Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984 Afmælishátíð Ólafsfjarðarbyggðar: „Hundrað ár í Horninu“ Rætt við Guðbjörn Arngrímsson formann menningarmálanefndar Guðbjörn Arngrímsson á snoðir um þetta, kom fyrst til tals aö halda veglega upp á þessi tímamót — og það vorum viö að gera síðastliðna viku“. — Og hátíðin stóð yfir í heila viku. „.lá, segja má aö hún hafi hafist laugardaginn 25. með knatt- spyrnuleik okkar manna í Leiftri gegn Iþróttafélaginu Þór. Síðan var hátíðin formlega sett á sunnu- daginn með hátíðarmessu í Ólafs- fjarðarkirkju. Þá um kvöldið var svo dagskrá sem við kölluðum „Garðshornskvöld og Guðmund- ar“, en þar var um að ræða talað mál og tónlist af ýmsu tagi, flutt af Sigursveini, Magnúsi, Erni og Helgu Magnúsarbörnum, Sigrúnu Valgerði Gestsdóttur og Guð- mundi Ólafssyni. Á mánudag var svo harmonikkukvöld í umsjá Fé- lags harmonikkuunnenda við Eyjafjörð og Jóns á Syðri-Á. Á þriðjudag var svo dagskrá í umsjá Slysavarnardeildar kvenna, kirkjukórsins og menningarmála- nefndar. Jón B. Gunnlaugsson, Siggi Helgi og Leikfélag Olafs- fjarðar sáu síðan um kabarettdag- skrá á miðvikudagskvöld. Á fimmtudag var síðan efnt til kvikmyndasýninga í Tjarnarborg í tilefni hátíðarinnar, auk þess sem sýning á munum og myndum eftir Ólafsfirðinga var opin í Gagn- fræðaskólanum, eins og er reynd- ar alla daga hátíðarinnar. Á föstudag var síöan íþróttamót og fjölskylduhátíð í umsjá Leift- urs, Kiwanis, Sinawik og skáta með varðeldi, grillveislu og stór- kostlegri flugeldasýningu en efni til hennar burtfluttir Ólafsfirð- ingar, búsettir á Reykjavíkur- svæðinu. Þá komu fallhlífar- stökkvarar frá Akureyri og létu sig svifa niður til okkar, auk þess sem sýningarflokkur frá Akureyri kom og dansaði skrykk-dans. Unglingadiskó var síðan í Tjarn- arborg. Á laugardag lauk síöan þessum hátíðarhöldum okkar með bæjarkeppni í skák milli Ólafs- fjarðar, Dalvíkur, Siglufjarðar og Fljóta, fimakeppni hestamanna, barnaskemmtun á vegum skáta og knattspyrnuleiks milli Leifturs og Knattspyrnufélags Akureyrar. Aö lokum var svo um kvöldið dans- leikur í Tjarnarborg, þar sem hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar lék fyrir dansi ásamt Jó- hanni Helgasyni, söngvara. Þar með lauk þessari hátíð okkar.“ — Og hvernig líkaði svo fólki? „Ég var ekki var við annað en að allir bæjarbúar hafi verið ánægðir með það sem fram fór. Aðsókn var mjög góð að dagskráratriðunum, auk þess sem viss hátíðarblær var yfir öllu bæjarfélaginu þessa daga. Þá er sérstaklega ánægju- legt, hve margir burtfluttir ólafsfirðingar gerðu sér ferð hingar þessa daga auk fjölmargra annarra gesta. Við í framkvæmda- nefndinni erum ánægð og vonum að svo sé um alla bæjarbúa og gesti sem sóttu okkur heim,“ sagði Guðbjörn Arngrímsson að lokum. GBerg. Fri vinstri: Eva, Jón B., Guðrún og Bára. Gömul kynni rifjuð upp Á MUNA- og myndasýningunni í gagnfræðaskólanum rákumst við á þessi fjögur, sem þar voru að skoða sýninguna. Þarna voru á ferð þrjir systur, Eva, Guðrún og Bira Finns- dætur og Jón B. Gunnlaugsson. í stuttu spjalli við þau kom í Ijós að þau eru öll þremenningar, öll fædd í ólafsfirði, en aðeins Bára þar búsett enn. Eva Finns- dóttir býr nú I Keflavík, Guðrún Fnnsdóttir í Eyjafirði og Jón B. Gunnlaugsson í Reykjavík. Jón hafði komið til Ólafsfjarð- ar til að lesa upp ljóð og skemmta á kabarett sem þar var haldinn, en Eva og Guðrún voru í heim- sókn hjá systur sinni, Báru. Þess má geta að þær systur eru börn Finns Björnssonar og Mundínu Þorláksdóttur, sem lengi bjuggu á Kleifum og áttu þar og ólu upp 20 börn. öll voru þau sammála um aö hátíðarhöldin hefðu tekist firna vel og þetta væri kærkomið til- efni til að bregða sér á æsku- stöðvarnar. G. Berg. Óiafsfjörður „Sannkallaðir hátíðisdagar“ ÞAÐ VAR mikil örtröð í kaupfélaginu á Ólafsfirði, þegar tíðindamaður Mbl. kom þar og var að leita að Guðbirni Arngrímssyni, framkvæmdastjóra