Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
AF INNLENDUM
VETTVANGI
FRÍÐA PROPPÉ
FJÖGURRA ráðhcrra nefnd, forsstis-, fjármála , landbúnaðar- og viðskiptaráðherra, auk fjögurra sérfræðinga,
vinnur nú svo til stöðugt að því vandasama verki, að ná sáttum innan stjórnarliðsins vegna kakó-, Mangó- og
Jógamjólkurmálsins svonefnda. Deilurnar hófust við þá ákvörðun fjarmálaráðherra að framfylgja lögum og láta
innheimta vörugjald og söluskatt af umræddum framleiðsluvörum Mjólkurbús Flóamanna og hafa þingmenn
Framsóknar lagt fram tvö frumvörp á Alþingi í þeim tilgangi að hnekkja þessari stjórnvaldsákvörðun ráðherr-
ans. Mjólkursamsalan í Reykjavík hefur hætt dreifingu drykkjanna, samkvæmt upplýsingum þaðan í þeirri trú
forráðamanna hennar, að Framsókn takist það ætlunarverk sitt. Ríkisstjórnin sá fyrir óyfirstíganleg vandamál,
ef deilumálinu yrði „sleppt lausu á Alþingi“, eins og einn ráðherrann orðaði það, enda deilurnar nógu háværar
innan ríkisstjórnarinnar fyrir og var því samið við flutningsmenn frumvarpanna að sýna ráðherranefndinni
smábiðlund, en þeir ætluðu að láta gamminn geisa strax á fyrstu dögum Alþingis eftir páska. Verðmyndun
landbúnaðarvara almennt hefur mjög komið inn í þessa umræðu og fjármálaráðherra hefur fullan hug á að láta
gera allsherjarúttekt á henni í því skyni að lækka vöruverð. Þá hefur hollustugildi drykkjarvara einnig mjög
komið við sögu.
Þrætueplið Kókómjólk
Jógi og Mangó-sopi
— Sérstætt deilumál sem fjölmenn ráð-
herranefnd reynir nú að bjarga í horn
Mál þetta hefur verið til um-
fjöllunar í fjármálaráðu-
neyti og í ríkisstjórn allt frá því
á sl. sumri. Fjármálaráðuneytið
fékk þá ábendingu um misræmi í
álagningu á ýmsum skyldum
drykkjarvörum, sem eiga í inn-
byrðis samkeppni. Var þar um
að ræða hreinan og blandaðan
ávaxtasafa, gosdrykki og öl, sem
báru 24% vörugjald. Þá var inn-
heimtur söluskattur af gos-
drykkjum og öli en ekki af
ávaxtasafa. Fjármálaráðherra
bar mál þetta upp í ríkisstjórn-
inni og var þar rætt fram og aft-
ur hvernig jafna mætti gjaldtök-
una, án þess að það kostaði ríkis-
sjóð missi tekna. Meðal annars
var stungið upp á að söluskattur
yrði lagður á kaffi, te og kakó, en
þeirri hugmynd var tekið mjög
illa. Eftir margar árangurs-
lausar tilraunir til að ná saman
um máliö tilkynnti fjármála-
ráðherra, að hann hygðist nota
lagaheimildir til reglugerðar-
breytinga og láta ganga í að
jafna gjaldtökur þessar á þann
hátt, að ekki kæmi til tekjutaps
fyrir ríkissjóð. Forsætisráðherra
lét þá bóka fyrirvara fyrir hönd
framsóknarmanna varðandi
kókómjólkina.
Forsætisráðherra lætur
bóka mótmæli sín
gegn framfylgd laga
Fjármálaráðherra lætur síðan
sérfræðinga fjármálaráðuneyt-
isins reikna dæmið og leggur síð-
an reglugerðarbreytingar fyrir
ríkisstjórnina til kynningar í lok
marzmánaðar sl. í þeim var eins
og fram hefur komið í fréttum
fellt niður sérstakt 24% vöru-
gjald af hreinum og blönduðum
ávaxtasafa, gosdrykkjum og öli.
