Morgunblaðið - 26.04.1984, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 26.04.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 27 ísland nn fara. Ekki bara með því að leysa aðsteðjandi vanda líðandi stundar, heldur að menn setji sér markmið til lengri tíma og það verulega lengri tíma.“ Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, var jafnframt á þessum fundi og hann sagði m.a. um þetta verkefni: „Ég held að það blandist fáum hugur um að þetta vinnulag sem forsætisráðherra lýsti, að glíma við aðsteðjandi vanda frá degi til dags, hafi mörg undanfarin ár sett svip sinn á þjóð- lífið. Það er áreiðanlega tilraunar- innar virði að reyna að breyta því og líta lengra fram.“ Ráðgjafanefndin, sem að sögn forsætisráðherra á ugglaust eftir að stækka enn, hittist á sínum fyrsta fundi í fyrradag. Nefndina skipa eftirtaldir: Ágúst Valfells, verkfræðingur, iðnrekandi, Alda Möller, matvælafræðingur, Rannsóknarst. fiskiðnaðarins, Anna Kristjánsdóttir, stærðfræð- ingur, Kennaraháskóla íslands, Frá fundi forsætisráðherra með fréttamönnum í gær. Honum á hægri hönd situr Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar, og á milli þeirra sést Magnús Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Ljúsm. Mbi. júIíus. Árni Bergmann, ritstjóri, Þjóðviljinn, Arnþór Garðarsson, dýrafræðingur, Líffræðistofnun, Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur, ASÍ, Séra Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi Þjóðkirkjunnar, Bjarni Einarsson, hagfræðingur, Framkvæmdastofnun, Bjarni Þjóðleifsson, læknir, Landspítalanum, Björn Friðfinnsson, lögfræðingur, Samb. ísl. sveitarfél., Bolli Héðinsson, hagfræðingur, Far- manna- og fiskimannasambandið, Davíð Scheving Thorsteinsson, iðn- rekandi, Smjörlíki hf., Geir Haarde, hagfræðingur, aðstoð- arm. fjármálaráðherra, Guðríður Þorsteinsottir, lögmaður (form. Jafnréttisráðs), Guðrún Agnarsdóttir, læknir og alþingismaður, Guðrún Jónsdóttir, arkítekt, Reykjavíkurborg, Haraldur Ólafsson, mannfræðingur, Háskóla íslands, Helga Jónsdóttir, lögfræðingur, aðstoðarm. forsætisráðherra, Hermann Sveinbjörnsson, líffræðingur, iðnaðarráðuneytinu Hjörtur Þórarinsson, bóndi, Tjörn Ingjaldur Hannibalsson, verkfræðingur, Iðntæknistofnun, Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, Hafrannsóknastofnun, Jón Ormur Halldórsson, stjórnmálafræðingur, Hjálparstofnun kirkjunnar, Jón Sigurðsson, hagfræðingur, Þjóðhagsstofnun Jónas Haralz, hagfræðingur, Landsbanka íslands, Lilja Ólafsdóttir, deildarstjóri, SKÝRR, Magnús Gunnarsson, viðskipta- fræðingur, VSÍ, Magnús Torfi Ólafsson, blaða- fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Sigmundur Guðbjarnarson, verk- fræðingur, Háskóla íslands, Sigurður R. Helgason, viðskiptafræðingur, Björgun hf., Sigurður Líndal, lögfræðingur og sagnfræðingur, Háskóla Islands, Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræðing- ur, Raunvísindastofnun, Tryggvi Gíslason. skólameistari, M.A., Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, KEA, Vilhjálmur Lúðvíksson, verkfræð- ingur, Rannsóknarráði Þór Jakobsson. veðurfræðingur, Veðurstofu Islands, Þórður Friðjónsson, hagfræðingur, forsætisráðuneyti, Þorsteinn Gíslason, fiskimálastjóri Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur, Háskóla íslands. Fjárfestingahand- Á blaðamannafundi sögðu útgef- endur tilganginn með útgáfu Fjár- festingahandbókarinnar vera að veita öllum þeim, sem ávaxta þurfa fjármuni eða leggja í fjárfestingar, almennar og greinargóðar upplýs- ingar um þá möguleika sem fyrir hendi eru og gefa góð ráð. Jafn- framt sögðu þeir bókina ætlaða þeim, sem hafa það að starfi að veita öðrum ráð og einnig telja þeir hana hentuga til kennslu. Þeir lögðu áherslu á að ekki þurfi sérfræði- þekkingu til þess að geta notfært sér bókina, heldur sé hún þvert á móti ætluð öllum almenningi og hafi verið lögð áhersla á að hafa framsetningu efnis og uppsetningu aðgengilegt og auðskiljanlegt. Bókin skiptist í 13 kafla og eru helstu kaflarnir þessir: Að fjár- festa, Fjármagn á íslandi, Vá-og líf- eyristryggingar, Varðveisla fjár í innlánsstofnunum, Spariskírteini ríkissjóðs, Happdrættisskuldabréf ríkissjóðs, Veðskuldabréf, Hluta- bréf, Fasteignir og Bílaviðskipti. Útgefendur greindu frá því að fjölmargir aðilar hefðu lagt lið við samningu bókarinnar og að kapp- kostað hefði verið að fá sérfræð- inga, hvern á sínu sviði, til þess að fjalla um þá málaflokka er þeir höfðu mesta og besta þekkingu á. Bókin er 328 bls. að stærð. Hún er sett, umbrotin filmuunnin og prent- uð í Prentstofu G. Benediktssonar og bundin hjá Arnarfelli. Kápu hannaði Birgir Andrésson en ljós- myndir í bókinni eru teknar af Lofti Ásgeirssyni og Jens Alexanders- syni. Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélags lslands, kvnnir fréttamönnum Fjárfestingahandbókina. Honum við hlið situr Gunnar J. Friðriksson, stjórnarformaður Fjárfestingarfélags íslands, og lengst til hægri er Magnús Hreggviðsson, framkvæmdastjóri Frjáls Framtaks. Ljósm. Mbl. Emelía. nýrri bókin í Fjárfestingarfélag íslands hf. og Frjálst framtak hafa sent frá sér Fjár- festingahandbókina, og er þetta í ann- að sinn sem bókin er gefin út, en hún kemur nú út í endurskoðaðri útgáfu, þar sem verðtrygging og breytingar á skattalögum hafa verið aðlöguð að efni bókarinnar. Ritstjóri bókarinnar er Gunnar Helgi Hálfdánarson, fram- kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags ís- lands, og ritstýrði hann jafnframt fyrstu útgáfu. útgáfii Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins: „Bankaskírteinin tví- mælalaust góð fjárfesting“ „Bankaspariskírteinin eru tvímæla- laust góð og mjög samkeppnishæf fjár- festing í augnablikinu og miðað við verðbólguhorfur næstu 6 mánuði verð- ur þar engin breyting á,“ sagði Gunn- ar Helgi Hálfdánarson, framkvæmda- stjóri Fjárfestingarfélags íslands, m.a. á blaðamannafundinum, þar sem Fjár- festingahandbókin var kynnt. Gunnar vildi þó ekki taka afstöðu til þess hvaða innlánsmöguleikar bankanna væru hagkvæmastir, þó sagðist hann tvímælalaust telja að IB-lán Iðnaðarbankans væru góð fjárfesting. Gunnar benti á að þeir sem notfærðu sér þennan skamm- timafjárfestingarmöguleika sem væri fólginn í innlán9spariskírtein- um bankanna yrðu að halda vöku sinni hvað það snertir að taka féð út, þegar bindiskyldu væri lokið. Hann sagöi í því sambandi: „Ef menn taka ekki féð út, þegar það losnar, þá er það sett á almenna sparisjóðsreikninga og ef féð liggur þannig, þá er ársávöxtun fljót að fara niður.“ Utlaginn sýndur í Svíþjóð: Fær góða dóma IITLAGINN, kvikmynd Ágústs Guð- mundssonar, hefur að undanförnu feng- ið góða dóma í sænskum dagblöðum. Morgunblaðinu hafa borist umsagnir fjögurra blaða og eru þær allar á svipaða leið: lltlaginn sé mjög athyglisverð kvikmynd og í henni takist leikstjóran- um vel að koma til skila því hatri og þeim hefndarhug, sem einkennir söguna. í Aftonbladet segir m.a.: „Þrátt fyrir nokkra tæknilega galla á mynd- inni hefur leikstjóranum, Ágúst Guð- mundssyni, tekist vel að draga upp sterka og trúverðuga mynd af forfeðr- um okkar. Það kemur vel fram í tnynd- inni, að þetta voru menn sem létu verkin tala. Einhverjir kunna kannski að fetta fingur út i ofbeldisatriði myndarinnar, en mynd, sem á að lýsa víkingatímanum, verður hvorki fugl né fiskur án vígaatriða." Hin blöðin þrjú, Dagens Nyheter, Expressen og Svenska Dagbladet, taka í sama streng og kvikmyndagagnrýn- andi Aftonbladet. í því fyrsttalda er leikstjóranum m.a. hælt á hvert reipi fyrir hvernig honum tekst að halda uppi stöðugri spennu í myndinni. Expressen segir, að eftir á að hyggja sé efnisþráður myndarinnar líkari martröð en raunveruleika, en loka- atriði hennar sé í senn óvænt og þó eðlilegt. Skákmót í New York: Portisch slapp fyr- ir horn gegn Helga Helgi Olafsson gerði jafntefli við ung- verska stórmeistarann Lajos Portisch í I. umfcrð á alþjóðlegu skákmóti í New York. „Helgi missti sennilega af vinningi í endataflinu, en staöan var mjög flókin og erfíð," sagði Jóhann Hjartarson í samtali við blm. Mbl. Jóhann tefldi við Bandaríkjamann- inn Kevin Spragget, sem hefur 2.540 Elo-stig, og tyktaði viðureign þeirra með jafntefli. „Ég fékk erfiða stöðu, en tókst að halda jafntefli," sagði Jó- hann. Spragget vann alþjóðlega mótið í New York um páskana, skaut skák- mönnum eins og Yasser Seirawan ref fyrir rass. Önnur helstu úrslit í mótinu urðu þau, að Bent Larsen tapaði fyrir bandaríska stórmeistaranum Andy Zoltis. Larsen fékk betri stöðu en lék illa af sér og gaf skákina eftir 27 leiki. Ljubomir Ljuboejevic vann Tim Tayl- or, Walter Browne gerði jafntefli við Michael Rhode, Adorjan vann Merc- had Shariff, Dmitry Gurevich vann Victor Rrias og Ivanov frá Kanada vann Arthur Bisguier. Alls taka um 25 stórmeistarar þátt í mótinu. „Þetta er sterkasta skákmót, sem haldið hefur verið í Bandaríkjunum f 50 ár,“ sagöi Allen Kaufmann, forseti bandaríska skáksambandsins, við blaöamenn áður en mótið hófst. Fyrstu verðlaun eru 10 þúsund dalir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.