Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 48
Opið aíla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI 22. INNSTRÆTI, SÍMI 11633. OpiO öll flmmtudags-, föstu- dags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld. AUSTURSTRÆTI 22. (INNSTRÆTI) SiMI 11340. FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Mjólkurdrykkjaráðherranefndin: Fjórum sérfræð- ingum bætt við „ÉG GLEYPI ekkert við þessum út- reikningi mjólkurbúsins," sagði Al- bert Guðmundsson fjármálaráðherra, er hann var spurður álits á upplýsing- um Mjólkurbús Flóamanna um verð- myndun framleiðsluvara sinna kókó- mjólkur, Jóga og Mangó-Sopa. Fjög- urra ráðherra nefnd ríkisstjórnarinn- ar, sem skipuð var í fyrradag til að reyna að ná sáttum innan stjórnarliðs- ins vegna máls þessa, var útvíkkuð í gærmorgun með skipan fjögurra sér- fræðinga, einum tilnefndum að hverj- um ráðherranna. Fjármálaráðherra sagði af og frá að hann gleypti við þessum upplýs- ingum og væri það hlutverk sér- fræöinganna fjögurra að kanna þessa útreikninga sjálfstætt. Út- reikningarnir voru fengnir að beiðni forsætisráðherra, eins og Mbl. skýrði frá í gær. Fjármálar- áðherra sagði ennfremur athugun- arefni, að ætíð þegar verðmyndun landbúnaðarvara væri til umfjöll- unar þættu framleiðendur fullgildir upplýsingaaðilar, en annað væri upp á teningnum, þegar framleið- endur annarra vara ættu í hlut. „Þetta er mál sem ég ætla að taka sérstaklega til athugunar," sagði ráðherrann að lokum. Sjá Innlendan vettvang: „Þrætu- eplið Kókómjólk, Jógi og Mangó-Sopi“ á bls. 14. Suðurnes hf. í Garði: Kanna möguleika á nýtingu hrogna úr ígulkerum FYRIRTÆKIÐ Suðurnes hf. í Garði er um þessar mundir að kanna möguleika á veiðum á ígulkerum hér við land. Hugmyndin er að nýta úr þeim hrognin og selja söltuð eða fryst til Japan. Slík- ar veiðar og vinnsla hafa verið stund- aðar með góðum árangri við Kanada og C'hile. I*á munu einhverjir fleiri aðil- ar hér á landi hafa velt þessum mögu- leika fyrir sér. Torfi Steinsson, framkvæmda- stjóri Suðurnesja hf., sagði í samtali við Morgunblaðið, að þetta mál hefði verið í undirbúningi og könnun á annað ár og hann reiknaði með því, að það tæki um eitt ár tii viðbótar áður en það lægi endanlega fyrir hvort veiðar og vinnsla gætu orðið arðbærar. Tilraunir með veiðar hefðu verið gerðar í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, bæði með kafara í Hvalfirði og skelbátum á Breiðafirði. í ljós hefði komið að þúsundir lesta af ígulkerum væru við landið og veiðarnar með skel- plógnum hefðu gefið góða raun. Svo virtist að hrogn væru í ígulkerunum frá því I marz og fram í september og við tilraunaveiðarnar hefði komiö í ljós að magnið væri um 10% af heildarþunga og hráefnið væri gott. Torfi sagði, að markaður fyrir hrognin væri I Japan og hefði fyrir skömmu farið tilraunasending þang- að. Trjónukrabbi fœr páskaegg ÞAÐ ERU ekki bara landkrabbarnir, sem verða þeirr- ar ánægju aðnjótandi að fá páskaegg um páskana. Það hljóp nefnilega á snærið hjá þessum myndarlega trjónukrabba þegar hann rakst á páskaegg á 18 metra dýpi í mynni Hvalfjaröar á dögunum. Þar sem krossfiskur var einnig í nágrenni við góðgætið, þótti krabbanum vissara að leggjast sem fyrst á eggið og var ekkert á því að krossfiskurinn fengi að njóta þess líka. Ekki dró það úr lyst trjónukrabbans, að í stað konfektsins var úldin loðna í egginu, en ekki fylgir sögunni hvaða máls- háttur var í því. Annars tala meðfylgjandi myndir Stefáns Hjart- arsonar, kafara, beztu máli um þennan sjaldséða atburð. Dagsbrún hafnar forseta ASÍ sem aðalræðumanni á 1. maí GuÖmundur J. Guðmundsson verður aðalræðumaður — „Munum ekkert aðhafast þennan dag,u segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar Þrír leikir sýndir beint ÞRÍR knattspyrnuleikir verða sýndir beint í ís- lenska sjónvarpinu í maí- mánuði. 