Morgunblaðið - 04.09.1984, Qupperneq 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
Mjólkurlítr-
inn kostar
nú 21,50 kr.
SMÁSÖLUVERÐ mjólkur, mjólkur-
vara og nautgripakjöta htekkaði um
3,5 til 4,4% um mánaöarmótin sam-
kvæmt ákvörðun sexmannanefndar.
Mjólkurlítrinn kostar nú 21,50 kr.
Hskkaði hann um 80 aura, eða um
3,5 til 4%eftir tegundum umbúða.
Lftri af rjóma hækkaði um 3,3%
og kostar nú 143,10 kr. Hver lítri af
undanrennu kostar nú 14,20 kr. Kíló
af skyri hækkaði um 4% og kostar
nú 38,90 kr. Smjör hækkaði um
4,4% og kostar nú 250,30 kr. hvert
kíló. Ostur hækkaði um 3,3% og
kostar hvert kíló af honum nú
222,20 kr. Nautgripakjöt hækkaði
um 4,2%. Kostar 1 kg. af 1. verð-
flokki (UN*) nú 181,90 kr. og af 2.
verðflokki (UNI) 161,50 kr.
Kaupmannahöfn: -
Fréttabréf úr
Jónshúsi
FRICO geislaofninn er tilvalinn vermir á svalir, útverustaði og garðhús
þegar svalt er í veðri á góðviðrisdögum á íslandi.
Endurseljendur:
Ratvörur - Laugarnesvegl 52 - Reykjavfk
Glóey - Ármúla 28 - Reykjavík
Skúll Þórsson - Álfaskeiði 31 - Hafnarfirði
Rafborg - Grindavík
Árvirkinn - Selfossi
Kaupfélag V-Skaftfelllnga - Vlk í Mýrdal
Verslunin Kjarni - Vestmannaeyjum
Bífreiða- og trésmlðja Borgarness
Sigurdór Jóhannsson raftækjavinnustofa - Akranesi
Leifur Haraldsson - Seyðisfirði
Rafvlrklnn - Eskiflrði
Kristall - Höfn/Hornafirði
Rafborg - Patreksfirði
Ljósvaklnn - Bolungarvik
Raftækni - Akureyri
Árni og Bjarni - Reyðarfirði
J/f RÖNNING Sund?bm
SÍmi 84000
an teikningar og klippimyndir
Ingibjargar Ránar, sem er kennari
að mennt og hefur myndskreytt í
skólum og fyrir blöð. — Næst
verða settar upp myndir Sigríðar
Sigurðardóttur, efnilegrar lista-
konu, sem nú er á förum til náms í
Escola Massanna í Barcelona, og
verður viðfangsefni hennar þar
steint gler.
Skammt er þess að bíða að
hauststarf félaganna hefjist og þá
hinir föstu liðir í félagsheimilinu.
Má geta þess, að Norræna félagið í
Kaupmannahöfn heimsækir Jóns-
hús ásamt gestum frá Helsing-
borg og Malmö tvo laugardaga í
september og mun heimafólk í
húsinu segja frá Jóni Sigurðssyni
og skemmta gestunum með hljóð-
færaleik. G.LÁsg.
Auðkúluheiði:
Sýslumað-
ur lét smala
hrossunum
SÝSLUMAÐUR Húnvetninga lét
smala hrossum af norður- og austur-
hiuta Auðkúluheiðar um helgina.
Lögregluvarðstjóri frá Blönduósi fór á
heiðina á sunnudagsmorgun við þriðja
mann og komu þeir niður um kvöldið
með 88 hross frá 4 bæjum í Austur-
Húnavatnssýslu. Eins og kunnugt er
ráku Svínvetningar hrossin á heiðina í
sumar í trássi við bann landbúnaðar-
ráðuneytisins og samningaumleitanir,
sem verið hafa f gangi að undanförnu,
hafa ekki borið árangur.
