Morgunblaðið - 26.04.1984, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁPRÍL 1984
r K
40
Minning:
Guðmundur Þorkels-
son byggingameistari
Fædd 29. október 1912
Dáin 14. aprfl 1984
Vinur minn og tengdafaðir dótt-
ur minnar, Guðmundur Þorkels-
son, byggingameistari, sem hér er
kvaddur, var maður vestfirskur að
ætt, fæddur að Þúfum í Reykja-
fjarðarhreppi við Djúp þ. 29. októ-
ber árið 1912. Hann var yngstur 8
barna hjónanna Petrínu J.
Bjarnadóttur og Þorkels Guð-
mundssonar er þar bjuggu. Guð-
mundur kvæntist árið 1936 Karól-
ínu Sigríði Olsen, en missti hana
frá fjórum börnum þeirra árið
1959. Sambýliskona hans síðar á
lífsleiðinni var Magnfríður Dís
Eiríksdóttir og gekk hann í föð-
urstað tveimur drengjum sem hún
á en saman áttu þau eina dóttur
barna.
Einhvers staðar rakst ég á það,
að Beethoven eigi að hafa sagt:
„Ég viðurkenni ekki aðra yfirburði
en yfirburði góðleikans," og er
hollt til íhugunar nú sem þá og
andstæða við það barbarí sem sið-
blindir menn eru að breyta móður
Jörð í. Því er okkur söknuður í
huga í hvert sinn er menn góðleik-
ans hníga í valinn. Guðmundur
Þorkelsson var í mínum huga einn
þeirra. Hann var alvörumaður í
önn sinni og vandvirkur sem
ættmenn hans fleiri, með hendur
Styrkiö og fegrið líkamann
Dömur og herrar
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinM»lu herratímar í hédaginu.
NÝ 4RA VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 2. MAÍ
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sórtím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eda meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun —
mæling — sturtur — gufuböð — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Armanns
Armúla 32.
VELGIRT
Öflug hlið fyrir allo umferð. Einnig rafknúm
Grindverk úr áli eða stáli Skipulagning og stjórnun
umferðar
Hátt net ásamt V-laga óryggisbúnaði.
Vandaður og viðhaldslítill frágangur
Allir fylgihlutir frá Adromt
Stólgrindur þar sem mikils styrks og öryggis er óskað.
Flytjum inn frá Adronit Werk, Þýskalandi,
vandað girðingaefry og hlið og allt sem til þarf, Adronft kerfið er mjög
umfangsmikið og vekja þrjú atriði mesta ath
Fjöldi valmöguleika
auðveld ui
tæringu
itlitið er vissulega við hæfi vel rekins fyrirtækis eða stofnunar
r -x. .... . - ■ w . . . . . ■ - — .1 . ....
Utfít lóðar ber vitni um starísemina innan dyra
SINDRA
|\STÁLHE
Adronit umboð á íslandi
Sindra stál hf. hefur gerst umboðsaðili fyrir vestur-þýsku verksmiðjurnar Adronit —
Werk, Hermann Aderholt Gmbh & Co.
Helstu framleiðsluvörur Adronit eru: Girðingaefni, staurar, net og rimlar svo og
vönduð hlið - einnig rafknúin - úr galvaniseruðu stáli og áli ásamt öllum fylgihlutum.
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711.
sem hlýddu rökfastri hugsun svo
ekki þurfti um að bæta þegar upp
var staðið. Einkennilegt hvað slík-
ir völundar eru einatt hlédrægir
og hógværir um eigið ágæti og
þannig var hann einmitt. Þegar
öllu er á botninn hvolft er það
kannski ekkert einkennilegt, því
að slíkir menn þurfa ekki að berja
bumbur til að sanna neitt. Verk
þeirra eru nægur vitnisburður.
Þær stundir sem hann átti, laus
við önn hins rúmhelga dags, þótti
honum fyrrum auðnuríkastar í
söng með góðum félögum í Karla-
kór Reykjavíkur. Rödd hans sjálfs
var djúp og blæfögur, og söng unni
hann alla tíð af heilum hug. Okkur
hinum þótti hann gleðigjafi á góð-
vinafundi og æðrulaust karlmenni
í stormum lífsins. Kannski lýsir
þessi vísa honum best:
„Skír var lundin, skapið fast,
skoðun tæpast rótað,
en hjartað sem að hinstu brast
af hreinu gulli mótað “
Atli Már
Lífið er ekkert nema tilviljanir.
Þau eru svo mörg „efin“ sem engin
leið er að krefja lífið svara við.
Kynni okkar Guðmundar Þorkels-
sonar hófust fyrir tilviljun og
mikið er ég og fjölskylda mín
þakklát forsjóninni fyrir þá
ánægjulegu tilviljun. Við söknum
Guðmundar úr þröngum vinahópi
en fyrst og fremst ríkir gleðitil-
finning í brjóstum okkar, gleði
sem tengist minningu hans, gleði
sem hann sjálfur vakti með eigin-
leikum sem erfitt er að lýsa en
sem skilja svo mikið eftir.
