Morgunblaðið - 26.04.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
29
Frá æfingu á leikritinu Hunangsilmi í uppfærslu Leikfélags Fljótsdalshéraos.
Egilsstaðir:
Hunangsilmur
í Valaskjálf
Kgils.sl<WVum, 24. apríl.
LEIKFÉLAG Fljótsdalshér-
aðs hefur að undanförnu æft
af kappi leikritið Hunangs-
ilm eftir Sheilagh Delanev í
þýðingu Ásgeirs Hjartarson-
ar undir stjórn Hjalta Rögn-
valdssonar.
Leikritið mun verða frumsýnt
í Valaskjálf föstudaginn 27. þ.m.
kl. 21.00 og önnur sýning verður
sunnudaginn 29. apríl kl. 17.00 í
Valaskjálf.
Að sögn forvígismanna Leik-
félags F'ljótsdalshéraðs er áætl-
að að sýna leikritið víðar en í
heimahéraði þó að endanlegar
ákvarðanir í þeim efnum hafi
eigi enn verið teknar.
Eins og kunnugt er var leikrit
þetta sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir
hartnær 16 árum og leiksviðið
er Manchester sjöunda áratug-
arins.
Leikendur í uppfærslu Leikfé-
lags Fljótsdalshéraðs eru: Hall-
dóra Sveinsdóttir, Karl Sigurðs-
son, Þórhallur Borgarsson, Vig-
fús Már Vigfússon og Kristrún
Jónsdóttir.
Formaður Leikfélags Fljóts-
dalshéraðs er Kristrún Jóns-
dóttir.
— Ólafur
Fóstbræður halda tónleika
Karlakórinn Fóstbræður heldur
árlega tónleika fyrir styrktarfélaga
sína í Háskólabíói fimmtudaginn 26.
aprí) kl. 19.00. og laugardaginn 28.
apríl kl. 15.00. Söngstjóri kórsins er
Ragnar Björnsson. Píanóleikari er
Jónas Ingimundarson.
Einsöngvarar með kórnum eru
Akureyri:
Tvö umferðaróhöpp
Akureyri, 24. upríl.
„MIÐAÐ við þaö að hér var haldið
landsmót á skíöum og búist var við
verulegum fjölda ferðamanna í bæinn
um páska, þá verð ég að segja, að helg-
in var með rólegasta móti,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar á Akureyri, þegar
blm. Mbl. ræddi við hann i dag.
Þó urðu tvö umferðaróhöpp sem
lögreglan hafði afskipti af. Það fyrra
varð aðfaranótt föstudags, þegar
ungur piltur á bifhjóli lenti í
árekstri við bifreið á Glerárgötu.
Slasaðist hann töluvert og var flutt-
ur á sjúkrahús, en reyndist óbrotinn.
Síðara óhappið varð í Breiðholti,
hesthúsahverfi við Miðhúsaklappir.
Var það um klukkan 1 aðfaranótt
laugardags, að fimm ungmenni í
gamalli Cortina-bifreið óku á ljósa-
staur í hverfinu. Öll voru þau flutt á
sjúkrahús og reyndist einn þeirra
höfuðkúbubrotinn en hin fengu að
fara heim af sjúkrahúsinu fljótlega.
Bíllinn er talinn ónýtur og grunur
leikur á að ökumaður hafi verið und-
ir áhrifum áfengis. GBerg.
3 bílar á mfnútu um
Borgarfjarðarbrúna
Borgarm.si, 24. apríl.
MIKIL umferð var um héraðið fyrir
og um páskana. Umferðin stefndi
norður og vestur um land og í
sumarbústaði héraðsins fyrir helg-
ina, en til baka í gær, annan í pásk-
um. Þegar umferðin var mest, síð-
dcgis í gær, mældi lögreglan umferð-
ina um Borgarfjarðarbrúna og
reyndist hún vera 3 bílar á mínútu.
Samkvæmt þessari mælingu
ættu hátt á annað þúsund bílar að
hafa farið um héraðið í gær. Þrátt
fyrir þessa gífurlegu umferð urðu
að sögn lögreglunnar engin telj-
andi óhöpp í umferðinni. Eina
óhappið sem skráð var í bækur
lögreglunnar varð á laugardag. Þá
fótbrotnaði kona illa er hún steig
út úr fólksflutningabifreið fyrir
utan Hótel Borgarnes, þannig að
flytja varð hana í skyndi á Borg-
arspítalann í Reykjavík.
— HBj.
Innritun að hefjast í sum-
arbúðir Þjóðkirkjunnar
Sumarbúðir þjóðkirkjunnar verða
starfræktar í Laugagerðisskóla á
Snæfelisnesi í sumar. Þar verða 12
daga flokkar fyrir telpur og drengi
samtímis og hefst tímabilið 18. júní.
