Morgunblaðið - 04.09.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 04.09.1984, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984 Ríkið styrkir ekkert skattgreiðendur gera það „Frjálsir menn telja, að ríkið sé safn þeirra einstakl- inga, sem í því búa, en ekki eitthvert fyrirbæri fyrir utan og ofan við þá. Þeir eru stolt- ir af sögu þjóðar sinnar og fylgja siðum hennar. En þeir telja ríkið tæki eða verkfæri, en ekki stofnun, sem eigi aö deila eða drottna, og því síð- ur goð, sem lúta eigi eða til- biðja í blindni. Þeir telja ekki, að ríkið hafi önnur markmið en þau, sem borg- ararnir keppa saman að. Þeir telja ekki, að ríkið hafi ann- an tilgang en þann, sem allir geti oröið sammála um.“ Þessi orð er að finna í inn- gangskafla bókarinnar Frelsi og framtak, sem nóbelsverðlaunahaf- inn í hagfræði, prófessor Milton Friedman, ritaði fyrir tveimur áratugum í samvinnu við Rose konu sína, og kom út í íslenskri þýðingu á forlagi AB fyrir tveim- ur árum. Segja má að þar sé að finna kjarnann í hinum pólitíska boðskap Friedmans, boðskap sem virðist tímabær upplyfting í hugmynda- og stjórnmálalífi Is- 16767 Einbýli í NA-veröum Lauqarasnum á 2 hœöum, grunnflötur 140 fm. Á íbúöarhæöinni er stór stofa m/arni, boröstofa, eldhús, húsbóndaherbergi, 2—3 svefnherbergi og snyrting. Á jaröhæö eru auk kjallara- þæginda, stór skáli m/arni, wc og innb. bílskúr. Fallegur garöur og góöar svalir. Raðhús í Fossvogi ca. 200 fm á 2 haaöum. Efri hæö er forstofuherbergi, eldhús, stofa m/arni, wc, húsbóndaherbergi og búr. Suöursvalir. Niöri eru 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, wc og gufubaösaóstaóa, þvottahús og stór skálí. Fallegur garö- ur. Bílskúr. Verö 4 mítlj. Laust strax. Raðhús í Kjarrmóum Garöabæ, ca. 100 fm á einni hæö meö svefnskála i risi. Parkett, mjög fallegar innróttingar. Bílskúrsrótt- ur. Verö 2,2 millj. Lítið einbýlishús i Hafnarfiröi, nálaagt miöbænum, ca. 90 fm til samans, hæöin og kjallarinn. Stör bilskúr, góö baklóö. Verö 1550—1600 þús. Möguleg skipti á 3ja herb. ibúö. Hfj. 5 herb. Falleg íbúó á 3. hæö viö Breiövang. Verö 2—2,1 millj. Eskihlíð 4ra herb. Rúmgóö íbúö á 3. haaö. Nýir gluggar, góöar svalir Auka íbúóarherbergi í kjallara. Verö ca. 1800 þús. Möguleg skipti á stærri/dýrari eign. Milligjöf staögreidd. Hfj. 3ja herb. Ca. 90 fm á annarri hæö í steinhúsl í hjarta bæjarins. Nýtt rafmagn, hlti og fl. Svefnloft. Verö 1650 þús. Hraunbær 3ja herb. Góö 3ja herb. íbúö á 3. hæö. Verö 1500 þús. Vesturberg 3ja herb. Falleg ibúð á 1. hæö. Verö 1550 þús. Vesturberg 3ja herb. Falleg ibúö á 6. hæö í lyftuhúsi. Frábært útsýni. Parket. Verö 1650 þús. 2ja herbergja íbúöir: 60 fm viö Klapparstfg. Laus strax. Veró 1150 þús. Ca. 50 fm vió Langholtsvag. Laus strax. Verö 1150—1200 þús. Ca. 40 fm vió Framnaavag. Laus strax. Ca. 60 fm vió Njélsgötu. Nýjar innrótt- ingar. Verö 1400 þús. Vegna mikillar eftir- spurnar vantar okkur 2ja herb. íbúðir á sölu- skrá. Einar Sigurðsson, hrl. Laugavegi68,'aími 18787. Rætt við Milton Friedman, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði lendinga nú þegar kröfugerðar- menn og þrýstihópar blása í her- lúðra og heimta aukin framlög úr ríkissjóði, hærri styrki til fram- leiðslu og þjónustu og vernd gegn samkeppni. Koma Miltons Fried- man hefur vakið verðskuldaða at- hygli og þótt ágreiningur sé um marga þætti í málflutningi hans hljóta menn að fallast á, að hon- um hefur tekist að fá menn til að hugsa á ný um grundvallaratriði og honum hefur lánast að vekja efasemdir um hefðbundnar skoð- anir og stefnu, sem helgast af van- anum einum. Á laugardaginn, skömmu áður en hann flutti fyrir- lestur sinn á Hótel Sögu, „Eru aukin ríkisumsvif óhjákvæmi- leg?