Morgunblaðið - 24.05.1984, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984
TIL
FORSVARSMANNA
FYRIRTÆKJA.
B-BÓNUSÁ
PJARFESTINCARSJOÐS-
REIKNINCA.
Athygli er vakin á breytingu á lögum um tekju- og eigna-
skatt, sem gekk í gildi 30. mars 1984.
Samkvæmt þeirri breytingu er nú heimilt aö draga 40%
frá skattskyldum tekjum til aö leggja í fjárfestingarsjóö.
Pessi frádráttur er bundinn því skilyrði, aö skattaðili leggi
a.m.k. 50% fjárfestingarsjóöstiIlagsins inn á verðtn/ggðan,
bundinn reiknrq, fyrir 1.júlí. og eigi síöar en fimm
mánuðum eftir. ak reikningsárs.
Við minnum sérstaklega á í þessu sambandi, aö viö
BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINUM OKKARIB - BÓNUS Á ALLA
BUNDNA SEX MÁNAÐA REIKNINGA. IB-bónusinn er reiknað-
ur tvisvar á ári, íjúlíog janúar. Bónusinn er nú 1.5% p.a. sem
leggst sjálfkrafa auk vaxta viö innstæöu sem hefur veriö án
úttektar.
Ef fjárfestingarsjóöstillag er lagt inn í lönaöarbankann
fyrir 1. júlí, n.k. reiknast ÍB-bónus auk vaxta, af innstæðunni
1. júlí og aftur 1. janúar, hafi ekki verið tekiö út af reikn-
ingnumátímabilinu.
Rétt er aö geta þess, aö þegar slíkur reikningur er
opnaður þarf að taka sérstaklega fram viö starfsfólk
bankans, aö um fjárfestingarsjóðsreikning sé aö ræöa.
Bankinn birtir þessa auglýsingu til þess aö forsvarsmenn
fýrirtækja geti íhugað þessi mál í tíma og væntir þess aö
geta átt gagnkvæm viðskipti við sem flesta í þessu
sambandi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í bankanum.
Iðnaðarbankinn
Fer eigin leiðir - fyrir sparendur
Séra Friðrik Friðriksson við styttuna af sér og drengnum í Lækjargötu,
en kl. 17:30 á föstudag verður Biblíuhátíð við styttuna í vegum KFUM
og KFUK.
Reykjavík:
Biblíuhátíð við
styttu sr. Friðriks
SÉRSTÖK útisamkoma verður
í Lækjargötu í Reykjavík á
morgun, föstudag 25. maí, við
styttuna af séra Friðriki Frið-
rikssyni stofnanda KFUM á
íslandi. Þar mun lúðrasveit
leika og flutt verða ávörp.
Útisamkoma þessi, sem er
eins konar Biblíuhátíð, er ha-
ldin í tilefni Biblíuárs, en í ár
eru liðin 400 ár frá útkomu
Guðbrandsbiblíu. Að hátíðinni
standa KFUM og KFUK í
tengja Biblíuárið á þennan hátt
við minningu séra Friðriks.
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur á samkomunni sem hefst
klukkan 17:30 og munu bðrn í
KFUM og KFUK ganga fylktu
liði frá húsi félaganna við
Amtmannsstíg rétt áður en
samkoman hefst. Munu þau
raða sér í brekkuna kringum
styttuna og halda á spjöldum
með ýmsum áletrunum, m.a.
nöfnum á ritum Biblíunnar.
Davíð Oddsson borgarstjóri
flytur ávarp og Kristín Möller,
Sigurður Pálsson og Hermann
Þorsteinsson, framkvæmd-
astjóri Hins ísl. biblíufélags,
sem öll muna séra Friðrik,
munu einnig flytja ávörp. Þá
verða sungin lög við texta séra
Friðriks, en eftir hann liggja
fjölmörg kvæði og sálmar sem
notuð hafa verið á fundum og
samkomum félaganna.
fire$tone
Tmktorsgmfur þurfa hörku
hjólbaróa "
Og Firestone ATU er HÖRKU
hjólbarði.
Sérstaklega styrktur fyrir mikið álag.
Aukið akstursgrip fyrir verk utan vega.
Þýðari akstur sem minnkar högg og titring.
Breiðari spyrnur sem gefa 58% meiri endingu.
Mynstur sem hreinsar sig sjálft.
Þeir sem gera kröfur um öryggi og mikla
endingu nota Firestone.
9.00-16 10 strigal. kr. 8.382
10.50/80 -18 10 strigal. kr. 7.813
12.0/12.50-18 10 strigal. kr. 9.547
16.9/14-28 8 strigal. kr. 20.457
18.4/15-28 12 strigal. kr. 37.067
16.9/14-30 10 strigal. kr. 23.724
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600