Til að byrja með fyrir 7—9 ára börn
en hins vegar verða hinir flokkarnir
fyrir 10—12 ára börn.
Við Laugagerðisskóla er sund-
laug og góð aðstaða til leikja, en í
sumarbúðunum verða einnig
helgistundir og uppfræðsla í krist-
inni trú. Lögð verður áhersla á að
hvert barn njóti sín og þroskist í
öruggu umhverfi.
Innritun hefst fimmtudaginn
26. apríl og fer fram hjá æsku-
lýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar,
Klapparstíg 27, þar sem allar
frekari upplýsingar eru veittar.
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari og Björn Emilsson. Á
tónleikunum koma fram í boði
kórsins nokkrir nemendur tónlist-
arskóla í Reykjavík og syngja ein-
söng. Þeir eru: Frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík: Anders Thor-
sten Josepsson, frá Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar: Jó-
hanna Sveinsdóttir, frá Nýja
Tónlistarskólanum í Reykjavík:
Björn Björnsson og Sigríður Ell-
iðadóttir.
Á efnisskránni verður tónlist
víðsvegar að úr heiminum, mörg
vinsæl og þekkt lög.
DELLT UM BJÓR
úvngi Agnesar Bragadottu
og HaUdors fra Kirkjuboli
Stadur: GAFl.-INN, Dalshntunl í HafnarfirAi.
Stund: Flmmtudagurlnn 26. apríl. kl. 20-22.
Páll V. DunídMon andsta*öingur bjorelns.
Jón Magnúsaon lögfneAlngur
og flutnlngsmaöur l>(órfrumvarpslns á þlngi.
Fundarstjori: Oddur H. Oddsson.
Opnar umræóur ,tö loknum frainsoguerindum.
Allir velKomnir rncAai. husrúm lcylir.
Aögangur okcyp,». ^3 STEFNIR
Agnes og
Halldór á
bjórfundinn
í FRÉTT Mbl. í gær um fund Stefnis
um bjórmálið, sem haldinn verður í
Gaflinum í Hafnarfirði í kvöld kl.
20, féll niður að frummælendur
væru Agnes Bragadóttir blaðamaður
og Halldór Kristjánsson frá Kirkju-
bóli.
Frummælendur auk þeirra
verða Páll Daníelsson, andstæð-
ingur bjórsins, og Jón Magnússon,
lögfræðingur, flutningsmaður
bjórfrumvarpsins á þingi. Fundar-
stjóri verður Oddur H. Oddsson,
en að loknum framsöguerindum
verða frjálsar umræður.
75 ára í dag:
Oddur Ólafsson
fv. yfírlæknir
Vinur minn og foringi Oddur
Ólafsson, fyrrv. yfirlæknir á
Reykjalundi, er 75 ára í dag. Fleiri
hafði Oddur titlana fyrir störf sín,
þó þessi verði mér hugleiknastur
og efstur í huga þegar ég nú sest
niður við þennan áfangastein á
hans farsælu göngu og leiðsögn
fyrir mig og fleiri samferðamenn
úr hópi berklasjúklinga þegar leit-
að var ráða um úrlausn vanda-
mála.
Það kann að hljóma undarlega
þegar talað er um lán í sambandi
við veikindi einstaklings. Lán var
það mikið fyrir alla berklasjúkl-
inga, sem veikir voru eða veiktust
eftir 1938, þegar Oddur Ólafsson
veiktist af þessum banvæna sjúk-
dómi, sem engin lyf unnu þá á og
fáir læknuðust til varanlegs bata.
Oddur var nýbyrjaður í lækn-
isnámi þegar hann veiktist af
berklum og varð að leggjast inn á
Vífilsstaðahæli.
Ekki lét Oddur veikindin stöðva
nám sitt, heldur hélt hann áfram
námi á Vífilsstöðum.
Lauk hann þar námi með
berklalækningar sem sérgrein.
Flutti Oddur um set á Vífils-
stöðum, úr sjúkrarúminu til lækn-
isstarfa; sinna eigin meina og
samferðamannanna, félaganna á
hælinu.
Kemur þar að láni félagsskapar
berklasjúklinga, að eignast slíkan
foringja og brautryðjanda sem
Oddur var.
Oddur sat stofnfund SÍBS á Víf-
ilsstöðum í október 1938, þar sem
hann var þá orðinn starfandi
læknir.
Skömmu eftir stofnþingið fór
Oddur til Bandaríkjanna til að
kynna sér rækilega eftirmeðferð
berklasjúklinga að lokinni hælis-
vist og endurhæfingu sjúkra
manna almennt.