“, átti blaðamaður Morgun- blaðsins viðræður við hann um hagfræði og stjórnmál og fer efni þeirra hér á eftir. Nafn Friedmans er að jafnaði tengt svonefndum „monetarisma" eða peningamagnskenningu og því er við hæfi að byrja samtalið á því að biðja hann að gera grein fyrir því hvað átt er við með hugtakinu. Peningamagnskenn- ing er eitt, stefna í peningamálum annað „Það verður að gera greinarmun á „monetarisma" sem hagfræði- kenningu og hagstjórnarstefnu," segir Milton Friedman. „Annars vegar er um að ræða mjög sér- hæfða kenningu um tengsl á milli þess peningamagns sem er í um- ferð í hagkerfinu og þátta eins og vergrar þjóðarframleiðslu, verð- lags, atvinnu o.fl. Sem slík segir kenningin ekkert um það t.d. hvernig verja eigi ríkisútgjöldum eða hvert hlutfall þeirra á að vera af þjóðarframleiðslu. Þar er um mikilvæg álitaefni að ræða, en þau eru af öðru tagi. Peningamagns- kenningin er fræðikenning og óháð stjórnmálasjónarmiðum. Sem dæmi um það má nefna að í kaflanum um „peninga og verð- lag“ í höfuðriti Karls Marx, Fjár- magninu, koma fram „monetar- ísk“ viðhorf. Sama er að segja um ritgerð, sem Seðlabankastjóri Kínverja samdi fyrir nokkrum ár- um og fjallaði um stjórn á pen- ingamagni annars vegar og stjórn á verðbólgu hins vegar, svo að annað dæmi sé tekið. Eg gæti hafa skrifað þessa ritgerð sjálfur! Það sama gildir um peningamagns- kenninguna og allar aðrar fræði- kenningar, beiting þeirra fer eftir verðmætamati manna og mark- miðum. Ríkisstjórn, sem vill ráða niðurlögum verðbólgu, getur not- fært sér peningamagnskenning- GARÐUR S.62-I200 62-I20! Skipholti 5 Eyjabakki 2ja herb. snyrtil. íb. á 1. hæö í blokk. Gott íbúöar- herb. á hæöinni fylgir. Holtsgata 2ja herb. mikiö endurnýjuö íbúö á 2. hæö í 6 íbúöa húsi. Verö 1350 þús. Skaftahlíö 2ja herb. mjög snyrtil. íb. á 2. hæð (efstu) í blokk. Mjög góöur staöur. Vesturberg Mjög falleg vel staösett 2ja herb. ib. á 4. hæö. Fallegt út- sýni. Verö 1375 þús. Seljahverfi 3ja herb. ca. 90 fm falleg tb. á 1. hæð í blokk ásamt 60 fm íbúð- arrými á jaröhæö sem hægt er aö tengja íbúöinni meö hring- stiga. Verö tilboö. Kópavogur 3ja herb. fokheld íbúö á neöri hæö í tvíbýlishúsi. Innbyggöur bilskúr. Verö 1950 þús. Beöiö eftir húsnaaöisstjórnarláni. Selj- andi lánar 400 þús. Kóngsbakki 3ja herb. snyrtileg íb. á 1. hæð. Þvottaherb. í íb. Laus 15. sept. Verð 1600 þús. Dalaland 4ra herb. ca. 90 fm íb. á 2. hæð. Suöursvalir. Verð 2,3 millj. Snæland 4ra herb. falleg ibúö á efstu hæö. Stórar suöursvalir. Útsýni. Verð 2,6 millj. Lyklarnir bíóa þínl Eftirtaldar íbúöir eru lausar strax: Blikahjólar 4ra—5 herb. ca. 115 fm íbúð auk bílskúrs. Mikiö út- sýni. Verö 2,3 millj. Flúðasel 4ra herb. ca. 110 fm íbúö á 3. hæð. Bílgeymsla frágeng- in. Verö 2,2 millj. Hafnarfjöröur 4ra herb. neöri hæö í tvíbýl- ishúsi, 35 fm. Bílskúr. Verö 2,4 millj. Hraunbær 3ja herb. rúmgóð íbúð á 3. hæö. Verö 1700 þús. Hraunbær 4ra herb. ca. 110 fm mjög snyrtileg