Morgunblaðið - 05.09.1984, Blaðsíða 16
JL6_______________
Miklaholtehreppur:
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1984
Fólk átti fótum fjör
að launa er bíll brann
Borg í MiklaholUhreppi, 3. aeptember.
Með komu höfuðdagsins má segja
að hér hafi brugðið til betri tíðar
hvað veðurfar snertir. Eftir drunga-
lega vætudaga sem á undan gengu
er nú sól og blíða, menn og hérað
Ijóma af sól og sumaryl. Heyskap-
arhorfur eru nú betri en útlit var
fyrir, þótt það hey sem nú er verið að
heyja sé trénað þá er þó munur ef
verkun þess verður góð. Eflaust
verður víðast hvar mikill heyfengur,
en fóðurgildið verður misjafnt.
Nokkuð hefur borið á að kindur
hafi fundist afvelta, sérstaklega
þar sem fé hefur komið niður úr
fjalli og gengið á flóum. Nú á þess-
um blíðudögum hefur fé horfið
aftur til fjalls því þar er gróður
ágætur. Margar lautir sem ekki
fór snjór úr í fyrra eru nú grænar
og fé virðist sólgið í þennan gróð-
ur. Vonandi er að september gefi
okkur marga bjarta sólardaga.
Siðastliðinn laugardag varð það
óhapp hér á þjóðveginum hjá
Reyrhamri að eldur kom upp í bif-
reið sem er sendiferðabíll sem hef-
ur verið breytt og sett í hann sæti
og var hann nú fullur af farþeg-
um. Bíllinn brann algjörlega en
farþegar sluppu að mestu ómeidd-
ir. Mikil umferð hefur verið hér
undanfarna daga. Nýja brúin á
Grímsá hefur nú verið tekin í um-
ferð. Berjaspretta er afar lítil,
þrátt fyrir hlýtt sumar en sólarlít-
ið. Páll.
Morgunblaðið/ Einar Falur
Frá opnuninni. Ellert Eiríksson formaður Þroskahjálpar á Suóurnesjum í
ræðustól.
Keflavík:
Ragnarssel
opnað formlega
- nýtt dag- og skammtímavistunarheimili fyrir fatlaða
LAUGARDAGINN 1. september
var opnað formlega nýtt heimili
að Suðurvöllum 7 í Keflavík,
sem býður upp á dag- og
skammtímavistun fyrir fatlaða.
Þetta er 200 fermetra eininga-
hús og geta 5 manns dvalið í
skammtímavistun og 4—8 í dag-
vistun í einu. Boðið er upp á
skammtímavistun í mesta Jagi í
3 vikur í senn. Forstöðumaður
er Hjördís Árnadóttir.
Við hliðina á húsinu rekur
Þroskahjálp á Suðurnesjum
endurhæfingarstöð fyrir fatl-
aða og alla þá sem þurfa á
endurhæfingu að halda. Stöðin
er í samskonar húsi og var það
tekið í notkun í ársbyrjun
1982.
Hópur starfsmanna leikfélags Reykjavíkur í upphafi nýs leikárs.
Leikfélag Reykjavíkur:
Sýnir skopleik eftir Dario Fo
og dagbók Önnu Frank
Stefán Baldursson kynnti verkefni Leikfélagsins ásamt Jóni Hjartarsyni,
leikara, og Gfsla Rúnarí Jónssyni, sem leikstýrir skopleiknum „Félegt
fés“ eftir Dario Fo.
FYRSTA frumsýning Leikfélags
Reykjavíkur á nýju leikári verður í
lok september. Þá verður frum-
sýndur í Austurbæjarbíói skopleik-
urinn „Félegt Fés“ eftir Dario Fo.
Þýðandi leikritsins er Þórarinn
Eldjárn, en leikstjóri er Gísli Rún-
ar Jónsson. Efni leikritsins er á þá
leið að forstjóri Fiat-verksmiðj-
anna lendir í slysi og þarf að
græða á hann nýtt andlit. Fyrir
misskilning er grætt á hann andlit
eftir mynd af einum starfsmanna
hans og ganga þá um tveir menn
með sama andlitið. Eins og vænta
má leiðir þetta til mikils misskiln-
ings. Aðalsteinn Bergdal leikur
hlutverk þessara tveggja manna.
önnur frumsýning Leikfélags-
ins er á leikritinu „Onnu Frank“
eftir Frances Goodrich og Albert
Hackett. Leikritið er byggt á
dagbók gyðingastúlkunnar Onnu
Frank, sem dvaldist í felum
ásamt foreldrum sínum og fleira
fólki í tvö ár á geymslulofti,
vegna ofsókna nasista. Önnu
Frank leikur ung áhugaleikkona
frá Selfossi, Guðrún Krist-
mannsdóttir, en hún lék hlut-
verk Önnu Frank fyrir tveimur
árum á Selfossi. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson, en þýðing-
una gerði Sveinn Víkingur.
Tvö leikrit verða tekin upp frá
síðasta leikári, en það er Gísl,
eftir Brendan Behan, og Fjör-
eggið, eftir Svein Einarsson.
Sýningar á þessum verkum hefj-
ast á ný í október.
í desember frumsýnir Leikfé-
lagið nýtt bandarískt leikrit,
„Agnes og Almættið“, eftir John
Pielmeier. Leikritið fjallar um
nunnu sem hefur eignast barn i
klaustri, en það finnst svo látið.
Réttarlæknir er kvaddur á stað-
inn. Þetta verk er að sögn Stef-
áns Baldurssonar spennandi og
fjallar meðal annars um þá
spurningu hvort trú og skynsemi
séu ósættanlegar andstæður.