í staðinn eiga allar sambæri-
legar drykkjarvörur að bera
söluskatt og greiða á 17% vöru-
gjald og söluskatt af blönduðum
ávaxtasafa og drykkjarvörum
með bragðefnum. Þá voru tollar
á innfluttum drykkjarvörum
einnig felldir niður eða lækkaðir
til samræmningar. Upplýsti
fjármálaráðherra að breytingar
þessar ættu ekki að hafa í för
með sér tekjutap fyrir ríkissjóð,
þá var talið að verðbreytingarn-
ar leiddu til 0,1% til 0,2% lækk-
unar vísitölu framfærslukostn-
aðar. Á þessum ríkisstjórnar-
fundi kastaðist verulega í kekki
með ráðherrunum. Forsætis-
ráðherra og landbúnaðarráð-
herra mótmæltu harðlega að til
greiðslu vörugjalds og söluskatts
kæmi á kakómjólk og aðra
drykki Mjólkurbús Flóamanna,
en af þessum vörum hefur hvor-
ugt verið greitt fram til þessa og
því fyrst i stað haldið fram, að
þarna væri um landbúnaðarvör-
ur að ræða.
1 framhaldi af þessu var skatt-
stjóranum í Suðurlandskjör-
dæmi tilkynnt að honum bæri að
innheimta umrædd gjöld af
mjólkurbúinu og sendi hann bréf
i framhaldi af því. Þá kom til
greina að nýta ákvæði skatta-
laga um innheimtu gjaldanna
sex ár aftur í tímann. Fjármála-
ráðherra ákvað síðar að láta
ekki reyna á afturvirkni gjald-
tökunnar, en greiða skyldi gjöld-
in frá 1. apríl sl.
Lagafrumvörp í kjölfar
deilna um lagatúlkanir
Mjólkursamsalan fékk sér
lögfræðing í málið, Guðmund
Ingva Sigurðsson, sem gerði til-
raun til að leiða rök að því að
kakómjólk sé mjólkurafurð.
Hann vitnaði þar til gamals
dóms Hæstaréttar varðandi það
hvort ísframleiðsla Mjólkur-
samsölunnar væri aðstöðu-
gjaldsskyld, en úrslit þess máls
urðu þau að Hæstiréttur dæmdi
ísinn mjólkurvarning og Mjólk-
ursamsöluna því fría af gjald-
skyldu samkvæmt lögum um
Mjólkursamsöluna frá því á
fjórða áratugnum. Sérfræðingar
fjármálaráðuneytisins hröktu
fullyrðingar lögmannsins og
bentu á að úrslit þessa máls réð-
ust í tollskrárlögum, en kakó-
mjólk, Jógi og Mangó-Sopi féllu
ótvírætt undir tollskrárnúmer
22.02.09. en undir það flokkast
límonaði, einnig með bragðefn-
um, og aðrar óáfengar drykkj-
arvörur, þó ekki ávaxta- og
grænmetissafi, sem telst til ann-
ars tollskrárnúmers. Hugtakið
mjólk og skyldar vörur er í sér-
stökum tollskrárflokki og er út-
listað þannig; „Til mjólkur telst
nýmjólk, undanrenna, áfir,
mysa, hleypt mjólk, kefír, jókúrt
og önnur gerjuð eða sýrð mjólk."
Fyrst í stað var reynt bæði inn-
an stjórnkerfisins og opinber-
lega að bera brigður á lagatúlk-
un fjármálaráðuneytis á fram-
angreindri forsendu, en fram-
lagning lagafrumvarpa fram-
sóknarmanna eru túlkaðar sem
viðurkenning þeirra á lagaskyld-
unni að baki ákvörðun ráðherr-
ans, þó flutningsmenn mótmæli
því.
Óttast afleiðingar fyrir-
séðra deiina á Alþingi
Ríkisstjórnin óttast mjög þær
hörðu deilur, sem orðið gætu á
Alþingi við umfjöllun málsins,
og áhrif þeirra á stjórnarsam-
starfið. Framsóknarmaðurinn
Ingvar Gíslason er forseti neðri
deildar, þar sem frumvörpin
voru lögð fram. Fyrsti flutnings-
maður er framsóknarmaðurinn
Páll Pétursson og hann er einnig
formaður fjárhags- og viðskipta-
nefndar deildarinnar, sem fær
málið til meðferðar. í efri deild
Alþingis snýr málið aftur á móti
þannig við, að forsetinn er
sjálfstæðismaður, Salome Þor-
kelsdóttir, og formaður fjár-
hags- og viðskiptanefndar er
sjálfstæðismaðurinn Eyjólfur
Konráð Jónsson. Þó framsókn-
armenn fái stjórnarandstæðinga
í lið með sér, þá gera menn því
skóna að fjármálaráðherra hafi
þingflokk sinn að baki sér. Það
eru forsetar deilda og formenn
nefnda sem ráða afgreiðsiuröð
mála.
