Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 18 allir miklir persónuleikar, sem lifa enn í hugum nemenda sinna og verkum sínum. Yngri kynslóðir komast ekki hjá að gefa gaum rannsóknum þeirra, jafnvel þótt þær fallist ekki á skoðanir þeirra nema að nokkru leyti. Einar Ólafur kenndi mér aðeins eitt misseri, haustið 1933, í forföll- um bókmenntakennara míns, Sig- urðar Nordals. Við kynntumst því lítið á þessum tíma. Við vorum þó málkunnugir, og auðvitað las ég rit hans og ritgerðir. Kunnings- skapur okkar Einars Ólafs hófst ekki að ráði fyrr en 1951, er ég gerðist starfsmaður Háskólans. Mig grunar, að Einar — og Sig- urður Nordal — beri höfuðábyrgð á því, að ég var valinn úr mörgum umsækjendum til þess að gerast eftirmaður Björns Guðfinnssonar við Háskólann. Þó að við Einar kenndum ekki sömu grein við Háskólann, æxlað- ist það svo, að stuttu eftir að ég tók við starfi, varð hann nánasti samstarfsmaður minn einhver við stofnunina. Það er erfitt — líklega ógerningur — að skýra, hvernig á þessu stóð. Við vorum mjög ólíkr- ar gerðar, að mér fannst. En einhver sameiginleg áhuga- mál drógu okkur saman. Það kann að hafa verið afstaðan til íslenzks máls. Við höfðum báðir mikinn áhuga á málrækt. Einar var einn- ig mjög fróður og áhugasamur um höfuðviðfangsefni mitt í fræðun- um, skýringu orða og orðtaka. Þetta varðaði textafræðilegar rannsóknir hans og athuganir hans á þjóðháttum. Eitthvað fleira hefir verið hér á ferðinni. Líklega er oftast ógerningur að segja, hvernig eða hvers vegna vináttubönd hnýtast meðal manna. Við Einar Ólafur áttum saman sæti í ýmsum nefndum á vegum Heimspekideildar, skömmu eftir að ég tók þar við starfi. En sam- vinna okkar hófst að marki, þegar ég var ráðinn starfsmaður Orða- bókarnefndar (nú Orðabókar- stjórnar) Háskólans. Nefndin hafði með höndum söfnun og smíði nýyrða á vegum Mennta- málaráðuneytis. Þetta mun hafa verið 1953, því að fyrsta safnið, sem ég sá u:n útgáfu á (Nýyrði II), kom út 1954. Einar ólafur átti sæti í Orðabókarnefndinni til 1962 og starfaði af lífi og sál að nýyrða- málunum. Hann átti mikinn þátt í öllum söfnunum, sem út komu (Nýyrði I—IV og Tækniorðasafn Sigurðar Guðmundssonar). Yfir- gripsmikil þekking Einars ólafs á íslenzku máli — ekki aðeins bók- máli, fornu og nýju, heldur einnig alþýðumálinu, einkum skaft- fellsku — ásamt óvenjunæmum málsmekk og kunnáttu í ger- manskri málfræði gerðu hann að afburðagóðum nýyrðasmiði. Ég hygg, að alþýðumálið hafi reynzt honum drýgst ásamt næmleika fyrir því, sem lífvænlegt væri. Einar ólafur Sveinson var skipaður forstöðumaður Hand- ritastofnunar 1962 og jafnframt formaður stjórnar hennar. Ég átti sæti í stjórninni um tíu ára skeið (1962—1972). Eðlilega áttum við Einar mikið samstarf að þessum málum og raunar handritamálinu almennt. Ég minnist þess ekki, að okkur sinnaðist utan einu sinni, en það jafnaðist fljótlega og varð okkur ekki að flaumslitum. Mörg erfið mál þurfti að leysa. Ég vil aðeins minnast á, að menn voru ekki á eitt sáttir um samastað Handritastofnunar. Sumir vildu koma henni fyrir í Landsbóka- safni, þar til Þjóðarbókhlaða risi. Við Einar vorum á öðru máli og raunar margir fleiri. Niðurstaðan varð sú, að Arnagarður var reistur með samvinnu Háskólans og ríkis- ins. Þetta er löng saga, sem hér verður ekki rakin. Einar lagði mikla vinnu í að ákveða fyrirkomulag húsnæðis stofnunarinnar, og áttum við Valgarð Thoroddsen marga ferð heim til hans til þess að bolla- leggja um ýmsa hluti, sem þetta varðaði. Þá voru aðalstöðvar stofnunarinnar á heimili Einars, þó að starfsmenn ynnu í Lands- bókasafni. í