Morgunblaðið - 26.04.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1984
33
Minning:
Hjörtur R. Jóns-
son skipstjóri
virðingu og sérstakri góðvild,
blandaðri léttri gamansemi. Enda
var hún elskuð og virt af sjúkling-
um og samstarfsfólki. Oft hefi ég
heyrt fólk minnast þess hversu
hún hafi létt þeim jafnvel erfið
veikindi.
Ásrún hafði næmt fegurðarskyn
fyrir hvers konar listum, og nútt-
úrudýrkandi var hún, unni land-
inu sínu og óspilltri náttúru þess
og tók nærri sér ef illa var gengið
um eða framin spellvirki sem
særðu Móður Jörð. En sérstaklega
var hún mikill tónlistarunnandi
og naut þess innilega að fara á
góða tónleika. Við vorum saman í
Tónlistarféiaginu hin síðari ár.
Það var gaman að vera með henni
á tónleikum. Jafnvel þegar heilsan
var tekin að bila og hún átti bágt
með að koma á tónleikana, varð
hún gagntekin þegar góðir flytj-
endur hófu leik sinn.
Ásrún átti gott með að setja
saman brag sem oft var þá létt
kveðinn og gamansamur en hún
flíkaði því ekki.
Æskustöðvarnar, Reykjadalur-
inn,. voru hennar gróðurreitur.
Þangað leitaði hugur hennar og
hún fór þangað á hverju sumri og
heimsótti ættfólk sitt sem búið
hefur um sig á þessum fallega reit
Litlu-Lauga og nágrennis. Þar
hafa risið skólar, enda gaf faðir
hennar land undir héraðsskólann
og bróðir hennar gaf land undir
barnaskólann. Ég og maðurinn
minn vorum oft samtímis Ásrúnu
á Litlu-Laugum enda voru börn
okkar þar í sumardvöl. Þetta eru
ógleymanlegar stundir, þar sem
saman fór hlýlegt viðmót fólksins
og skjólsælt og hlýtt umhverfi
með fagra liti heiðanna í baksýn
og Kinnarfjöllin í norðri.
Ásrún giftist ekki og eignaðist
ekki börn. En hún lét sér annt um
börn og öll börnin í fjölskyldunni
áttu þar góða frænku, sem skildi
þau ótrúlega vel. Þeim þótti því
vænt um hana.
En nú er ævistarfi Ásrúnar lok-
ið hér á jörð. Ég verð ævinlega
þakklát fyrir að hafa kynnst henni
og fengið að njóta vináttu hennar
og hjálpsemi.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín S. Björnsdóttir
Ásrún Sigurjónsdóttir fæddist á
Einarsstöðum í Reykjadal 16. júlí
1908. Hún var næstyngst barna
hjónanna Sigurjóhs Friðjónssonar
skáldbónda frá Sandi í Aðaldal og
Kristínar Jónsdóttur frá Rif-
kelsstöðum í Eyjafirði. Á fimmta
aldursári fluttist Ásrún með for-
eldrum sinum að Litlulaugum í
Reykjadal. Þar ólst hún upp í stór-
um systkinahópi, en alls komust
10 börn á legg.
„Þú ert eins og grundin græn
sem gulli mörgu leynir
ætíð munt þú verða væn
og vænst þegar mest á reynir."
Þannig orti Sigurjón um dóttur
sína unga. Mannkostum og eðlis-
fari Ásrúnar verður varla betur
lýst.
Við vonuðum að Ásrún vaknaði
í vor eins og blómin sem hún var
vön að bera í bæinn alla minn-
ingardaga sem hún mundi betur
en við. En sú von brást og því ber-
um við nú fölnað blóm í barmi.
Það er víst brot á jafnréttislög-
um að upplýsa að Ásrún var
hjúkrunarkona og þurfti ekki sér-
fræðiheiti í símaskrá. Bráðum
verður bannað að taka sér orðið
ljósmóðir í munn. En hjúkrunar-
ljósið hennar mun lifa í hugskoti
allra þeirra sem hana þekktu. Það
var ekki sanngjarnt að hún skyldi
deyja í meiri þraut en margur sem
hún helgaði allt sitt líf að líkna.
Ásrún átti aldrei að vera ein-
sömul en samt varð það hlutskipti
hennar. Hún þurfti heldur ekki að
vera einmana svo mikilsverð sem
návist hennar var. Samt varð sú
raunin meiri en við vildum eða
skildum.
Ásrún Sigurjónsdóttir kvaddi
þennan heim eins og hún kom í
hann: Vammi.firrt.
Nú verður langur vegur á Víði-
mel.
Stórt skarð er nú höggvið í þann
hóp manna sem útskrifaðist úr
Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum vorið 1982.
