Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
oo
32
Minning:
Ásrún Sigurjónsdóttir
hjúkrunarkona
Fædd 16. júlí 1908
Dáin 13. apríl 1984
í dag verður til grafar borin
Ásrún Sigurjónsdóttir. Hún var
fædd á Einarsstöðum í Reykjadal,
dóttir hjónanna Kristínar Jóns-
dóttur og Sigurjóns Friðjónssonar
skálds.
Mig langar til að minnast Ás-
rúnar frænku minnar, því hún var
mér ávallt svo góð og best þegar
mest á reyndi i veikindum Árons
mannsins míns og eftir að hann
lést.
Ung að árum gekk hún í alþýðu-
skólann á Laugum og síðan í hús-
mæðraskólann þar. Hún flutti
suður til Reykjavíkur og hóf
hjúkrunarnám og starfaði sem
hjúkrunarkona, lengst af á Hvíta-
bandinu. Og þar álít ég að hún
hafi verið á réttri hillu í lífinu, því
hún var fórnfús og líknandi.
Ásrún hafði létta lund og var
hlý og þægileg í viðmóti. Hún var
vel gefin og hreifst af fallegri
tónlist og öllu fögru og var hún
sjálf hagmælt og las og kunni
mikið af ljóðum. Því finnst mér
vel við eiga að helga henni að leið-
arlokum þessar ljóðlínur eftir Ar-
on:
Lánið er ei fyrir landaura falt
þótt ieitað sé skammt eða viða
en Guðirnir hafa gefið þér allt
sem góða konu má prýða.
(A.G.)
Þegar ég nú að lokinni samferð
lít yfir farinn veg minnist ég konu
sem var sannur vinur minn frá því
ég man fyrst eftir mér. Hún Sar
virðingu fyrir lffinu og því sem
henni var trúað fyrir.
Við sem stóðum næst Ásrúnu
söknum nú vinar í stað, en megum
vera þess minnug að stundum get-
ur dauðinn verið eins og líknandi
hönd fyrir þá sem þjást.
Ásrún Einarsdóttir
13. apríl síðastliðinn andaðist
Ásrún Sigurjónsdóttir á Borg-
arspítalanum eftir löng veikindi.
Asrún var fædd 16. júlí 1908 á
Einarsstöðum í Reykjadal, S-
Þing., dóttir hjónanna Sigurjóns
Friðjónssonar bónda og skálds og
Kristínar Jónsdóttur, en þau
bjuggu á Laugum í Reykjadal og
átti Ásrún þar heima uns hún fór
að heiman til náms í hjúkrun, en
áður hafði hún stundað nám við
Héraðsskólann á Laugum og við
Húsmæðraskólann á Laugum.
Ásrún lauk hjúkrunarnámi við
HSÍ í maí 1942 og stundaði fram-
haldsnám í geðhjúkrun við
Kleppsspítalann sumarið 1944.
Ásrún starfaði sem hjúkrunar-
kona lengst af við Hvítabandið eða
þar til það var lagt niður. Þó
starfaði hún sem hjúkrunarkona á
árunum 1948—49 við Tönsbergs
sykehus á lyfja- og farsóttadeild
og eins einn vetur á Haukeland
sykehus í Bergen, Noregi. Þegar
Hvítabandinu var lokað og Borg-
arspítalinn var opnaður hóf Ásrún
störf þar og var þar um tíma, en
færði sig yfir á Landakotsspítal-
ann, og vann að lokum 60% vinnu
á Vífilsstöðum, og hætti þar störf-
um 70 ára að aldri.
Ásrún bjó á Víðimel 19, Reykja-
vík, en þar átti hún ágætis íbúð.
Ásrún hafði áhuga á ferðalögum
og ferðaðist hún t.d. mikið um
landið og fór oftast á hverju ári á
heimaslóðir. Eins ferðaðist hún
um Norðurlöndin, Spán og Ítalíu.
