Morgunblaðið - 05.09.1984, Qupperneq 45
..'3rí AaaMd'iidG .c HUuAUUiiIVGIM ,GIQAJ8KUdH
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1984
45
Ljóam. Mbl./RAX
Frá fundinum sem haldinn var med blaðamönnum til kvnningar i dagskri
Sovéskra daga.
Sovéskir dagar MÍR nú
haldnir í níunda sinn
trompið í sögulegri röð veitinga-
staða sem lyftu borgarbúum upp
úr fásinni í matargerð, endurvakti
gamlar hefðir og varð því hvati að
þeirri ánægjulegu þróun sem átt
hefur sér stað á síðustu árum. Sig-
urður var, ásamt skólafélögum og
fleirum, einn af stofnendum raf-
verktakafyrirtækisins Rönning
hf., seinna Ljósvirki hf., árið 1961
og í stjórn þess frá upphafi. Hann
starfaði í Oddfellowreglunni um
árabil og var stofnfélagi í
Lionsklúbbi Garða- og Bessa-
staðahrepps, formaður hans ann-
að starfsár klúbbsins og ætíð virk-
ur félagi. í bókasafnsnefnd Garða-
bæjar var Sigurður undanfarin ár.
Utan þessa voru hugðarefni Sig-
urðar þrjú, laxveiði, ættfræði og
bókasöfnun, sem var honum
ástríða. Laxveiði stundaði hann i
Hvítá þar sem Brúará rennur í
hana í landi Hamra og hafði reist
sér þar veiðihús ásamt bróður sín-
um og vini þeirra Bergi Jónssyni.
Ættfræðigrúsk Sigurðar þekkti ég
ekki mikið þótt hann ræddi það
við mig endrum og eins en hann
hafði mikinn áhuga á eigin upp-
runa og kannaði ættir sem að hon-
um stóðu um árabil.
Bókasöfnunina verður að telja
eitt mesta afrek Sigurðar. Bóka-
safnið telur þúsundir binda og
munu ekki mörg slík betur búin á
landi hér. Bókasöfnunin hófst
strax um 15 ára aldurinn og fyrstu
árin var farið í bókabúðir á hverj-
um föstudegi að lokinni útborgun
og oft lítið eftir í umslaginu þegar
heim var gengið. í fyrstu beindist
áhuginn nær eingöngu að þjóðsög-
um og öðrum þjóðlegum fræðum
en seinna víkkaði áhugasviðið og
ættfræðirit, ævisögur, leikrit,
biblíur og sálmabækur bættust við
ásamt ýmsu öðru. Sigurður hafði
t.d. náð að safna öllum leikritum
sem gefin hafa verið út á íslandi.
Ekki nægði honum að safna bók-
um heldur lærði hann einnig að
binda þær inn hjá þeim mæta
meistara, Helga Tryggvasyni, í
Handíðaskólanum á árunum um
og fyrir 1960. Árangurinn lofar
báða, nemendann og meistarann.
Að sjálfsögðu las hann einnig
bækur sínar eins og góðum bóka-
safnara sæmir.
Sigurður lést aðfaranótt þriðju-
dagsins 28. ágúst. Hafði hann
kennt nokkurs lasleika tveim dög-
um áður en gert lítið úr. Eigi má
þó sköpum renna því snögglega
elnaði sóttin og var hann fluttur á
gjörgæsludeild Landspítalans
daginn áður en hann lést og varð
ekki bjargað.
Helga, kona Sigurðar, var í
sjúkrahúsi er hann lést. Hefur
þetta því verið erfið stund hjá
henni og ekki síður syninum
Baldri.
Óska ég og fjölskylda mín Helgu
góðs bata og þeim báðum blessun-
ar í framtíðinni. Þær óskir send-
um við einnig Guðmundi bróður
Sigurðar og fjölskyldu hans en
þeir bræður voru einkar samrýnd-
ir. Þessar óskir fylgja einnig frá
öllum bekkjarsystkinunum.
Hvíli minn gamli bekkjarfélagi
og vinur í friði.
Helgi Ólafsson
Kveðja frá Lionsklúbbi Garða-
og Bessastaðahrepps
Sigurður Kristinsson fæddist
13. ágúst 1926. Hann var sonur
hjónanna Guðmundu Kristins-
dóttur og Kristins Filippussonar,
en Kristinn var starfsmaður Slát-
urfélags Suðurlands í yfír 50 ár.
Auk Sigurðar eignuðust þau hjón
Guðmund, sem nú er starfsmaður
Plastos hf., en hann rak lengi veit-
ingastaðinn Tröð.
