Morgunblaðið - 24.05.1984, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
26
Punktar frá
Akurevrar
Akureyri, 23. maí.
Minigolfið saltað
Eitt af „stóru" málunum,
sem hafa verið að vefjast fyrir
bæjarstjórn Akureyrar var
saltað á fundi í gær. Er hér um
að ræða umsókn Hreiðars
Jónssonar um að fá að reisa og
reka í eitt ár minigolf á lóð
sundlaugarinnar. Málið var bú-
ið að koma tvívegis til með-
ferðar í bæjarstjórn og jafnoft
vísað aftur til bæjarráðs. Bæj-
arráð ályktaði loks, að „þar
sem ýmsar athugasemdir hafa
komið fram við það að hleypa
aðila með rekstur inn á lóð
Sundlaugar Akureyrar, getur
bæjarráð ekki lagt til að það
verði leyft“.
Erling fær
600 þúsund
Bæjarstjórn samþykkti á
fundi sínum í gær, að veita
Erling Aðalsteinssyni, Oddeyr-
argötu 23, lán úr Fram-
kvæmdasjóði að upphæð sam-
tals kr. 600 þúsund til kaupa á
fyrirtækinu G.A. Pálsson í
Reykjavík. Erling hyggst flytja
fyrirtækið til Akureyrar. Lán
þetta verður afborgunarlaust í
tvö ár, en endurgreiðist síðan á
þrem árum. Lánið er bundið
lánskjaravísitölu.
Hagnaöur af
Krossanesi
f reikningum Síldarverk-
smiðjunnar í Krossanesi kem-
ur fram, að niðurstöðutölur á
rekstrarreikningi fyrir árið
1983 eru kr. 81.894.159,90 og að
rekstrarhagnaður á árinu var
kr. 2.293.980,59. Niðurstöðutöl-
ur á efnahagsreikningi eru kr.
75.564.428,72 og eigið fé 31. des.
1983 nemur kr. 62.934.679,86.
Bæjarráð lagði til við bæjar-
stjórn að verksmiðjan greiddi
framvegis arð af eigin fé og
lagði til að vegna ársins 1983
næmi arðurinn 5% af eigin fé,
eða kr. 3.146.734,-. Að tillögu
Helga Bergs, bæjarstjóra, var
æssari tillögu bæjarráðs vísað
aftur til ráðsins til nánari um-
fjöllunar, með hliðsjón af
fyrirhuguðum fjárfestingum
verksmiðjunnar.
Pylsuvagn við
sundlaug
Þrátt fyrir ályktun bæjar-
ráðs um að veita ekki „aðilum
með rekstur inn á lóð Sund-
laugar Akureyrar" (sjá fram-
ar) samþykkti hið sama ráð að
veita Hinrik Þórhallssyni og
Ernu Norðdahl leyfi til rekstr-
ar pylsuvagns á svæðinu, eða
eins og segir í bókun ráðsins:
„Bæjarráð leggur til að vagn-
inn verði staðsettur við sund-
laug og tjaldsvæði yfir sumar-
mánuðina með opnunartíma til
kl. 23.30 á kvöldin, en heimilt
skal að flytja vagninn á mið-
bæjarsvæðið um helgar.“
Srunavöröur
ráðinn
Sjö umsækjendur voru um
laust starf brunavarðar og vís-
aði bæjarráð ráðningu í það
starf til bæjarstjórnar. Sex
bæjarfulltrúar samþykktu að
ráða Guðmund Karl Halldórs-
son, Smárahlíð 16c, til starf-
ans, en fimm þeirra vildu ráða
Vilhelm Jónsson, Bæjarsíðu íl.
Guðmundur Karl er því orðinn
brunavörður á Akureyri.
GBerg
Þessi mæðgin, Smári Ríkarðsson og Selma Hannesdóttir, útskrifuðust
saman frá MH. Selma var á nýmálabraut í öldungadeildinni og Smári
sonur hennar á náttúrufræðibraut í dagskólanum. Þess má til gamans
geta að Selma lauk sínu námi á þremur og hálfu ári. Ljósmyndina tók
Olafur K. Magnússon að útskriftinni lokinni.