Frímann Hilmarsson lögreglu-
varðstjóri sagði í samtali við blaða-
mann Mbl. í gær að leitin hefði
gengið vel. Hrossin hefðu flest verið
á takmörkuðu svæði; á uppgræðslu
og ábornu landi. Sagði hann að
hrossin hefðu verið frá Stóra-Dal,
Guðlaugsstöðum, Eiðsstöðum og
Eldjárnsstöðum og hefðu eigend-
urnir tekið við þeim hjá afréttar-
girðingunni. Taldi hann að fá hross
væru eftir á heiðinni því stóðin frá
Höllustöðum, Mosfelli og Auðkúlu
hefðu farið af sjálfsdáðum út af
heiðinni eða lent innan girðingar
þegar eyðibýli var girt af og ekki
verið sett aftur á afréttinn. Sagði
hann að styggð hefði ekki komið að
fé á heiðinni þar sem þessi hluti
heiðarinnar hefði verið smalaður á
laugardag og þeir notað tækifærið
og farið í kjölfarið. Frímann sagðist
ekki vera búinn að taka kostnaö við
smölunina saman og ekki vita
hvernig hann yrði innheimtur en
bjóst við að það yrði með væntan-
legum sektum upprekstrarmanna.
Happdrætti Qlympíunefndar:
Dregið á laugardaginn
NÚ FER hver að verða síð-
astur til að greiða heimsenda
happdrættismiða Ólympíu-
ncfndar íslands. Dregið
verður næsta laugardag, 8.
september. Drætti verður
ekki frestað aftur.
Alls eru 14 bifreiðir í vinn-
ing í happdrættinu, að verð-
mæti um 4,7 milljónir króna, 3
Ford Sierra og 11 Dort Escort.
Allir vinningar eru skatt-
frjálsir. Lausamiðar eru til
sölu úr einum vinningsbílnum
í Austurstræti. (FrétUtilkynBÍiiiO
Norræna húsið:
Tónleikar í kvöld
TÓNLEIKUM, þar sem leikin
verða verk eftir Grieg og Chopin í
Norræna húsinu í kvöld, hefur
verið frestað til kl. 21.15, en áður
höfðu þeir verið auglýstir klukkan
20.30. Það eru norski píanóleikar-
inn Einar Steen-Nekleberg og
danska leikkonan Birte Storup
Rafn, gestir Norræna hússins,
sem fram koma á tónleikunum.
Jónshúsi, 28. á|fÚNt.
í JÚLÍ og ágúst hefur verið
margt um manninn hér í Jóns-
húsi og hefur fjöldi ferðamanna,
sem koma í safn Jóns Sigurðs-
sonar og félagsheimilið, aukizt
að mun. Hafa nú t.d. 1.000
manns skoðað safnið á árinu. I'á
hafa verið listsýningar eins og
oft áður og ýmis konar skemmti-
kvöld með íslenzkum skemmti-
kröftum, bæði búsettum hér og
að heiman.
Fyrst skal nefna bókmennta-
kvöld í félagsheimilinu um miðjan
júlí, en þar lásu þau Jón úr Vör,
Einar Már Guðmundsson, Sverrir
Hólmarsson, Magnúz Gezzon og
Dóra Stefánsdóttir úr verkum sín-
um. Voru áheyrendur margir og
nutu upplestrarins vel. — Þá lék
hljómsveitin Hrím af miklu fjöri
eina kvöldstund í júlílok fyrir ís-
lendinga hér í borg og höfðu tveir
hljómlistarmannanna samið hluta
laganna, þeir Hilmar J. Hauksson
og Matthías Kristinsson, en auk
þeirra leikur Wilma Young í tríó-
inu. — Nokkru síðar kynnti svo
Hörður Torfason nýjustu plötu
sína „Tabu“ hér. Eru öll lög og
textar eftir Hörð, en auk hans
leika Þormóður Karlsson, Gísli
Víkingsson, Kristján Þór Sigurðs-
son, Ólafur Sigurðsson, Björgúlfur
Egilsson og Þorbjörn Erlingsson á
plötunni.
Sýningar á veggjum félagsheim-
ilisins í sumar voru ljósmynda-
sýning Finnana Lauri Dammert,
sem hann kallaði „Nokkuð í
tengslum við ljósmyndun" og síð-