Árið 1973 fór hún með okkur hjón-
unum og krökkunum til Rúmeníu
og naut ferðarinnar vel, enda var
það óvenjuleg og sérstæð ferð, og
að mörgu leyti mjög skemmtileg.
Ásrún var móðursystir konu
minnar og urðu því kynni náin,
hún var sjálfsagður gestur á
heimili okkar og hændust börnin
okkar mjög að henni, enda sat hún
ekki ósjaldan yfir þeim er þau
voru ung, svo að við hjónin kæm-
umst í bíó eða eitthvað út. Þeir
voru heldur ekki fáir vettlingarn-
ir, leistarnir og peysurnar er hún
prjónaði á þau fyrir utan aðrar
gjafir. En það sem mest var áber-
andi í fari Ásrúnar var að hún
vildi allt fyrir aðra gera en ekkert
þiggja á móti.
Er ég á þessari kveðjustund
horfi yfir farinn veg vil ég þakka
Ásrúnu fyrir þá vináttu er hún
ávallt sýndi mér. Kona mín og
börn kveðja góða frænku með
söknuði.
Hörður Jónsson
í dag er til moldar borin Ásrún
Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona.
Hún lést 13. apríl eftir erfiða
sjúkdómslegu. Þá er dauðinn líkn.
En hugurinn reikar til baka.
Það var vorið 1943 að ég sá Ás-
rúnu fyrst. Ég var nýtrúlofuð fóst-
urbróður hennar og frænda, Gísla
T. Guðmundssyni, og fórum við í
heimsókn til Ásrúnar. Hún kom á
móti okkur, björt og heið á svip, og
fagnaði okkur innilega og með
léttri gamansemi. Við tengdumst
fjölskylduböndum en einnig órjúf-
anlegum vináttuböndum.
Ásrún var fædd 16. júlí 1908.
Hún var næstyngsta barn hjón-
anna Sigurjóns Friðjónssonar,
skálds og bónda á Litlu-Laugum í
Reykjadal, og konu hans, Kristín-
ar Jónsdóttur. Þau eignuðust tólf
börn og tóku auk þess fósturson á
fyrsta ári, yngstan barnanna,
systurson Sigurjóns. Þetta sýnir
hugarþel foreldra Ásrúnar.
Hún ólst upp við félagshyggju,
þar sem hjálpsemi og góðvild réð
ríkjum. Ásrún stundaði nám í
Héraðsskólanum á Laugum og út-
skrifaðist þaðan 1928. Hún lauk
námi í Húsmæðraskólanum á
Laugum 1930, en hjúkrunarnámi
lauk hún 1942 frá Hjúkrunarskóla
íslands. Það var vel ráðið að Ás-
rún lærði hjúkrun. Hún virtist
hafa köllun til þess starfs. Þetta
reyndi ég sjálf þegar ég lá í nokkr-
ar vikur hjá henni á Hvítabandinu
en þar starfaði hún lengst. Hún
gat alltaf gefið sér tíma til að
reyna að bæta líðanina, bæði lík-
amlega og andlega, því hún hafði
einstakt lag á að uppörva sjúkl-
inga sína. Hún umgekkst þá með
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi óskast
Erlent sendiráð
óskar eftir að taka á leigu 3ja—4ra herb. hús
eða íbúð í Reykjavík eða Kópavogi. Æskileg-
ur leigutími 3 ár eða lengur.
Upplýsingar veittar í síma 19331 frá kl.
8.30—17.30.
Rækjubátar
100—200 lesta bátar óskast í viðskipti til
veiða á rækju í Kolluál. Æskilegt að kæld lest
sé fyrir hendi.
islensk matvæli hf.,
sími 51455.
tilkynningar
Sumarhús Félags matreiðslumanna eru hér
með auglýst til afnota fyrir félagsmenn.
Þeir félagsmenn sem ekki hafa áður dvalið í
sumarhúsunum ganga fyrir meö dvöl í sumar.
Umsóknir þurfa aö berast fyrir 15. maí.
Upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins.