MH brautskrá-
ir 136 stúdenta
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð brautskráði frá skólanum 136
stúdenta síðastliðinn laugardag. Skólaslit fóru fram í hátíðarsal skólans,
þar sem flutt voru ávörp og veittar viðurkenningar, auk þess sem 10 ára
stúdentar færðu skólanum gjafir.
Meðal þeirra sem voru við- Indriðadóttir hiutu einnig viður-
staddir skólaslitin í MH voru kenningu fyrir góðan náms-
fulltrúar stúdenta sem útskrif- árangur og margar námsein-
uðust fyrir 10 árum og færðu ingar. Til stúdentsprófs er 132
þeir skólanum gjafir, málverk af eininga krafist en Haraldur, sem
Guðmundi Arnlaugssyni fyrr- var á eðlisfræðibraut, nýmála-
verandi rektor skólans og Helga- braut og náttúrufræðibraut, út-
staðabók. skrifaðist með 190 námseiningar
og Júlíanna Rún sem útskrifað-
Þeir nemendur sem hlutu við- ist frá eðlisfræðibraut hlaut 180
urkenningu fyrir sérstaklega einingar.
góðan námsárangur voru Finnur Alls voru brautskráðir 136
Lárusson sem útskrifaðist frá stúdentar frá dag- og kvöldskóla.
eðlisfræðibraut og Nanna Lúth- Frá náttúrufræðibraut var 41
ersson sem útskrifaðist frá nátt- brautskráður, frá nýmálabraut
úrufræðibraut. Þau hlutu hæstu 36, félagsfræðibraut 35, eðlis-
meðaleinkunn. Þess má geta að fræðibraut 14, og tveir nemend-
Finnur, sem er aðeins 17 ára og ur voru brautskráðir frá tónlist-
lauk námi sínu á þremur og ardeild. Þá voru átta stúdentar
hálfu ári, verður einn af full- brautskráðir frá fleiri en einni
trúum íslands í ólympíukeppni í námsbraut. Fjórir frá náttúru-
eðlisfræði sem haldin verður í fræði- og eðlisfræðibraut, tveir
Svíþjóð í síðari hluta júnímán- frá nýmála- og tónlistarbraut,
aðar. Nanna Lúthersson er 18 einn frá náttúrufræði- og ný-
ára og var hún aðeins tvö og málabraut og einn frá eðlis-
hálft ár í skólanum. Haraldur fræði- nýmála- og náttúrufræði-
Ólafsson og Júlíanna Rún braut.
Stúdentahópurinn samankominn í hátíðarsal skólans.
Pétur Jónasson,
gítarleikari:
Fékk góða
dóma í
Skotlandi
PÉTUR Jónasson, gítarleikari, var
nýlega á tónleikaferðalagi um Lux-
emborg, Genf og Edinborg. í Edin-
borg hélt Pétur tónleika í Queen’s
Hall í boði Klassíska gítarfélagsins í
Edinborg og hafa Morgunblaðinu
borist úrklippur úr tveimur skoskum
blöðum þar sem farið er lofsamleg-
um orðum um frammistöðu hans.
Tónlistargagnrýnandi Glasgow
Herald segir meðal annars í grein
sinni um tónleikana að Pétur hafi
tæknilega náð fullkomnu valdi á
hljóðfæri sínu og að leikur hans sé
hreinn og jafn. Taldi gagnrýnand-
inn það fjarlægan möguleika að
þjóð með einungis 200 þúsund íbúa
gæti eignast svona góðan gítar-
leikara.
Tónlistargagnrýnandi The
Scotsman segir að látlaus og hæ-
versk framkoma Péturs hafi ein-
ungis verið sem umgjörð um ákaf-
lega heillega túlkun hans á verk-
unum sem hann flutti.
Báðir ljúka gagnrýnendurnir
lofsorði á túlkun hans á Folias de
Espana eftir Ponce og segja hana
hafa verið kraftmikla.
