Morgunblaðið - 26.04.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
Vestmanneyingar ósáttir
við skipstjórafélagið:
Yrði uppi fótur og
fit ef Keflavíkur-
vegi yrði lokað
- Herjólfur hluti af þjóðvegakerfinu
„ÞAÐ ER löngu viöurkennt, að
Herjólfur er hluti af þjóðvegakerfi
landsins og á að taka sem slfkan. Ég
er smeykur um að það yrði uppi fót-
ur og fit ef Keflavíkurveginum yrði
lokað vegna einhverra manna, sem
mismiklu ráða,“ segir Georg Þór
Kristjánsson, varaforseti bæjar-
stjórnar í Vestmannaeyjum, í for-
síðugrein í blaðinu Fylki 17. apríl sl.
Þar er fjallað um stöðvun Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs vegna
verkfalls Skipstjórafélags íslands á
dögunum og greint frá sameiginlegri
Borgarstjórn:
Albert tekur
sæti 1. maí
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
hefur borist bréf frá Albert Guð-
mundssyni, fjármálaráðherra, þar
sem hann tilkynnir, að hann muni
taka sæti sitt í borgarstjórn að
nýju frá og með 1. maí nk. Bréf
þetta verður formlega iagt fram á
fundi borgarstjórnar 3. maí.
29 kr. fyrir
grásleppu-
ályktun stjórnar Herjólfs hf. og bæj-
arráðs Vestmannaeyja.
Ályktunin var samþykkt á fundi
þessara aðila sunnudagskvöldið
15. apríl, daginn áður en verkfallið
skall á. Georg segir í grein sinni,
að fundarmenn hafi verið „afar
óhressir með gang mála" og þá
ekki síður afdráttarlausa synjun
samtaka skipstjóra og Farmanna-
og fiskimannasambandsins á und-
anþágu fyrir Herjólf. í ályktun-
inni var meðal annars undirstrik-
uð „sérstaða Vestmannaeyja í
samgöngumálum, þar sem að-
drættir byggjast nær eingöngu á
flutningum Herjólfs," eins og
sagði orðrétt. Síðan sagði:
„Flugferðir eru ótryggar á þess-
um árstíma og má benda á, að frá
áramótum hefur ekki verið unnt
að fljúga í 32 daga. Haldi SKFÍ og
FFSÍ fast við ákvörðun sína um
neitun á undanþágu fyrir sigling-
ar Herjólfs skapast hér neyðar-
ástand vegna skorts á mjólk og
öðrum neysluvörum. Fundurinn
sér ekki að það sé málstað SKFÍ
og FFSÍ til framdráttar, að láta
boðaðar verkfallsaðgerðir bitna á
einu byggðarlagi umfram öðru.“
Ferðir Herjólfs vegna verkfalls
Skipstjórafélags íslands féllu
niður einn dag, mánudaginn 16.
apríl, en síðan tókust samningar
með aðilum og var þá verkfallið
afboðað, eins og fram kom í frétt-
um.
Þad dimmdi yfir Reykjavík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þegar mengað Evrópuloft lagðist yfir borgina.
Morgunbla8iS/KÖE.
"j <h ® ’ á ,*t ,' 1 f * 41 i ’¥~~ * : m »1: *l Wm m 1 TB C |fí
fl Jl 1 TT
Hlýtt loft frá Evrópu
streymir yfír ísland
Víða 20 stiga hiti fyrir norðan og austan
ÞYKKT mistur lá yfir Suðurlandi
og Suðvesturlandi í gær og á það
rætur að rekja til meginlands Evr-
ópu og Bretlandseyja. Yfir Norður-
sjó er hæð, sem stýrir mildum
loftstraumum til íslands. Á veð-
urstofunni fengust þær fréttir, að
búast mætti við að þetta veður
héldist næstu 2 til 3 sólarhringa.
Milt verður sunnanlands og vest-
an, en sól og blíða fyrir austan og
norðan.
