Morgunblaðið - 04.09.1984, Qupperneq 51
vrrnETEX
Ptastmálning
ANTIf HVÍTT
decorolla
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
um sjálfan manninn, dýrðlegasta
sköpunarverk guðs var hafin. Um
eitt höfðu menn þó hingað til verið
nokkurn veginn sammála. Tví-
skiptingu mannsins í sái og lík-
ama. Að vísu talar Homelíubók
um þrískiptingu í líkama, önd, og
anda, og ennfremur hafa oft verið
uppi kenningar um að þetta væri
allt orðaleikur, efni og andi, sál og
líkami. Þetta væri í raun og veru
eitt og það sama, hreint eins og
spegilmynd í vatni.
Fyrstan og þekktastan þeirra
vísindamanna, er „færðu sönnur“
á að sál og líkami væru eitt, verð-
ur að telja Pavlov hinn rússneska.
Með dýratilraunum sínum, eink-
um á hundum, „afsannaði" hann
tilvist sálar, og eða anda, sem
hann kallaði „reflex", „spontan-
ity“, þ.e. ósjálfráð viðbrögð. Ef þú
þekkir allar ytri aðstæður til hlít-
ar, og hefur að sama skapi algjör-
lega tæmandi upplýsingar um
„objectið", einstaklinginn sem
rannsaka á, þá geturðu hvenær
sem er, sagt fyrir um hvernig
hann muni hegða sér. Já, það var
hart sótt að gömlu kenningunni
um Adam og Evu. Það var eins og
erfiðleikarnir væru nú ekki nógir
fyrir.
Stutt var síðan sjálf heims-
myndin, jörðin sem miðdepill
jarðar var algjörlega afskræmd af
nýjum kenningum, sem erfitt, já
ómögulegt reyndist að vefengja.
Brautryðjendur hinnar nýju
heimsmyndar voru spámenn eins
og Kepler, Galileo, Tycho Brahe,
Kopernikus og Newton, og eru þá
aðeins örfáir hinna helstu hér
taldir. Hugmyndum manna um
heimskringluna á miðöldum er
óvíða betur lýst en í „Divina
Comedia" Dantes. Upp var upp og
niður var niður, annað hvort stig
af stigi til himnaríkis, eða hina
löngu og ströngu leið til hveivítis,
Inferno, og vissu allir viti bornir
menn í þá tíð, hvernig þar leit út.
Engin afstæðiskenning (relativ-
ity) var þá til að rugla menn í
ríminu. Viðurkennd var kenning
biblíunnar um jörðina sem mið-
depil alheims, í traustum festing-
um, óforgengileg og eilíf. Nikolaus
Kopernikus fæddist í Póllandi árið
1473. í stuttu yfirliti yfir gang
reikistjarna bendir hann á að Sól-
in, ekki jörðin sé miðdepill sól-
kerfis okkar. Reikistjörnurar,
einnig jörðin, sem er þeirra næst
minnst, snúist í kringum sólina.
Aðdráttarafl haldi reiki stjörnun-
um föstum í sporbaug um sólina.
Johannes Kepler fæddist árið 1571
að Neckar við Rínarfljót suður
undir Svartaskógi.
Allt lýtur stærðfræðilegu lög-
máli náttúru. Það að þekkja lög-
málið er að skilja guð. Vilji guðs
er óumbreytanlegur. Þekktu lögm-
ál sólkerfis og himintungla, og þú
þekkir guð. „Hver er þá hinn rétti
spámaður?" spyr Kepler, og svar-
ar „sá er réttast túlkar sköpunar-
verk guðs“. Stærðfræðingurinn og
stjörnufræðingurinn. Fyrir svona
bollaleggingar og guðlast var
Kepler fleygt í fangelsi. Móðir
hans Katrin var talin göldrótt og
sótt til saka. Það var raunar búið
að hlaða bálköstinn, er henni var
bjargað á síðust stundu. Tycho
Brahe og Galileo fullkomnuðu svo
heimsmyndina, en endahnútinn
rak svo Newton. Skýrði hann
sporbauga, þyngdarafl og aðdrátt-
arafl og hraða ljóss af stærð-
fræðilegri nákvæmni, svo að við í
dag getum gert mánaðadaga 1000
ár fram í tímann, sem ekki skeika
mínútu.
Refsivöndurinn hvílir yfir öllum
brautryðjendum, einnig og ekki
síst stjörnufræðingum. Þegar Gal-
ileo hélt því fram að jörðin snérist
í kringum sjálfa sig, var honum
hótað lífláti, ef hann drægi ekki
kenningu sína til baka. Galileo
kaus að halda lífi, en er hann gekk
út úr réttarsalnum heyrðist hann
muldra fyrir munni sér „og samt
snýst hún“.