Peli af nýmjólk 5.30 kr.
- kakómjólk 12.35 kr.
- Hvernig?
Verðlagning drykkjarvara
Flóabúsins hefur mjög komið
•inn í umræðu um málið. Einn
peli af Svala kostaði 5.75 kr. Við
niðurfellingu 24% vörugjaldsins
og upptöku 17% gjaldsins lækk-
aði Svali í heildsöluverði, en
23,5% söluskatturinn hefði átt
að hækka útsöluverðið. Sam-
kvæmt fréttum hafa margir
kaupmenn þó haldið áfram að
selja Svala á 5.75 kr. og lækkað
álagningu sína sem því nemur,
en hún var hámarksálagning,
þ.e. 38%. Peli af kakómjólk kost-
aði 12.35 kr. en til samanburðar
kostar peli af nýmjólk kr. 5.30 í
eins pakkningum og finnst
mörgum þarna um nokkuð mikla
hækkun við blöndun að ræða.
Ekki hefur reynt á viðbrögð
framleiðenda og seljenda þess-
ara vara, því dreifing hefur verið
stöðvuð frá Mjólkursamsölunni.
Ekkert vörugjald var á kakó-
mjólk, Jóga og Sopa og því kem-
ur 17% vörugjaldið og 23,5%
söluskatturinn sem hrein viðbót.
Þá má geta þess að smásalar
hafa aðeins lagt 20% á þessa
drykki, samkvæmt leiðbeining-
um Mjólkursamsölunnar. Peli af
Jóga kostaði 11.65 kr. og
Mangó-Sopa 8.60. Pelaumbúðir
þessara drykkja allra eru sams-
konar. Gosdrykkir lækkuðu
nokkuð í verði og má sem dæmi
nefna að innihald af Coca-Cola í
millistærð af flösku kostaði
áður kr. 11.20 en kostar nú 9.50
kr. miðað við óbreytta álagningu
smásala.
Forsætisráðherra og landbún-
aðarráðherra hafa lagt mikið
upp úr hollustugildi drykkjar-
vara í opinberri umræðu um
málið. Forsætisráðherra sagði
m.a. í viðtali við blm. Mbl. að
hann vildi fremur að börn sín
drykkju kakómjólk í skólum en
Coca-Cola. Landbúnaðarráð-
herra vitnar til mikilvægi mjólk-
ur vegna kalkinnihalds og segist
vilja hafa kakómjólkina eins
ódýra og hægt sé. Fjármálaráð-
herra hefur á móti sagt að vegna
hins háa heildsöluverðs ætti
framleiðandi að geta tekið á sig
umrædd gjöld, án þess að það
hafi áhrif á útsöluverðið til al-
mennings.
„Gleypi ekki við reiknings-
færslum Mjólkurbúsins“
Verðmyndun kakómjólkur var
fyrir nokkru lauslega athuguð af
Verðlagsstofnun samkvæmt til-
mælum fjármálaráðuneytis til
viðskiptaráðuneytis. Mbl. fékk
þær upplýsingar hjá Verðlags-
stofnun að í fyrstu tilraun hefði
stofnuninni borist handskrifað
blað frá mjólkurbúinu þar sem
fjölmargir liðir í verðmyndun
kakómjókur hefðu verið tíndir
til, án nokkurra talna. í fram-
haldi af því hefði starfsmaður
stofnunarinnar verið sendur
austur yfir fjall. Niðurstaða
þeirrar ferðar hefði orðið sam-
antekt á tölulegum upplýsingum
Flóabúsins, og Verðlagsstofnun
hefði þótt ástæða til að setja
fyrirvara við ýmsa vaxtaliði. Yf-
irmenn Verðlagsstofnunar tjáðu
undirritaðri, að nánari og
sjálfstæðari könnun þessarar
verðmyndunar þyrfti að fara
fram, ef hún ætti að teljast
raunhæf út frá þeim fullyrðing-
um sem fram hefðu komið, en
engin formleg beiðni hefði enn
borist stofnuninni. Fyrsta verk
forsætisráðherra eftir skipun
fjögurra ráðherranefndarinnar,
sem ríkisstjórnin gerði sl.