öllum stjórnarstörf- um sýndi Einar hyggindi og lagni. En oft var honum þungt í skapi. Hér að framan hefi ég aðeins minnzt á tvö mál, sem við Einar ólafur unnum að saman. En vita- skuld voru þau miklu fleiri. Hér er aðeins tóm til að geta þess, að fræðileg samvinna okkar var mik- il, enda höfðum við gagnkvæman áhuga hvor á annars verkum. Um ritverk Einars ólafs ætla ég ekki að fjalla sérstaklega. Ég hefi áður gert þeim nokkur skil, sbr. Vísi, 12. des. 1964. En mig langar til að minnast almennt á fræði- manninn. Einar ólafur var um- fram allt textafræðingur — fílólóg — í víðustu merkingu þess orðs. Viðfangsefni hans var textar — framar öllu er hann kunnur af rannsóknum sínum á Njálu. Hann rannsakaði texta frá öllum hugs- anlegum sjónarmiðum, athugaði handrit þeirra, skýrði orð þeirra og orðasambönd frá málfræðilegu og merkingarlegu sjónarmiði, bar þá saman við aðra texta, reyndi að ákveða aldur þeirra og finna bók- menntalegt samhengi þeirra. Auk þess var hann glöggur á list text- anna og skrifaði margt skemmti- legt um hana. Einar ólafur leit aldrei á verk- efni sitt frá einu sjónarhorni, heldur mörgum, og dró ekki álykt- anir nema eftir víðtæka rannsókn. Þess vegna voru niðurstöður hans traustar, eftir því sem unnt er í mannlegum fræðum. Einar kallaði þá „grillufangara", sem aðeins litu á málin frá einu sjónarmiði. Það var ljótasta orð í hans munni. Einar Ólafur fékkst aðallega við íslenzka miðaldatexta, en ein- skorðaði sig þó ekki við þá. Hann var jafnframt þjóðfræðingur og þjóðháttafræðingur. Hann var yf- irleitt einn af fróðustu mönnum í íslenzkri menningarsögu. Einar ólafur var frumlegur fræðimaður, sem lét ímyndunar- aflið ekki hlaupa með sig í gönur, heldur lét skynsemina hafa taumhald á því. Einar ólafur Sveinsson var fæddur í sveit. Það hefir að líkind- um verið honum styrkur að ýmsu leyti. En hann varð — og hefir ef til vili í eðli sínu alltaf verið — heimsborgari. Hann ferðaðist víða, vestur til Kaliforníu og aust- ur til Kína. Hvarvetna bar hann með sér íslenzka menningu, flutti fyrirlestra og fræddi aðra um bók- menningu lands síns. Heimili Einars Ólafs var opið vinum hans og starfsbræðrum, innlendum sem erlendum. Kona hans, frú Kristjana Þorsteinsdótt- ir, var mikil húsfreyja í góðum og gömlum stíl. Enga konu hefi ég þekkt, sem annarra hefir verið um velferð og heiður manns síns. Á engu heimili hefi ég hitt fleiri gesti, íslenzka sem erlenda vini þeirra hjóna. Þar var alltaf vel veitt og tekið á móti gestum með hlýju handtaki og góðum hug. Þar voru veizlur tíðar og margt spjall- að í gamni og alvöru. Rausn og höfðingsskapur sat í fyrirrúmi, og af þessum fundum fóru menn glaðir og reifir. En Einar ólafur var ekki vinur allra. Hann gat verið þungur á bárunni, þó að hann væri friðarins maður framar öllu. Hann hafði til að bera mikinn metnað. Án hans hefði hann ekki komizt svo langt sem hann komst. Hann var minn- ugur á alla hluti og þá ekki sfður á misgerðir en annað. En jafnframt var hann vinur vina sinna og tryggðatröll. Að lokum vil ég minnast sér- staklega margra stunda, sem við Sigríður áttum ein með Einari og Kristjönu á heimili þeirra. Þá var talað af hreinskilni og hlýjum hug — ef til vill yfir góðum veigum. Slíkir vinafundir gleymast aldrei. Við sendum Sveini Einarssyni og fjölskyldu hans kveðjur, um leið og við minnumst heimilisins á Oddagötu 6. Halldór Halldórsson Halló, er þetta fjórir þrátíu og einn? Er hann Einar frændi minn heima? Þannig hófust samtöl mín við frænda minn um nítján hundr- uð og þrjátíu í samskiptatæki þess tíma, sem var síminn, en ég var