Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
94. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Líbýskir sendiráðsmenn í London fengu fyrimæli frá Trípólí:
Ein af skyttum brezku lögreglunnar
vió sendiráó Líbýu við St. James
Square í London.
Enda þótt skilaboðin frá Trípólí
væru numin og dulmálið leyst tókst
ekki að koma skilaboðum til ráða-
manna í tæka tíð til að afstýra
ofbeldinu. Sjónarvottar, sem sáu
eldglæringar og byssureyk, segja
einn mann hafa verið að verki og
hafi hann skotið af vélbyssu út um
glugga á annarri hæð sendiráðsins.
Hermt er að um 200 Líbýumenn
skipi hóp þann, sem rekinn verður
frá Bretlandi fyrir miðnætti á
sunnudagskvöld, þ.á m. 40, sem
innlyksa eru í sendiráðinu. í hópn-
um eru 22 diplómatar. Yfirvöld í
Trípólí segjast ekki munu leyfa
brezkum diplómötum að fara frá
Líbýu fyrr en Líbýumennirnir í
London hafa yfirgefið Bretland.
Daily Mirror hefur í dag eftir
leyniþjónustuheimildum að líbýska
sendiráðið sé „meiriháttar vopna-
búr“, þar sem m.a. sé að finna vél-
byssur.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra freistar þess að ná samstöðu
meðal vestrænna þjóða um refsiað-
gerðir gegn Líbýu vegna skothríð-
arinnar úr sendiráðinu í London.
Búizt er við sameiginlegum aðgerð-
um ríkja EBE í þessu skyni.
Starfsstúlkur í Hickory Farms-nýlenduvöruverzluninni í San José skoða
verksummerki í kjölfar snarps jarðskjálfta í norðurhluta Kaliforníu. Álgengt
var að vörur hrundu úr hillum í verzlunum, en tjónið í skjálftanum er talið
nema tugum milljóna dollara. AP-Simamynd.
Var skipað að
usla og skjóta
I OC ...fl 4 1*
W ashington, London, 25. aprfl. Al'.
YFIRVÖLD í Líbýu skipuðu sendi-
ráðsmönnum í London að skjóta á
fólk sem safnaðist fyrir utan sendi-
ráðið þar í borg 17. aprfl, með þeirri
afleiðingu að lögreglukona týndi lífi
og 11 menn særðust, skv. upplýsing-
um bandarískra embættismanna. f
dulmálsskeyti, sem brezkir
leyniþjónustumenn námu og réðu
fram úr nokkrum stundum fyrir árás-
ina, var líbýsku sendiráðsmönnunum
skipað að valda eins miklum usla og
hægt væri, meðal annars með spreng-
ingum á almannafæri, auk þess að
skjóta á fólkið.
valda
á fólk
Rashid Karami
Karami út-
nefndur for-
sætisráðherra
Beirút, 25. aprfl. AP.
RASHID Karami, fyrrum forsæt-
isráðherra, sem styður Sýrlend-
inga, ræddi í kvöld við Amin
Gemayel, forseta Líbanon, og auð-
sýndi vilja til að mynda
samsteypustjórn, sem í sætu full-
trúar allra stríðandi fylkinga, er
hefði því hlutverki að gegna að
binda endi á níu ára borgarastríð.
Karami er 62 ára súnníti, og
hefur níu sinnum verið útnefndur
forsætisráðherra á 29 árum. Áður
en formleg útnefning á sér stað,
sem líklega verður á fimmtudag,
mun Gemayel ræða við þingleið-
toga.
Búist er við að ráðherrastólar í
samsteypustjórninni skiptist jafnt
milli kristinna manna og múham-
eðstrúarmanna í samræmi við
samkomulag Gemaeyls og Assads
Sýrlandsforseta í síðustu viku.
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa,
hitti Mitterrand Frakklandsfor-
seta að máli i París í dag og sagði
fréttamönnum eftir fundinn að
hann væri reiðubúinn að taka sæti
í einingarstjórn ásamt helztu and-
stæðingum sínum.