afmælishátíðar Ólafs- fírðinga. Þar rakst ég á Helgu Jónsdóttur, starfsstúlku kaupfélagsins, Ólafsfírðing í húð og hár, og Bjarna Jensson, sem búið hefur á Olafsfírði f 10 ár og unnið þar „bæði á sjó og landi". Þau voru spurð, hvernig þeim fyndist hátíðarhöld- in hafa farið fram til þessa. „Auðvitað hefur þetta verið stórgaman og mikil og góð tilbreyting í bæjarlífinu," sögðu þau bæði. Einn- ig voru þau sammála um að geysilega mikil og góð vinna hefði verið af hendi leyst af þeim sem starfað hefðu að þessari hátíð. „Allir bæjarbúar virðast taka þátt í þessu og svo sjást hér þessa dagana mörg andlit, sem bar fyrir augu daglega áður. Þetta eru sannkallaðir hátíðis- dagar,“ sagði Helga. GBerg. Elsti borgari Ólafsfjarðar: „Ellin fer nú að fara að“ — segir Elín Guðbjartsdóttir, 92 ára „ELLIN er nú að fara að hvað úr hverju og ætli maður fari þá ekki að hugsa til þess að setjast í helgan stein," sagði Elín Guðbjartsdóttir, 92 ára gömul og elsti núlefandi Ólafsfírðingurinn, þegar tíðindar- maður heimsótti hana á Elliheimili Ólafsfjarðar. Elín er nýkomin úr viku ferða- lagi á bíl til Suðurlands, gengur um teinrétt og kvik á fæti og held- ur enn sannkölluðum ungmeyjar- vexti. Það fer ekki á milli mála, að það er gott að eldast og þroskast ef það gerist á sama hátt og hjá Elfnu. „Ég er nú fædd á Skeri á Látra- strönd, en flutti til Ólafsfjarðar um tvftugsaldur. Hafði þá áður farið til Ákureyrar og kynnst þar manninum mínum sáluga, Sigurði Jóhannessyni, skósmið, sem þá var að læra iðn sfna þar. Við bjuggum svo alla tíð hér og höfð- um það gott. Ég hef verið hér á elliheimilinu frá þvf að það var wís Elín Guðbjartsdóttir opnað fyrir tæpum þremur árum, og það máttu hafa eftir mér, að hér líður okkur gamla fólkinu vel, höfum allt til alls og vel séð um okkur," sagði þessi eldhressa 92 ára gamla kona, Elín Guðbjarts- dóttir, að lokum. GBerg „HUNDRAÐ ár í Horninu" kalla Ólafsfírðingar skemmtidagskrá sína, sem stóð yfír í síðustu viku í tilefni 100 ára byggðar í fírðinum, en nafngiftin er tilkomin vegna þess, aö á sínum tíma var staðurinn, þar sem byggðin stendur nú, nefndur Hornið. Þá var aðalútræðið í fírðinum frá Kleifunum, sem voru norðvestan fjarðarins og þóttu þá betri lend- ingarstaður. En þróunin hefur orðið sú, að byggðin færðist í „Hornið“ en nú eru fáir ábúendur á Kleifum. Guðbjörn Arngrímsson, for- maður Menningarmálanefndar Ólafsfjarðar, var framkvæmda- stjóri hátíðarinnar. Hann var spurður um upphaf byggðar f Ólafsfirði. „ólafur Gíslason flutti úr Hofs- hreppi til Ólafsfjarðar á árinu 1884 og byggði þá fyrsta húsið á þeim stað í firðinum, sem nú er Ólafsfjarðarkaupstaður. Ólafur var þá 33 eða 34 ára, talinn fæddur um 1850 í Ólafsfirði, en hafði flutt í Svarfaðardal með foreldrum sín- um um 16 ára aldur og þaðan í Hofshrepp í Skagafirði. Ólafur varð sem sagt fyrstur til að reisa bú hér í „Horninu" og kallaði hann bæ sinn Sandhól. Byggðin jókst síöan hægt og sígandi hér, en fram eftir árum var þó ekki séð, hvor staðurinn yrði ofan á hvað mannfjölda snerti. Hornið eða Kleifar. Þegar líða tók á 20. öldina fór þó svo að meginbyggðarkjarn- inn reis úr Horninu og árið 1945 kom að því að Ólafsfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Síðan hefur þróun byggðar hér verið hæg en farsæl og nú er svo komið á 100 ára afmæli byggðar í firðinum, að hér búa nú um 1200 manns." Og nú hélduð þið mikla hátíð af því tilefni. „Já, og tildrögin eru kannski svolítil tilviljun, ég er ekki viss um að margir hafi vitað af þessum tímamótum. En Friðrik Ólgeirs- son, sagnfræðingur, sem er ðlafs- firðingur, hafði skrifað lokaprófs- ritgerð um atvinnuhætti og byggð- arþróun í Ólafsfirði frá 1883 til 1945. Við undirbúning rigerðar sinnar komst hann í heimildir sem sýndu hvenær Ólafur Gíslason byggði hér og þegar við í Menning- armálanefnd Ölafsfjarðar komust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.