„Hér á Seyðisfirði er nú bezta
veður, sól og blíða og um 20 stiga
hiti í forsælu," sagði Ólafur Már
Sigurðsson, fréttaritari Mbl. á
Seyðisfirði. „Fólk gengur létt-
klætt um bæinn og nýtur góða
veðursins. Sumarið er komið,
segja sumir, en aðrir segja að
veturinn hafi aldrei gengið í
garð. Tré eru farin að laufgast
og krían gargar á bryggjusporð-
inum,“ sagði Ólafur Már Sig-
urðsson.
„í Siglufirði er sannkallað
Mallorcaveður," sagði Matthías
Jóhannsson, fréttaritari Mbl. í
Siglufirði. „Sigluvíkin kom inn í
dag með 130 tonn af þorski eftir
8 daga úthald og bátarnir hafa
fengið 1 '/2 til 2 tonn af rækju í
hali. Unnið er á vöktum og hefur
fólk um 14 þúsund krónur á viku
í rækjunni. Hér eru því allir
ánægðir — næga atvinnu er að
hafa og blíðskaparveður ríkir,“
sagði Matthías Jóhannsson.
hrognin Þingflokkur Framsóknar samþykkir ráðstafanir f ríkisfjármálum:
SAMKOMULAG hefur nú náðst
í Verðlagsráði sjávarútvegsins
um lágmarksverð á grásleppu-
hrognum upp úr sjó á yfirstand-
andi vertíð. Skal það vera 29
krónur á hvert kíló.
Verðið er miðað við að gert sé að
grásleppunni fljótlega eftir að hún
er veidd og hrognin ásamt þeim
vökva, sem í hrognasekkjunum er
og þeim vökva, sem umlykur þá í
holinu, sé hellt saman í vatnshelt
ílát. Hvorki verði reynt að skilja
vökvann frá hrognunum né bæta í
vökva. Verðið er miðað við að selj-
andi afhendi hrognin á flutnings-
tæki við skipshlið.
Fyrirvari um
samþykki allra
Þingflokkur Sjálfstæöisflokks nær enn ekki saman um nýjar tekjuöflunarleiðir
formlegt
ráðherra
Þingflokkur Framsóknarfiokksins
samþykkti í gær umboð til handa
ráðherrum sínum til að ganga end-
anlega frá frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um ráöstafanir í ríkisfjár-
málum, þó með fyrirvara varðandi
nýjar skattaálögur, ef ákveðnar
verða. Fyrirvarinn er í því fólginn að
allir ráðherrarnir verði að sam-
þykkja þær formlega þannig að ein-
Víglundur Þorsteinsson, formaður iónrekenda:
Iðnlánasjóður hefur um
árabil haft sérstaka stjórn
Er að stofni byggður upp af iðnfyrirtækjum og iðnmeisturum
„FRAMSÓKNARMÖNNUM til upplýsingar bendi ég á að iðnlánasjóöur
hefur um áratugaskeið haft sérstaka stjóm skipaða af iðnaðarráðherra.
Sérstök lög gilda um iðnlánasjóð og hefur sjóðurinn að stofni verið byggður
upp af framlögum iðnrekenda og iðnmeistara," sagði Víglundur Þorsteins-
son, formaður Félags íslenzkra iðnrekenda, í samtali við blm. Mbl. í gær-
kvöldi vegna ummæla Páls Péturssonar, formanns þingfiokks Framsóknar-
fiokksins, þess efnis að iðnlánasjóöur væri opinber sjóður og setja þyrfti
honum sérstaka stjórn ef selja ætti hlutabréf ríkisins í Iðnaóarbankanum.
„Eigið fé iðnlánasjóðs í dag er lánasjóður annað.
tæplega 360 milljónir króna og
82% eru framlög iðnfyrirtækja og
iðnmeistara til sjóðsins og aðeins
18% frá ríkisvaldinu. Áhyggjur af
formi og fyrirkomulagi iðnlána-
sjóðs eru óþarfar og þurfa ekki að
standa í vegi fyrir því að ríkissjóð-
ur selji hlutabréf sín í Iðnaðar-
bankanum. Bankinn er eitt — iðn-
Ástæða væri fyrir framsókn-
armenn að huga meira að efni, en
minna að formi í þessu máli.
