Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 45
MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984 ‘ 45 Sálmurinn „Eg er á langferð um lífsins haf ‘ Fjölmargir lesendur höfðu sam- band við Velvakanda í kjölfar fyrirspurnar um sálminn „Ég er á langferð um lífsins haf“ sem birtist í þættinum fyrir páska. Meðal annars kom í ljós að sálmurinn er mikið sunginn í guðsþjónustum hjá Fíladelfíu- söfnuðinum og oft við jarðarfar- ir þar. f heild er sálmurinn þannig: Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu Frelsarinn góður gaf. Ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum ljósum löndum, þar lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum, við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég. Og kjölfars hinna, er fóru fyrr, án fyrirhafnar þá nýt ég. í sólarljósi er særinn fríður, og sérhver dagurinn óðar líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á svo naumast er hægt að verjast. Ég greini’ei vita né landið lengur en Ijúfur Jesús á öldum gengur um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi'er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’er særinn og stormur háður. Hann býður: „Verði blíðalogn!“ Þá hinsti garðurinn úti er. Ég eygi land fyrir stöfnum. Og eftir sólfáðum sæ mig ber að sælum, blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja og hersing ljósengla Drottins syngja: „Verið velkominn hingað heim til vor!“ Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel, þú æðandi, dimma dröfn, vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í ægi falla ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. Textinn er eftir Henry Trandberg og Valdimar V. Snævarr þýddi hann. Lagið sem nóturnar eru af, er eftir Klaus Östby. Bæði Trandberg og Östby gengdu á sínum tíma foringja- stöðu hjá Hjálpræðishernum í Noregi. Fyrr á öldinni var sálm- urinn prentaður og lagið með á blað, þar sem Valdimar Snævarr skráði einnig upplýsingar um sálminn. Blað þetta var gefið út af og selt til styrktar Hjálpræð- ishernum í Reykjavík. í blaðinu segir Valdimar með- al annars: „H.A. Trandberg, for- ingi í Hjálpræðishernum í Nor- egi, hefir ort sjómannasöng eða sálm, sem mér er sagt að trú- hneigðir sjómenn víðsvegar um Norðurlönd hafi miklar mætur á og telji að hann hafi orðið mörg- um til blessunar. ... En nú ber þess að gæta að hér er um líkingu að ræða. Þann- ig er „haf“ höfundar ekki sær- inn, er fellur að ströndum land- anna og sýnilegur er, heldur haf lífsins eða heimsins, djúpið mikla milli lífsins í synd og lífs- ins í heilagleika og hreinleika Guðs. Og langferðin-siglingin, yfir það mikla haf, er þá barátta einstaklingsins við syndina og spillingaröflin. ... Allstaðar kveður við: Vel- kominn. Hið dýrðlegasta er þó að sjálfur frelsarinn leyfir hon- um vist með sér. Þá skilur hinn þreytti farmaður, að hér er hon- um gott að vera og lætur akker falla. ... Mætti svo Guði þóknast, að láta sálminn verða sem flestum sálum á Islandi uppörvun til þess að „leggja út á djúpið" mikla í nafni Hans, er stefnuna hefir ákveðið!" Einn þeirra sem hafði sam- band við Velvakanda tjáði að sálmupinn birtist í sálmabók Valdimars, „Syng guði dýrð", sem Þorsteinn M. Jónsson gaf út. Þá væri hann að finna í Söngbók Hjálpræðishersins frá 1938 und- ir fyrirsögninni „Farmanna- söngur", og ennfremur í bókinni „Söngvar drottni til dýrðar" sem Betelsöfnuðurinn í Vestmanna- eyjum gaf út árið 1929. Þar er sálminn að finna undir kaflafyr- irsögninni „Heimþrá". Að lokum skal þess getið að sálminn er hægt að finna í söngbók Hvíta- sunnusafnaðarins í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lesendum víðs vegar að af land- inu, var sálmurinn mikið sung- inn og var sérstaklega vinsæll meðal sjómanna á árunum 1920-1930. Þessir hringdu . . . Morgunleikfimin á snældum „Ein öldruð“ hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég sendi Huldu sem skrifaði í Vel- vakanda fyrir páska um að hún gæti ekki fylgst með morgun- leikfimi útvarpsins, mínar bestu kveðjur. Ég er henni alveg sam- mála. Ég gat sjálf ekki lengur fylgst með leikfiminni, ég er orð- in fullorðin og þetta var allt of hratt fyrir mig. En ég varð mér úti um snældu með leikfiminni hans Valdimars Örnólfssonar. Hann kennir leikfimi í Háskól- anum og ég bendi Huldu bara á að hafa samband við hann og vita hvort hún fær ekki snældu hjá honum með leikfimiæfing- um. Ráðherrar greiði tolla af bflum sínum Svanur Karlsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Það er kominn urgur í mig vegna hins nýja bílaskatts sem maður heyrir mikið um núna. Það kemur manni á óvart að nú skuli vera notuð ráð, sem í fyrra þóttu alveg ónothæf. Ég hef ver- ið að vona að nýju þingmenn Sjálfstæðisflokksins myndu nota einhver önnur ráð en gömlu skattpíningarnar, til að fylla upp í fjárlagagatið svonefnda. Bensíngjaldinu hefur marg- sinnis verið stolið. Það hefur verið notað í aðra hluti en þá sem ætlast var til. Ég legg til að forseti íslands verði látinn greiða tolla og söluskatt af þeim vörum sem hann notar til eigin þarfa. Eins ættu ráðherrarnir að greiða tolla af bílunum sínum. Þannig væri að minnsta kosti hægt að fá einhverja peninga í ríkissjóð. Gjöf Jóns Sigurðssonar Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóönum Gjöf Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildarita”. Heimilt er og að „verja fé til viðurkenn- ingar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum”. Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framför- um“. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stílaðar til verðlaunanefndarinnar, en sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsi, 101 Reykjavík, fyrir 15. maí nk. Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinagerðir um rit í smíðum. Reykjavík 15. apríl 1984, Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar, Bjarni Guðnason, Magnús Már Lárusson, Sigurður Líndal. vagnar til að létta störf in A. Bakkavagn nr.41 Bakkavagn nr.41 m. pokagrind Al STÁLHÚSGAGNAGERO *\lSTEINARS HF. SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555 Á Seltjarnarnesi eru sjálfstæðismenn, siðugar konur og braggnar. Og þetta’ er nú svona með þjóðinni enn þrátt fyrir ólaf Ragnar. Svanur Karlsson Gullkorn Kvartaóu ekki yfir eymd heims- ins. Faróu heldur og bættu úr henni. — E. Holme (1865—1927) var nor9k- ur leikprédikari. 82P SIGGA V/öGA £ itlVZtAH HVERNIG STENDUR R ÞVI RÐ MÉR FINNST É6 HRFR SÉD ÞESSR KVENSU ÖÐUR'? WO STENDUR ÞRNNIG ft WÍ.SKRL K SE6JR ÞÉR, RD ÞU HEFUR SÉÐ HRNR f»UR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.