Morgunblaðið - 08.02.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.02.1984, Blaðsíða 48
TIL DAGLEGRA NOTA MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Spáð asa- hláku SPÁÐ ER vaxandi suðaustanátt undir kvöld með slyddu, og síðan rigningu á morgun. Á fostudag er spáð áframhaldandi suðlægri átt og rigningu, og einnig á laugardag. Gert er ráð fyrir að hitastigið verði á bilinu 3 til 6 gráður. „Það skiptir sköpum nú að ekki er djúpur klaki í jörð, eins og var i febrúar 1982, jtegar flóðin komu í Elliðaárnar. A Reykjavíkursvæð- inu er lindársvæði og vatnið hrip- ar fyrst og fremst niður, nema þegar þannig stendur á, að það kemst ekki niður vegna mikils frosts í jörðu," sagði Sigurjón Rist, vatnamælingamaður. Sigurjón sagðist því ekki búast við flóðum í Reykjavík, en allt færi það þó eftir því hve mikil og langvarandi hlákan yrði. Miklu meiri snjór væri nú heldur en 1982 og húseigendur skyldu hafa and- vara á sér vegna mögulegra flóða í kjöllurum. MorgunblaðM/ KEE Nýja Bláfjallalyftan vfgð „Stólalyftan í Suðurgili í Bláfjöllum er opnuð,“ sagði Elín Pálmadótt- ir, formaður Bláfjallanefndar, þegar hún vígði hina nýju stólalyftu í gær. Fór hún síðan í fyrstu lyftuferðina ásamt Eysteini Jónssyni, fyrrum ráðherra og áhugamanni miklum um skíðaiðkun. Nýja stólalyftan, sem er áttunda lyftan á Bláfjallafólkvangi, getur flutt allt að tólf hundruð manns á klukkustund. Er lengd hennar 700 metrar og fallhæðin 150 raetrar. Til þessa hafa sjö sveitarfélög staðíð að fólkvanginum í Bláfjöllum, en í gær bættust fimm sveitarfélög við, fjögur úr Samtökum sveitarfélaga á Suðurnesjum og Bessastaða- hreppur. 59 metra gáma- krani settur upp við Kleppsbakka EIMSKIP hefur á undanfornum mánuðum athugað með kaup á nýj- um krana fyrir starfsemi sína í Sundahöfn. Fyrirtækið hefur nú augastað á gámakrana, sem fram- leiddur er á Spáni með einkaleyfi frá Pasico-kranafyrirtækinu í Bandaríkjunum. Verð kranans er áætlað um 45 millj. kr. Krani þessi er mikið mannvirki og vegur hann um 450 tonn. Bóma kranans nær 25 metra út frá hafnarbakka og gámalyftirammi stendur í 23 metra hæð frá jörðu. Heildarhæð kranans er 53 metr- ar, en með bómu í hvíldarstöðu nær kraninn upp í 59 metra hæð. 17 metrar eru milli teina. Ef af kaupum á þessum krana verður, sem allt bendir til, er áætlað að öll skip EÍ verði lestuð og losuð við Kleppsbakka. Þannig fæst góð nýting á krananum, sem eykur afköst við lestun og losun til muna. Þá munu skemmdir á gámum minnka og öryggi starfsmanna aukast. Kraninn verður fluttur í hlutum frá Spáni og settur saman í Sundahöfn. Kraninn er drifinn með raf- magni. Kjararannsóknanefnd um kjör fólks í 14 verkalýðsfélögum: Dagvinnutekjur að meðaltali 16.854 kr EINSTÆDIR FORELDRAR og barnmargar fjölskyldur eru þeir sem þyngsta framleiðslubyrði hafa að því er fram kemur í könnun sem Kjara- rannsóknanefnd gerði á tekjum fólks í 14 verkalýðsfélögum víða um land í nóvembermánuði síðastliðnum. 45% einstæðra foreldra með 1 barn á framfæri sínu reyndust vera með heildartekjur sem voru undir 20 þúsund krónum á mán- uði, þar af voru 18% með tekjur undir 15 þúsundum. 