Morgunblaðið - 21.07.1984, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1984
amikilir í gæðingakeppninni
i og þriðja og fimmta hest í A-flokki
selflutti skipanir þuiar til kepp-
enda því beina þurfti þeim fáu há-
tölurum sem til staðar voru til
áhorfenda og þar með heyrðist lít-
ið eða ekkert út á hringvöllinn.
Margir mótsgestir kvörtuðu und-
an veitingasölunni. Aðalumkvört-
unarefni litill matur og lokað
snemma á kvöldin. Má í þessu
sambandi benda á að veitingasala
getur verið góð tekjulind og oft því
betri sem meira er í hana lagt.
Upplýsingastreymi til mótsgesta
var lélegt og kemur þar aftur til
sögunnar hátalarakerfið sem einn
aðalsökudólgur en þar fyrir utan
hefði ekki verið vanþörf á að
hengja úrslit upp á fleiri stöðum
en gert var og að skaðlausu hefðu
þau mátt vera fyrr á ferðinni.
Mótsskráin seldist upp á meðan
mótið stóð yfir og velti maður því
fyrir sér hvort ástæðan hafi verið
óvenju góð sala eða þá hitt hvort
prentað hafi verið óvenju litið
upplag. Bf tillit er tekið til inni-
halds, útlits og upplýsinga sem
skráin hafði að geyma hallast
maður heldur að seinni kostinum
það er að upplagið hafi verið
óvenju lítið. Besta mótsskrá sem
gefin hefur verið út fram að þessu
var skráin á Melgerðismelum i
fyrra og virtist manni sem allt
kapp hefði verið lagt á að þessi
skrá yrði sem ólíkust henni. Það
er nokkuð algengt orðið að fæð-
ingarstað gæðinga og hesta í ungl-
ingakeppni vanti i mótsskrár,
virðist nú orðið skipta meira máli
hvar móðir keppnishests er fædd
heldur en hvar hesturinn sjálfur
er fæddur. Ættartala hrossanna í
skránni eins og hún var sett upp
er úrelt. Á bæði Hornafirði og eins
Melgerðismelum var uppsetning
mjög lík og i ættbók Búnaðarfé-
lagsins. Væri ekki vanþörf á að
taka fyrir á næsta ársþingi LH
stöðlun á gerð og efni mótsskráa á
fjórðungs- og landsmót þannig að
tryggt sé að mótsgestir fái velunn-
ar og aðgengilegar upplýsingar.
Og þá er komið að því sem já-
kvætt getur talist, en þar ber hæst
mótsstaðinn sjálfan, Kaldármela.
Aöstaðan frá náttúrunnar hendi
er mjög góð og mannshöndin hef-
ur einnig lagt gjörva hönd á plóg.
Áhorfendabrekkan er annáluð
fyrir fegurð og notalegheit og má
fullyrða að hún eigi engan sinn
lika. Hinsvegar mætti gjarnan
færa hringvöllinn að áhorfenda-
brekkunni þvi hann er fulllangt
frá eins og nú háttar til. Auk þess
sem núverandi hringvöllur er alls
FjórÖungsmótið
Kaldármelum
II grein
Náttúrufegurð i Kaldirmelum er mikil og stórbrotin eins og sji mi. Hin margrómaða ihorfendabrekka í hraunjaðrinum og Fagraskógafjall gnæfir yfir.
Valdimar Kristinsson
„Margt fer öðruvísi en ætlað er“
eru orð sem oft komu upp í huga
manns i nýafstöðnu fjórðungsmóti i
Kaldirmelum. Mi segja að orð þessi
hafi klingt í huga manns alla móts-
dagana. Því miður voru það frekar
neikvæðir hlutir sem komu manni i
óvart beldur en hitt.
Allt frá því er undirritaður hóf
að fylgjast með hestamótum fyrir
alvöru árið 1979 hafa átt sér stað
stórstígar og stöðugar framfarir í
mótahaldi og sú aðstaða sem boðið
hefur verið upp á farið sífellt
batnandi. Hefur verið ánægjulegt
að fylgjast með þessari framþróun
mótahaldsins jafnframt því sem
hrossin hafa farið sifellt batnandi
ár frá ári. Eftir að hafa fylgst með
vel heppnuðu fjórðungsmóti á
Hornafirði fyrir skömmu átti
Hópreiðar setja ivallt mikinn svip i hestamótin. Hér sjist forreiðarmennirnir Skúli í Svignaskarði með þjóðfinann,
til hliðar við hann mi þekkja Guðrúnu Fjeldsted, Högna Bærings og Ólaf Kristjinsson framkvæmdastjora mótsins.
Hestar
Sigurvegari í A-flokki gæðinga, Gustur, og Ragnar Hinriksson Viljahryssan Dúkka fri Borgum sigurvegari í B-fiokki og Dugur bróðir Dúkku veitti henni harða keppni og hafnaði í
i flugskeiði. knapinn er Hróðmar Bjarnason. öðru sæti, knapi i honum er Svavar Jensson.
maður satt best að segja von á enn
betra móti á Vesturlandi þar sem
Vestlendingar teljast hafa meiri
reynslu i stórmótahaldi auk þess
sem þeir af landfræöilegum orsök-
um hafa margfalt betri aðstæður
til að fylgjast með nýjungum en
Hornfirðingar. Það hefur ekki
verið stefna undirritaðs að vera
með niðurrifsstarfsemi í umfjöll-
un um hestamót heldur hefur ver-
ið reynt að benda á hluti sem bet-
ur hefðu mátt fara og þeir sem
hlut hafa átt að máli ekki þurft að
taka ábendingarnar sem persónu-
legar árásir, enda vonandi að slíkt
heyri fortíðinni til.
Framkvæmd mótsins —
aðstaða á mótsstað
Strax á fimmtudag fékk maður
forsmekkinn að því sem koma
skyldi, en það er að dagskrá færi
úr böndunum. öfugt við sambæri-
leg mót hófust dómstörf ekki fyrr
en á hádegi og var það óþarfa
fyrirhyggjuleysi hjá skipuleggjur-
um því dagskrá fór úr skorðum og
fresta þurfti fyrirfram auglýstri
töltkeppni sem vera átti um kvöld-
ið. Gæðingakeppnin hófst tveim
eða þrem stundarfjórðungum of
seint, vantaði víst ritara og tölvur
og jafnvel stóla fyrir ritara og
dómara. En ekki var nú allt búið
enn því þegar lokið var við að
dæma nokkra hesta kom einn
hestur inn í hringinn þar sem
dómurum fannst eitthvað athuga-
vert við fótabúnað. Var farið að
kanna málin og kom í ljós að
gleymst hafði að gera ráð fyrir
fótskoðunarmanni. Var nú málun-
um kippt í lag með því að kalla til
einn áhorfanda sem síðan sinnti
því starfi báða dagana sem gæð-
ingar voru dæmdir. Hátalarakerfi
mótsins brást svo að segja full-
komlega. Þegar gæðingar fóru í
úrslit á sunnudag þurfti að hafa
mann með gjallarhorn sem síðan
ekki nógu góður, bæði hæðóttur og
holóttur. Mikill kostur er að hafa
þennan góða flugvöll sem þarna er
á mótssvæðinu og kom hann í góð-
ar þarfir þegar átján ára gömul
stúlka datt af baki og slasaðist al-
varlega á föstudagskvöldið. Hins-
vegar þótti þyrlumönnum frá
sjónvarpinu, sem reyndar eru
ávallt velkomnir á öll hestamót,
hann greinilega óboðlegur og kusu
þeir heldur að lenda á miðjum
hringvellinum þegar Þorkell ráðu-