16. maí verður sýndur úr- slitaleikur Evrópukeppni bik- arhafa í Basel, milli Juventus frá Ítalíu og portúgalska liðs- ins Porto. Síðan verður leikur Everton og Watford í ensku bikarkeppninni á Wembley- leikvanginum í Lundúnum 19. maí sýndur beint og 30. maí verður bein útsending frá leik Roma og Liverpool í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða. FULLTRÚI Dagsbrúnar í 1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna í Reykjavík hefur lagst gegn því, samkvæmt ósk stjómar félagsins, að forseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, verði aðalræðumaður hátíðahaldanna á Lækjartorgi nú á þriðju- daginn, þann 1. maí, og gerði fulltrúinn það að tillögu sinni að formaður Dagsbrúnar, Guðmundur J. Guðmundsson yrði aðalræðumaður dagsins. Þetta hefur Morgunblaðið eftir áreiðanlegum heimildum og að undirbún- ingsnefnd 1. maí-hátíöahaldanna hafi ákveðið að verða við þessari ósk Dagsbrúnar, eftir talsverðar umræður. Ekki munu allir aðilar málsins hafa verið jafnsáttir við þessa lausn, því forystumenn Starfs- mannafélagsins Sóknar lita þann- ig á að með þessu sé verið að bola Asmundi Stefánssyni, forseta ASf frá, og segjast því munu halda að sér höndum, hvað varðar þátttöku í sjálfum hátíðahöldunum. Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Starfsmannafélagsins Sóknar, hafði verið beðin um að stýra há- tíðahöldunum á Lækjartorgi, en í kjölfar þess að Dagsbrúnarmenn höfnuðu Ásmundi Stefánssyni sem ræðumanni, afþakkaði hún þann heiður að fá að stjórna há- tíðahöldunum. Aðalheiður sagði í samtali við blm. Mbl. í gærkveldi: „Auðvitað ráða félagsmenn því sjálfir hvort þeir taka þátt í hátíðahöldunum, en ég álít að við sem helst stöndum í forsvari fyrir Sókn munum ekkert hafast að þennan dag, úr því þannig þarf að fara að í sambandi við hátíðahöld- in.“ „Það er ekkert leyndarmál, að það kom ósk um það frá stjórn Dagsbrúnar, að formaður Dags- brúnar yrði beðinn um að tala á Lækjartorgi," sagði Sigfinnur Sig- urðsson, fulltrúi VR í undibún- ingsnefnd 1. maí-hátíðahaldanna, í samtali við blm. Mbl. um þetta mál. Sigfinnur sagðist sjálfur hafa haft áhuga á því að annað hvor þeirra Asmundar Stefáns- sonar, forseta ASÍ, eða Björns Þórhallssonar, varaforseta ASÍ, flyttu ávarpið 1. maí en sæst hefði verið á það í nefndinni að aðal- ræðumaður yrði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar. Einn viðmælandi blaðsins sagði í gær, er hann var spurður álits á því hvað væri að gerast þarna: „Þetta tengist allt innanflokkserj- um Alþýðubandalagsins, sem risu hvað hæst þegar Guðmundur J. Guðmundsson og hans fylgifiskar risu fyrst upp gegn samningunum, en þurftu svo að kokgleypa allt saman, bara í fleiri orðum.“ Hann sagði jafnframt að þessi afstaða Dagsbrúnararmsins hefði vakið reiði margra annarra for- ystumanna verkalýðshreyfingar- innar. Til að mynda hefði Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir neitað að vera fundarstjóri á fundinum á Lækjartorgi, sem segði ekki svo litla sögu um afstöðu Sóknar. Fölsuðu ávísanir til fíkniefnakaupa ÞRJÚ ungmenni um tvítugt — tveir menn og stúlka, voru handtekin að- faranótt miðvikudagsins grunuð um tékkamisferli, innbrot og þjófnaði. Rannsóknarlögregla ríkisins setti í gærkvöldi fram kröfu um gæzluvarð- hald yfir þeim til 9. maí. Ungmennin hafa viðurkennt að hafa keypt tékkhefti af reiknings- hafa gagngert til þess að falsa ávís- anir. Ennfremur hafa þau viður- kennt innbrot í báta á Suðurnesjum og stuld á lyfjum. Ávísanaheftið fengu ungmennin skömmu fyrir páska og ávisuðu grimmt um bæna- dagana. í gær höfðu komið fram ávísanir, sem þau höfðu falsað, að upphæð um 60 þúsund krónur. Féð notuðu ungmennin til þess að fjármagna fíkniefnakaup. Þau hafa reykt hass, étið pillur og sprautað sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.