Vegna harkalegs niðurskurðar í
lánsfjárlögum á lánsfjárbeiðnum
iðnlánasjóðs er svo komið að iðn-
lánasjóður er févana í dag. Sjóður-
inn getur hvergi nærri sinnt eftir-
spurn eftir lánum. Það skýtur
skökku við, að nú þegar allir eru
sammála um byggja þurfi upp iðn-
að til þess að bæta lífskjör, þá
skuli fjárfestingarvilji og bjart-
sýni í iðnaði vera tröðkuð niður
með því að skera lánsfjárbeiðnir
til iðnaðar við trog. Iðnlánasjóð
vantar um 150 milljónir króna
miðað við beiðni sjóðsins — til
þess að sjóðurinn geti svarað eft-
irspurn eftir lánum. í ljós hefur
komið að verulegur fjárfest-
ingarvilji og bjartsýni er meðal
fyrirtækja. Þessa bjartsýni og
þennan vilja er verið að kæfa með
því að takmarka fé sjóðsins," sagði
Víglundur Þorsteinsson.
stakir ráðherrar komist ekki upp
með að gefa þær yfirlýsingar síðar,
að þeir hefðu ætíð veriö á móti nýj-
um skattaálögum, en orðið að beygja
sig undir meirihlutavilja stjórnar-
liðsins. Þingfiokkur Sjálfstæðis-
fiokksins lauk ekki umfjöllun um
málið í gær, en kemur væntanlega
saman á ný síðdegis.
Samkvæmt heimildum Mbl.
byggist fyrirvari þingflokks
Framsóknar á hræðslu framsókn-
armanna við að fjármálaráðherra,
Albert Guðmundsson, sem marg-
lýst hefur því yfir að hann sé and-
vígur nýjum skattaálögum, komi
fram opinberlega eftir frágang og
jafnvel samþykkt væntanlegs
frumvarps með fyrrgreindar yfir-
lýsingar. Ljóst er að frumvarp rík-
isstjórnarinnar, sem gengið hefur
undir nafninu Bandormurinn, sér
ekki dagsins ljós fyrr en eftir helgi
úr þessu. Ríkisstjórnin fjallar um
málið árdegis, og þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins áfram síð-
degis, en vegna miðstjornarfundar
Framsóknar um helgina og ann-
arra fundahalda er ljóst að ekki
verður endanlega gengið frá mál-
inu fyrr.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins ræddi meginhluta fundartíma
síns í gær um niðurskurðartillög-
ur ríkisstjórnarinnar og náði sam-
komulagi um þann 975 millj. kr.
niðurskurð, sem Mbl. gerði grein
fyrir í gær. Þá hófust umræður
um tekjuöflunarhliðina, þ. e. nýjar
skattaálögur. Fyrst var rædd
fyrirhuguð skattlagning til vega-
mála, en eins og skýrt hefur verið
frá er mikil andstaða í þingflokkn-
um gegn 2 kr. álagningu á benzín-
lítra, sem gæti gefið um 150 millj.
kr. fram að áramótum. Ræddar
voru hugmyndir um auknar lán-
tökur þess í stað, eða jafnvel aðrar
skattaálagningarleiðir, en engin
niðurstaða fékkst. Tillögur um
upptöku söluskatts á þjónustu
endurskoðenda, verkfræðinga og
lögmanna var lítið rædd, en ljóst
af viðtölum við einstaka sjálf-
stæðisflokksþingmenn að lítill
hljómgrunnur er fyrir þeirri
gjaldtöku og reiknað með löngum
umræðum um þann þátt málsins í
dag. Sjálfstæðismenn ætluðu að
halda áfram fundum í gærkvöldi,
en ekki tókst að ná öllum þing-
flokknum saman á ný eftir kvöld-
mat og því var honum frestað þar
til síðdegis.
Auk framangreindra tillagna
ríkisstjórnarinnar um niðurskurð
og nýjar álögur leggur hún til
skuldbreytingar upp á 240 millj.
kr., þ.e. lenging áfallandi lána á
ríkissjóð á þessu ári. Þá er reiknað
með lántöku vegna Innheimtu-
stofnunar sveitarfélaga upp á 150
millj. kr.