Morgunblaðið - 04.09.1984, Síða 52
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
+
Bróöir minn,
SIGURÐUR BRYNJÓLFSSON
fré Austur-Koti é Vatnsleysuströnd,
andaöist 30. ágúst aö heimili sínu í Vancouver, Kanada.
Jónína Brynjólfsdóttir.
Bræöur okkar,
ÓLAFUR OG PÁLL GEIRSSYNIR,
Hamrahlfö 31, Reykjavík,
létust af stysförum 2. þessa mánaöar.
Fyrir hönd vandamanna.
Adda og Erla Geirsdastur.
+
Sonur minn,
SIGURÐUR HERBERT SIGURJÓNSSON,
Lundarbrekku 6, Kópavogi,
andaöist 1. september.
María Þ. Pétursdóttir.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
BERGUR ANDRÉSSON,
Fjölnisvegi 20,
andaöist f Landspítalanum 1. sept.
Ingibjörg Lérusdóttir,
Sigurbjörg Ó. Bergsdóttir,
Björn L. Bergsson.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN JÓHANNES KRISTINN DAGBJARTSSON,
bifvélavirki,
lést aöfaranótt 2. september sl.
Jaröarförln veröur auglýst síöar.
Fyrlr hðnd aöstandenda.
Halldór Laufland Jóhannesson,
Kolbrún Jóhannesdóttir.
+
Bróöir mlnn,
SVEINN B. ÞÓROARSON,
Hringbraut 86,
andaöist þann 28. ágúst.
Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey.
Kristinn B. Þóröarson
og aörir vandamenn.
+ Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
AÐALHEIDUR GUDMUNDSDÓTTIR,
Sólheimum 14,
Raykjavlk,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. september
kl. 15.00.
Elín Ólafsdóttir, Ólafur Árnason,
Ingþór Ólafsson, Carmen Ólafsson
og barnabörn.
+
Ástkær elglnmaöur mlnn, faöir, sonur og tengdasonur,
GARDARPÁLLBRANDSSON,
tannlæknir,
Hólavangi 1, Hellu,
veröur jarösunginn frá Háteigskirkju, þriðjudaginn 4. september
kl. 10.30 f.h.
Nína Kristín Gunnarsdóttir,
Elva Dögg Garöarsdóttir,
Brandur Tómasson, Jónína M. Gísladóttir,
Gunnar Sigurgíslason, Ásdís Haflióadóttir.
Minning:
Garðar Páll
Brandsson
Fæddur 16. júlí 1953
Dáinn 27. ágúst 1984
Hann Garðar Brandsson er dá-
inn. Fregnin um lát hans kom sem
reiðarslag yfir okkur, því hvernig
er hægt að skilja að ungur maður
sem er nýbyrjaður sitt lífstarf
skuli svo skyndilega hrifinn burt
frá eiginkonu og barninu sem í
vændum er. Aðeins þrem kvöldum
fyrir lát hans, sátum við saman í
vinafagnaði og það var glatt á
hjalla. Garðar var hress að vanda,
var allur að ná sér eftir smáflensu
sem hafði hrjáð hann frá helginni
áður. En að þetta yrði síðasta
kvöldið okkar saman var fjarri
okkur öllum.
Það var fyrir tæpu ári, að Garð-
ar og Nína fluttust að Hellu og
það var strax auðfundið, að þessi
ungu hjón höfðu flutt úr stórborg-
inni í lítið þorp út á landi með
opnu hugarfari. Þau voru jákvæð
á allt og ákveðin í að setjast hér
að. Þar sem vinnustaðir okkar
liggja innan sömu veggja tókust
fljótt með okkur kynni sem hafa á
skömmum tíma breyst í vináttu.
Einnig juku sameiginleg áhuga-
mál á kynni okkar. Þau hjónin
gengu í Flugbjörgunarsveitina á
Hellu og tók Garðar virkan þátt í
starfi björgunarsveitarinnar þann
tíma sem honum auðnaðist.
Glaðværð Garðars Brandssonar
og látlaus framkoma verður vin-
um hans minnisstæð. Það birti
upp í gráma hversdagsleikans,
þegar hann gaf sér tíma til að
skjótast milli vinnustaöa okkar til
að ræða málin og munum við
hugsa til þessara og annarra sam-
verustunda með miklum söknuði.
Eftirlifandi eiginkona Garðars
er Nína Kristín Gunnarsdóttir.
Þau gengu í hjónaband í apríl síð-
astliðið vor og á hún von á fyrsta
barni þeirra hjóna eftir rúman
mánuð. Garðar lætur einnig eftir
sig dóttur, sem heitir Elva Dögg,
en hún er 12 ára gömul.
Við sendum þér, elsku Nína,
Elvu Dögg, foreldrum Garðars,
tengdaforeldum og öðrum að-
standendum okkar innilegustu
samúðarkveðj ur.
Guð blessi minningu hans.
Hjördís og Gylfi.
Framtíðin blasti við, björt og
skær. Langur námsferill að baki
og nú fór að koma í ljós árangur af
erfiðinu. Nýgiftur og von á erf-
ingja. En allt í einu dró ský fyrir
sólu svo óréttlátt. Hvers vegna?
Af hverju hann? Hann sem var
alltaf svo jákvæður og heilbrigður.
Við vorum vinahópur hér á
Hellu, sem hittumst reglulega
hlógum og spjölluðum og höfðum
alltaf gaman af. Við vorum nýflutt
og sáum fram á margar ánægju-
legar stundir, enda með mörg
sameiginleg áhugamál. Nú er allt i
einu stórt skarð í þennan hóp
höggvið, — skarð sem aldrei verð-
ur aftur fyllt. Við sem eftir sitjum
erum hljóð. Garðar Páll, tann-
læknirinn á Hellu, er látinn. Hann
kvæntist eftirlifandi eiginkonu si-
nni, Nínu Kristínu Gunnarsdótt-
ur, fyrir réttum fjórum mánuðum.
