Morgunblaðið - 05.09.1984, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1984
43
Trillur grásleppukarlanna voru
skoöaðar.
Og oftar en ekki barst Mósi,
litla triilan hans afa, í tal. Frændi
sýndi okkur hvar Mósi, þetta
mikla skip í hugum okkar, haföi
komið drekkhlaðinn að landi.
Þetta voru spennandi stundir með
sérlega barngóðum manni.
Á eftir var svo komið við í ein-
hverri gotterísversluninni. Oftast
hjá honum Árna á horninu. Þar
var úr nógu sælgæti að moða.
Súkkulaði og ísinn var vinsælast.
Og fyrr en varði voru andlit orðin
kámug. Það gerði lítið til. Það
bara tilheyrði.
Tæplegast getur frændi hafa átt
sér nokkurn óvildarmann. Létt-
leikinn var fas hans. Það var stutt
í brosið. Hann var góður maður í
orösins fyllstu merkingu. Hjáip-
samur með afbrigðum og látiaus.
Lét fara lítið fyrir sér og lifði ein-
földu og skipulegu lífi. Barst ekki
mikið á og tróð engum um tær.
Hann var óvenju vel gerður
drengskaparmaður.
Lengst af vann hann á flugvell-
inum. Hóf þar störf í Bretavinn-
unni svokölluðu árið 1941. Flug-
vöilurinn átti síðan hug hans.
Hann helgaði honum starfskrafta
sína. Þar liggja eftir hann ófá
handtökin, og þar eyddi hann líka
síðustu stundum lífs síns.
Reiðhjólið var ætíð fararskjóti
frænda. Hann fór á því um allt
hér innanbæjar. Rólegan og án
asa mátti sjá hann hjóla eftir
vinnu og reka erindi sín.
Kannski var það líka táknrænt
er faðir okkar fór niður á flugvöll
í lok þess dags er frændi dó. Hann
leit inn á verkstæðið sem þar er.
Ekki var nokkurn mann að sjá.
Allir farnir. Vinnudegi var lokið.
Eitt var þó á sínum stað. Gam-
alt svart reiðhjól, sem hafði komið
þar að venju fyrr um morguninn.
Þarna stóð það látlaust og lét fara
lítið fyrir sér. Beið eftir eiganda
sínum. Tæplegast hefur það gert
sér grein fyrir, að það hafði farið
sína hinstu ferð út á Flugvöll.
Og nú er frændi kvaddur. Hann
hefur lagt af stað í þá ferð sem
bíður okkar allra. Við systkinin
þökkum þær samverustundir sem
við fengum notið með honum. Við
bjóðum góðan Guð að biessa
minningu hans. Þessa glaðlega og
óvenju vel gerða drengskapar-
manns.
Dúna, Gurrý, Róbert,
Jonni og Anna Rós.
Hérna lágu léttu sporin
Löngi horfin sama veg
Sumarbliðu sólskinsvorin
Saman gengu þeir og ég
Vinir mínir allir allir
eins og skuggar liðu þeir
Inn í rökkur hljóðar hallir
Hallir dauðans einn og tveir
Einn og tveir.
(Guðm. Guðmundsson)
Þessi táknrænu orð skólaskálds-
ins verður mín hugieiðing nú þeg-
ar einn af mínum gömlu kunningj-
um frá björtum vordögum bernsk-
unnar suður á Grímsstaðaholti,
Hannes Bjarnason, er héðan
snögglega burt kallaður. Við sem
eftir lifum stöndum hljóð og hug-
leiðingar frá liðnum dögum og ár-
um sækja okkur heim á minn-
ingarstund, en saknaöarkenndin
verður eingöngu bundin við þá
jákvæðu eiginleika sem hinn
burtfarni átti til i sínu huglífi. Sá
sem reynir á lævísan hátt að
stækka það sem minnstu máli
skiptir, myndar enga saknaðar-
kennd og hann skilur aðeins eftir
sig óheilindi sem aðrir á hans
bylgjulengd hafa tileinkað sér og
leggja blessun sína yfir. Það átti
ekki við um þann mann sem nú
hefur kvatt. Hann vék því til hlið-
ar sem var tilefnislítið umræðu-
efni en hafði sem viðmiðun sitt
eigið jákvæða mat á þeim sem
hann taiaöi við í hvert sinn. Fals-
laus framkoma og skilningsrík af-
staða voru hans eiginleikar. Lífs-
ferill Hannesar Bjarnasonar var
þess vegna á hinn rétta veg,
sjáifsbjargarviðleitni og vinna þar
sem engin sérstök tilslökun eða
breyting kom til greina og eitt er
víst að betri vinnufélaga en hann
mun vera erfitt að finna. Af fjöi-
skyldunni sem bjó á Fálkagötu 15
eru nú tveir bræður eftirlifandi.
Ég vil enda þessa stuttu hugleið-
ingu með því að votta þeim og öðr-
um aðstandendum, samúð mína og
hluttekningu.
Þorgeir Kr. Magnússon
ESAB ESAB ESAB
Réttur
rafsuóuvír
Eitt mikilvægasta atriöi varöandi rafsuöu er aö velja rétta gerð
rafsuðuvírs. Til þess aö hámarksgæöi veröi á suöu er nauðsyn-
legt að vírinn sé valinn með tilliti til allra aðstæöna
Meö þessa staðreynd í huga eigum viö til á lager mikið úrval af
rafsuðuvír auk tækja og fylgihluta. Tæknimenn okkar veita
fúslega allar upplýsingar og eru þér innan handar um valið.
Hafið samband við söludeild.
FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR G/EDUM OG GÓÐRI ÞJÓNUSTU
HÉÐINN
VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260
Leir og aftur
leir eða gips
HÖFÐABAKKA 9 — REYKJAVÍK
SlMI 685411
Mesta úrval
fyrir skólafólk
Glit hefur fyrirliggjandi
mikið úrval af gipsi,
hvítu og rauðu, mjúkum
leir, jarðleir og steinleir,
postulínsleir og leir sem
ekki þarf að brenna.
Þórshamar
Byrjendanámskeið eru að hefjast í Shotokan karate.
Æft er tvisvar til þrisvar í viku, mánudaga — miöviku-
daga og föstudaga.
Frá 7 ára
Yngri flokkar samanstanda af krökkum frá 7 ára aldri
og æft er seinnipart dags.
Fyrirtæki
Bjóðum nú hópum frá 5 manns umtalsverðan afslátt.
Félagar
Eldri nemendur velkomnir, nú þýðir enga leti lengur.
Karate er hressandi íþrótt fyrir kvenfólk og karla á
öllum aldri.
Æft er að Brautarholti 18, 4. hæö.
Innritun og uppl. í símum 22225 og 16037.
V______________ -4
Til að rýma fyrir nýjum birgðum seljum við næstu daga mass-
ívar fulningahurðir og forstykki á innréttingar og skápa meö
Lerki hf.
Skeifan 13,108 Reykjavík
Sími: 82877