Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 7 Hópferð á hestum verður farin aö Hlégarði laugardaginn 28. apríl. Lagt veröur af stað kl. 14.00 frá Fákshúsunum á Víðivöllum. Félagar fjölmenniö. Hestamannafélagið Fákur. Mínar bestu þakkir færi éy öllum sem ylöddu miy oy heiörudv, med heimsóknum, yjöfum, skeytum oy samtöl- um á 70 ára afmœli mínu þann 15. apríl síöastliöinn. Guö blessi ykkur öll Greipur Gudbjartsson, Flateyri. íbúð til leigu í þrjá mánuði Norskur tölvufræðingur óskar eftir að leigja íbúö í Reykjavík mánuöina júlí, ágúst og september. Húsnæðiö veröur aö uppfylla eftirfarandi skilyröi: íbúöin leigist meö húsgögnum, hún veröur aö vera staðsett nálægt miö- borginni og henni veröur aö fylgja sími. Fyrirframgreiösla. Tilboð sendist Morgunblaöinu merkt: „ND — 500“. Verið velkomin. ópavoesbúár athugið! Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem: Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun, lástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv. Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum og kl. 9—12 á laugardögum. Pantanir teknar í síma 40369. HÁRGREIDSLUSTOFAN ÞINGHÓLSBRAUT 19. Bindindisfélag ökumanna Reykjavíkurdeild heldur góöaksturskeppni laugardaginn 28. apríl nk. Hefst viö Templarahöllina kl. 14. Skráning keppenda fer fram í síma 83533, fimmtudag og föstudag kl. 9-17. Þridjudagur 24. april 1984 15 Malsvari frjalslyndis, samvinnu og frjálshyggju Útqefandr Nútímmn h.f. Midvikudagur 25. april 1984_______13 Málsvari frjálslyndis, samvinnu og felaqshyciqju Utgefandi Nutiminn h.f Ritstjorar Magnus Ólafsson (ábm) og Porarmn Þorarmsson Ritstjorn. skrifstofur og auglysmgar Siðumuli 15 Reyk|avik Simi 86300 Auglysingasimi 18300 Kvoldsimar 86387 og 86306 Ve'ð i lausasolu 25 kr. Askrift 250 kr Setntng og umbcot Tækmdetld NT. Prentun Blaðaprent ht. Sendibréf til framsóknarmanna í Fréttabréfi Framsóknarflokksins frá því í apríl 1984 segir svo í tilefni af fataskiptum á Tímanum: „Eftir breytinguna verður blaðið yngsta blaðið í tvennum skilningi. í fyrsta lagi verður útlit blaðsins í mjög svipuðum stíl og þeirra blaða, sem best ganga nú á 9. áratugnum á meðan t.d. DV er blað liðins áratugar. i öðru lagi er starfslið Tímans ungt og kraftmikið undir forystu tveggja þrítugra manna, Magnúsar Ólafssonar, rit- stjóra, og Sigurðar S. Sigurðssonar, framkv.stjóra, á meðan t.d. DV er stjórnað af eldri mönnum og af annarri kynslóð." Um NT er fjallað í Staksteinum í dag. Nýtt blað — eða gamalt? í fyrsta tölublaöi NT cða Nýja Tíma varð sögulcg prentvilla þar scm stóð í haus blaðsins: Málsvari frjálslyndls, samvinnu og frjálshyggju. Magnús Ólafsson, ábyrgðarmaður og ritstjóri, lét orð um það falla í fréttatíma útvarps þegar hann var spurður um stefnu blaðsins að það yrði hlutlaust, aö vísu ætti Kramsóknarflokkurinn töluverðan hlut í því en blaöiö yrði hlutlaust. f leið- ara fyrsta tölublaösins stóð svo: „Ritstjórn blaðsins mun í stjórnmálaskrifum sínum leggja megináherslu á að styðja þær stjórnmála- stefnur, sem eru í anda frjálslyndis, umbóta, sam- vinnu og félagshyggju. Við munum hins vegar berjast af alefli gegn þeim stjóm- málastefnum, sem eru öfgafullar hvort sem þær nefnast hrein markaðs- hyggja eða sósíalismi." I>essi yfirlýsing ritstjóra stóð sem sé undir þeim haus að Nýi Tími væri