ekki sérlega sterkur í málinu á þeim árum. Svarið var hlýlegt og þægilegf, og alla þá tíð, sem ég man eftir Einari, var svarið það sama, hlýlegt og þægilegt. Einar átti ekki langt að sækja þessa sérstöku eiginleika. Foreldr- ar hans voru Sveinn Ólafsson, bóndi og orðlagður smiður í Mýr- dal, og Vilborg Einarsdóttir. Sem dæmi um snilli Sveins sem smiðs má taka fram, að hann frétti eitt sinn, að komin væri saumavél á bæ nokkurn í Rangárvallasýslu. Morgun einn fór hann á Mercedes þess tíma, úrvals hesti, og reið Jökulsá og kannske Markarfljót til að skoða gripinn. Að kvöldi þess dags kom hann heim, og með rósemi og góðri yfirvegun smíðaði hann saumavél handa Vilborgu. Slík gersemi þótti vélin, að hún var sýnd á iðnsýningu sennilega árið 1907, og týndist þar. í leitirn- ar kom hún siðar, en týndist að nýju þegar Sveinn lézt og það í marga áratugi og var þó mikið leitað, en er nú í góðri varðveizlu. Sveinn var afi minn, og man ég hann vel, þvf að ég var níu ára, þegar hann féll frá. Hann var mjög rólyndur maður, prúðmann- legur og öll framkoma hans bar vott rólegri yfirvegun. Hann fór kannske hægt áfram, en þurfti ekki við að snúa. Einar fæddist að Höfðabrekku í Mýrdal og ólst þar upp, yngstur f hópi þriggja bræðra. Vilborg og Sveinn vissu, að þau áttu ekki annan auð en þess þrjá drengi og dugnað sinn. Þau virðast hafa sett upp það sem á nútímamáli heitir langtimaáætlun og reyndar gilti sú áætlun fyrir fleiri kynslóðir eftir þau. Til þess þurfti miklu að fórna og var það gert af stakri ósérhlífni. Fyrst var jörðin Höfða- brekka seld og fór hún til að kosta nám elzta sonarins, Karls, en hann lauk verkfræðiprófi í Þýzka- landi, en lézt síðan úr spönsku veikinni. I Mýrdalnum var fylgzt vel með þessu, og slíkar voru vin- sældir þessa fólks, að eftir lát Karls voru skírðir eftir honum nokkrir drengir, sem vel hefur úr rætzt. Þegar Höfðabrekkan var seld, keyptu þau Suður-Hvamm í Mýr- dal, ræktuðu jörðina upp, en jafn- framt var annazt um skólagöngu hinna tvegga sonanna, Gústafs Adolfs (föður míns) og Einars ólafs. Skólinn var fyrst Flensborg í Hafnarfirði, en síðar Mennta- skólinn í Reykjavfk og loks Kaup- mannahafnarháskóli. Af þessu sést, að myndarlega var staðið að menntun bræðranna. Á hverju hausti fór amma með synina suð- ur á hestum, en á vorin gengu þeir heim aftur, tæplega 200 kílómetra óraveg, og voru þá ekki komnar brýr á flestar ár. Ég hef uppi á Hellisheiði séð stíga klappaða í hraunhellurnar eftir þessi fótspor og horfi á þau með virðingu fyrir þvi, sem fólk hefur viljað leggja á sig til að afla menntunar og sorg- legt er að horfa á, að fólk skuli ekki nenna að afla sér menntunar nú á tímum, þótt góðum gáfum sé gætt. Þar eð ekki var hægt að kaupa nema eitt sett af bókum, voru þeir saman í bekk, Einar og faðir minn, og fylgdust þeir að í gegnum Flensborg og Menntaskólann. Ég hef séð einkunnaskrár föður míns, og þær einkunnir, sem Einar fékk, voru hliðstæðar. Bera þær með sér, að ekki var orku afa og ömmu á glæ kastað, þótt miklu væri fórnað. Mótlæti reyndu þau Vilborg og Sveinn. Fyrst misstu þau elzta soninn, svo sem áður er sagt, en síðan veiktist Einar af berklum, en hann var þá við nám í Kaup- mannahöfn. Var honum vart hug- að líf, enda var þá lítið um lækn- ingu annað en liggja og hvílast. Fór þá amma til Kaupmannahafn- ar, mállaus með öllu á dönsku, til að vera hjá honum unz yfir lyki. Brá þá svo við að honum batnaði sóttin, og er ekki vitað, hvort áhrif ömmu hafi verið um að ræða eða önnur áhrif, en amma var mjög trúuð kona og hafði samband við aðrar verur. Á því kann ég þó ekki