Aldrei mun ég svo ganga um
garða á fæðingarstað mínum, Við-
ey, að ekki komi minningin um
Guðmund fram í hugann. Þar
reisti hann sér minnisvarða sem
bera hæfileikum hans sem smiði
vitni, auk þess sem útsjónarsemi
hans við aðstæður þar sem ekki
naut nútímaorku til þess að knýja
verkfærin var einstök. Þannig var
mál með vexti að sumarið 1974
réðst ég i það að innrétta gamla
vatnsgeyminn í Viðey í því skyni
að búa Viðeyingafélaginu þar fé-
lagsheimili. Þetta var auðvitað að
fengnu leyfi borgaryfirvalda í
Reykjavík sem sýndu málinu vel-
vild og skilning. Vatnsgeymir
þessi er eitt fyrsta mannvirkið
sem reist var í Viðey þegar hið
svonefnda Milljónarfélag nam þar
land til fiskverkunar og útgerðar í
byrjun aldarinnar. Hann er úr
steinsteypu og hringlaga, grafinn
að hálfu leyti inn í hól og hefur
ekkert látið á sjá þótt senn líði að
því að hann verði aldargamall.
Það er skemmst frá að segja að
þarna leið eitt ánægjulegasta
sumar sem ég hefi lifað. Ekki ein-
ungis vegna þess að ég var kominn
heim á mínar bernskuslóðir held-
ur einnig og ekki síður vegna sam-
verunnar með Guðmundi, sem var
gæddur þeim einstaka hæfileika
að draga glaðværðina fram hjá
þeim sem með honum voru. Ekki
með trúðshætti eða afkáraskap
heldur meðfæddri kímni og
græskulausri glettni sem lét við
fyrstu sýn lítið yfir sér, en sem
átakalaust seytlaði inn í vitund
samferðamannanna og létti þeim
vegferðina.
Lengi býr að fyrstu gerð.
Sumarstörf Guðmundar í Viðey
urðu grundvöllur þess starfs sem
félag Viðeyinga hefur síðan byggt
á þar í eynni. Aðrir héldu svo
áfram með verkið og í dag eiga
Viðeyingar eitt sérkennilegasta
félagsheimili landsins. Þeir eru
minnugir þess manns sem ruddi
með þeim brautina og fyrir þeirra
hönd og fjölskyldu minnar færi ég
fjölskyldu Guðmundar samúð-
arkveðjur. Við minnumst gengis
vinar með söknuði en jafnframt
með þeirri gleði sem hann vakti
með okkur og slokknar ekki.
Örlygur llálfdanarson
Ferming í Hey-
dalaprestakalli
Á páskadag fór fram fermingar-
guðsþjónusta í Stöðvarkirkju. Sókn-
arpresturinn sr. Kristinn Hóseasson
fermdi þá þessi börn:
Drengir.
Bjarni Heiðar Sölvason,
Skólavegi 74, Búðum.
Einar Guðmundur Sturlaugsson,
Heyklifi.
Eiríkur Már Hansson,
Mánatúni.
Guðni Brynjar Ársælsson,
Laufási.
Páll Björgvin Bergþórsson,
Einihlíð.
Sigurður Fannar ólafsson,
Hellulandi.
Sigurður Bjartmar Sölvason,
Skólavegi 74, Búðum.
Valgeir Þór Steinarsson,
Skólabraut 16.
Stúlkur:
Auður Sólmundsdóttir,
Árbliki.
Elsa Jóna Björnsdóttir,
Nausti.
Hafey Lind Einarsdóttir,
Heiðmörk 11.
Jóhanna Margrét Agnarsdóttir,
Hólalandi 8.
Petra Sveinsdóttir,
Varmahlíð.
Solveig Friðriksdóttir,
Sunnuhvoli.
Sæunn Þorleifsdóttir,
Fjarðarbraut 49.
Valborg Jónsdóttir,
Einholti.
Ferming í Heydalakirkju á páska-
dag. 22. aprfl. Prestur sr. Kristinn
Hóseasson.
Drengir:
Guðlaugur Smári Jóhannsson,
Sólbakka.
Hallgrímur Stefánsson,
Hellubæ.
Herbjörn Þórðarson,
Snæhvammi.
Óðinn Elfar Sigfússon,
Ásbrún.
Reimar Steinar Ásgeirsson,
Ásgarði.
Ríkarður Garðarsson,
Selnesi.
Stúlkur:
Arnleif Steinunn Höskuldsdóttir,
Gljúfraborg.
Ragnheiður Rafnsdóttir,
Ásvegi 25.
Sigurbjörg Petra Erlendsdóttir,
Fellsási.
Steinunn Arna Arnardóttir,
Sólbakka 10.
Metsölub/aó á hverjum degi!