íbúö á 2. hæö. Suður- svalir. Verö 1950 þús. Hraunbær 4ra herb. íb. á 2. h. 60% útb. Vesturberg Góöar 4ra herb. ib. í blokk. Verö 1850-1950 þús. Raöhús — Kóp. 160 fm endaraöhús á tveim hæöum með innbyggöum bíl- skúr. Gott hús meö vönduöum innréttingum. Verö 4,2 millj. Einbýli — Kóp. Einbýli, hæö og ris, 140 fm aö grunnfleti. Fallegur garöur meö gróöurhúsi. Bílskúr. Skipti á 3ja—4ra herb. íbúö i Kópavogi æskileg. Verö 4,2 millj. Einbýli — Mos. 130 fm einbýii á einni hæö á mjög rólegum staö. 50 fm bíl- skúr. Skipti á 4ra—5 herb. íbúö möguleg. Verö 3,2 millj. Kári Fanndal Guöbrandsson Lovísa Kristjánsdóttir Björn Jónsson hdl. una og þær rannsóknir, sem henni liggja til grundvallar. Ríkisstjórn, sem vill halda verðbólgu við, getur líka notfært sér peningamagns- kenninguna, en fer þá auðvitað aðra leið en hin.“ „Þegar um stefnu í peningamál- um er að ræða,“ heldur Friedman áfram, „eru flestir sammála um, að eðlilegast sé að hún leiði ann- ars vegar af sér að verðlag sé stöð- ugt og greiði hins vegar fyrir stöð- ugleika og efnahagslegri grósku. Margir okkar, þó alls ekki allir, sem unnið hafa að því, að setja fram fræðilegar kenningar um áhrif peninga, telja að til að ná þessum markmiðum sé hentugast að fylgja peningastefnu er leiði til þess að peningamagn vaxi með jöfnum hraða, hægt en örugglega. Við getum staðið frammi fyrir miklum vanda þegar fylgja á þess- um stefnuatriðum. Kannski er verðbólga mjög mikil og ætlun okkar er að ráða niðurlögum hennar; hvað á þá að gera? Á því er ekki til nein þægileg lausn og skoðanir hagfræðinga eru skiptar. Sumir telja að best sé að beita „leiftursókn", koma peningamagni í einu vetfangi niður á það stig sem unnt er að halda því á. Aðrir telja að fara verði hægt í sakirnar. Ég held að mestu skipti við hvaða aðstæður menn búa þegar valið er um leiðir. Ef verðbólga er langtum hærri en að er stefnt þá er eðli- legast að beita leiftursókn. Ef verðbólga er hins vegar ekki him- inhá, t.d. 15—20% eins og í Banda- ríkjunum, sem er auðvitað mjög slæmt, þá tel ég að reyna eigi að ráða niðurlögum hennar með því að draga úr peningamagni í um- ferð í áföngum." Fjárlagahalli Bandaríkjastjórnar er blóraböggull Blaöamaður Mbl. vék að hallan- um á fjárlögum ríkisstjórnar Ron- alds Reagan, en halli þessi hefur verið mikið til umræðu í fjölmiðlum og virðist vera mörgum stjórnmála- mönnum og hagfrsðingum áhyggju- efni. „Ætli þessi fjárlagahalli sé meiri í Bandaríkjunum, ef miðað er við þjóðartekjur, en á íslandi?" spyr Friedman og bætir við: „Það efa ég. Sannleikurinn er sá að það er gert meira veður út af þessum halla en efni standa til. Hallinn á fjárlögum alríkisstjórnarinnar er 5—6% af þjóðartekjum. Ríkin fimmtiu í landinu hafa tekjuaf- gang sem nemur 2—3% af þjóðar- tekjum og ef þetta tvennt er lagt saman verður alríkishallinn óverulegur og verulega dregur úr áhrifum hans á fjármálamarkað landsins." Nú er staðhæft að alríkishallinn hafi hvort tveggja, slæm áhrif á efnahagslíf í Bandaríkjunum og efnahagslíf heimsins. „Já, ég veit að þessu er haldið fram, en ég held að það hafi ekki við rök að styðjast. í þessu við- fangi bendi ég á, að fyrir þremur til fjórum árum var mikið talað um það hve slæm áhrif lækkun á gengi Bandaríkjadals hefði á efna- hagslíf heimsins. Núna er sama fólkið að fjargviðraðst út af hækk- un