Morgunblaðið - 23.05.1984, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 23. MAÍ 1984
Álviðræður íslands og Alusuisse í Ziirich á morgun:
Vonir um samninga um
hækkun raforkunnar
fHttgniiÞlðfrifr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakið.
Olympíuleik-
arnir í hættu
NÚ GÆTIR meiri bjartsýni en oft áður um að hilli undir samkomulag um
hækkun raforkuverðs, stækkun álversins í Straumsvík, og enn meiri hækkun
raforkuverðs til nýja hlutans, samkvæmt því sem fram hefur komið í máli
viðmælenda Morgunblaðsins um þessi mál. Sverrir Hermannsson sagðist
telja að nú færu málin að þokast áfram hraðar, en næsti fundur samninga-
nefndar um stóriðju og fulltrúa Alusuisse hefst í Ziirieh nú á morgun.
Heimildarmenn blaðsins telja kunnugir þeirrar skoðunar að
að verulegur skriður komist á
málin nú á þessum fundi og öðr-
um, sem boðaður hefur verið í
júní, þar sem Alusuisse hafi lýsti
því yfir að nú vilji fyrirtækið
hraða allri samningagerð, en eins
og kunnugt er hefur enginn fund-
ur verið haldinn frá því í febrúar,
vegna veikinda formanns svissn-
esku nefndarinnar, Dr. Ernst. Eru
áhugi sá, sem stærstu álfyrirtæki
heims, eins og Alcan og Alcoa,
hafa sýnt á því að reisa hér álver
og reka í samvinnu við íslenska
aðila, hafi hert á Svisslendingun-
um, þannig að þeir séu nú áfram
um að ljúka samningagerð og
endurskoðun samninga, áður en
nokkuð verði ákveðið af Islands
hálfu um samstarf við önnur
Rainbow Hope losar
í Njarðvík á mánudag
— Reykjavíkurhöfn missir af drjúgum tekjum
Eftir að Sovétmenn sendu
óvígan her inn í Afganist-
an ákváðu margar þjóðir með
Bandaríkjamenn í broddi fylk-
ingar að taka ekki þátt í
Olympíuleikunum þegar til
þeirra var efnt í Moskvu
sumarið 1980. Á þeim tíma
hvatti Morgunblaðið forráða-
menn íslenskra íþróttamála til
að senda ekki neina þátt-
takendur héðan til Moskvu.
íþróttafrömuðir risu öndverð-
ir gegn þeirri hvatningu meðal
annars með þeim rökum að
það væri út í hött að blanda
saman stjórnmálum og íþrótt-
um, slíkt væri auðvitað aldrei
gert. Þetta var einnig línan frá
Moskvu á þessum tíma, að
aldrei myndu Sovétmenn
leggjast jafn lágt og Jimmy
Carter, þáverandi Bandaríkja-
forseti, og neita þátttöku í
Olympíuleikum á jafn áróð-
urs- og fjarstæðukenndri for-
sendu og hann.
Nú, fjórum árum síðar, hef-«
ur það hins vegar gerst að
Kremlverjar hafa látið þau
boð út ganga um ríki sitt og
fylgiríki að enginn íþrótta-
maður skuli sendur til Los
Angeles þar sem Olympíuleik-
arnir fara fram í sumar. Skýr-
ingarnar á þessari ákvörðun
eru meðal annars þær að
þannig verði búið að íþrótta-
mönnum á leikunum að öryggi
þeirra og lífi verði stofnað í
hættu, þess vegna sé óverjandi
annað en þeir sitji heima. Sé
þessi skýring Sovétmanna tek-
in bókstaflega er þess tæpast
að vænta að þeir muni nokkru
sinni framar senda menn til
Olympíuleika, að minnsta
kosti ekki í Suður-Kóreu 1988,
nema heimsmyndin gjörbreyt-
ist og hryðjuverkaménn hverfi
úr sögunni.
Nei, ótti um öryggi sovésku
leikmannanna er ekki ástæðan
fyrir því að Kremlverjar tóku
ákvörðunina um að hundsa
leikana í Los Angeles. Þar búa
pólitískar ástæður og hags-
munir Kremlverja sjálfra að
baki. Að einhverju leyti er um
hefndaraðgerðir vegna fjar-
verunnar frá Moskvu 1980 að
ræða. Þá er Kremlverjum illa
við allt sem getur styrkt
Bandaríkin út á við á meðan
Ronald Reagan er forseti og
berst fyrir endurkjöri sínu. En
síðast en ekki síst óttast
Kremlverjar að þeir geti ekki
haft hemil á íþróttamönnun-
um frá Sovétríkjunum og öðr-
um kommúnistaríkjum í þeim
skilningi að þeir hafi ekki
nógu marga KGB-menn á sín-
um snærum í Bandaríkjunum
til að koma í veg fyrir fjölda-
flótta úr íþróttabúðum fá-
tæktarríkja kommúnismans í
allsnægtir auðvaldsheimsins í
Los Angeles.
