Morgunblaðið - 04.09.1984, Side 2

Morgunblaðið - 04.09.1984, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984 Flugleidir kaupa enn hlutabréf í Arnarflugi: Eiga nú 43,7 % hlut í Arn- arflugi FLUGLEIÐIR hafa ákveö- ið að nýta sér forkaupsrétt sinn aö hlutabréfum þeim sem óseld voru hjá Arnar- flugi eftir aö allir þeir sem vildu nýta forkaupsrétt sinn þegar hlutafé félags- ins var aukið í sumar, höfðu gert það. Eftir það voru tæp 10% hlutabréfaaukningarinnar eftir, og höfðu hluthafar þá frest til 7. þessa mánaðar til þess að ákveða hvort þeir nýttu sér rétt sinn til hluta bréfanna sem eftir voru. Flugleiðir hafa rétt á að kaupa 40% þeirra hluta- bréfa sem eftir eru, en fyrir á félagið 40% í Arnarflugi. Með því að nýta sér þennan rétt sinn, eignast Flugleiðir 3,7% af þeim tæpu 10% sem óseld voru, þannig að Flugleiðir munu eiga 43,7% hlut í Arnarflugi nú eftir 7. september. Volkswagen-bifreiðin gjöreyðilagðist í irekstrinum og jeppinn skemmdist mikið. Bræður létust í umferðar- slysi á Vesturlandsvegi BRÆÐUR, Ólafur og Páll Geirssynir létust í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi skammt fyrir austan Nesti um klukkan 14.30 á sunnu- dag. Bræðurnir óku Volks- wagen-bifreið sinni austur Vesturlandsveg þegar öku- maður jeppabifreiðar missti Tillögur fyrir stjómarflokkunum: Bændum staðgreitt fyrir afurðir TILLÖGUR hafa verið samdar á vegum stjórnarflokkanna um að breyta verðlagskerfi landbúnaðar- ins á þann veg, að bændum sé stað- greitt fyrir afurðir sínar, en vinnslustöðvar og afurðasölur lúti almennri verðlagslöggjöf. Þá er einnig sett það mark, að ekki þurfi að greiða útflutn- ingsbætur á mjólkurafurðir eftir tvö ár og sauðfjárafurðir eftir fjögur til fimm ár. Þetta kom fram hjá Þorsteini Pálssyni, formanni Sjálfstæðis- flokksins, á fundi á Selfossi i gærkvöldi, en hann sagði að þess- ar tillögur hefðu ekki verið af- greiddar í þingflokkum ríkis- stjórnarinnar. Tillögur formanna stjórnar- flokkanna voru til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og á þingflokkafundum þeirra í gær. Þá fór og fram umfjöllun um forsendur fjárlagagerðar fyrir árið 1985. Umfjöllun verður haldið áfram í ríkisstjórn árdeg- is og f þingflokkunum eftir há- degið og verður jafnvel haldið áfram á morgun, miðvikudag, ef nauðsyn krefur. stjórn á bifreið sinni meö þeim afleiðingum að hún fór yfír á öfugan vegarhelming og lenti á Volkswagen-bif- reiðinni. Þeir Ólafur og Páll munu hafa látist samstundis. Jeppabifreiðin valt og voru ökumaður og farþegi fluttir í slysadeild Borgarspítalans. Ökumaðurinn mun hafa fengið taugaáfall en fékk að yfirgefa sjúkrahúsið á sunnudagskvöldið og farþeginn fór af slysadeild- inni í gær. Tildrög slyssins eru þau, að jeppanum og Saab-bifreið var ekið vestur Vesturlandsveg. Ökumaður Saab-bifreiðarinnar hugðist fara framúr jeppanum en ekki tókst betur til en svo, að vinstra framhorn bifreiðarinnar lenti á hægra framhorni jepp- ans. Ökumaður jeppans missti við þetta stjórn á bifreið sinni, sveigði yfir á öfugan vegarhelm- ing og skall á Volkswagen-bif- reiðinni með þeim hörmulegu afleiðingum að bræðurnir lét- ust. Ólafur Geirsson var 72 ára gamall, fæddur 21. október 1911. Páll Geirsson var 53 ára gamall, fæddur 21. nóvember 1930. Báðir voru þeir ókvæntir. Þeir voru til heimilis að Hamrahlíð 31. Tvítugur piltur lést TVÍTUGUR piltur, Hannes Gunn- ar Einarsson til heimilis að Iðunn- arstöðum í Lundareykjadal, lést þegar bifreið sem hann ók valt á þjóðveginum skammt frá Iðunn- arstöðum um klukkan 17.30 á laugardag. Hannes heitinn var fæddur 29. ágúst 1964. Hann læt- ur eftir sig unnustu. Hannes ók Volkswagen-bif- reið án yfirbyggingar en með veltigrind. Félagi hans var með í bifreiðinni þegar slysið átti sér stað. Báðir köstuðust þeir úr bif- reiðinni þegar hún valt, en far- þeginn slapp án meiðsla. Hann- es Gunnar var látinn þegar komið var hús. með hann i sjúkra- Róttækar breytingar á sjóðakerfi: Þrír fjárfestingalána- sjóðir atvinnuveganna Framkvæmdastofnun ríkisins lögð niður FJÁRFEf?TINGASJÓÐIR atvinnu- veganna verða framvegis þrír og geta lánað til hverra þeirra verk- efna, sem lánhæf eru talin, nái til- lögur um breytingu á sjóðakerfinu, sem nú liggja fyrir þingflokkum Seyðisfjörður: Tveir menn töldu sig sjá dvergkafbát eða sjávarfar „Ég var