Á mínum bernsku árum voru
Skotta og Móri enn við bestu
heilsu. Grettir glímdi við Glám, og
hafði betur. Draugar voru drepnir
eða kveðnir í kútinn. Fjölkynngi
Sæmundar fróða lifir lengi. Hann
samdi við Kölska, skyldi Kölski
hafa sál Sæmundar, gegn því að
Kölski fleytti honum til Islands að
loknu námi við Svartaskóla. Ef þú
Nútíma börn eru raunsæ. Þau eru
ekki haldin hleypidómum og þau
fara ekki í manngreinarálit. Það
er víst bara við fullorðna fólkið
sem erum eitthvað „klikkuð".
Barnabörnin mín safna ekki
englamyndum, og þau segja mér
að Móri og Skotta hafi nú bara
verið hugarburður minn. Þegar
bæirnir urðu raflýstir, og ljósið
flæddi um hvern krók og kima
hafi síðasti fjósapúkinn tekið til
fótanna. Tröll dagað uppi draugar
orðið ljósfælnir og horfið eins og
þokuský, sem hverfur sjónum við
sólarupprás. Hver var að tala um
vísindi, og hver gerði endanlega út
af við alla þessa ósýnilegu föru-
nauta okkar um langar aldir?
Ég sé hann ljóslifandi fyrir mér,
lærisvein galdramannsins mikla,
er hann læðist á tánum og stelur
töfrasprota galdramannsins. Ein
sveifla út í loftið og náttúruöflin
leysast úr læðingi. Othafið ýfist,
og öldurnar rísa. Ógnvekjandi og
fyssandi æða þær aftur og fram,
skella á björgum og byggðu bóli.
Lærisveinninn horfir agndofa á,
agndofa og máttvana. Hann hafði
að vísu leyst náttúruöflin úr læð-
ingi, en stöðvað þau getur hann
ekki. Ef lærisveinninn er vísindin,
með öllum sínum tilraunum og
ófyrirsjáanlegu afleiðingum, hver
er þá galdramaðurinn mikli, sá er
máttinn hefur og sá er við öll að
endingu hljótum að lúta, vald ör-
laganna?
Richardt Ryel er heildsali í Reykja-
rík.
átt leið um háskólalóðina, sérðu
hvernig Sæmundur greiddi fyrir
farið, er hann reiddi grallarann
hátt, og keyrði hann í haus Kölska
(í líki sels) og varð Kölski þar af
sál Sæmundar.
Það var gott fólk í gömlu torfu-
bæjunum. Reimt að vísu víða. Álf-
ar og huldufólk, tröll og draugar
og alls kyns vættir illir og góðir.
Sögurnar voru lifandi, og flestir
sem komnir voru til ára sinna
höfðu einhver afskifti haft af
þessum ósýnilegu fylgjum manna.
mg 3 1
IÍIlLI 'rfrMÉ
bhBH
'
dynasylan
BSM 40
MONOSILAN
HEMPAUN
"AKMAlniNQ 51,r
lokar fyrir vatnsstreymi inn i stein en lofar steini
samt aá hleypa raka út.
7'T vorlitirnir slógu strax i gegn, þu færö iitakort i næstu
máiningabuó
Vitretex hefur sýnt bædi á rannsóknastofum sem við áratuga reynslu Viðurkennt af Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins sem virk vörn
að fáar geröir málninga i'afnast á við hana f endingu. Vitretex málning gegn Alkali-skemmdum.
semandar.
V f, fyllir upp ójotnur á yfirborði ettir t.d flöghun eða
þakmálning hetur verið mest Selda þakmálning á /s- ÍJm(4u.WÍH,Íi aðrar skemmdir. Auðvelt i meðförum rúllað eða
J<‘ landi I fjölda ára. Nú aukum við litaúrvalið. 4 nýjir ál- dregiö á með spöðum.
stæltir litir eru á nýja kortinu. Reynslan sannar gæðin. Sömu gæðin Viðurkennt at sænsku staðalstofnuninni sem fylli og vipgerðarefni á
aðeins fleiri litir. utanhús-stein.
Hafið samband viö okkur og fáið allar upplýsingar um frábæra málningu og viðgerðaretm.
S/ippfé/agið í Reykjavikhf
Má/ningarverksmiöjan Dugguvogi
Sími 84255