mál- gagn frjálshyggju. I»eir á hjóðviljanum sem hrökkva jafnan í kút þegar þeir sjá orðið „frjálshyggja" hringdu auðvitað strax í Magnús Ólafsson og spurðu hann hvað í ósköp- unum það ætti að þýða að Nýi Tími væri málgagn frjálshyggju. Magnús svar- aði þannig í l'jóðviljanum í gæn „Meinlegasta prentvilla sem komið hefur I íslensku daghlaði var í haus síðdeg- isútgáfu NT þar sem kom fram að við værum mál- svarar frjálshyggju í stað félagshyggju. Frjálshyggja og hrein markaöshyggja eru óalandi öfgar sem hafa ekkert erindi á sker okkar íslendinga. Stjórnmála- stefna NT verður frjálsynd og umbótasinnuð I anda samvinnu og félags- hyggju.1 Prentvillupúkinn varð þannig til þess strax á fyrsta degi Tímans í nýjum búningi að koma TNT- sprengiefni fyrir í haus blaösins og splundra á öðr- um degi yfirlýsingum Magnúsar, ritstjóra, um að blaðið væri hlutlaust. Frjálshyggjan er að mati ritstjórans jafn óalandi öfgastefna og hrein mark- aðshyggja eða sósíalismi. Öllum er Ijóst að Nýi Tími er gefinn út í sama tilgangi og Gamli Tími, að boða fagnaðarerindi Framsókn- arllokksins og J»á við- skiptahætti sem SIS eru að skapi, þannig að tónninn sem gefinn var í síöasta leiðara Gamla Tíma um Samvinnutilboðið á líklega eftir að setja meiri svip á Nýja Tíma þegar fram líöa stundir. Skortur ritstjórans á umburöarlyndi í garð frjáLshyggjunnar ber þess jafnvel merki að biaðið ætli í nýju fbtunum aö verða enn andvígara frjáls- um viöskiptum þar sem markaðsöflin ráða en Gamli Tími. Hve gamalt? I>etta er ekki í fyrsta sinn sem Tíminn skiptir um fot á tiltölulega skömmum tíma. Hvað þá heldur þegar litið er til sögu hans. Annars virðist aldur Tímans eitthvað vera á reiki hjá hinum nýju stjórncndum. í leiðara fyrsta tölublaðs NT er vitn- að í grein sem Jónas frá Hriflu reit í „fyrsta tölu- blað Tímans 17.mars 1917“ og réttilega talað um orð sem rituð voru fyrir 67 árum og þar með ættu menn væntanlega að vera með tölublað úr 67. ár- gangi Tímans í höndunum, en fyrir neðan hinn nýja haus NT á forsíðu stendur að þar sé á ferðinni 95. tölublaö 69. árgangs og sé það alhugað við hvaða dagsetningu sé þar miöað lenda menn í miklum ógöngum því aö samkvæmt því sem lesa má á forsíöu Tímans hófst 69. árgangur hans með 92. tölublaði þriðjudaginn 17. apríl síö- astliðinn. Eins og áður sagöi er þetta ekki í fyrsta skipti sem Tíminn skiptir um fot í þeirri von að með því tak- ist blaöinu að tolla í tísk- unni. l>etta hefur meira að segja áður verið gert á 9. áratugnum þ.e. á árinu 1981 með þeim árangri að nú hefur verið skipt um þá áhöfn sem til þess var ráð- in. í einhverju óðagotinu hlvtur fæðingardagur málgagns Framsóknar- flokksins að hafa týnst nema prentvillupúkinn hafi komist í leiðarann líka. Bylting? Á undanfornum tíu ár- um hefur orðið mikið um- rót í íslenskum blaðaheimi. Blöð hafa fæðst og dáið, klofnað og runnið saman á nýjan leik og samhliða hcf- ur orðið tæknibylting sem á sér enga hliðstæðu. I‘eir NT-menn vita greinilega ekki af þessu enda að byrja nýjan tíma og með Nýjum Tíma verður að þeirra hógværa mati „ein mesta bylting íslenskrar blaðasögu". ()g hógværðin heldur áfram: „Eftir nær áratugs stöðnun í íslensk- um blaðaheimi" á nú að gera „tilraun til að rífa þennan heim (!) upp úr djúpum öldudal". Fæstir hefðu líklega átt von á því að Tíminn yrði