Sigurður kvæntist Helgu Niels-
dóttur og áttu þau einn son, Bald-
ur, sem nú er 17 ára. Þau Helga og
Sigurður bjuggu á Garðaflöt 19,
Garðabæ. Sigurður var fram-
kvæmdastjóri Byggingarfélags
verkamanna. Hann lézt 28. ágúst
sl.
Vorið 1972 komu saman tveir
tugir karlmanna úr Garðabæ og
Bessastaðahreppi. Tilgangur
fundarins var stofnun Lions-
klúbbs á svæðinu. Einn þessara
manna var Sigurður Kristinsson.
Allt frá þeirri stundu var Sig-
urður á meðal áhugasömustu fé-
laganna. Hann lét sig aldrei vanta
á fund, og hann var ávallt reiðu-
búinn til að taka að sér þau störf
fyrir klúbbinn, sem hann var beð-
inn um.
Hann var formaður klúbbsins
tímabilið 1973 til 1974. Hann átti
sæti í ótal nefndum á vegum
klúbbsins og var formaður margra
þeirra. Eitt af meiriháttar verk-
efnum klúbbsins var að fullgera
við sundlaugina tvo hitapotta og
afhenda þá bæjaryfirvöldum
Garðabæjar til eignar. Sigurður
var meðan á því verki stóð for-
maður Sundlaugarnefndar.
Á síðastliðnu ári var okkur fé-
tögunum Ijóst, að eftir 12 ára starf
klúbbsins var hætta á því að
eitthvað af sögu klúbbsins gæti
farið forgörðum, þar sem fundar-
gerðir eru misjafnar og seinlegt að
draga fram staðreyndir úr margra
ára skráningu fundargerða. Sögu-
leg atriði þyrfti því að skrá í
skipulega spjaldskrá.
Engum var betur treystandi til
að framkvæma það verk en Sig-
urði. Þegar klúbburinn fór þess á
leit við hann að taka að sér þetta
verk, var það jafn sjálfsagt og allt
annað sem farið var fram á. Fyrir-
fram höfðum við ekki gert okkur
grein fyrir því, hve þetta var um-
fangsmikið. En fljótlega varð öll-
um Ijóst, hve geysileg vinna það
var, sem hann lagði af mörkum
við að skrásetja þetta á þann
óskeikula hátt sem honum einum
var lagið. Hann aflaði þeirra upp-
lýsinga, sem vantaði í fundargerð-
ir, með athugun á öðrum gögnum
og eftirgrennslunum hjá félögun-
um. Það skipti hann engu hver
fyrirhöfnin var, öll skráning varð
að vera nákvæm og rétt.
í tiu ár höfum við í sameiningu
gert upp reikninga klúbbsins.
Fimm dögum áður en hann kvaddi
þennan heim sátum við kvöld-
stund við að ganga frá reikningun-
um. Alltaf vann hann þetta starf
með sömu nákvæmninni og alltaf
gladdist hann jafn mikið yfir því
sem klúbbnum hafði tekizt að
framkvæma. Að vinna með Sig-
urði þetta árvissa starf var orðið
mér tilhlökkunarefni.
Starf umdæmisstjóra féll í hlut
Lionsklúbbs Garða- og Bessa-
staðahrepps á þessu ári. Það var
sjálfgert, að Sigurður Kristinsson
tók sæti í umdæmisstjórn. Hann
var beðinn að taka að sér starf
kynningarstjóra umdæmisins og
eins og jafnan áður, þá var það
auðsótt mál.
Þegar við höfðum lokið við gerð
reikninga klúbbsins þetta um-
rædda kvöld, þá gengum við frá
bréfi kynningarstjóra til allra
formanna í umdæminu. Eftir það
sátum við yfir kaffibolla og Sig-
urður var að segja mér, hvað hann
hefði um sumarið verið að hug-
leiða í sambandi við starf sitt sem
kynningarstjóri.
Við kvöddumst og næsta mánu-
dagskvöld var haldinn fyrsti fund-
ur í umdæmisstjórn. Þegar ég
lagði fundargögn á borðið, þá
ósjálfrátt lagði ég möppu Sigurðar
á þann sama stað við stjórnar-
borðið og hann settist alltaf við á
fundunum í Garðaholti. Þegar
fundurinn hófst var sæti Sigurðar
autt. Mér var órótt. Það hafði
aldrei áður hent, að sæti Sigurðar
væri autt og hann hefði þá ekki
boðað forföll. Mér varð oftar en
einu sinni litið á auða stólinn og
var í huganum að reyna að finna
skýringu. Svarið fékk ég morgun-
inn eftir, þegar Guðmundur bróðir
hans hringdi í mig og tilkynnti
mér lát Sigurðar.