14% félags- manna þessara félaga, sem voru i hjónabandi og með 3 börn eða fleiri á framfæri, höfðu undir 20 þúsundum króna í heimilistekjur, en heimilistekjur eru skilgreindar sem allar tekjur einstaklings að viðbættum tekjum maka og öðrum tekjum. 13% til viðbótar af þess- um hópi eru með á bilinu 20—25 þúsund krónur í heimilistekjur og 21% með 25—30 þúsund krónur. Samtals eru því 48% félaga í þess- um verkalýðsfélögum, sem hafa 3 börn eða fleiri á framfæri sínu, með undir 30 þúsund krónur í tekjur á mánuði, en gera má ráð fyrir að í flestum tilfellum sé þarna aðeins um tekjur einnar fyrirvinnu að ræða vegna fjölda barna. Sé litið til tekna félagsmanna í einstökum félögum kemur í ljós að dagvinnutekjur giftra eru lægstar í Sókn, 12.448 kr., en hæstar í Þorsteinn Gíslasoii, fyrrverandi forstjóri Coldwater: Stofnar fiskréttaverksmiðju SAMKVÆMT heimildum Morgun- blaðsins mun Þorsteinn Gíslason, verkfræðingur, fyrrverandi forstjóri Coldwater Seafood Corporation sölufyrirtækis SH, hafa stofnað sitt eigið fyrirtæki, sem mun verzla með sjávarafurðir í Bandaríkjunum. Hann er að undirbúa verksmiðjurekstur í Massachus- etts og mun verksmiðja hans taka til starfa í haust. Mun Þorsteinn hafa í hyggju að kaupa fiskafurðir frá ýmsum löndum, meðal annars frá Coldwater. Vestmannaeyjum, 21.694 kr., en þar stóð yfir síldarvertíð þegar könnunin fór fram. Auk þess er rétt að geta þess að 90% bónus telst til dagvinnutekna samkvæmt forsendum könnunarinnar. Það er einungis í VR að dagvinnutekjur ná einnig 20 þúsund krónum, en þar eru þær 21.063. Dagvinnutekj- ur eru að meðaltali í þessum félög- um, 16.854 kr. Sé litið til heimilistekna í þess- um félögum eru hins vegar Dags- brúnarmenn lægstir með 29.398 kr. Vestmanneyingar eru hæstir með 51.628 krónur, en meðalheim- ilistekjur í þessum 14 félögum eru 35.729 kr. í nóvembermánuði. Samanburður á tekjum karla og kvenna í þessum félögum leiðir í ljós að þær eru 16% hærri hjá körlum eða 16.998 kr. hjá þeim á móti 14.6% kr. hjá konum. Sjá útdrátt úr könnuninni á bls. 26—27. Landsvirkjun tapar milljón á dag stöðv- ist starfsemi ÍSAL TEKJUTAP Landsvirkjunar kem- ur til með að nema einni milljón króna á dag, ef til lokunar á álver- inu í Straumsvík kemur vegna verkfallsins sem nú stendur þar yfir. Á ársgrundvelli nema tekjur Landsvirkjunar af orkusölu til ÍS- AL 18% af heildartekjum Lands- virkjunar. „Það yrði mjög tilfinnanlegt fjárhagslegt áfall fyrir fyrirtæk- ið ef til lokunar á álverinu kæmi vegna verkfallsins og afleið- ingarnar yrðu ófyrirsjáanlegar,“ sagði Halldór Jónatansson, for- stióri Landsvirkjunar, í samtali við Morgunblaðið. Ákvæði eru um það í ramma- samningi milli Landsvirkjunar og álversins að álverið sé skylt til að greiða fyrir 1110 gígavatts- stundir á ári af forgangsorku, sem eru 85% af samningsbundn- um forgangsorkukaupum hvort sem ÍSAL tekur þessa orku eða ekki, nema óviðráðanleg atvik valdi. í samningnum flokkast verkföll undir óviðráðanleg at- vik. Um það eru ákvæði í kjaras- amningum að koma verði i veg fyrir skaða á framleiðslutækjum í álverinu, f að minnsta kosti fjórar vikur eftir að verkfall skellur á, en á fimmtudag eru tvær vikur frá því að verkfall hófst. Ef álverið stöðvast tekur mánuði að koma því í gang aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.