á gengi dalsins og telur að hún hafi slæm áhrif. Hvort tveggja getur ekki verið rétt, enda er hald- ið fram öndverðum staðhæfingum. Sannleikurinn er sá, að hvarvetna þurfa menn að finna blóraböggul. Bandaríkin henta vel í því efni. Ef gengi dalsins lækkar þá er það tal- in ástæðan fyrir efnahagsvandan- um, ef gengi dalsins hækkar þá er það ástæðan. Ég er sannfærður um að ef gengið væri stöðugt þá teldu sömu menn það vera rót vandans!" Skuldabyrði svonefndra „þróun- arríkja“ hefur verið mjög í brenni- depli upp á síðkastið. Telur þú að skuldastaða þessara ríkja eigi eftir að hafa alvarleg áhrif á bankakerfi Vesturlanda? „Þessi skuldabyrði er alvarlegt vandamál," segir Friedman. „Hún mun hafa mikla erfiðleika í för með sér fyrir banka á Vesturlönd- um. Ég held ekki að það verði kreppa eða hrun á alþjóðlegum gjaldmiðlum. Aftur á móti er ljóst að bankarnir verða að gefa eftir umtalsverðar upphæðir af þeim lánum sem þeir hafa veitt skuldu- nautum sínum. Þetta skuldamál hefur að minni hyggju ekki verst áhrif á bankana heldur þau lönd sem eru í skuldasúpunni: Argent- ínu, Brasilíu, Mexíkó, ísrael og Is- land, sem ekki er þróunarland, en hefur langan skuldahala. Vest- rænir bankar munu sannarlega tapa, en líka þessi lönd.“ Nauðsyn markaðs- frelsis á íslandi Til eru þeir sem halda því fram, að vegna þess hve hagkerfi íslend- inga er lítið verði að takmarka frjáls viðskipti og samkeppni. Hver er þín skoðun á þessu atriði? „íslendingar verða að hafa í huga að þótt land þeirra sé lítið þá eru þeir ekki einir á báti. Þið eruð aðilar að alþjóðlegu hagkerfi og njótið ávaxta markaðsfrelsis sem þar ríkir. Ég held að einmitt smæð íslenska hagkerfisins sé rök fyrir því að þið þurfið á markaðsfrelsi að halda. Lítum fyrst á utanrík- isverslunina. Þið greiðið niður ýmsar útflutningsvörur og leggið skatta og tolla á margar innflutn- ingsvörur. Kostnaðurinn við þetta er meiri fyrir smáþjóð eins og Is- lendinga heldur en fyrir stórþjóðir vegna þess að þið eruð svo háðir utanríkisverslun. Er hún ekki 40—45% af vergri þjóðarfram- leiðslu ykkar? Ávinningur ykkar af frjálsri utanríkisverslun yrði meiri en t.d. ávinningur Banda- ríkjamanna, þar sem hlutfallið er 5-10%.“ „Lítum næst á innanríkisversl- unina,“ segir Friedman. „í litlu landi eins og Islandi eru meiri lík- ur á því að einokunarfyrirtæki myndist heldur en í stærri lönd- um. Markaður fyrir tiltekna fram- leiðslu kann að vera svo lítill að ekki sé hentugt að hafa nema eitt til tvö fyrirtæki. Ef sú aðstaða kemur upp þá standa menn frammi fyrir valkostum, sem eru slæmir. Annað hvort er einokunin í höndum ríkisins eða einkaaðila. Hvort tveggja er af hinu illa, en að mínu mati er einokunarfyrirtæki í einkaeign betri kostur en ríkisein- okun. Hið fyrrnefnda er líklegra til að valda minni skaða en hið síðarnefnda og það af tveimur ástæðum. I einkafyrirtæki er krafist meira aðhalds og árangurs en í ríkisfyrirtæki. Ef einkafyrir- tæki ber sig ekki verður það gjald- þrota. Ef ríkisfyrirtæki ber sig ekki er það stækkað og auknu fjármagni veitt til reksturs þess. í annan stað ber að hafa í huga, að fyrirfram er ekkert hægt um það að segja hvort ákveðinn rekstur verði ætíð að vera í einokunar- formi. Tæknileg þróun og breyt- ingar, innanlands sem utan, geta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.