Morgunblaðið - 26.04.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
21
'S
Danmörk:
Samkomulag í
efnahagsmálum
w_^ o
Símamynd AP.
Jarðskriöa lokaði vegi í nágrenni Morgan Hill suður af San Jose í Kaliforníu eftir jarðskjálft-
ann á þriðjudag. Milljónatjón varð á mannvirkjum í skjálftanum og smærri kippum sem
fylgdu í kjölfarið. Tugir manna slösuðust, en flestir lítillega. Verulegur ótti greip um sig víða
í Kaliforníu er skjálftinn reið yfir, enda búast menn þar við miklum eyðileggingarskjálfta þá
og þegar.
Raupmannahöfn, 25. apríl. Frá
Ib Björnbak, fréttaritara Mbl.
SAMKOMULAG náöist í dag með
þeim flokkum, sem standa að dönsku
ríkisstjórninni, og Róttæka vinstri-
flokknum (Radikale Venstre) og á
það að gilda þetta ár og næsta. Vegna
þessa hafa skuldabréf og hlutabréf
hækkaö mjög í verði.
A þessu ári og næsta ætlar ríkis-
stjórnin að halda fjárlagatölunni
við 185 milljarða dkr. og er þeim
fréttum fagnað mjög af talsmönn-
um atvinnulífsins. Það þýðir hins
vegar, að stjórnin verður að skera
niður útgjöld í ár upp á 1,5—2
milljarða dkr. og fjóra milljarða á
næsta ári. Að vísu hefur stjórnin
staðið fyrir umtalsverðum niður-
skurði en ekki nógum til að tak-
Afganistan:
Mjög harðir bardag-
ar um Pansjher-dal
Nýju Delhi, 25. apríl. AP.
ENN berast fréttir um hörð átök
stjórnarhersins í Afganistan og sov-
éska hernámsliðsins við frelsis-
sveitirnar í landinu, en svo virðist
sem stórsókn gegn þeim sé hafin.
Útvarpið í Kabúl fullyrti í dag
að öll mótspyrna „uppreisnar-
manna" í Panjsher-dal hefði verið
brotin á bak aftur, en vestrænir
stjórnarerindrekar í borginni
draga þá staðhæfingu í efa. Eftir
einum þeirra, sem ekki er nafn-
greindur, er haft að líklega sé enn
barist í dalnum.
Pansjher-dalur er mikilvæg
samgönguleið í Afganistan og tal-
ið er mjög mikilvægt fyrir frels-
issveitirnar að hafa þar yfirráð.
Sovétmenn hafa fram að þessu
gert sex tilraunir til að ná dalnum
á sitt vald, en þær hafa allar mis-
tekist.
Einn af leiðtogum frelsissveit-
anna, S.M. Maiwand, sem er í út-
legð, segir að svo virðist sem sveit-
irnar hafi um sinn hörfað til
fjalla, en hyggi á stórsókn gegn
árásarherjunum innan skamms.
Efnahagur Svía batnandi?
Simamynd-AP.
Páfi kyssir
Jóhannes Páll páfi kyssir fót
ungs sveins í St. Johns-kap-
ellunni á skírdag, en þar var
síðasta kvöldmáltíð Krists
sett á svið.
Stokkhnlmi, 25. apríl.
Frá Erik Liden fréttar. Mbl.
SÆNSKA ríkisstjórnin lagði í dag
fyrir þingið endurskoðuð fjárlög fyrir
tímabilið 1984/85 þar sem mun meiri
bjartsýni gætir heldur en í fjárlögun-
um sem samþykkt voru í janúar síð-
astliðnum.
1 hinum endurskoðuðu tillögum
er gert ráð fyrir mun minni halla
en í janúarlögunum og ívið meiri
hagvexti og batnandi efnahag. Var
nú gert ráð fyrir 67,2 milljarða
•króna halla t stað 80 milljarða í
janúar. Þá er nú gert ráð fyrir 7
prósent aukningu í útflutningi Svía
og þar með muni hinn mikli við-
skiptahalli verða úr sögunni.
Verðbólgan veldur stjórninni
enn mesta hugarangrinu. Þeir Olof
Palme forsætisráðherra og Kjell
Olov Feldt fjármálaráðherra lögðu
fyrr í mánuðinum fram efnahags-
pakka þar sem meðal annars var
Hart sigraði
í Vermont-ríki
Washington, 25. apríl. AP.
GARY Hart bar sigurorð úr býtum í
forkosningum demókrata um forseta-
framhjóðanda flokksins í Vermontríki
í gær. Hlaut hann 49% atkvæða, en
keppinautar hans, Walter Mondale og
Jcs.se Jaekson, fengu 33 og 14 pró-
sent.
í þessum kosningum var aðeins
kosið um 13 fulltrúa á landsþing
demókrata í júlí nk. Til að ná út-
nefningu þarf frambjóðandi að afla
sér stuðnings 1.967 fulltrúa og fyrir
kosningar í Vermont hafði Mondale
tryggt sér stuöning 1.128 fulltrúa,
Hart 626 og Jackson 167.
í kvöld áttu að fara fram for-
kosningar í Utah, en þar eru kosnir
22 fulltrúar á flokksþingið. Mikil-
vægari kosningar verða síðan í
Tennessee og Washingtonborg og
nágrenni 1. maí nk.
kveðið á um verðstöðvun á vörum
jafnt sem þjónustu. Sögðu þeir það
eiga að stemma stigu við launa-
kröfum verkalýðsfélaga sem stofn-
uðu í hættu markmiðum stjórnar-
innar um 4 prósent verðbólgu á
þessu ári, en 3 prósent á næsta ári.