Stjórn FM.
Matreiðslumenn
á kaupskipum
Atkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamninga
fer fram á skrifstofu FM frá og meö 30. apríl
til og með 21. maí á skrifstofutíma.
Stjórn FM,
Óðinsgötu 7.
Vörubifreið
Volvo F 86 árg. '12 til sölu eftir ákeyrslu.
Einnig til sölu Benz 1814 árg. ’67. Uppl. í
síma 92-1815.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
Aö krö*u tollinnheimtu ríkissjóös i Hafnarfiröi fer fram nauöungar-
uppboö á 25 ítölskum leöursófasettum laugardaginn 28. apríl nk.
Greiösla viö hamarshögg. Hefst þaö kl. 14.00 aö Melabraut 19, Hafn-
arfiröi.
Kópavogur— Kópavogur
Almennur fundur
Almennur fundur veröur haldinn í Sjálf-
stæöishúsinu Hamraborg 1, fimmtudag-
inn 26. apríl kl. 20.30. Þingmenn Sjálf-
stæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi
flytja stutt ávörp og svara fyrirspurnum
fundarmanna.
Mætum öll.
Matthfas A.
Matthíasen
Gunnar G. Schram Saloma Ólafur G.
Þorkeladóttir Einarmson
Bæjarfógetinn i Hatnarfirói
Stjórn Sjálfstæóisfélags Kópavogs.
Nauðungaruppboð
á Langholti I, Hraungeröishreppi, eign Hreggviös Hermannssonar fer
fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. maí 1984 kl. 10.00 eftir kröfum
Búnaðarbanka Islands og innheimtumanna rikissjóös.
Sýslumaóur Arnessýslu
Nauðungaruppboð
á Tryggvagötu 26, efri hæö, Selfossi, eign Axels Magnússonar, fer
fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 2. maí 1984 kl. 13.30 eflir
kröfum innheimtumanns rikissjóös og lögmannanna Arnmundar
Backman og Árna Guöjónssonar.
Bæjarfógetinn á Selfossi
Nauðungaruppboð
annaö og síöasta á íbúö í Háengi 8, 2. hæö III, eign Báru Guönadótt-
ur, fer fram á eigninni sjálfri miöviKudaginn 2. maí 1984 kl. 10.00 eftir
kröfum Veödeildar Landsbanka íslands og lögmannanna Theódórs S.
Georgssonar, Vilhjálms G. Vilhjálmssonar, Jóns Ólafssonar, Gunnars
Guömundssonar og Sveins H. Valdimarssonar
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Blönduósingar
Aöalfundur Sjálfstæöisfelags Blönduóss veröur haldinn fimmtudaginn
27. apríl nk. kl. 21.00 i félagsheimilinu Blönduósi, efri sal.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Einvígi Agnesar Bragadóttur og Halldórs
frá Kirkjubóli
Staöur: GAFL-INN, Dalshrauni í Hafnarfiröi.
Stund: Fimmtudaginn 26. apríl, kl. 20—22
Frummælendur auk ofangreindra:
Páll V. Danielsson andstæöingur bjórsins. Jón Magnússon lögfræö-
ingur og flutningsmaöur bjórfrumvarpsins á þingi.
Fundarstjóri: Oddur H. Oddsson.
Opnar umræöur aö loknum framsöguerindum.
Allír velkomnir meöan húsrúm leyfir.
Aögangur ókeypis. s,efrlí>
Félag ungra sjálfstæóismanna
Hafnarfiröi
Mosfellssveit viötalstímar
hreppsnefndarmanna
Hreppsnefndarmenn Sjálfstæöisflokksins Bernharö Llnn og Hilmar
Sigurösson hafa viötalstima í Hlégaröi, uppi, fimmtudaginn 26. apríl
kl. 17.00—19.00. Mosfellingar eru velkomnir meö fyrirspurnlr og
ábendingar um hreppsnefndarmál.
Sjálfstæðisfélag Mosfellinga.