Heimkominn gerðist hann að-
stoðarlæknir á Vífilsstöðum og
verður jafnframt virkur félagi í
samtökum berklasjúklinga, SÍBS.
Má segja að sigurganga samtak-
anna og forysta Odds séu svo sam-
tvinnaðir þættir að ekki verði á
milli greint. Starfssaga Odds og
saga SÍBS eru ein og sama sagan.
Hugsjón, framsýni og hagsýni
Odds lyfta Grettistaki þegar
Reykjalundur var byggður sem
fyrsta og reyndar eina heilbrigð-
isstofnun sinnar tegundar á Norð-
urlöndum.
Barst hróður SÍBS og Reykja-
lundar vítt um lönd, svo að á
fyrstu starfsárum Reykjalundar
var talið nauðsynlegt við skipulag
á opinberum móttökum höfðingja
og fyrirmanna til landsins að
setja í ferðaáætlun samhliða
Gullfossi og Geysi skoðunarferð
að Reykjalundi.
Slíkur var hróður staðarins og
yfirlæknisins, sem skipulagt hafði
stofnunina og veitt henni forstöðu
frá upphafi.
Eftir 25 ára starfsemi Reykja-
lundar, í júlí 1970, lét Oddur af
störfum sem yfirlæknir staðarins.
Ekki var það nú til að setjast í
helgan stein að vel unnu dagsverki
eins og margur hefði kosið, en ekki
hann Oddur.
Að hans mati voru mál Reykja-
lundar komin í góða höfn og i
hendur góðra manna, en fleiri
voru verkefnin og vandamálin,
sem leysa þurfti fyrir öryrkjana í
landinu.
Oddur var aðalhvatamaður að
stofnun Öryrkjabandalags íslands
1961 og fyrsti formaður þess.
Átti hann hugmyndina og fram-
takið aðð byggingu háhýsa banda-
lagsins við Hátún 10.
Enginn nema Oddur hefði þorað
að hefja byggingarframkvæmdir
að svo stóru verkefni án sjáan-
legrar fjárhagsgetu.
Sagan endurtók sig frá ævintýr-
inu á Reykjalundi til stórbygg-
inganna við Hátúnið.
Oft þurfti Oddur að leita til
stjórnvalda um lausn vandamála
öryrkja. Alltaf var honum vel tek-
ið, en hægur var stundum gangur-
inn á efndunum.
Eina ráðið virtist því vera að
taka sér sæti á bekk stjórnvalda
og fylgja áhugamálum sínum
fram til lausnar.
Það gerði Oddur og settist á Al-
þingi og kom þar fram mörgum
nytjamálum öryrkja, enda hafði
hann þekkingu og reynslu umfram
marga er þar sátu.
Sama er hvar borið er niður við
upprifjun á störfum Odds, öll bera
þau vitni um framsýni, gáfur og
kjark til að hefjast handa við
kostnaðarsamar framkvæmdir án
þess að peningar væru fyrir hendi
við upphaf verks.
En slíkur var Oddur gæfumaður
að allt heppnaðist er í var ráðist
og var það hamingjan stóra, sem
samtök okkar og skjólstæðingar
SÍBS munu njóta um ókomna
framtíð.
1 þessum fáu línum mínum hef
ég aðeins stiklað á stóru um af-
reksverk Odds í félagsmálum ör-
yrkja og störfum tengdum SÍBS
en minna um samferðamanninn,
ferðafélagann og vininn, Odd
ólafsson, en þær eru ótaldar ferð-
irnar sem við hjónin höfum farið
með þeim hjónum Oddi og hans
ágætu konu, Ragnheiði Jóhannes-
dóttur.
Er það ósk okkar að margar séu
enn ófarnar.
Enn gegnir Oddur ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir SÍBS og Ör-
yrkjabandalagið. Er hann formað-
ur stjórnar Reykjalundar, í stjórn
Öryrkjabandalagsins og fulltrúi
öryrkja í ýmsum aiþjóðasamtök-
um er starfa að málefnum ör-
yrkja, svo eitthvað sé nefnt.
Er það von mín að samtök
berklasjúklinga og öryrkja megi
enn um langt skeið njóta starfs-
krafta hans og reynslu.
Flyt ég að lokum vini mínum,
Oddi Ólafssyni, og hans stóru og
myndarlegu fjölskyldu innilegustu
hamingjuóskir með 75 ára afmæl-
ið og þakkir frá SÍBS fyrir frábær
forystustörf með von um fram-
hald sem lengst.
Kjartan Guónason
formaóur SÍBíS
í dag mun Oddur Ólafsson taka
á móti gestum í Hlégarði, Mos-
fellssveit, frá kl. 17.00—19.00.