Feldt tilkynnti á þinginu í dag, að
þrátt fyrir margháttaðar ráðstaf-
anir, væri sýnt að verðbólgan yrði 5
prósent á þessu ári.
Stjórnarandstaðan sá ekki
ástæðu til að hrífast yfir orðum
Feldts um batnandi tíð með blóm í
haga. Nils Asling, stjórnarand-
stöðuþingmaður, sagði um hin end-
urskoðuðu fjárlög, „fagurlega
dekkað borð með brauðfætur“.
ERLENT
Eru Skaparinn og
Frelsarinn konur?
Guöfræðileg kvennabarátta í Bandaríkjunum og Bretlandi
Minbor)!, New York, 25. apríl. AH.
DEILUR í Bretlandi og
Bandaríkjunum um kyn-
ferði Skaparans og Jesú
Krists hafa vakið nokkra
athygli þar yfir páskana.
Kvenréttindasinnar hafa
dregið hefðbundin viðhorf
í þeim efnum í efa.
Nefnd á vegum Bisk-
upakirkjunnar í Skot-
landi hefur sent frá sér
álitsgerð þar sem segir
að Guð almáttugur sé
ekki endilega karlkyns.
Þau einkenni hans sem
heilög ritning greinir frá
sýna, að mati nefndar-
innar, allt hið besta í
kveneðli manneskjunnar.
Greinargerðin var
samin af nefnd sem í
áttu sæti sjö konur og
fjórir karlar, þar af þrír
kvenprestar og einn
karlprestur, og var frá
kvað þau viðbrögð af
sama tagi og andúð
sumra á því að konur
gegndu prestsstörfum.
Líkneskið sýnir
„Kristu" í krossfest-
ingar-stellingum, en eng-
inn kross er þó sjáanleg-
ur að baki henni. Höf-
undur verksins er Ed-
wina Sandys, en hún er
dótturdóttir Winstons
Churchllls, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands.
í hópi þeirra sem lýst
hafa hneykslan og
gremju á því að líkneskið
skuli vera til sýnis í
dómkirkjunni er séra
Walter Dennis, aðstoð-
arbiskup í New York.
Hann segir að það sé
óverjandi hvort sem litið
er á málið frá guðfræði-
legum eða sögulegum
sjónarhól.
henni greint á aðalfundi
kvenfélagssambands
kirkjunnar í gær. Ekki er
um að ræða opinbera
stefnu skosku biskupa-
kirkjunnar, en hugmynd-
ir nefndarinnar verða til
umræðu á 1600 manna
kirkjuþingi 19,—25. maí
nk.
Nefndin klofnaði í af-
stöðu til þess hvort
réttmætt væri að ákalla
Skaparann „heilaga móð-
ur“. Minnihluti nefndar-
innar, sem viðurkenndi
að Drottinn hefði einnig
kvenlega eiginleika, vildi
ekki fallast á hina nýju
nafngift og taldi föður-
heitið ekki þurfa að fela í
sér að Guð væri fremur
karlkyns en kvenkyns.
Nefndin var skipuð af
kirkjuþingi árið 1982 og
sétt það verkefni að
kanna „móðureðli Guðs“,
en nokkru áður hafði
verið talað um „Guð
móður okkar" í bæn á
samkomu í kvenfélagi
skosku biskupakirkjunn-
f New York hefur líkn-
eski sem sýnir Jesúm
Krist sem konu og til
sýnis er í dómkirkju heil-
ags Jóhannesar í borg-
inni orðið tilefni deilna.
Líkneskið sem er úr
bronsi er 1,2 m á hæð og
vegur 113 kg. Það er
nefnt „Krista" og að sögn
séra James Park Morton
sem er djákni við kirkj-
una hafa flestir kirkju-
gesta brugðist vel við því.
Hann sagði að til væru
þeir sem lýstu hneykslan
sinni á líkneskinu, en
markinu yrði náð. Stjórnin mun að
nokkru leyti bæta sér upp niður-
skurðinn með hækkunum á víni Qg
tóbaki.
Aðgerðir stjórnarinnar, sem
borgaraflokkarnir hafa nú komið
sér saman um, munu m.a. valda
því, að kostnaður við íbúðarhús-
næði mun minnka um rúmar 15.000
ísl. kr. á ári og hafa því sömu áhrif
og vítamínsprauta á húsbyggingar
í landinu.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ....... 30/4
Jan ....... 14/5
Jan ....... 28/5
Jan ....... 11/6
ROTTERDAM:
Jan ........ 1/5
Jan ...... 15/5
Jan ...... 29/5
Jan ...... 12/6
ANTWERPEN:
Jan ....... 2/5
Jan ...... 16/5
Jan ...... 30/5
Jan .......... 13/6
HAMBORG:
Jan ............ 4/5
Jan............ 18/5
Jan ............ 1/6
Jan ........... 14/6
HELSINKI/TURKU:
Mælifell ...... 30/4
Hvassafell .... 24/5
LARVIK:
Francop ........ 7/5
Francop ....... 21/5
Francop ........ 4/6
GAUTABORG:
Francop ........ 8/5
Francop ....... 22/5
Francop ........ 5/6
KAUPMANNAHÖFN:
Francop ........ 9/5
Francop ....... 23/5
Francop ........ 6/6
SVENDBORG:
Francop ....... 26/4
Francop ....... 10/5
Francop ....... 24/5
Francop ........ 7/6
ÁRHUS:
Francop ....... 27/4
Francop ....... 11/5
Francop ....... 25/5
Francop ........ 8/6
FALKENBERG:
Hvassafell ..... 4/5
Helgafell .... 11/5
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell .... 24/5
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell .... 25/5
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101