Svo hamingjusöm, nýgift og verð-
andi foreldrar.
Nína mín, megi góður Guð
styrkja þig í þeirri miklu sorg sem
þú hefur þurft að ganga í gegnum
og megi hann gefa þér styrk til að
líta björtum augum á framtíðina.
Anna — Gísli
Ethel — Danni
„Dáinn, horfinn” — harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
En ég veit, að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
(Jónas Hallgrímsson)
í dag kveðjum við vin okkar og
skólafélaga, Garðar Pál Brands-
son, í hinsta sinn.
Ekkert okkar gat órað fyrir því
að þurfa að horfa á eftir félaga
okkar svo langt fyrir aldur fram.
Þegar ungur maður nýbyrjaður
lífsstarf sitt er hrifinn brott svo
snögglega, stöndum við eftir skiln-
ingsvana og spyrjum: Af hverju?
Þeirri spurningu fáum við aldrei
svarað.
Fáir skilja að óreyndu hve sam-
heldni verður mikil þegar fámenn-
ur hópur á samleið í svo löngu
námi. Garðar átti ríkan þátt í því
að skapa það góða andrúmsloft
sem ávallt ríkti innan hópsins.
Hann átti auðvelt með að sjá
skoplegu hliðar lífsins og gat gert
grín að sjálfum sér og öðrum. Þar
sem Garðar var sat gleðin í fyrir-
rúmi og enn hljómar hlátur hans í
hugum okkar.
Garðar útskrifaðist frá Tann-
læknadeild Háskóla íslands síð-
astliðinn vetur. Langt og strangt
nám var að baki. Framtíðin blasti
við. í vor kvæntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Nínu Krist-
ínu Gunnarsdóttur, og stofnuðu
þau heimili á Hellu í Rangárvalla-
sýslu. Þar starfræktu þau tann-
læknastofu og vann Nína við hlið
eiginmannsins.
Eiginkonu, dóttur, foreldrum og
öðrum aðstandendum vottum við
okkar dýpstu samúð.
Fríða, Guðrún, Jakob,
Rúnar og Ægir.
Drottinn gaf Garðar Pál sem
geisla í lífið okkar og drottinn tók
hann ungan í blóma lífsins til sín
aftur.
Minningar liðinna ára hrannast
upp í huga mér. Barnæskan með
gleði sinni og leikjum. Við fórum
bátsferðir um víða veröld, í hug-
arheimi okkar. Ævintýraferðirnar
í Öskjuhlíðinni. Hernaðarvígi
voru reist til varnar óvinum. Allt
var svo auðvelt og skemmtilegt.
Á unglingsárunum var það stolt
mitt að eiga hann fyrir góðan
frænda og fyrir góðan vin. Við
gengum til prests saman, fermd-
umst saman. Leiðir skildi um
tíma. Áhugamálin breyttust. En
núna síðustu árin vorum við farn-
ir að endurnýja og styrkja vin-
áttu- og frændsemisböndin, þegar
kallið kom. Ég þakka elsku frænda
mínum fyrir samverustundirnar
og bið honum velfarnaðar í nýjum
heimkynnum.
Elsku Nína Kristín. Það er mik-
ið á þig lagt. Orð mega sín lítils á
þessari stundu, en megi litla barn-
ið sem í vændum er gefa þér birt-
una og gleðina hans Gæja á ný.
Elsku Nína, Brandur og Elva
Dögg. Ykkur var mikið gefið að
eiga Gæja. Megi minningarnar
ætíð verma ykkur um ókomna
daga.
Guð gefi ykkur öllum styrk.
Heiða
Vorið í mannlífinu er tímabil f
ævi okkar allra. Þegar veröldin
sýnir á sér beztu hliðarnar og
framundan eru bjartari tímar.
Lokið er við að sá og gróðurinn
farinn að dafna. Garðar Páll
frændi minn féll frá í vori sinnar
tilveru.
f æsku átti ég mikið samneyti
við þennan frænda minn sem var
leikfélagi af beztu gerð. Lífsfjör
var hans aðall, sprækur, djarfur
og til í flest. Tæpast húsum hæfur
þegar bezt lét, glaðlyndur prakk-
ari sem sveiflaði sér í ljósakrónum
í 'Tarzanstíl. Hann var þeirrar
náttúru að hafa gaman af því að
kalla fram andköf og upphrópanir
sem frænkur láta gjarna frá sér
þegar eitthvað er brugðið út af
mynstrinu. Þá ljómaði andlit hans
í stríðnisglotti.
Þegar Gæi fullorðnaðist varð
hann alvörugefnari eins og geng-
ur. En það var grunnt á glaðværð-
+
Útför
VILBORGAR JÓHANNESDÓTTUR
fré Geirshlíð,
Langholtsvegi 2,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. sept. kl. 13.30. Bílferö
veröur frá Reykholti sama dag. Upplýsingar í síma 5121.
Börn og tengdabörn.
+
Ástkær eiginmaöur minn, faðir og bróöir,
SIGURDUR KRISTINSSON,
framkvæmdastjóri,
Garöaflöt 19, Garöbaa,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mlövikudaginn 5. septem-
ber kl. 13.30.
Halga Níelsdóttir,
Baldur Sigurósson,
Guðmundur Kristínsson, Kristel Pélsdóttir.
+
Útför
RÖGNVALDS SIGURDSSONAR,
vélstjóra
fré Norðfirði,
fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 5. sept. kl. 10.30 f.h.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Slysavarnafélag islands.
Freyja Jóhannsdóttir,
Björk Rögnvaldsdóttir.