Morgunblaðið - 27.03.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
5
Afmæli Reykjavíkurborgar:
Nefnd kosin
til að sjá um
afmælishaldið
TVÖ hundnið ár verða liðin frá því
að Reykjavík fékk kaupstaðarrétt-
indi 18. ágúst 1986. í tilefni af þessu
afnueli borgarinnar hefur borgarráð
kosið sérstaka nefnd til þess að hafa
yfirstjórn afmælishaldsins, en
nefndina skipa: Davíð Oddsson, for-
maður, Markús Örn Antonsson,
Ingibjörg Rafnar, Gísli B. Björns-
son, Hlín Agnarsdóttir, Gerður
Steinþórsdóttir og Sigurður E. Guð-
mundsson.
Nefndin hefur þegar hafið störf
og er fyrirhugað að afmælishátíð-
in hefjist strax í janúar 1986 og
standi út allt árið. Aðalhátíðar-
höldin verða þó í ágústmánuði.
I frétt sem Mbl. hefur borist um
þetta frá skrifstofu borgarstjóra
segir auk þessa:
„Stefnt er að því að sem flestar
stofnanir borgarinnar kynni
starfsemi sína og óskað er eftir
því að sem flest félög, sem starfa í
borginni, geti lagt eitthvað af
mörkum til þess að gera hátíðar-
höldin sem veglegust.
Þá er þess vænst, að þeir, sem
hafa fram að færa ábendingar eða
góðar hugmyndir, komi þeim á
framfæri við nefndina."
Jafn ótrúlega sparneytinn
Þú færö ekki allt í ódýrustu útgáfunni, en mikiö samt.
Verð frá aðeins 249.000.- kr.
Reynsluaktu Suzuki SA 310 hjá okkur
Það eru bestu meðmælin
Sveinn Egilsson hf. 11^1
Skeifan 17-Sími: 85100
Það er ekki lítið afrek, að skapa hinn nýja og mun stærri og kraftmikla Suzuki SA 310, sem
er jafn ótrúlega sparneytinn og Suzuki Alto, margfaldur íslandsmeistarinn í sparakstri.
Já þessi kraftmikli og rúmgóði lúxusbíll, Suzuki SA 310 eyðir aðeins 4.2 lítrum af benzíni á
Ómar Ragnarsson sá margfrægi bíladellukarl, fréttamaður, skemmti-
kraftur, flugmaður með fleiru kallaði Suzuki SA 310 „súpersparibauk<( í
DV. „Sá hefur mannast, Suzuki er orðinn stór og viðbragðið er lygilega
gott“, sagði Ómar.
Athugaðu vel: Þegar verö bíla eru borin saman verður aö hafa í huga, hvaða búnaður fylgir. Án þess er verð-
samanburður ekki marktækur. Suzuki SA 310 hefur margt, sem keppinautarnir hafa ekki og er samt ódýrari.
Hvað geturðu fengið í Suzuki SA 310? Dæmi:
5 hraða gírkassa, tveggja hraða þurrkur með tímarofa,
Halogen aðalljós, armpúða, blástur á hliðarrúðum, stilling á
sætisbökum, há sætisbök, vasar I hliðarspjöldum, hituð
afturrúða, læst bensínlok, hljóðeinangríin, 2 útispeglar,
stereóútvarp eða kassettutæki, snúningshraðamælir,
Quartsklukku, vegmæii, vindlakveikjara, stillanleg inniljós,
þurrku og rúðusprautu fyrir afturrúðu, vönduð innrétting,
stillanlegir höfuðpúðar, tviskipt aftursætisbak, fjarstýrð
afturdyralæsing, hilla yfir farangursrými, litað rúðugler,
diskhemlar með hjálparátaki, skrautlínur á hliðum og grilli
o.fl. o.fl. - Já, og 6 ára ryðvarnarábyrgð.
TÖLVUSÝNING á vegum IBM á Ísh
landi og fleiri aðila, sem tengjast
sölu og þjónustu á IBM-tölvum og
tölvubúnaði, verður opnuð á morg-
un. Sýningin verður á tveimur stöð-
um, í húsakynnum IBM á fslandi í
Skaftahlíð 24 og Tónabæ. f for-
grunni sýningarinnar verður IBM
PC Einkatölvan, sem kom á markað-
inn hér á landi um síðustu áramót,
en auk þess verða ýmsar nýjungar á
sviði tölvutækni kynntar.
f IBM-húsinu verður fyrirtækið
og frumherjar þeirra, gata-
spjaldavélarnar.
„Það er óhætt að fullyrða að það
ættu allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi á sýningunni," sagði
Guðmundur Hansson, sölustjóri
hjá IBM á íslandi. „Sýningin er
mjög fjölbreytt og það var lögð á
það áhersla við undirbúninginn að
hún yrði aðgengileg jafnt fyrir
leika sem lærða."
Meðal þess sem menn geta
kynnst á sýningunni nefndi Guð-
mundur tengingu tölvu við tölvu-
net og tölvubanka, ritvinnslukerfi,
tölvustýrða hönnun og teikningu,
afgreiðslukerfi, sem tölva stjórn-
ar, og sérstaka villuleitartölvu,
sem tæknimenn geta notað til að
leita uppi villur í tölvukerfi. Þá
geta menn fræðst um hvernig
minniseining tölvu verður til, en
öll vinnslustig, frá frumefni til til-
búinnar einingar, eru rakin á sýn-
ingunni.
Loks er að geta þess, að sérstök
getraun verður haldin á meðan á
sýningunni stendur, sem allir geta
tekið þátt i. Verðlaunin eru IBM
PC Einkatölva, að verðmæti 8 þús-
und krónur.
Tölvusýningin stendur til
sunnudags og er opin frá miðviku-
degi til föstudags á milli kl. 15.00
til 21.00, en um helgina frá 10.00
til 21.00. Aðgangur er ókeypis.
Eitt af því sem kynnt verður á tölvusýningunni er vinnslueining úr nýjustu
IBM-tölvunni, sem leysir af hólmi mörg hundruð sinnum stærri einingu.
Gunnar Linnet sýningarstjóri stendur á milli gömlu og nýju einingarinnar.
MorKunblaöið/ÓI.K.M.
með sýningu á tölvubúnaði í for-
tíð, nútíð og framtíð; sýnt verður
hvernig fyrirtækið notar tölvur
við eigin rekstur og ýmsir nýtisku
möguleikar á notkun tölvu kynnt-
ir.
í Tónabæ sýna annars vegar
þeir aðilar sem selja IBM PC
Einkatölvuna hérlendis, það er að
segja, Gísli J. Johnsen hf., Skrif-
stofuvélar hf. og Örtölvutækni sf.
og hins vegar eru framleiðendur
og þjónustuaðilar fyrir tölvuverk-
efni með kynningu á sínum vörum.
Þeir eru Kerfi hf., Frum hf. og
Tölvubankinn. Þá verða til sýnis í
anddyri Tónabæjar gamlar tölvur
IBM PC einkatölvuna má nota til
ýmissa verkefna. Á skerminum
þama er æfingarverkefni fyrir
flugmenn, eða nýr tölvuleikur, eftir
því hvernig á það er litið.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
IBM-sýning opnuð