Olympíuleikarnir hófust í
Grikklandi sem keppni milli
einstakra borgríkja fyrir um
2000 árum. Þeir lágu niðri um
margar aldir og hin síðari ár
hafa þeir orðið að pólitísku
bitbeini hvað eftir annað svo
að ekki sé minnst á blóðbaðið í
Munchen 1972 þegar palenst-
ínskir ódæðismenn réðust á
íþróttamenn frá ísrael. Vera
má að undirrót þessara deilna
sé pólitískur metingur sem út-
rýma megi að verulegu leyti
með því að velja leikunum
samastað og kemur þá Grikk-
land auðvitað fyrst í hugann.
Þar ríkti friður milli borgríkja
meðan leikarnir stóðu yfir.
Ástæða er til að hvetja full-
trúa íslands í Alþjóðaolymp-
íunefndinni til að láta kanna
það til þrautar hvort framtíð-
arfriður geti skapast um
Olympíuleikana með því að
velja þeim stað í Grikklandi.
„Ritskoðun“
prentara
Frá því var sagt í frétt
Morgunblaðsins fyrir
nokkrum dögum að prentarar
í London hefðu tekið sér fyrir
hendur að hindra birtingu á
mynd af Arthur Scargill, leið-
toga þeirra námuverkamanna
sem nú eru í verkfalli á Bret-
landseyjum, en á myndinni
sást hann heilsa að sið nasista.
Sú kveðja Scargills kemur í
sjálfu sér á óvart því að hann
hikar ekki við að játa heims-
kommúnismanum ást sína og
hefur borið blak af innrásinni
í Afganistan. Þá hafa þrentar-
ar einnig beitt öðrum ráðum
til að hindra miðlun frétta af
þessu verkfalli sem er mjög
umdeilt, ekki síst meðal námu-
verkamanna sjálfra.
Þessi afskipti breskra
prentara af efni þeirra blaða
sem þeir starfa hjá sýnir hve
öfgastefnur eins og sú sem
ræður ferðinni hjá ofan-
greindum Scargill geta
afvegaleitt jafnvel dagfars-
prúða menn. Sagan kennir
okkur líka að þegar slíkar
stefnur hafa orðið ofan á er
það eitt helsta haldreipi þeirra
sem með völdin fara að stunda
ritskoðun, ekki einvörðungu á
fjölmiðlum heldur einnig á
bókmenntum og öllu því sem
byggist á hugmyndaflugi
mannsins og sköpunargáfu.
RAINBOW Hope, skip bandaríska
skipafélagsins Kainbow Navigation
Inc., sem gengið hefur inn í flutninga
íslensku skipafélaganna Eimskips og
Hafskips á flutningum Bandaríkja-
hers til herstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli, kemur I fyrsta sinn til ís-
lands nk. mánudag.
Skipið lét úr höfn í Norfolk í
Virginíu á austurströnd Bandaríkj-
anna sl. föstudagskvöld. Um sextíu
20 feta gámar eru í skipinu, sem
getur borið um 100 gáma fulllestað,
að sögn Magnúsar Ármanns, um-
boðsmanns Rainbow Navigation
Inc. á íslandi. Landað verður úr
skipinu í landshöfninni í Njarðvík
og gámunum síðan ekið upp á
Keflavíkurflugvöll á kostnað
Bandarfkjahers, rétt eins og herinn
ber kostnað af flutningum frá
Reykjavík til Keflavíkur þegar ís-
lensku skipafélögin annast flutn-
ingana.
Útilokað er talið að Rainbow
Navigation Inc. geti annað öllum
flutningunum til Varnarliðsins hér,
enda hefur félagið enn ekki nema
eitt skip til flutninganna og óákveð-
ið er hvort það leigir annað skip af
bandarísku sjóferðastofnuninni,
sem á sínum tíma leysti til sín
Rainbow Hope og systurskip þess.
Magnús Ármanii sagðist giska á, að
með þessu eina skipi væri hægt að
sinna tæpum helmingi flutn-
inganna hingað til lands frá Banda-
ríkjunum. Hann lagði áherslu á, að
þar væri um ágiskun sína að ræða.
Áætlað er að Rainbow Hope sigli
milli íslands og Bandaríkjanna á
3—4 vikna fresti.
Ljóst er að með þvl að uppskipun
færist frá Reykjavík til Njarðvíkur
verður Reykjavíkurhöfn af nokkr-
um tekjum — þær færast yfir til
landshafnarinnar í Njarðvík. Ekki
tókst í gær að ná í talsmann
Reykjavíkurhafnar til að leita upp-
lýsinga um af hve miklum tekjum
fyrirtækið gæti orðið vegna þessara
tilflutninga.
Alþingi:
HALLDÓR Blöndal, þingmaður
Sjálf.stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, var í gær kjörinn í
fjárveitinganefnd Alþingis á fundi
sameinaðs Alþingis. Samkvæmt
heimildum Mbl. mun Pálmi Jóns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, taka við formennsku í fjárveit-
inganefnd.
