Morgunblaðið - 23.05.1984, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1984
41
LjÓ8m. Mbl. EBB.
Frí blaðamannafundi Tölvufræðslunnar sf. Á myndinni eru talið frá vinstri:
Ellert Ólafsson framkvæmdastjóri, Gylfl Gunnarsson leiðbeinandi, Grímur
Friðgeirsson leiðbeinandi og Kristjín Ingvarsson skólastjóri. Þeir þrír síðast-
nefndu verða leiðbeinendur á námskeiðunum úti á landi í sumar og auk
þeirra Kristín Steinarsdóttir, sem ekki var viðstödd þegar myndin var tekin.
Tölvukennsla á
landsbyggðinni
— Tölvufræðslan sf. efnir til nám-
skeiða á rúmlega 50 stöðum á landinu
TÖLVUFRÆÐSLAN SF. hefur nú gert út tvo námskeiðahópa sem ferðast
munu um allt land í sumar og halda námskeið í undirstöðuatriðum varðandi
tölvur, forritun í BASIC, ritvinnslu og áætlanagerð. Tveir kennarar munu
annast kennslu á hverju námskeiði og alls verður efnt til námskeiða á rösklega
50 stöðum á landinu. Hvert námskeið er 18 kennslustundir og verður kennt á
kvöldin í skólum á viðkomandi stöðum. Námskeiðagjald er 2.500 krónur fyrir
einstakling og eru námsgögn innifalin í gjaldinu.
Þetta kom meðal annars fram á
blaðamannafundi sem Tölvu-
fræðslan sf. boðaði til í síðustu
viku. Fyrirtækið hefur starfað frá
síðustu áramótum og hefur fram
að þessu eingöngu haldið námskeið
í Reykjavík. Nú hyggst það aftur á
móti „koma til móts við þarfir
landsbyggðarmanna, þar sem að-
stöðumunur milli þeirra og hinna
sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa
er afar mikill," eins og forsvars-
menn fyrirtækisins komast að orði.
Á hverju námskeiði verða 10
tölvur til notkunar og er gert ráð
fyrir því að tveir nemendur verði
um hverja tölvu, þannig að þátt-
tökufjöldi er takmarkaður við um
20 manns hverju sinni. Aðspurðir
um kynningu námskeiðanna sögðu
forsvarsmenn Tölvufræðslunnar að
umboðsaðilar væru á hverjum stað
og myndu þeir að nokkru leyti sjá
um kynningu námskeiðanna og
einnig skráningu þátttakenda.
Fyrirtækið hefur skipulagt nokk-
ur unglinganámskeið í sumar í
samstarfi við ýmis æskulýðsfélög
og eru þau námskeið sérstaklega
ætluð unglingum á aldrinum
12—18 ára. Forsvarsmenn fyrir-
tækisins vildu taka það fram að
fatlaðir gætu tekið þátt í nám-
skeiðinu þeim að kostnaðarlausu.
Margvísleg störf sem fatlaðir ættu
gott með að vinna tengdust tölvu-
notkun og fyrirtækið vildi með því
að bjóða þeim ókeypis kennslu,
stuðla að því að þeir ættu auðveld-
ara með að taka þátt í atvinnulíf-
inu. Þá kom fram á blaðamanna-
fundinum að þó að námskeiðin fari
fram á kvöldin, hafi nemendur að-
gang að tölvunum allan daginn og
leiðbeinendur verða á staðnum all-
an daginn þá fjóra daga sem hvert
námskeið stendur yfir.
Símaskráin
1984
Afhending símaskrárinnar 1984 til símnotenda hefst
fimmtudaginn 24. maí.
í Reykjavík veröur símaskráin afgreidd á Póststof-
unni, Pósthússtræti 5, gengiö inn frá Austurstræti, og
póstútibúunum Kleppsvegi 152, Laugavegi 120,
Neshaga 16, Ármúla 25, Arnarbakka 2 og Hraunbæ
102.
Afgreiðslutími mánudaga til föstudaga kl. 9 til 17.
í Hafnarfirði veröur símaskráin afhent á Póst- og
símstööinni, Strandgötu 24.
í Kópavogi veröur símaskráin afhent á Póst- og sím-
stöðinni, Digranesvegi 9.
Varmá í Mosfellssveit veröur símaskráin afhent á
Póst- og símstööinni.
Þeir notendur sem eiga rétt á 10 símaskrám eöa
fleiri, fá skrárnar sendar heim.
Símaskráin verður aöeins afhent gegn afhend-
ingarseölum, sem póstlagðir hafa verið til símnot-
enda.
Athygli skal vakin á því aö símaskráin 1984 gengur í
gildi frá og með föstudeginum 1. júní 1984. Þó gildir
þetta ekki hvað varöar ný 6 stafa símanúmer á Sel-
tjarnarnesi, sem gert haföi veriö ráö fyrir aö kæmi í
gagniö um leiö og símaskráin. Þau veröa ekki tilbúin
fyrr en í lok júní nk. Þangað til gilda gömul símanúm-
er þar, en þaö eru raunar sömu númerin og eru í nýju
skránni aö frátöldum fyrsta staf, sem er 6.
Aö ööru leyti fellur símaskráin 1983 úr gildi frá 1. júni
1984- Póst- og símamálastofnunín.
Húsavík:
Sinfóníu-
hljómsveit-
in vekur
lukku
Húsavík 21. maí.
MESTI listviðburður ársins á Húsa-
vík var í gær, þegar Sinfóníu-
hljómsveit íslands hélt hér tónleika
með Pétur Þorvaldsson sem einleik-
ara og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur
sem einsöngvara, en henni var sér-
staklega vel fagnað.
Efnisskráin fannst mér í
þyngsta lagi, en allir nutu stund-
arinnar vel og þakka gestunum
komuna og vonast eftir þeim sem
fyrst aftur.
Páll P. Pálsson stjórnaði Sin-
fóníuhljómsveitinni. Fréturiuri.
SKÁKSAM BAND
STOFNAB g LAN D S
DRENGJA- OG
TELPN AMEIST ARAMÓT
ÍSLANDS í SKÁK 1984
hefst föstudaginn 25. maí nk. kl. 19 aö Grensásvegi 46.
Mótiö er opið öllum unglingum 14 ára og yngri.
Tefldar veröa 9 umferðir Monrad sem hér segir:
1.—3. umf. föstud. 25. maí kl. 19.
4.—6. umf. laugard. 26. maí kl. 14.
7.—9. umf. sunnud. 27. maí kl. 14.
Skráning á mótsstaö kl. 18.30—19.00 föstudaginn 25.
maí. Þátttökugjald kr. 150.-
Stjórn Skáksambands íslands.
^SÖLUBOÐ
Jarðaber 822 gr
[•jV Tekex 1 200 gr
0 Holtabót 6tegundirkex
EPI ,| Rauð #
RYVIl rji Hrökkbrauð IA 200 gr
jaí\sl. nio Sykur 2 kg
^diK"" j<i Bonner rúsínur 425 gr
...vöruverð í lágmarkí