deili. Upp reis Einar og lauk sínu námi með miklum heiðri. Námið endaði á doktorsritgerð, sem hann varði við Háskóla íslands. Eru gerðar þar strangari kröfur en annars staðar, þar sem kaupa má doktorstitla í búð eins og sælgæti. Á starfsævi sinni var hann orð- lagður vísindamaður í fornum fræðum og fór það orð víða um lönd. Hann var boðinn til að halda fyrirlestra í fjöldamörgum lönd- um og var alls staðar foreldrum sínum, fjölskyldu og landi til sóma. Lengra er ekki hægt að komast. Um vísindastörf hans ætla ég ekki að hafa mörg orð, enda tel ég flesta færari um að fjalla en mig, en í einkalífi sínu átti hann gæfu að fagna. Hann kvæntist konu, sem reyndist honum vel, Krist- jönu Þorsteinsdóttur, og eignuðust þau son, Svein Einarsson, sem er landsþekktur maður á bezta aldri, og hefur m.a. gegnt starfi Þjóð- leikhússtjóra um langt árabil. í slíku starfi veitir ekki af rósemi- erfðaeiginleikum þar eð allir kunna betur að stýra en sá, sem við stýrið situr. Hann er kvæntur Þóru Kristjánsdóttur listfræðingi, sem veitir Kjarvalsstöðum for- stöðu, og eiga þau eina dóttur, Ástu Kristjönu, og ber hún vel með sér ættarmót afa síns og langömmu. Eins og öll afabörn, var þessi litla stúlka mikill augasteinn af- ans og ömmunnar, enda eru góð afabörn mikill auður og ómetan- legur. Síðustu árin var Einar heilsulít- ill. Þó var alltaf sama hlýjan, sem frá honum stafaði og breyttist það aldrei frá fyrstu tíð. Hann var góður maður og vandaður og mér finnst mikið skarð fyrir skildi, að hans skuli ekki njóta lengur við. Það gleður mig þó mjög, að stund- um er rödd hans í útvarpinu og les úr Njálu. í þeirri framsögn kemur fram sá Einar, sem allir þekktu, og væri sannarlega athugandi fyrir Ríkisútvarpið, að taka sig nú til að gefa út „hljóðbók" á kassett- um af upplestri hans úr Njálu. Þarf slíkt tiltæki ekki að kosta mikið, en gæti verið verðugt þakklæti þeirrar stofnunar fyrir það, að hann gat með þeim upp- lestri gert þann fjölmiðil áheyri- legri en ella. Einar skilaði góðu lífi og er ég þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að njóta hluta þess. Sveinn Torfi Sveinsson „Lesandinn hefur sigrazt á sál- arkvölinni, hugur hans hefur að nýju hiotið nokkuð af hreinleika og heiðríkju barnshugans, og hann er, þrátt fyrir allt, aftur til þess búinn að lifa lífinu áfram, glaður, með góðan vilja og óhryggur." Með þessum orðum lauk Einar Ólafur kaflanum um lífsskoðanir í formálanum fyrir útgáfu sinni á Brennu-Njáls sögu. Ef þannig má lifa af mikinn harmleik, hversu óhrygg og vilja- góð megum við ekki vera, þá lokið er miklu, auðugu og farsælu lífi aldins höfðingja? Þegar við, vinir og lærisveinar Einars Ólafs, kveðjum hann í dag erum við að kveðja heila öld. Við kveðjum öld þeirra evr- ópsku húmanista sem ólust upp í heilum heimi pósitívismans en uppgötvuðu takmarkanir hans, virkjuðu í þess stað heima draums og fantasíu, dul og óræði myrkra meginlanda mannssálarinnar, og skiluðu öllum þessum arfi inn í sundraðan nútímann. Eftir þá Njálsbrennu var það ekki öllum gefið sem Einari Ólafi að sigrast á sálarkvöl og öðlast aftur heiðríkju barnshugans. Við, yngsta kynslóð manna, sem erum þó orðnir nógu gamlir til þess að hafa um hríð verið sam- starfsmenn Einars ólafs við Heimspekideild Háskóla íslands, kveðjum líka með honum öld þeirra manna sem í öndverðu reistu merki íslenskra fræða við þá stofnun. Það var „feðranna frægð", fornar bókmenntir ís- lenskar, sem á æskudögum Há- skólans varp mestum Ijóma á við- fangsefni íslenskra hugvísinda. Þar unnu þeir að hver af öðrum Björn M. Ólsen, Sigurður Nordal og Einar Ólafur Sveinsson. Allir höfðu þeir ungir hlotið vís- indalega þjálfun og útsýn til Evr- ópumenningar i skjóli okkar „gömlu móður", Kaupmannahafn- arháskóla í borginni við Sundið. 