
bfla eftir
í Þórsmörk
Björgunarsveitarmenn úr Dag-
renningu á Hvoisvelli fóru á sex
snjósleðura inn í Þórsmörk að-
faranótt mánudags og sóttu
þangað sex unga menn, sem fast-
ir voru á þremur bifreiðum
vegna fannfergis.
Að sögn Hannesar Hafstein
hjá Slysavarnafélagi íslands,
amaði ekkert að mönnunum,
en aðstandendur voru teknir
að óttast um þá og voru björg-
unarsveitarmenn því sendir af
stað.
Komu þeir að mönnunum á
bílunum þremur 5 til 6 kíló-
metrum fyrir innan Stóru-
Mörk, og fluttu þá til byggða.
Ekki var talið viðlit að taka
bílana með að svo komnu og
voru þeir því skildir eftir.
Félag viðskipta-
fræðinema HÍ;
Skattaþjónusta
fyrir einstaklinga
FÉLAG viðskiptafræðinema HÍ
gengst fyrir skattþjónustu fyrir ein-
staklinga utan atvinnureksturs um
þessar mundir.
Skattþjónustan verður starf-
rækt til 10. febrúar nk. Þeir sem
að þjónustunni standa sækja öll
gögn til viðkomandi framteljenda
og skila þeim síðan tilbúnum til
undirritunar auk þess að reikna út
áætlaða skatta fyrir árið 1983.
Miðstöð skattþjónustunnar er að
Bjarkargötu 6.
ríkissjóðs á alla orkusölu og að-
keypt efni tii hvers konar orku-
framkvæmda." Gunnar.
Starfsfólk Smáralundar ásamt félagsmálastjóra og dagvistarfulltrúa. F.v. Guð-
rún Hafliðadóttir, starfsmaður, Helga Jörundsdóttir, fóstra, Bjarni Benedikts-
son, félagsmálastjóri Hafnarfjarðarbæjar, Lína Guðmundsdóttir, starfsmaður,
Erla Gestsdóttir, forstöðumaður og Rannveig Þóroddsdóttir, dagvistarfulltrúi.
INNLEN-T
(kosta)(boda)
Gjafavörur vanlátra
Með hækkandi sól bjóðum við
10%
afslátt af öllum vörum í
versluninni dagana 6.—18. febrúar.
Frábær þjónusta, fallegar vörur. Verð við allra hæfi.
Bankastræti 10, sími 13122.
kostaIÍBoda