staddur ásamt Aðalbirni Haraldssyni á Engros-bryggju þeg- ar okkur varð litið út á fjörðinn og sáum torkennilegan hlut skammt frá flakinu af El Grillo. Hluturinn gaf fri sér Ijósbrot og hæðin yfir sjávarfleti var um l'/i metri og myndaði strýtu sem leið út til beggja enda,“ sagði Ágúst Sigur- björnsson, útgerðarmaður á Seyð- isfirði, í samtali við blm. Mbl., en hlutinn sáu þeir félagar um tíuleyt- ið á laugardagsmorguninn. „Við horfðum forviða á þetta dágóða stund. Aðalbjörn skaust niður í bátinn til þess að sækja sjónauka og ég sótti minn í bif- reið mína. Þegar við komum til baka nokkrum augnablikum síð- ar var hluturinn horfinn og ekki gára á haffletinum. Við leiddum hugann að því hvað þetta kynni að hafa verið. Aðalbjörn taldi helst að um dvergkafbát hefði verið að ræða. Þetta gat ekki hafa verið missýn. Við horfðum á þetta í 2 til 3 mínútur í mjög góðu skyggni. Ef þetta hefði ver- ið skepna þá hlytu gárur að hafa sést á haffletinum. Ég held að þetta hafi verið sjávarfar,” sagði Ágúst Sigurbjörnsson. Þeir félagar gáfu lögreglunni á Seyðisfirði þegar í stað skýrslu um atburðinn og var Landhelg- isgæzlunni tilkynnt um atburð- inn um hálftólf á laugardag. „Ég sá tilkynningu á sunnu- dagsmorguninn um að torkenni- legur hlutur hefði sést á Seyðis- firði. Þá var um sólarhringur liðinn frá atburðinum. Við höfð- um ekkert skip nærri, minnst sólarhrings sigling var á stað- inn. Og ekki dugði að senda flugvél yfir. Allar segulmæl- ingar hljóta að hafa brenglast vegna flaksins af E1 Grillo," sagði Sigurður Árnason, skip- herra hjá Landhelgisgæzlunni, í samtali við blm. Mbl. Hvorki dómsmálaráðuneytinu né varn- armáladeild utanríkisráðuneyt- isins var tilkynnt um atburðinn. stjórnarflokkanna, fram aö ganga. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti þingmaður Sunnlendinga lýsti því á fundi á Selfossi í gærkvöldi, hvernig hinni nýju skipan fjár- festingasjóða verði háttað. Þeir verða þrír: fyrir landbúnað, sjáv- arútveg og iðnað, endurkaupa- lánasjóðir sem ekki stunda bein- ar lánveitingar, heldur munu bankastofnanir afgreiða lánin á viðskiptalegum arðsemisgrund- velli. Framkvæmdastofnun ríkisins verður lögð niður og skipt þann- ig, að Byggðastofnun tekur við byggðadeild og byggðasjóði, en Framkvæmdasjóður breytist í eignarhaldsfyrirtæki, sem ann- ast fyrirtækja- og hlutabréfaeign ríkissjóðs með það fyrir augum að selja þessar eignir. Þá verður stofnað nýtt hluta- félag, þróunarfyrirtæki í eigu ríkis, félaga og einstaklinga, til að stuðla að nýsköpun í atvinnu- málum. Taldi Þorsteinn Pálsson að með þessari breytingu yrði skapaður nýr farvegur fyrir fjár- magn til atvinnulífsins, sem leiða myndi til bættra lífskjara. Skákþing ís- lands hafið SKÁKÞING íslands hófst í sunnudag og I gærkvöldi var tefld önnur umferð. Haukur Angantýsson vann þá ÁgústjS. Karlsson, Halldór G. Einarsson vann Hilmar Karlsson, Gnð- mundur Sigurjónsson vann Lár- us Jóhannesson og jafntefli geröu: Jóhann HjarUrson og Margeir Péturssoti, Sævar Bjarnason og Dan Hanson. Helgi Olafsson og Jón L Árnason. Biðskák varö hjá Karli Þorsteins og Björgvini Jónssyni. Úrslit fyrstu umferðar voru þannig: Helgi Ólafsson vann Björgvin Jónsson, Jón L. Árna- son vann Lárus Jóhannesson, Jóhann Hjartarson vann Ágúst Karlsson og jafntefli gerðu: Guðmundur Sigurjónsson og Sævar Bjarnason, Dan Hanson og Hilmar Karlsson, Margeir Pétursson og Karl Þorsteins. Einni skák var frestað, milli Halldórs G. Einarssonar og Hauks Angantýssonar. Annar fundur í deilu bóka- gerðarmanna FUNDUR verður í dag hjá sátU- semjara í kjaradeilu Félags bóka- gerðarmanna og prenUmiðjueig- enda. Bókagerðarmenn hafa boðað til verkfalls frá og með næsU sunnu- degi, 10. september. Verkfall bóka- gerðarmanna myndi stöðva m.a. út- gáfu dagblaðanna og gæti tafið fyrir bókagerð á jólamarkaðinn ef það stæði lengi. Einn fundur hefur verið haldinn í deilunni til þessa. Blaðaútgefendur vísuðu i gær kjaradeilu blaðamanna til ríkis- sáttasemjara. Tveir fundir hafa verið haldnir í deilunni og er gert ráð fyrir að fljótlega verði boðað til fundar hjá sáttasemjara. Þar var í gærmorgun haldinn stuttur fundur, árangurslaus, í deilu BSRB og ríkisins og síðdegis í gær var þar fundur með tann- smiðum og viðsemjendum þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.