Reagan til
Peking í dag
Agana, 25. aprfl. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti sagði við
komuna til Guam, sem er síðasti við-
komustaður hans áður en hann heldur
til Peking í fyrramálið, að samskipti
Bandaríkjanna og Kína væru góð, en
gætu og ættu ugglaust eftir aö verða
enn betri.
Embættismenn sögðu að sam-
komulag um samstarf á sviði kjarn-
orkuvísinda væri í burðarliðnum og
öll ágreiningsatriði í þeim efnum úr
sögunni.
Með samningnum opnast mikil-
vægur og eftirsóknarverður mark-
aður fyrir bandarísk fyrirtæki er
hyggja kjarnorkuver, og leggi
Bandaríkjaþing blessun sína yfir
samninginn verður hann talinn til
meiriháttar afreka Reagans.
íslenzkur námsmaður í San Jose um jarðskjálftann í Kaliforníu:
„Skelfíng greip um sig
og fólk hljóp úr húsum“
„ÉG VAR í bókasafninu þegar skjálftinn reið yfir og þar, sem annars
staðar, greip um sig skelfing, menn hlupu út, jafnvel öskrandi og æpandi.
Og ég neita því ekki að hjartslátturinn jókst hjá mér þegar á leið og ég
kom mér út,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson námsmaður í San Jose f
Kaliforníu í samtali við Morgunblaðið í gær í tilefni jarðskjálfta er olli
milljóna dollara tjóni í norðurhluta Kaliforníuríkis í fyrradag.
„Þegar kippurinn kom hélt ég
fyrst að hér væri aðeins um lít-
inn skjálfta að ræða, enda eru
þeir algengir, en þegar hann hélt
áfram og ljóst að hann væri öfl-
ugur, greip um sig órói og menn
tóku að hlaupa út. Óttaslegin
stúlka var komin hálfa leið út er
hún ætlaði að snúa við og ná í
bækur sínar, en lét undan
hræðslukalli unnusta síns, sem
líklega hefur talið þann stóra
vera að ríða yfir.
Algengt var að fólk hlypi út úr
húsum og byggingum í hræðslu-
kasti, og er það vel skiljanlegt
því hér um slóðir býr það með
fólki að mikill eyðileggingar-
skjálfti ríði yfir Kaliforníu fyrr
en seinna. Það var órói í nem-
endum við bókasafnsbygginguna
og víðar, og ekki hefur verið um
annað rætt frá í gær.
Hér eru nokkrir íslenzkir
námsmenn og urðu þeir allir
varir við skjálftann, og kom
smáskrekkur í þá flesta. Tveir
sátu utan við íbúð sína og sáu
jörðina ganga í bylgjum og vatn
gusast úr sundlaug. Einnig sáu
þeir fólk æða skelkað út úr hús-
um. Talið er að tjónið hér í San
Gunnar Páll Jóakimsson
Jose nemi 10 milljónum dotlara.
Aðkoman í flestum verzlunum
var óskemmtileg, þar hrundi
flest úr hillum og þeir sem inni
voru urðu dauðskelkaðir," sagði
Gunnar Páll.
Samkvæmt AP-skeytum mæld-
ist skjálftinn 6,2 stig á Richter-
kvarða, og er það öflugasti
skjálfti sem mælzt hefur í norð-
urhluta Kaliforníu frá 1911.
Milli 15 og 20 smákippir, 3—4
stig hver, mældust næstu sex
stundirnar. Einna mest varð
tjón í Morgan Hill skammt suð-
ur af San Jose, þar sem tugur
íbúðarhúsa eyðilagðist og tugir
til viðbótar köstuðust af grunni.
Eldur brauzt víða út og stórhýsi
í San Francisco hristust og
skulfu. Rúmlega tuttugu manns
slösuðust í skjálftanum.