Sigurður Kristinsson var góður
félagi í Lionsklúbbi Garða- og
Bessastaðahrepps. Enginn félagi
hefur mætt eins vel á fundum
klúbbsins frá upphafi. Hann var
sérstakur félagi. Hann settist allt-
af í sama sætið á fundum og eng-
um datt í hug að brjóta þá hefð
með því að setjast í sætið hans.
Þau forréttindi hafði hann einn
allra félaganna og þau höfðu kom-
izt á vegna þeirrar virðingar, sem
hann naut. Sessunautur hans
oftast á fundum var Ketill Jens-
son.
Sigurður hafði ákaflega létt
skap. Hann átti auðvelt með að
koma fólki til að brosa með
hnittnum athugasemdum og til-
svörum. Bros hans var smitandi,
allt andlitið hló. Hann kom öllum
í gott skap.
Fundirnir í klúbbnum okkar
verða ekki þeir sömu eftir að Sig-
urður er horfinn. Til þess mótaði
hann fundina allt of mikið. Við
félagarnir í Lionsklúbbi Garða- og
Bessastaðahrepps þökkum Sigurði
það mikla starf, sem hann lagði af
mörkum í klúbbnum okkar. Fyrst
og fremst viljum við þakka fyrir
það, sem hann veitti okkur sem
félagi með sínu létta skapi og þeim
óeigingjarna áhuga á öllu, sem
reynt var að framkvæma.
AUir félagarnir í Lionsklúbbi
Garða- og Bessastaðahrepps og
eiginkonur þeirra senda Helgu og
Baldri innilegustu samúðarkveðj-
ur á þessari sorgarstund. Jafn-
framt viljum við votta samúð
okkar Guðmundi, klúbbfélaga
okkar, bróður Sigurðar og eigin-
konu hans Kristínu Pálsdóttur.
Leit var að samrýndari bræðrum
en þeim Sigurði og Guðmundi.
Megi góður guð styrkja ykkur í
sorginni. Eftir mun lifa minningin
um góðan dreng, sem öllum varð
til gleði að umgangast.. Blessuð sé
minning Sigurðar Kristinssonar.
Þórður H. Jónsson.
Sovéskir dagar MÍR, Menningar-
tengsla íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, voru formlega settir í félags-
heimilinu Hlégarði í Mosfellssveit
sl. mánudag og standa þeir yfir til
10. september.
Sovéskir dagar eru nú haldnir í
níunda sinn en þeir eru eru hverju
sinni helgaðir sérstaklega einu
hinna 15 lýðvelda Sovétríkjanna.
Að þessu sinni er það lýðveldið
Azerbajdsjan og verður lögð
áhersla á að kynna með ýmsum
hætti á tónleikum og sýningum
þjðmennningu og þjóðlíf í þessu
fjarlæga Kákasuslýðveldi. Dag-
skrá Sovésku daganna var kynnt
fyrir blaðamönnum fyrir stuttu.
Flestir í hópi gestanna frá Az-
erbajdsjan, sem til íslands koma,
eru félagar í Þjóðdansa- og söng-
flokknum nKönúl“ í Bakú, höfuð-
borg lýðveldisins. Auk þjóðdansa
og þjóðlaga frá Azerbajdsjan mun
flokkurinn sýna dansa frá öðrum
lýðveldum Sovétríkjanna og flytja
tónlist frá öðrum löndum. Fyrir
hópnum frá Azerbajdsjan verður
Nabí Khazrí , skáld og formaður
vináttufélagsins þar í landi.
Margvíslegt sýningarefni verð-
ur sett upp í húsakynnum MÍR að
Vatnsstíg 10 í tilefni Sovésku dag-
anna. Sýningin verður opnuð laug-
ardaginn 8. september og verður
opin út mánuðinn, á virkum dög-
um kl. 17 til 19 og um helgar kl. 14
til 19. Dagskrá, sem að listafólkið
hefur undirbúið fyrir Islandsferð-
ina, verður flutt á eftirtöldum
stöðum: Hellissandi 4. september,
Stykkishólmi 5., Búðardal 6.,
Varmalandi í Borgarfirði 7. og í
Reykjavík (Þjóðleikhúsinu) laug-
ardaginn 8. september.
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
m. í
Sérverslun
i meira en hálfa öld
.. Reióhjólaverslunin
' 0RIMIIMN
Spitalastíg 8 simar 14661 - 26888
ÆÐISLEG
BMX
(Torfæruhjól) frá
Winther
í Danmörku.
Lokað í dag frá kl.
13—16 vegna
jarðarfarar Sigurðar Kristinssonar, framkvæmda-
stjóra, Garöarflöt 19, Garöabæ.
Bókasafn Garðabæjar.