í janúarlok verður frumsýnd-
ur gamanleikurinn „Draumur á
Jónsmessunótt" eftir William
Shakespeare. Leikritið verður
sýnt í samvinnu við Nemenda-
leikhús Leiklistarskóla íslands.
Þetta er í fyrsta skipti sem leik-
listarskólinn hefur samvinnu við
Leikfélagið. Þýðingu leiksins
gerði Helgi Hálfdanarson, leik-
stjóri verður Stefán Baldursson.
Síðasta frumsýning Leikfé-
lagsins í ár verður á íslensku
leikriti. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvaða leikrit það verður,
en nokkrir höfundar koma til
greina.
Margir ungir leikarar verða í
sýningum félagsins í vetur og
má sem dæmi nefna að á fyrstu
2 frumsýningum leika 13 ungir
leikarar sem ekki eru á föstum
samningi hjá Leikfélaginu. Stef-
án Baldursson, leikhússtjóri,
sagði að leikhúsið hefði eftir
megni reynt að fá unga leikara
til starfa, og lýsti ánægju sinni
með það hversu margir ungir
leikarar tækju þátt í sýningum
nú i ár. Einnig kvað hann spenn-
andi að vinna núna með leiklist-
arskólanum. Tveir leikarar bæt-
ast nú við á árssamning Leikfé-
lagsins, þau Bríet Héðinsdóttir
og Sigurður Karlsson.
Eins og áður eru seld áskrift-
arkort á sýningar Leikfélagsins.
Áskriftarkort sem gildir á 4 sýn-
ingar, þ.e. þær sýningar sem
sýndar verða I Iðnó, og kostar
kortið 900 krónur. Auk þess geta
menn keypt afsláttarkort á sýn-
ingar í Austurbæjarbíói sem
kostar 200 krónur. Almennt
miðaverð er 250 krónur.
Að lokinni söng-
för Mótettukórsins
- eftir sr. Kari
Sigurbjömsson
Mótettukór Hallgrímskirkju er
nýkominn heim úr tveggja vikna
söngför um Þýskaland. Við hjónin
nutum þeirrar ánægju að fylgja
kórnum I förinni og var það
ógleymanleg reynsla, sannkallað
ævintýri frá upphafi til enda. Ekki
það að leiðin lá um fríðar lendur
og frjósöm héruð, fornar borgir og
sögufræga staði, slíkt er jafnan
ævintýri líkast en ekki I frásögur
færandi á vorum dögum. En það
var ævintýri að eiga samfélag við
hið unga og lífsglaða fólk, sem
kórinn skipar, og njóta þess, sem
það hafði fram að færa í tónlist
sinni, og þá ekki síst að sjá og
reyna hve það var landi sínu, þjóð
og kirkju til mikils sóma. Mótettu-
kór Hallgrímskirkju, sem aðeins
er 2 ára gamall, og stjórnanda
hans, Herði Askelssyni, organista,
varð þessi fyrsta söngför kórsins
sannkölluð sigurför. Ég vildi að ég
ætti orð til að lýsa þeim viðtökum,
sem þau hlutu hvarvetna: Undrun
og hrifning áheyrenda og einróma
lof, jafnt í smábæjum og stórborg-
um Þýskalands, þar sem söngur og
tónlist á sér aldagamla hefð og
gullna sögu, og áheyrendur og
listgagnrýnendur blaðanna kröfu-
harðir mjög.
Alls hélt kórinn átta tónleika. í
Speyer, Heidelberg, Werdohl,
Dortmund, Kamen-Methler, Duss-
eldorf (2 tónleika) og í Köln. Á
efnisskrá tónleikanna var kirkju-
tónlist frá ýmsum tímum, íslensk
og erlend. Mikla athygli og hrifn-
ingu vakti íslenska tónlistin, göm-
ul og ný, sérstaklega verk Þorkels
Sigurbjörnssonar, 3 kvöldbænir
Hallgríms Péturssonar, sem sam-
ið var sérstaklega fyrir Mótettu-
kórinn og Margréti Bóasdóttur,
söngkonu, sem fylgdi kórnum í
ferðinni, og nýtt verk Harðar Ás-
kelssonar við texta úr 84. Davíðs-
sálmi, sérstaklega áhrifamikið og
fagurt verk. Tærar og ferskar og
fagrar raddir kórs og einsöngvara,
sem hljómuðu með undraverðri
samstillingu og blæbrigðaríkri
túlkun, létu engan ósnortinn, enda
ætlaði fagnaðarlátum áheyrenda
aldrei að linna, og var kórinn
krafinn um mörg aukalög, og oft
hélt kórinn áfram að syngja fyrir
utan kirkjurnar Islensk þjóðlög
við mikla hrifningu tónleikagesta
og vegfarenda, sem dreif að hvað-
anæva.
Á flestum tónleikanna söng
Margrét Bóasdóttir einnig ein-
söng, lög eftir Jón Leifs og Pál
Isólfsson og Kjartan Óskarsson,
klarinettuleikari, sem einnig
syngur i kórnum, lék á sumum
tónleikanna einleiksverk eftir
Messiaen. Á síðustu tónleikunum
kom svo Marteinn H. Friðriksson,
dómorganisti, til liðs og lék undir
á orgel með kórnum Festival The
Deum eftir Britten. Einnig lék
hann í Dússeldorf einleik á orgel
Chaconnu Páls ísólfssonar sem
hljómaði I allri sinni tign á frá-
bæru orgeli Nezude-kirkjunnar. Á
þeim sömu tónleikum var frum-
flutt tríom eftir Þorkel Sigur-
björnsson fyrir orgel, selló og