byltingarafl með tilstuðlan SÍS. Að stjórnendur Tímans skuli standa í þeirri trú er þó auövitað bylting. ASÍ, VSÍ og Landsvirkjun við samningaborðið: Einn kjarasamningur fyrir allar virkjanir 200 milljónum varið til framkvæmda við Blönduvirkjun í sumar „OKKUR þykir ekki vænlegt að byrja framkvæmdir við Blöndu í sumar án þess að Ijúka samningagerðinni viö starfsmenn. I>ví er stefnt að því að hraöa henni eins og kostur er,“ sagði Páll Olafsson, aðstoöarbyggingar- stjóri Landsvirkjunar, í samtali við blaðamann Mbl. um yfirstandandi samningaviöræður um kaup og kjör á virkjunarstöðum um allt land. Að samningagerðinni standa Landsvirkj- un, Vinnuveitendasamband íslands og Alþýðusamband íslands. Samningar þessir hafa verið lengi á döfinni en viðræðurnar lágu niðri um tíma í vetur á meðan ASÍ og VSÍ gerðu heildarsamkomulag sitt. „Rammi þessa samnings er samkomulag um kaup og kjör á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu," sagði Páll Ólafsson. „Hann mun ná til allra starfsgreina og fela í sér samræmingu á ýmsum atriðum, sem varða aðbúnað og fleira á virkjunarsvæðum. Þetta er góður rammi en það á eftir að víkka hann talsvert út, svo að samningurinn geti gilt um allt land. Vonandi tekst það á næstu vikum." Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, sagði í samtali við blaða- mann Mbl., að í sumar yrði unnið við jarðgangagerð fyrir væntanlegt stöðvarhús Blönduvirkjunar. I sumar verður unnið fyrir um 200 milljónir króna, sem er um þriðj- ungur þess er upphaflega var áætl- að að vinna fyrir á þessu ári. Ákvörðun um niðurskurðinn var tekin sl. haust, eins og lesendur kann að reka minni til. „Það er ver- ið að athuga tilboð, sem hafa komið í þessa vinnu," sagði iðnaðarráð- herra, „og ég held að mér sé óhætt aö fullyrða að það hafi komið ágæt- lega hagstæð tilboð." Hann sagði að að óbreyttu yrði ekki varið meira fjármagni til virkjunarinnar en þessum 200 milljónum. „Ef takast samningar á næstunni um 50% stækkun álvers- ins þá þyrfti að setja meiri hraða í framkvæmdirnar," sagði iðnaðar- ráðherra. „Þeirri samningagerð hefur seinkað nokkuð vegna veik- inda aðalsamningamannsins þeirra í Sviss og því er erfitt að segja nokkuð um horfur í því máli sem stendur. Það er augljóst, að það gæti orðið mjög dýrt að auka hrað- ann í þessum framkvæmdum, það þyrfti m.a. að fjármagna með aukn- um erlendum lánum, en af því verð- ur ekki nema samið verði fljótlega um stækkun álversins. Mín skoðun er nefnilega sú, að það sé óheppilegt að eiga virkjanir án þess að geta ráðstafað orkunni, sem þær fram- leiða," sagði Sverrir Hermannsson. Kæra Kristjáns send saksóknara KÆRA Kristjáns Péturssonar, deildarstjóra í tollgæzlunni á Keflavíkurflugvelli, hefur verið send ríkissaksóknara til umfjöllun- ar. Svo sem fram kom í Mbl. í gær hefur Kristján kært Guðmund Karl Jónsson, forstjóra Fríhafnarinnar, fyrir það sem hann telur ólöglega sölu til ferðamanna á bjór í Frí- höfninni á Keflavíkurflugvelli. Kristján telur bjórsöluna brjóta í bága við 7. málsgrein 82. greinar laga frá 1969 um sölu á áfengu öli yfir 2U%. Þá leggur hann fram kæru á hendur Þorgeiri Þorsteins- syni, lögreglustjóra á Keflavíkur- flugvelli, fyrir að hafa gefið toll- þjónum fyrirmæli um að afgreiða bjór í blóra við gildandi lög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.