Halldór Blöndal tekur við sæti
Lárusar Jónssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins úr sama kjör-
dæmi, en Lárus hefur sagt af sér
störfum í nefndinni þar sem hann
tekur við starfi bankastjóra Út-
fyrirtæki en Alusuisse.
„Meginviðfangsefni þessa fund-
ar, verður að ræða hækkun á raf-
orkuverði til núverandi verk-
smiðju, stækkun verksmiðjunnar
og hækkun raforkunnar til þess
hluta sem nýr verður," sagði dr.
Gunnar G. Schram, alþingismað-
ur, í samtali við blm. Mbl. er hann
var spurður um samningafund
þann, sem hefst í Zurich nú á
morgun. Gunnar er einn nefnd-
armanna í samninganefnd um
stóriðju. „Við gerum okkur vonir
um að komast nokkuð áleiðis með
samningaviðræður um hækkun
raforkuverðsins á þessum fundi,"
sagði Gunnar.
Gunnar sagði að á fundum sér-
fræðinga, sem haldnir hefðu verið
frá því í febrúarmánuði, hefði ver-
ið farið ýtarlega yfir samkeppnis-
aðstöðu okkar Islendinga varðandi
álbræðslur og sérstakiega hefði
verið litið á raforkuverðið og
flutningskostnað, auk skattamál-
anna. Hann sagði að þar hefði
komið í ljós, eins og vitað hefði
verið fyrir, að Islendingar væru
heldur verr settir en álbræðslur á
meginlandinu og í Bandaríkjun-
um. Hins vegar hefðu aðilar ekki
orðið sammála um hversu mikið
óhagræði væri af staðsetningu ál-
bræðslu á íslandi og sagði hann að
íslenskir sérfræðingar teldu það
minna en sérfræðingar Alusuisse,
þótt ekki bæri mikið á milli.
vegsbanka Islands 1. júní nk.
Lárus gegndi formennsku í fjár-
veitinganefnd og samkvæmt
heimildum Mbl. hefur þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins komið sér
saman um, að Pálmi Jónsson taki
við formennskunni, en hann á sæti
í nefndinni. Varaformaður er nú
Guðmundur Bjarnason, Fram-
sóknarflokki.
Lárus Jónsson mun segja af sér
þingmennsku áður en þing kemur
saman á ný í haust. Varamaður
hans í kjördæminu er Björn
Dagbjartsson matvælafræðingur.
„Fólk búið að fá sig fullsatt
af þessum langa vinnutíma“
— segir Magnús L. Sveinsson formaður VR um laugardagslokun verslana
í framhaldi af samþykkt fjölmenns fundar í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur í fyrradag, þar sem samþykkt var að verslunarmenn vinni ekki
í verslunum á laugardögum í 2‘/í mánuð í sumar, verður að öilum líkindum
gengið frá samkomulagi í dag á milli VR annars vegar og Kaupmannasam-
taka íslands, Vinnuveitendasamands íslands og Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis hinsvegar um lokun verslana á þessum tíma.
Samþykkt VR og væntanlegur sama hætti undanfarin ár og virð-
samningur gildir fyrir félagssvæði
VR sem nær yfir Seltjarnarnes,
Kópavog, Mosfellssveit og Kjós-
arhrepp, auk Reykjavíkur. Versl-
anir í Hafnarfiði og Garðabæ eru
þær einu sem standa fyrir utan
samkomulagið en Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, sagði að
þær væru ekki vandamál því þær
væru ýmist með lokað á laugar-
dögum eða þar afgreitt í gegn um
lúgu. Þessi sumarlokun verslana á
laugardögum hefur verið með
ist full eining á meðal verslunar-
eigenda um að hafa lokað. „Á
þessum fjölmenna fundi okkar í
fyrradag var mikil eining og mik-
ill baráttuvilji. Fólk er búið að fá
sig fullsatt af þessum óheyrilega
langa vinnutíma," sagði Magnús
L. Sveinsson.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna, sagði að full samstaða
væri innan samtakanna um laug-
ardagslokunina enda væri þetta
eingöngu framlenging á fyrra
samkomulagi. Frekar væri að
menn vildu láta laugardagslokun-
ina ná yfir lengri tíma. Magnús
sagði að þetta gilti alls staðar
fyrir starfsfólkið en hugsanlegt
væri að einstaka kaupmenn sem
væru einir, hefðu eitthvað opið,
ómögulegt væri að fygjast með
því. Gísli Blöndal, fulltrúi
framkvæmdastjóra hjá Hagkaup,
sagði að þegar Hagkaup hefði
samið við starfsfólk sitt í haust og
síðar VR hefði verið um það talað
að lokað yrði á laugardögum yfir
sumartímann og við það yrði vit-
anlega staðið. Væru þeir því alveg
sáttir yið ákvörðun VR. Síðan
þyrfti að setjast að samningum í
sumar og ákveða opnunartímann
Halldór Blöndal í
fjárveitinganefnd
Pálmi Jónsson tilnefndur sem formaður