Á hljómleikunum í Queen’s Hall
spilaði Hafliði Hallgrímsson,
sellóleikari, með Pétri í einu
verkinu og einnig frumflutti Pétur
verkið Five guitar studies for Jac-
HlASGUW MEHALO fntfy May 4
VORLD NEWSi
Queen’s Hall,
EdinbUrgh
DAVID JOHNSON
Petur Jonasson
PETUR JONASSON Is • young
lcelandic gutuiist wlih a rtsing1
miematlonal repulallon Last nlghl
he played ai Ihe Queen's Hall In
Edmburgh as the guesl ot the
Clavsical Guiur Sodety m a mlxed .
programme of andent and madem 4
-orks ' ’
Technlcally. Jonasson Is a masier 1
of his Insirumeni. (The statlstlcal I
chances ol Iceland, with a I
populalion o( only 200.000, producing I
THE SCOTSMAN Saturday. May 5. 1984 HOIVIE NEWS
mmmm THE ARTS i i —b—k——■
Queen’s Hall: guitar recital
burgh has (ew rivals when It
comcs to dcntlng the old iinage
of "east w(ody and west endy."
Set Lhe audíence lengtbways,
rainbow fashloo In the resUur-
ant. put tho períormer on a daia
with hls back to the centre o(
tho bar (of courae conflnlng the
usa of bottlea aod glasaes to the
Intorval) and the ambleoco Is
rlght for a reclUI on that
relazed and relaxlng Instru-
ment, the guiUr, not devold of
emotion but recollecting It In
tranqulUty.
On Thursday evenlng. under
the , auaplces of U>e aasaical
GulUr Soclety of Edinburgh,
the performer was the young
Icelandlc player Petur Jonassoo
whose quiet, unassummg man-
ner was merely the facadc for
Uie abaorblng integrlly of hla
InterpreUUon.
J. S. Bach’a Lute Sulte In E
Minor and elght of Maouel
Ponce’a vlrtuooic vartatlona oo
Folias de Espana were
Ueated wlth an approprlate
aenso of style and ao lmpecc-
able endlng. Three of WlUlam
Walton’a flve bagatelles were
primo examples of the com-
poaer a qulrky wlt and ebulUent
energy of aplrlt.
In Uie course of tbe evenlng
Petur Jonasson had had the
two-fold ro-nneration of HaflMi
Hallgrimsaon aa cell
compoaer. Hia Fii
studies Jor Jacob'
may have Uluslrated
cal story, but o( mo
consequence waa the
of their design and «
thought witb a plcasa
Uty wbicb did not go
way (o joln Uie avant
Hls name ls as
famllLar to us as a pe
cbamber mualc, and I
aense of balaoce was
io a transcripMon of s
Telcmann whícb was
scored for vioU da |
basso continuo
Owvirt G
Umsagnirnar um hljómleika Péturs í Edinborg.
Pétur Jónasson, gítarleikari
ob’s Ladder eftir Hafliða og sagði
gagnrýndandi Glasgow Herald að
flutningur þess hefði verið há-
punktur kvöldsins.
Pétur og Hafliði halda tónleika
á Listahátíð í júní og verður efn-
isskráin svipuð og i Edinborg.
Verður það íslenskum tónlistar-
unnendum áreiðanlega kærkomið
að fá að hlýða á þá spila saman.
Dregið í afmœlisgetraun Heklu hf\
í sambandi við 50 ára afmælishátíð Heklu hf. 5. og 6. maí, sem sótt var af 10.000 gestum, var efnt til verðlaunaget-
raunar, og hafa nú verið dregnir út vinningar úr réttum lausnum. 1. vinning, far með Flugleiðum til London fyrir tvo,
hlant Ólafur E. Ólafsson í Þorlákshöfn. 2. vinning, 4 sumarhjólbarða, hlaut Guðný Sveinsdóttir, Reykjavík, og 3.
vinning, Kenwood-hrærivél, hlaut Karl J. Karlsson, Reykjavík. Á myndinni eru vinningshafar ásamt fulltrúum Heklu
hf. (Fróltatjlkynning.)