Morgunblaðið - 21.07.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1984
3
Sjö tilboð í botn-
rás Blöndustíflu
TILBOÐ í GERÐ botnrásar í Blöndustíflu, það er að sprengja skurð og
steypa botnrás og lokuvirki, voru opnuð hjá Landsvirkjun í gær.
I frétt frá Landsvirkjun segir, að sjö tilboð hafi borist í verkið og að
auki eitt frávikstilboð. Tilboðin voru:
1. Arnardalur sf., Kópav., og Óli óskarsson, Garðabæ, 55,0 millj. kr.
2. Hvítserkur hf., Blönduósi, 55,4 millj. kr.
3. ístak, Reykjavík, 57,7 millj. kr.
4. Norðurverk hf., Akureyri, 59,3 millj. kr.
5. Hagvirki hf., Hafnarfirði (frávikstilboð), 59,7 millj. kr.
6. Ellert Skúlason hf. og Krafttak sf., Njarðvík, 59,9 millj. kr.
7. Hagvirki hf., Hafnarfirði, 61,7 millj. kr.
8. Loftorka sf., Reykjavík, 62,0 millj. kr.
Kostnaðaráætlun ráðunauta var 65,1 milljón.
í frétt Landsvirkjunar segir: „Tilboðin verða nú könnuð nánar með
tilliti til útboðsgagna og borin endanlega saman. Að því búnu mun
stjórn Landsvirkjunar taka afstöðu til þeirra og skýra frá niðurstöðum
sínum í því efni.“
Baldur Möller um mál Miroslavs Balys:
Hvaða yfirvald
bannaði framsal?
„VIÐ ERUM engan veginn horfnir
frá því að sækja Baly til saka fyrir
afbrot hans hér á landi, en hann er
a.m.k. um sinn allvel geymdur,“
sagði Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, er
blm. Mbl. spurði hann að því hvort
íslensk yfirvöld hygðust falla frá
ákærum á hendur Baly í kjölfar
dómsúrskurðar í V-Þýskalandi í vik-
unni, þar sem hann var dæmdur í
árs fangelsi fyrir stuld á erni úr
dýragarði.
Baldur sagði málið enn vera
fyrir dómi hér heima og niður-
staða yrði vart ljós fyrr en með
haustinu. Um leið og hún lægi
fyrir myndu menn hugsa sér til
hreyfings í málinu. Það væri hins
vegar alfarið mál Þjóðverjanna
hvort þeir teldu sér fært að dæma
í þessu úti. Þeim ráðuneytis-
mönnum þætti liggja ljóst fyrir,
að islenski dómurinn yrði ekki
framkvæmanlegur þar.
„Við settum strax í gang
skýrslutöku í tengslum við brott-
för Balys héðan þegar skipstjór-
inn á Elizu Heeren kom aftur til
landsins," sagði Baldur ennfrem-
ur. „Hvort staðreyndir málsins
koma í ljós við þá yfirheyrslu er
ekki gott að segja til um. En víst
er að okkur leikur forvitni á að
vita hvaða yfirvald það var, sem
bannaði skipstjóranum að fram-
selja Baly.“
Sviku tæplega 1,4
millj. úr bókunum
Annar mannanna í gæsluvarðhaldi játar, en hinn neitar
ANNAR mannanna, sem verið hefur
í gæsluvarðhaldi vegna hvarfs
bankabókanna frá skiptaráðanda
borgarfógetaembættisins í Reykja-
vík, hefur nú að sögn Erlu Jónsdótt-
ur, deildarstjóra hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, játað aðild sína að
stuldi bókanna í félagi við hinn sem
er í haldi. Umræddur maður var
lausráðinn starfsmaður embættisins.
Hinn maðurinn, sem er í gæslu-
varðhaldi vegna máls þessa, hefur
staðfastlega neitað aðild sinni að
þjófnaðinum. Hefur hann ekki
fengist til að játa þrátt fyrir að nú
liggi fyrir framburður þriðja að-
ila, sem hefur viðurkennt að hafa
að beiðni hinna tveggja annast út-
fyllingu á hluta þeirra úttektar-
seðla, sem notaðir voru.
Að sögn Erlu tókst mönnunum
að ná alls 1 milljón og 395 þúsund-
um út úr bókunum. Tekið var
oftar en einu sinni út úr a.m.k.
tveimur bókum, en úttektirnar
voru 9 alls. Sagði Erla rannsókn
málsins vera komna á góðan
rekspöl.
Saltfiskuppskipun
gengur vel í Portúgal
UPPSKIPUN á saltfiski héðan geng-
ur nú mjög vel í Portúgal eftir tals-
verðar tafir, sem á henni urðu. Upp-
skipun úr einu skipi er þegar lokið,
unnið er að losun annars og uppskip-
un úr því þriðja hefst eftir heígina.
Friðrik Pálsson, framkvæmda-
stjóri SÍF, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að losun úr Kefla-
vík, sem fór héðan 22. júní síðast-
liðinn, hefði lokið á fimmtudag.
Aðeins hefði tekið fjóra daga að
losa 1.530 lestir úr skipinu í tveim-
ur höfnum. Verið væri að losa úr
Vesturlandi, skipað yrði upp úr
Eldvíkinni eftir helgina og um
þessar mundir væri Suðurland að
lesta hér síðustu lestirnar af
framleiðslu vetrarvertíðarinnar.
Afskipanir hefðu því gengið
óvenju hratt á þessu ári.
Hvað varðaði 12% tollinn marg-
umtalaða væri það að segja, að
ríkisstjórn Portúgals hefði það
mál til umfjöllunar. Gagnasöfnun
væri í gangi og hann tryði því, að
viðskiptaráðherra Portúgals, Bar-
eto, tækist að leysa það mál innan
30 daga frá því hann fór héðan af
landi eins og hann hefði nefnt.
Viðræður Baretos og Matthías-
ar Á. Mathiesen hefðu augljóslega
treyst viðskiptasambönd land-
anna, en í Portúgal ættum við nú
undir högg að sækja í samkeppni
við aðrar þjóðir. Þess vegna væri
enn brýnna en nokkru sinni fyrr,
að íslendingar myndu eftir Portú-
gal í innflutningi sínum.
Mford »ford
ESCORT JSIERRA
Þaö er stóra spurningin. Hverjir
hreppa 14 glæsilega Ford bíla þann
14. ágúst þegar dregiö veröur. Meö
því aö kaupa miðann sem þú hefur
fengiö sendan heim, styöur þú
æskufólk okkar á Olympíuleikunum
í Los Angeles, og hefur um leið
möguleika á að hreppa einn af
bílunumfjórtán.
Verömæti vinninga 4,7 millj. króna
VINNINCSVON ÞÍN - VON
ÞJÚÐARINNAR UM __
VERÐLAUN i LOS ANGELES
StuöningurviáseslaifóRtoldiarí Ias Angcks
HAPPDRÆTTI
ÓLYMPÍUNEFNDAR ÍSLANDS