Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 Hljómsveitin Drýsill á tónleikum. Tónleikar sex sveita í Garðalundi í kvöld SEX hljómsveitir koma í kvöld fram á tónleikum í félagsmiðstöðinni Garðalundi í Garðabæ undir yfir- skriftinni „Garðarokk gegn vímu“. Það er JC Garðar, sem stendur fyrir þcssum tónlcikum í samvinnu við Garðalund. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er verð aðgöngumiða kr. 200, en kr. 100 fyrir skírteinishafa í Garðalundi. Hljómsveitirnar sex, sem koma fram í kvöld, eru: Frakkarnir, Drýsill, Dá, Dúkkulísurnar, Sing- ultus og Rök. Þær tvær fyrsttöldu eru orðnar vel þekktar á meðal unglinga og sömu sögu er reyndar að segja um Dúkkulísurnar, sem nýverið hafa lokið við upptöku á fyrstu hljómplötu sinni. Frakk- arnir leika einkum fönk-tónlist, en Drýsill hefur vakið athygli fyrir vel flutta þungarokkstónlist. Dá er ung hljómsveit, sem vakið hefur athygli að undanförnu fyrir sér- stæða tónlist. Tvær síðasttöldu sveitirnar eru úr Garðabæ. Önnur þeirra, Singultus, hefur starfað um hríð, en hin, Rök, er ný af nál- inni. Að sögn Hannesar Strange, starfsmanns Garðalundar, verður hugsanlegum hagnaði af tónleika- haldinu varið til kynningar á þeirri hættu, sem er samfara notkun vímuefna. Taidi Hannes jafnframt, að þessir tónleikar væru þeir umfangsmestu, sem fram hefðu farið í Garðabæ til þessa. Selja kornblöndu til að reisa leikskóla Félagar í Ananada Marga hafa sett á markað ristaða kornhlöndu, sem þeir kalla Ananada Granola, og aðra óristaða sem Múslí heitir. í frétt frá Ananada Marga segir, að þessi framleiðsla sé til þess að fjármagna byggingu leikskóla, sem kvennahreyfing félagsins ásamt foreldrum ætlar að reisa á landi félagsins í Skerjafirði við Reykjavík- urveg. Gítartónleikar í Norræna húsinu Mikið að gera í innanlandsflugi um páska Sjaldan hefur verið eins mikil andi vel og þurfti aðeins að fella landsflugi. flugumferð innanlands um páska niður flug til Vestmannaeyja. Sömu sögu var að segja hjá og nú. Að sögn Sæmundar Guð- Farnar voru fjórar þotuferðir til Arnarflugi og þurfti að fara vinssonar blaðafulltrúa Flugleiða Akureyrar og á páskadag var flog- margar aukaferðir til að geta gengu flugferðir Flugleiða skín- ið með um 2.000 manns í innan- annað eftirspurn. Pierre Laniau tónlistarnám við Conserva- toire de Possy og síðan við Ecole Normale de Musique de Paris, þar sem hann sótti tíma hjá Alberto Ponce. Hann hóf að leika á tíu strengja gítar árið 1972, sama ár og hann hélt fyrstu einleikstónleika sína og 1975 hélt hann áfram námi undir handleiðslu Narc- iso Yepes. Upp frá þessu hefur Pierre Laniau oft komið fram í út- varpi og sjónvarpi. Hann hef- ur einnig leikið á mörgum listahátíðum, s.s. Parísarsum- arhátíðinni í Hotel de Sully 1975, listahátíðinni í Marais 1977, Satie-hátíðinni í Róm 1981, Parísarhátíðinni í Con- ciergerie 1982. Auk þess hefur hann haldið tónleika í flestum löndum Evrópu og í Mið- Ameríku og leikið inn á hljómplötu helgaða Erik Satie. Franski gítarleikarinn Pierre Laniau heldur tónleika í Nor- ræna húsinu í kvöld, fimmtu- dagskvöld, og hefjast þeir klukkan 20.30. Efnisskráin er þannig: Luys de Narvaez: Tilbrigði við „Gardame las vacas“ (1538), Jean-Philippe Rameau (1683— 1764): Allemande, Tambourin, les Tricotets, Jóhann Sebastí- an Bach (1685—1750): Fúga BWV 1.000, Fernando Sor (1778—1839): Adagio og Rondo opus 22, Maurice Ohana (1914): Planh et Aube, Joa- chim Rodrigo (1902): En los Tregales, og Erik Satie (1866—1925): Premiere