þriðjudag, var að æskja sundur-
liðunar verðmyndunar drykkj-
anna frá mjólkurbúinu og hefur
mjólkurbúið því nú í þriðja sinn
sett á blað sína reikningsfærslu.
Fjármálaráðherra sagði í gær,
að hann gleypti ekki við þessum
reikningsfærslum mjólkurbús-
ins og sérfræðingum nefndar-
innar væri ætlað að kafa sjálf-
stætt ofan í það mál. Þá sagði
hann athugunarefni, að ætíð
þegar verðmyndun landbúnað-
arvara ætti í hlut væri framleið-
andinn eini marktæki aðilinn.
Hið sama ætti ekki við um aðra
framleiðendur og það mál ætlaði
hann að taka til sérstakrar at-
hugunar, eins og hann hefði
margsinnis áður lýst yfir.
„Óraunhæft að bera saman
hollustugildi mjólkur-
drykkja og ávaxtadrykkja"
Vegna umræðna um hollustu-
gildi má geta þeirrar staðreynd-
ar að hérlendis hafa engar vís-
indalegar athuganir varðandi
hollustugildi verið lagðar til
grundvallar við álagningu gjalda
til ríkissjóðs, ef frá er talin hin
nýja aðferð fjármálaráðuneytis
við verðákvörðun áfengis eftir
alkóhólmagni. Við gefum því
Öldu Möller matvælafræðingi
orðið hér í lokin, en hún var
spurð álits á hollustu þessara
umdeildu drykkja.
„í fyrsta lagi finnst mér ekki
raunhæft að bera saman holl-
ustugildi mjólkurdrykkja annars
vegar og ávaxtadrykkja hins
vegar vegna þess hversu þessir
drykkir eru ólíkir að allri sam-
setningu. Því má líkja við að
bera saman hollustugildi fisks
og grænmetis, sem eru mjög ólík
matvæli. Af mjólkurdrykkjun-
um er kakómjólk að mörgu leyti
hollustuvara. Hún er fituskert
en hins vegar er hún sykruð.
Sykur í kókómjólk mun vera um
5%, en það er helmingur þess
sem er í gosi og appelsínudrykkj-
um. Þess má geta að merking á
umbúðum kakómjólkur er óskýr
að þessu leyti. Kakómjólk er að
sjálfsögðu síðri en nýmjólk að
hollustugildi vegna þessarar
sykrunar. Ef við tökum síðan
Jógadrykkina þá eru þeir heldur
sætari en kakómjólkin en að
öðru leyti sambærilegir, en þó
síðri að hollustugildi. Mangó-
Sopinn er unninn úr mysu og
sömuleiðis of sætur til að teljast
mikil hollustuvara.
Ávaxtadrykkjum vil ég skipta
í tvennt, annars vegar hreina
ávaxtasafa og hins vegar bland-
aða ávaxtadrykki. Hreinir
ávaxtasafnar undir merkjum
eins og Floridana, Tropicana og
Blanda, auk innfluttra tegunda,
hafa tvímælalaust mikið holl-
ustugildi með sínum upphaflegu
vítamínum og sykrum. Blandað-
ir ávaxtadrykkir, sem í daglegu
tali eru nefndir djúsar, hafa lítið
hollustugildi. Þeir eru víta-
mínsnauðir og innihalda ekki
hin náttúrulegu næringarefni
ávaxtasafa. Það er röng og víta-
verð merking þegar þeir eru
kallaðir safar.
Svalinn frá Sól hf. er millistig
á milli ávaxtasafa og blandaðra
ávaxtadrykkja. Hann er blanda
af safa og drykk. í honum er um
12% af hreinum ávaxtasafa og
hann er C-vítamínbættur og í
honum eru náttúrulegt litarefni.
Hann er síðri ávaxtasöfunum að
næringargildi en sem svala-
drykkur hollari en aðrir bland-
aðir ávaxtadrykkir á markaðn-
um. Gosdrykkir eru að sjálf-
sögðu lægstir í þessari upptaln-
ingu hvað næringarefnafræðina
snertir. Þeir eru aðeins orku-
gjafi, þaðem felst í sykrinum."