Hjörtur R. Jónsson fórst er mb.
Hellisey VE hvolfdi og sökk
skammt frá Heimaey þann 11.
mars sl. Ég held að enginn okkar
félaganna hafi leitt hugann að því
er leiðir skildu að svo stutt gæti
orðið í það að einhver okkar félli
frá. En slys gera engin boð á und-
an sér. Sjómaður sem fer í róður
að morgni getur aldrei verið viss
um að koma aftur heim að kveldi.
Hjörtur var góður félagi og
vinsæll meðal bekkjarbræðra, ein-
stakur dugnaðarforkur og ham-
hleypa til allra verka. Það hefðu
ekki allir lagt á sig að vera í skóla
og standa í íbúðarkaupum jafn-
framt. Þetta gerði Hjörtur og stóð
sig með sóma á báðum stöðum,
enda var það stundum þreyttur
maður sem settist við skólaborðið
að morgni mánudags eftir að hafa
farið í lausaróður á einhverjum
bátnum, eða staðið við beitningu,
nema hvor tveggja væri.
Við tveir stunduðum nokkuð
köfun saman, þar komu allir bestu
eiginleikar Hjartar berlega í ijós.
Að skera úr skrúfu við erfiðar að-
stæður er ekki létt verk, en þar
var hann svo sannarlega í essinu
sínu. Oft var ég bijinti að dást að
honum er við vorum tveir saman
niðri í hinum „þögla heimi", eins
og stundum er sagt.
Hjörtur hafði allt það til að
bera er prýtt gæti góðan skip-
stjóra, enda fór það svo að fljót-
lega var honum falin skipsstjórn.
Það er kaldhæðni örlaganna að
skip hans skyldi ekki vera búið
hinum fullkomna Sigmunds-
björgunarbúnaði. Oft höfðum við
félagarnir rætt um kosti hans og
fylgst með og tekið þátt í prófun-
um á honum fyrir tilstilli hins öt-
ula baráttumanns fyrir björgun-
armálum sjómanna, Friðriks •-
Ásmundssonar, skólastjóra Stýri-
mannaskólans.
Viljinn til að sigrast á erfiðleik-
um var Hirti í blóð borinn og
dæmi um það er að ef hann sá
einhvers staðar klett eða drang
var hann ekki ánægður fyrr en
hann hafði klifið hann.
Við bekkjarfélagarnir söknum
góðs félaga. Ég vil votta aðstand-
endum innilega samúð mína.
Minningin um góðan dreng lifir.
Eiríkur Sigurðsson
ÐSLA
Fyrstir á Islandi meö
WORD
ritvinnslunámskeið
Námskeiö fyrir þá sem vilja læra á Word-ritvinnslukerfiö frá Microsoft.
Word er án efa öflugusta og þægilegasta ritvinnslukerfiö sem til er á
smátölvur í dag.
Leiðbeinandi: Páll Smith, Skrifstofuvélar hf.
Tími: 28. og 29. apríl kl. 13—17.
Tölvunámskeið
fyrir fullorðna
Þetta er 8 klst. byrjendanámskeiö og ætlað þeim
sem ekki hafa átt þess kost aö læra um tölvur í
skóla. Kennd eru undirstöðuatriði í notkun tölva
og forritun i basic. Engrar sérstakrar undirstöðu-
þekkingar er krafist.
Basic
Basic er útbreiddasta forritunarmálið. Kostirnir
eru: Einfalt en jafnframt öflugt forritunarmál.
Basic hentar vel við alls kyns útreikninga og töflu-
gerð.
Basic er innbyggt í allar smátölvur í dag.
Þetta er 8 klst. byrjendanámskeið. 4 kvöld í viku
og gerir þátttakendum kleift aö skrifa eigin forrit.
Tölvunámskeið
fyrir unglinga
Tölvubyltingin er í fullum gangi hér á landi, sífellt
koma fram fullkomnari, betri og ódýrari tölvur. Til
aö fylgjast með þessari öru þróun er bara ein leið
— góð menntun. Tölvufræðslan sf. heldur 10 klst.
kvöldnámskeið fyrir unglinga.
Tími: 30. apríi — 6. maí kl. 17—19.30.
Tölvufræðsla er
okkar sérgrein
Viö bjóðum uppá vönduð tölvunámskeið fyrir byrj-
endur og þá sem lengra eru komnir.
— Ennfremur er Poðið uppá námskeið fyrir fyrir-
tæki, stofnanir og starfshópa.
— Hringdu til okkar og kynntu þér verö og efni
námskeiða.
Fjárfestið í menntun, það borgar sig!
DSLANS
Ármúla 36, Reykjavik. i
Innritun í símum: 687590 og 86790
Þórunn og Björn Þ.