Gymn- opédie. Gnossienne n° 1, 2 og 3. Je te veux (vals). La Diva de l’Empire. í fréttatilkynningu um tón- leikana segir um Laniau: Pierre Laniau fæddist í Par- ís árið 1955. Hann stundaði Félag einstæðra foreldra: Skorað á Alþingi að samþykkja frumvarp um breytt fæðingarorlof Á almennum fundi Félags ein- stæðra foreldra um kjaramál, sem haldinn var í Skeljahelli — félags- heimili félagsins — 28. mars 1984, voru eftirfarandi tillögur frá stjórn félagsins samþykktar: „Almennur fundur Félags ein- stæðra foreldra um kjaramáí, hald- inn í Skeljahelli 28. mars 1984, skorar á Alþingi íslendinga að sam- þykkja tafarlaust frumvarp Sigríð- ar Dúnu Kristmundsdóttur, alþing- ismanns, til laga um breytingu á lögum um fæðingarorlof." f greinargerð með frumvarpi Sig- ríðar Dúnu Kristmundsdóttur kem- ur fram, að árið 1960 hafi 29% kvenna unnið utan heimilis, en árið 1982 voru 86,4% kvenna útivinn- andi. Þá er einnig bent á að sífellt fari þeim heimilum fjölgandi þar sem fyrirvinnan er aðeins ein, „en fjórða hvert barn í landiru mun nú vera á framfæri einstæðrar móð- ur“. Meginbreytingar frá núgildandi lögum samkvæmt þessu frumvarpi er lenging fæðingarorlofs úr þrem- ur mánuðum í sex mánuði, að fæð- ingarorlofsgreiðslur miðist við full laun foreldris, þ.e. að miðað sé við rauntekjur. Þá er gert ráð fyrir að allar konur fái a.m.k. lágmarks fæðingarorlof án tillits til atvinnu- þátttöku, en orðrétt segir í greinar- gerðinni: „Hér með er afnumið það óréttlæti gagnvart heimavinnandi konum sem viðgengst samkvæmt núgildandi lög- um og í verki viðurkennd réttarstaða heimavinnandi móður og gildi starfa hennar fyrir þjóðfélagið í heild.“ Þá er einnig gert ráð fyrir að fað- ir eigi þess kost að taka fæðingar- orlof í tvo mánuði með samþykki móður og skerðist þá orlof hennar sem því nemur. í greinargerðinni er og bent á að ekki sé síður mikil- vægt, að faðir hafi tök á að tengjast barni sínu sem nánast og sem fyrst. Samkv. núgildandi lögum er fæð- ingarorlof móður einn mánuður. Þá gerir frumvarp Sigríðar Dúnu ráð fyrir að kjörforeldrar, uppeldis- eða fósturforeldrar eigi sama rétt á fæðingarorlofi og aðrir foreldrar. „Almennur fundur Félags ein- stæðra foreldra um kjaramál, hald- inn í Skeljahelli 28. mars 1984, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að hækka tafarlaust viðmiðunartekjur þær, sem stuðst er við í útreikningi barnabótaauka úr eitt hundrað og fimmtíu þúsund krónum í tvö hundruð og fimmtíu þúsund, á árs- grundvelli." í félagsmálapakka ríkisstjórnar- innar, sem fylgdi í kjölfar síðustu kjarasamninga þann 22. febrúar sl. kemur fram að barnabótaauki til einstæðra foreldra verði kr. 12.000.00 pr. barn miðað við 0—150 þús. kr. árstekjur, en lækki um 6,67% fyrir hverjar 10 þús. kr. sem bætast við árstekjurnar. Miðað við raunhæfar tekjur eða kr. 250 þús. á ári, sem þó hrökkva varla til fram- færslu einstæðs foreldris með eitt barn, væri barnabótaaukinn sam- kvæmt félagsmálapakkanum fjögur þúsund krónur á ári með hverju barni. Af þessum sökum taldi fund- urinn að barnabótaaukinn, þ.e. út- reikningarnir, eins og þeir voru settir fram í öllum blöðum þann 22. febrúar sl., væru bæði villandi og niðurlægjandi fyrir hlutaðeigandi aðila, enda ljóst að eitthundrað og fimmtíu þúsund króna árstekjur eru eitt hundrað þúsund krónum lægri en hægt er að sætta sig við í þ.s. Gestir fundarins voru Steingrím- ur Hermannsson, forsætisráðherra, og Björn Þórhallsson, varaforseti Alþýðusambands íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.