1 þeirra hlut kom að reisa hér heima nýtt virki fræðanna og þar var Einar Ólafur yngsti bygg- ingameistarinn, og oft er hann sá sem mestu ræður um ásýnd hverr- ar hallar. f þessum fáum kveðjuorðum verða ekki rakin embættis- eða vísindastörf Einars Ólafs, því að það þykist ég vita að verði gert af öðrum sem er nákomnari og kunn- ugri sérfræðasviði hans, íslensk- um bókmenntum fornum. Aðeins skal það sagt að þar voru afköst hans með ólfkindum mikil og spönnuðu allar greinar fornra bókmennta eins og fjölmörg sér- stök rit hans um íslenskar forn- bókmenntir, formálar hans og út- gáfur á mörgum sögum og hið mikla verk um Eddukvæði bera vitni um. En þjóðsögur og -kvæði áttu einnig ást hans og elju, og í þjóðsagnafræðum gerðist hann brautryðjandi sem er í hávegum hafður alls staðar þar sem þau fræði eru iðkuð við vestur-evrópsk menntasetur. Þá samdi hann og nokkrar greinar um islenskan skáldskap frá síðari timum sem og um ein- stök sígild evrópsk verk og höf- unda. Hann þýddi útlendan skáldskap á íslensku, var sjálfur Ijóðskáld og samdi húmanískar ritgerðir utan fræðasviða sinna. í fáum orðum sagt var hann fágætlega fjölhæfur og víðfeðmur vísindamaður og margslunginn og listrænn rithöfundur. Atvik höguðu því svo að ég naut ekki beinnar handleiðslu Einars Ólafs við fræðilega þjálfun á skólaárunum því að verkefni mín voru ekki á hans sérsviði. En þeg- ar ég kynntist honum og viðhorf- um hans betur persónulega síðar, mat ég hann æ meir. Þekking hans var ótrúleg og minnið með. Ást hans á skáldskap og fegurð orðlistar var ástríðu- þrungin. Þetta ásamt langri þjálf- un og stöðugri hugsun gaf honum meira innsæi í heim bókmennta en flestum var gefið. Hann vissi að sérhvert mikils- háttar skáldverk er flóknari ver- öld og á sér margbrotnari sköp- unarsögu en svo, að því hæfi ein- faldar skýringar. Hann féll heldur aldrei fyrir ódýrum lausnum. Hann, sem átti flestum næmari tilfinning fyrir draumum og dul og skynjaði fantasíu og ævintýr lífs og skáldskapar öðrum betur, lét ávallt ráða í vfsindaverki sínu skarpa athugun og heiða dóm- greind. Þess vegna lét hann aldrei ljómann af stórum allsherjar- kenningum blinda sjón sína. Einhvern tíma bar á góma í samræðu okkar glæsta kenning sem virtist leysa vanda með ein- földum hætti, og ég spurði hann þá hvort mann með alla hans yfir- sýn og miklu þekking hefði aldrei langað til að smfða eitthvert þess háttar bókmenntafræðilegt lása- gras er upp lyki flestum leyndar- dómum. Hann sat hljóður um stund, smáhló svo og sagði: — Æ, mér hefur alltaf leiðst öll vitleysa. Hann trúði ekki á allsherjar- lausnir á flóknum vandamálum en mat þeim mun meir vel unnin verk sem þokuðu fræðunum spölkorn áleiðis. „Allir höfðu þeir góðan vilja," sagði hann um þá er unnið höfðu að rannsóknum á Brennu-Njáls sögu á undan honum. Og fátt mat hann hærra en góð- an vilja. Svo vitur maður og lang- menntaður sem hann var, vissi hann að öllu lífi mannanna og allri viðleitni þeirra eru takmörk sett, ekki síst þekkingunni. Með góðum vilja má þó ná langt og án hans verður ekkert gott verk unn- ið. Hann, sem þokaði úr vegi fleiri þungum björgum en flestir menn, sætti sig vel við þá austurlensku speki að sá, sem hrærir eitt sand- korn á hafsins strönd, hreyfir um leið allan heiminn. Einar ólafur hlaut ungur vís- indaþjálfun við trausta fræðastóla Hafnarháskóla og bar alla ævi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.